Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Snorri Dalmann Amarson íslenskur hnefaleikari í Svíþjóð:
Draumurinn er
að komast til
Bandaríkjanna
- ætlar aö sækja um sænskan ríkisborgararétt
Snorri Dalmann Arnarson, tví-
tugur tslendingur sem á sunnudag-
inn varð suðursænskur meistari í
67 kílógramma flokki í hnefaleik-
um, sagði í samtali við DV í gær að
hann ætlaði að sækja um sænskan
ríkisborgararétt. Hann sagðist ætla
að gera þetta til þess að geta keppt á
alþjóðlegum hnefaleikamótum. Sem
íslenskur ríkisborgari getur hann
það ekki þar sem hnefaleikar eru
bannaðir á íslandi. Snorri er 63 kíló
að þyngd og 1,69 sentímetrar á hæð
og mun því keppa í léttari þyngdar-
flokkunum.
„Ég var fimmtán ára þegar ég
byrjaði að æfa hnefaleika og hef æft
þá óslitið síðan en enga aðra
íþróttagrein. Nú er draumurinn sá
að komast til Bandaríkjanna til æf-
inga og keppni en ég veit ekki enn
þá hvort það tekst,“ sagði Snorri í
samtali við DV.
Snorri Dalmann Arnarson, s-sænsk-
ur meistari í hnefaleikum.
Hann sagðist hafa tekið þátt í
sænska meistaramótinu sem jafn-
framt var úrtökumót fyrir næstu
ólympíuleika.
„Ég hafnaði þar í 3. sæti en að-
eins einn úr hverjum þyngdarílokki
kemst á ólympíuleikana. Ég var dá-
lítið óheppinn, fékk slæmsku í mag-
ann meðan á keppninni stóð. Ég
borðaði eitthvað sem fór svona með
mig þannig að ég er búinn að missa
af þessum ólympíuleikum. En ég er
ungur og það eru ólympíuleikar aft-
ur eftir 4 ár. Það gekk svo betur hjá
mér á suðursænska meistaramótinu
á sunnudaginn. Þá tókst mér að
sigra. í fyrra varð ég í 2. á þessu
sama móti,“ sagði Snorri.
Hann sagði að draumurinn væri
að fá að taka þátt í Evrópu- og
heimsmeistarakeppninni og að því
stefndi hann ótrauður.
-S.dór
íslendingar setja
heimsmet í drykkju
íslendingar hafa sett heimsmet í
drykkju á Guinnes-bjór. Fyrstu
tvær til þrjár vikurnar eftir að
írska kráin The Dubliner var opnuð
1. desember síðastliðinn í Reykjavík
teyguðu gestir staðarins 5 þúsund
lítra af hinum fræga miði. Reynsla
ölgerðarinnar af viðskiptum við
aðrar krár sýndi að skammturinn
átti að duga í tvo mánuði.
„Þeir ætluðu ekki að trúa þessu
hjá ölgerðinni. Þetta er heimsmet
miðað viö höfðatölu. Það er ekki
spurning. Viö fengum 10 prósent af
þjóðinni i heimsókn fyrsta mánuð-
inn á stað sem tók 100 manns. Það
var ekki fyrr en á Þorláksmessu
sem við stækkuðum hann þannig
að pláss varö fyrir 100 i viðbót," seg-
ir Bjarni Ómar Guðmundsson, einn
eigenda kráarinnar. Hann segir að-
eins hafa dregið úr þorsta íslend-
inga í janúar og febrúar. Ástæðuna
fyrir vinsældum Guinnes-bjórsins
telur Bjarni Ómar meðal annars
vera þá að tugir þúsunda íslendinga
hafi kynnst honum í írlandsferðum
undanfarin ár.
-IBS
Ife4/
/
Það hefur vakið athygli erlendra fjölmiðla að íslendingar drukku 5 þúsund
lítra af Guinnesbjór á tveimur til þremur vikum í desember.
Forvarnardagar í Fellunum:
Menning og listir sem
tengjast fíkniefnum
„Verið er að beina athygli nem-
enda að forvörnum með þessari
þemaviku. Hjá okkur eru fimmtán
svokallaðar smiðjur í gangi og af-
raksturinn verður sýndur á fostu-
daginn," segir Arna Kristjánsdóttir,
starfsmaður Fellahellis.
Forvarnardagar standa yfir þessa
vikuna í Fellaskóla og Fellahelli.
Þátttakendur eru nemendur Fella-
skóla. Við undirbúning forvarnar-
vikunnar var leitað eftir hugmynd-
um frá nemendum sjálfum og dag-
skráin unnin út frá þeim. Meðal
þess sem nemendur vinna við erv
leiklist, dans, leirlist, slagorð, ljós-
myndun og margt fleira sem allt
tengist fíkniefnum.
Á miðvikudag verður fræðsludag-
ur en þá verða haldnir ýmiss konar
fyrirlestrar sem tengjast fikniefna-
neyslu. Á fimmtudag geta nemend-
ur valið sér skemmtun eða íþrótt. Á
fostudag verður afrakstur vikunnar
sýndur gestum og gangandi.
-em
„Ef tjónið verður ekki bætt ætla-ég að fylgja málinu eftir hjá lögreglunni og
fá mér lögfræðing til að reyna að fá það til baka sem ég tel mig eiga rétt á,“
segir Þórarinn Hávarsson. Dv-mynd Emil
Sorphreinsunarmenn á Eskifirði fleygðu vinnugalla sjómanns
Tel mig eiga rett á
að fá tjónið bætt
- segir Þórarinn Hávarsson sjómaður
Eg hélt að konan mín hefði tekið
svörtu pokana sem snyrtilega var
bundið fyrir og hún hélt að ég hefði
tekið þá. En svo kom bara í ljós að
þeir voru hvergi og allt dótið mitt,
að verðmæti um 70 þúsund krónur,
því týnt,“ segir Þórarinn Hávars-
son, sjómaður á Eskifirði.
Þórarni brá heldur betur í brún
þegar hann komst að því að sorp-
hreinsunarmenn höfðu tekið pok-
ana hans og grafið í jörðu eins og
hvert annað rusl en í þeim var heil-
mikið dót sem hann hafði tekið með
sér af sjónum, svo sem 2 flotgallar,
pollagalli, stígvél, peysur, húfur,
sæng og koddi.
„Ég kom heim um klukkan 8 til-
tekinn morgun, var að flýta mér í
bæinn og skildi 2 svarta poka eftir
við húshornið. Svo var það ekki fyrr
en tveimur dögum síðar að mig vant-
aði stígvélin mín og fór að leita að
þeim. Þegar í ljós kom að hvorugt
okkar hafði tekið pokana inn kveikt-
um við á perunni," segir Þórarinn.
Þórarinn segist hafa fengið þær
upplýsingar að það svaraði ekki
kostnaði að grafa á ruslasvæðinu og
leita að dótinu en öllu rusli fyrir
Eskifjörð og Norðfjörð er komið fyr-
ir á sama svæði í Eskifirði. Þórar-
inn segir að ekki sé við neinn
ákveðinn aðila að sakast vegna
þessa en hann hafi þó ákveðið að
gefa lögreglunni skýrslu um málið.
„Þetta var óviljaverk .en ég vil
samt fá þetta bætt því þetta voru
talsverð verðmæti fyrir mig. Bæjar-
stjórinn hefur sagt að bærinn hafi
ekkert með þetta að gera, þetta sé
alfarið mál þess verktaka sém sér
um sorphreinsunina. Fái ég eitt-
hvað af þessu tjóni bætt verði það
aðeins að litlum hluta þar sem um
notað dót hafi verið að ræða. En þar
sem það hafi verið í svörtum pokum
og of nálægt ruslatunnunum sé lítil
von á því að ég fái yfirhöfuð eitt-
hvað tilbaka."
Málið var lítillega rætt á bæjar-
ráðsfundi á mánudag en ekki þótti
ástæða til að fylgja því frekar eftir.
Hjá Sorpu fengust þau svör að sorp-
hreinsunarmönnum væri ekki
uppálagt að taka aukapoka, því
væri það á ábyrgð viðkomandi að
skilja pokana eftir, hvort sem það er
við ruslatunnur eða annars staðar.
„Ef tjónið verður ekki bætt ætla
ég að fylgja málinu eftir hjá lögregl-
unni og fá mér lögfræðing til að
reyna að fá það til baka sem ég tel-
mig eiga rétt á,“ segir Þórarinn.
Snjóbretti stolið af Atla Má Sigurðssyni:
Fékk peninga að
gjöf frá Flateyri
„Ég hef ekkert heyrt af snjóbrettinu
sem var stolið en þaö gerðist í síðustu
viku að maður á Flateyri lét mömmu
fá peninga til að kaupa nýtt,“ segir
Atli Már Sigurðsson, 15 ára unglingur
frá Flateyri.
Hann varð fyrir því skömmu eftir
áramótin að nýju snjóbretti var stolið
frá honum i Bláfjöllum. Brettiö skildi
Atli Már eftir fyrir utan kaffistofuna
þar og svo var það horfið þegar hann
kom út aftur. Nýtt bretti kostar 35
þúsund' krónur.
„Ég ætla að kaupa nýtt um leið og
ný sending er komin í búðina," sagði
Atli Már.
Hann býr nú í Reykjavík, eftir áö
hafa misst fóður sinn og bróöur í snjó-
flóðinu á Flateyri i haust. Hann fór á
sjóinn um áramótin til vinna fyrir
brettinu en átti nú enga peninga tÚ að
eignast nýtt, enda í skóla. -GK