Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
7
Kvennalistinn:
Skuldir eru
óverulegar
-segir framkvæmdastýran
Kvennalistinn í Reykjavík eyddi
um 11 milljónum króna í kosninga-
baráttuna fyrir alþingiskosningarn-
ar vorið 1995, þar af voru fimm
milljónir úr svokölluðum angasjóði.
Til viðbótar fóru 4,7 milljónir króna
í styrki til anganna úti á landi.
Skuldir Kvennalistans voru óveru-
legar, eða tæpar 300 þúsund krónur
í ógreidd laun og fleira. Þetta kem-
ur fram hjá Áslaugu Thorlacius,
framkvæmdastýru Kvennalistans.
Reikningsár Kvennalistans stóð
frá 1. október 1994 til 31. ágúst 1995.
Á þessu tímabili hafði Kvennalist-
inn 9,8 milljónir króna í útgáfustyrk
og 2,5 milljónir i sérfræðiaðstoð frá
Alþingi auk 5 milljóna sem höfðu
safnast í angasjóð. Aðrar tekjur og
styrkir námu 850 þúsundum króna.
Áslaug segir að Kvennalistinn hafi
átt tveggja milljóna króna rekstrar-
afgang í lok tímabilsins.
Starfsárið 1993-1994 hafði
Kvennalistinn 9,8 milljónir í blaða-
styrk og 2,9 milljónir í sérfræðiað-
stoð. Kvennalistinn veitti 2,3 millj-
ónir í styrk til anganna úti á landi
og eyddi ríflega 1,2 milljónum króna
í kosningabaráttuna vegna borgar-
stjórnarkosninganna. Skuldir list-
ans námu þá aðeins um 100 þúsund
krónum, að sögn Áslaugar.
Á yfirstandandi ári er um þó
nokkum tekjusamdrátt að ræða hjá
Kvennalistanum vegna útkomunnar
í Alþingiskosningunum. Listinn
hefur þá tæpar 8 milljónir króna í
útgáfustyrk og 2,1 milljón í sér-
fræðiaðstoð frá Alþingi. Áslaug seg-
ir að þessir peningar verði látnir
duga fyrir rekstrinum. -GHS
Kennarafélögin:
Stríðsyfirlýs-
ing hjá ríkis-
stjórninni
„Fundurinn telur áform rikis-
stjórnarinnar jafnast á við stríðsyfir-
lýsingu gagnvart kennurum, skóla-
stjómendum og öðrum opinberum
starfsmönnum og lýsir fullri ábyrgð
á hendur henni vegna áhrifa þeirra á
flutning grunnskóla til sveitarfé-
laga.“
Svo segir meðal annars í ályktun
trúnaðarmanna Hins íslenska kenn-
arafélags og Kennarasambands ís-
lands í framhaldsskólunum í Reykja-
vík og nágrannabyggðarlögunum.
Ályktunin er tilkomin vegna frum-
varpa ríkisstjórnarinnar um breyt-
ingar á réttindum og skyldum starfs-
manna rikisins og um lifeyrissjóð
starfsmanna ríkisins. Fundurinn
krefst þess að ríkisstjórnin hætti við
að leggja þessi frumvarp fram á vor-
þinginu. -S.dór
Fékk klakastykki
í andlitið
Tólf ára telpa meiddist í andliti og
missti þrjár tennur þegar klaka-
stykki féll úr listaverkinu Fyssu í
Laugardalnum um helgina.
Um er að ræða vatnslistaverk og
myndast á því stór grýlukerti í frosti.
Féll hluti úr einu þeirra á telpuna
með fyrrgreindum afleiðingum. -GK
Fréttir
■ m i kl
^ M ^
með mikla vegliæð
MITSUBISHI LANCER 4X4 er glæsilegur og ríkulega útbúinn skutbíll. Staðalbúnaður er
m.a. vindskeið með hemlaljósi, toppgrindarbogar, rafdrifnar rúðuvindur framan og aftan,
rafdrifnir útispeglar, upphituð framsæti, útvarp og segulband. Hann er rúmgóður,
kraftmikill, 113 hestöfl, með mikla veghæð, 18,5 cm og þar af leiðandi traustur í
baráttunni við ófærðiná.
MMC LANCER 4x4 aldrif, tilbúinn á götuná kostar
Verulegt tap hefur verið á Alþýðublaðinu frá 1993:
Beita verður aðhaldi og útsjónarsemi
Tap hefur verið á rekstri Al-
prents hf., sem gefur út Alþýðublað-
ið, og jukust skuldimar um að
minnsta kosti 4 milljónir króna
fyrstu fjóra mánuði ársins 1995.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV hefur enn hallaö undan fæti
og er talið að skuldirnar nemi nú
allt að 7-8 milljónum króna. í grein-
argerð gjaldkera og endurskoðanda
Alþýðuflokksins frá 21. júní 1995
kemur fram að tap hefur verið á
rekstri Alþýðublaðsins frá árinu
1993.
Hagnaður á rekstri Alþýðublaðs-
ins nam rúmlega einni milljón
króna 1992 en einnar milljónar
króna tap varð árið 1993, sam-
kvæmt skýrslunni. Eigið fé Al-
prents var neikvætt um hálfa millj-
ón og þótti „slakt svo ekki sé minna
sagt, sérstaklega í ljósi þess að eign-
ir í félaginu eru afar litlar," segir í
skýrslunni. Árið 1994 varð 2,4 millj-
óna króna tekjusamdráttur milli
ára og fóru tekjumar úr 52 milljón-
um i 49,6 milljónir króna. Nokk-
urra daga gamalt uppgjör sýndi svo
4 milljóna króna tap í aprfl 1995.
í skýrslunni segir að framundan
séu erfiðir tímar í rekstri blaðsins
þar sem tvennt komi tO greina, að
auka tekjur blaðsins eða skera nið-
ur kostnað. í skýrslunni segir að
formaður flokksins leggi áherslu á
að útgáfunni verði haldið áfram
óbreyttri og því verði fyrri leiðin
fyrir valinu. Beita verði „aðhaldi,
yfirlegu og útsjónarsemi tO að forða
því að Ola fari á næstu misserum í
rekstri" blaðsins, segir í skýrsl-
unni.
„Ég hef ekki neina ástæðu tO
þess að ræða þessi fjármál opinber-
lega. Þetta er ekki opinber stofn-
un,“ segir Þröstur Ólafsson, stjórn-
arformaður Alprents hf. Hann neit-
ar aö upplýsa hvort endurskipu-
lagning sé fyrirhuguð í rekstrinum.
-GHS
MITSUBISHI
MOTORS
1.790.000
HEKLA
MITSUBISHI
LRNCER 4X4
113 HESTÖFL
j