Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Útlönd
Kúbumenn láta sér fátt um refsiaðgerðir Bandaríkjamanna finnast:
Segjast geta sannað
að lofthelgi var
Roberto Robania, utanríkisráð-
herra Kúbu, sakaði Bill Clinton
Bandaríkjaforseta um að hafa í hót-
unum við Kúbverja með því að boða
hertar refsiaðgerðir gegn þeim í kjöl-
far þess að tvær bandarískar einka-
flugvélar voru skotnar niður nærri
Kúbu á laugardag. Robania sagði að
Kúbverjar mundu ekki svara í sömu
mynt og fullyrti að þeir hefðu alíar
nauðsynlegar sannanir í málinu sem
sýndu fram á að flugvélarnar tvær
hefðu rofið lofthelgi Kúbu. Robana
áskildi Kúverjum allan rétt til að
svara einhliða aðgerðum Banda-
ríkjamanna. Hann bætti við að út-
gáfa Bandaríkjamanna af atburðun-
um á laugardag væri full af mótsögn-
um og rangfærslum og væri óspart
Deilt um heiladautt barn:
Foreldrar vilja
ekki slökkva
á tækjunum
Læknar á sjúkrahúsi í New York
hafa farið fram á það við dómara að
fá leyfi til að slökkva á vélum sem
halda lífinu í fimm mánaða gömlu
stúlkubami, sem hefur verið úr-
skurðað heiladautt. Foreldrar bams-
ins eru þvi andvígir. Málið verður
tekið fyrir í rétti á morgun.
Foreldrar stúlkunnar, sem eru
svartir, sögðu á fundi með frétta-
mönnum í gær að þeir treystu ekki
sjúkdómsgreiningu sjúkrahúslækn-
anna og að þeir væru að leita aö sér-
fræðingi í taugasjúkdómum barna
til að fá annað álit. Foreldrarnir
sögðu einnig að þeir sættu rannsókn
af hálfu lögreglunnar vegna gruns
um að hafa farið Ula með barnið,
ranngókn sem þeir sögðu að lyktaði
af kynþáttahatri. Læknar á sjúkra-
húsinu fundu skaða eftir högg á
heila barnsins.
„Við viljum gefa barninu tækifæri
til að lifa,“ sagði móðirin, Lois
Scoon. Hún sagði að afstaða þeirra
byggðist að hluta til á trúarsannfær-
ingu þeirra en þau hjónin eru
frelsuð.
í bréfaskrifum milli lögfræðinga
spítalans og hjónanna kemur fram
að sjúkrahúsið er ekki skuldbundið
til að halda lífi í manneskju sem hef-
ur verið úrskurðuð heiladauð. En
reglugerðir í New York kveða á um
aö fínna verði sanngjama lausn þeg-
ar aðstandendur eru andvígir því af
trúarlegum ástæðum að slökkt sé á
stuðningstækjunum.
Faðirinn, sem er svæfingarlækn-
ir, kom að barninu þann 19. febrúar
þar sem það var að þvi komið að
kafha og eftir árangurslausar lífgun-
artilraunir hringdi hann á sjúkrabíl.
Reuter
Lögregla án vís-
bendinga um
morðið á Ngor
Lögreglan í Los Angeles hefur eng-
ar vísbendingar um hver hafi verið að
verki þegar kambódíski leikarinn
Haing Ngor var myrtur fyrir utan
heimili sitt í kínahverfi borgarinnar í
fyrrakvöld. Lögreglan segist ekki hafa
nein vitni að atburðingum, enga gran-
aða, enga ástæðu og afar takmörkuð
sönnungargögn til aö styðjast við í
rannsókn sinni. Ngor hafði eytt kvöld-
inu með fjölskyldu og vinum áður en
hann mætti örlögum sínum. .
Haing Ngor flúði ógnaröld Rauðu
Kmeranna á sínum tíma og hélt til
Bandaríkjanna. Hann fékk síðar ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn í mynd-
inni Killing Fields 1984 en þar lék
hann kambódískan blaðamann.
Reuter
notuð Clinton til framdráttar í kosn-
ingabaráttunni.
Robania sagðist halda áleiðis til
New York á fimmtudag og vonaðist
til að Öryggsiráð Sameinuðu þjóð-
anna mundi hlusta á útskýringar
beggja aðila á málavöxtum. Hann
hefur ekki fengið vegabréfsáritun
til Bandaríkjanna en segist fullviss
um að fá hana.
Atburðirnir á laugardag, þegar
kúbverskar herþotur skutu flugvél-
arnar niður yfir hafinu mifli Banda-
ríkjanna og Kúbu, vöktu fordæm-
ingu um allan hinn vestræna heim.
Clinton boðaði í gær hertar efna-
hagslegar refsiaðgerðir gegn Kúb-
verjum, takmörkun á ferðafrelsi kú-
verskra sendimanna í Bandaríkjun-
Sagði
Hamas
Símon Peres, forsætisráðherra
ísraels, lýsti yfir stríði á hendur
palestinsku skæruliðasamtökunum
Hamas í gær eftir að tvær sjálfs-
morðsárásir þeirra urðu 25 manns
að bana í ísrael á sunnudagsmorg-
un.
„Við unnum okkur ekki hvíldar
fyrr en allir brjálæðingarnir og of-
beldisseggirnir hafa fengið almenni-
lega refsingu," sagði Peres í ræðu í
ísraelska þinginu í gær, og vísaði
þar til Hamas-liða. „Viö munum
ekki stöðva friðarferlið, við höldum
því áfram, en við munum grípa til
viðeigandi ráðstafana til að berjast
um og bann við leiguflugi frá
Bandaríkjunum til Kúbu.
Fyrrum meðlimur Bræðra til
björgunar, frelsishreyfingar Kúb-
verja búsettra í Bandaríkjunum,
kom fram í kúbönsku sjónvarpi í
gær. Hann fordæmdi starfsemi
hreyfingarinanr og upplýsti að hún
hefði haft að takmarki að ráða
Castro, forseta Kúbu, og fleiri ráða-
menn af dögum.
Maðurinn, áður flugmaður í her
Kúbu, flúði landið fyrir fjórum árum
og gekk til liðs við frelsishreyfing-
una í Flórída. Hann vann sig til met-
orða innan hennar en hvarf fyrir-
varalaust á föstudag, degi áður en
flugvélarnar voru skotnar niður.
Flugmennirnir sem fórust, fjórir
gegn hryðjuverkamönnunum, bæði
áður en þeir fremja glæpi sína og á
eftir.“
Hamas-sprengjumönnunum
tveimur, sem voru dulbúnir sem
ísraelskir hermenn, tókst á einni
klukkustund á sunnudagsmorgun
að gera nokkuð sem hægrisinnuð-
um stjórnarandstöðuflokkum hafði
mistekist í marga mánuði, nefnilega
að gera að nánast engu umtalsvert
forskot Peresar og flokks hans í
skoðanakönnunum. Kosningar
verða í ísrael eftir aðeins þrjá mán-
uði.
Skoðanakannanir sem voru tekn-
rofin
talsins, voru meðlimir hreyfingar-
innar. Talið er að flugmaðurinn hafi
verið njósnari Kúbustjórnar.
Ættingjar hans segja hann hafa
horflð fyrirvaralaust en vinir hans
töldu hann hafa ætlað á veiðar. Ætt-
ingjar flugmannsins sögðu að ef
hann væri njósnari Kúbustjórnar
væri hann óvinur þeirra.
Talsmenn frelsishreyfingar Kúb-
verja í Flórída segja að flugvélarnar
hafi verið á lofti af mannúðarástæð-
um, ef vera skyldi að kúbverskir
flóttamenn væru í nauðum staddir á
flekum. Kúbverjar halda því hins
vegar fram að vélarnar hafi verið að
undirbúa skæruaðgerðir, sigta út
skotmörk á Kúbu og trufla fjarskipti
hersins.
ar stuttu eftir tiiræðin sýndu að 15
prósentustiga forskot Peresar á
hægrimanninn og Likud-formann-
inn Benjamín Netanyahu hafði
minnkað niður í þrjú stig.
í gær skutu vegfarendur í Jerú-
salem Bandaríkjamann af arabísk-
um uppruna til bana eftir að bíll
hans fór inn í hóp fólks á strætis-
vagnabiðstöð og varð einum að
bana en særði rúmlega tuttugu. All-
ar líkur eru taldar á að um slys hafi
verið að ræða, þótt ekki sé útilokað
að þetta hafi verið ásetningsverk.
Reuter
Stuttar fréttir i>v
Eldur I búð
Eldur braust út í stórverslun í
Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, í
morgun og áttu þúsundir við-
skiptavina fótum fjör að launa.
Stjórnvöld ásökuö
Sérfræðingar í dýralífi sögðu
bresk stjórnvöld annaðhvort vera
að villa um fyrir almenningi eða
vera barnaleg í mati sínu á tjón-
inu af völdum 70 þúsund tonna af
olíu sem fóru í sjóinn við Wales í
síðustu viku.
Díana fær vernd
Díana
prinsessa var,
með vopnaða
fylgdarsveina
þegar hún kom
til líkamsrækt-
arstöðvar sinn-
ar í gær og her-
menn stóðu á
verði við Buck-
inghamhöll af ótta við hryðju-
verk írska lýðveldishersins sem
fjölmiðlar höfðu sagt að væru í
undirbúningi.
Bretar hafna
Sinn Fein, stjórnmálaarmur
IRA, sagði í gær að bresk stjóm-
völd hefðu hafnað að fastsetja dag
fyrir viðræður allra flokka á
Norður-írlandi.
Fleiri trukkár
Bosníu-Serbar ætla að senda
fleiri bíla til serbneskra hverfa
Sarajevo í dag til að flytja burt
íbúana áður en hverfin fara und-
ir stjórn sambandsríkis múslíma
og Króata.
Kosið áfram
Kosið verður áfram í Afríku-
ríkinu Sierra Leone í dag eftir
mikla örtröð á kjörstöðum í gær,
enda afnám einræðis herforingja
í húfl.
Frakkar
Jacques
Chirac Frakk-
landsforseti
lýsti því yfir I
gær að Frakk-
ar væru á
góðri leið með
að verða helstu
talsmenn
kjarnorkuaf-
vopnunar í heiminum en eins og
menn muna er ekki langt siðan
þeir sprengdu nokkrar kjarn-
orkusprengjur í tilraunaskyni í
Suður-Kyrrahafi.
Skæruliðar teknir
Þýska lögreglan hefur handtek-
ið tvo menn sem grunaðir eru um
að vera félagar í vinstrisinnuðum
skæruliðasamtökum sem hafa
stundað sprengjuárásir á heimili
stjórnmálamanna.
Viðræður áfram
Friðarviðræður ísraels og Sýr-
lands halda áfram þrátt fyrir
sprengjutilræðin á sunnudag.
Simpson blótar lögmanni
O.J. Simpson missti stjórn á
skapinu í gær þegar lögfræðingur
spurði hann um fjarvistarsönnun
hans nóttina sem fyrrum kona
hans og elskhugi voru myrt og
blótaði manninum.
Emmu-mynd fékk björn
Taívanski
kvikmynda-
leikstjórinn
Ang Lee hlaut
gullbjörninn á
kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín
í gær fyrir
mynd sína Sen-
se and Sensibi-
lity en leikkonan Emma Thomp-
son fer þar með aðalhlutverk og
skrifaði handritið.
Eldur í skipi
Eldur kom upp i skemmtiferða-
skipi sem strandaði milli Hong
Kong og Malasíu en farþegar eru
óhultir.
Reuter
Pat Buchanan, sem sækist eftir útnefningu sem forsetaefni repúblikana, gerir sig líklegan til að heyja einvígi í stíl
villta vestursins fyrir utan OK Corral í vestrabænum Tombstone í Arizona í gær. Andstæðingurinn er brúða og nafn-
ið þarf ekki að koma á óvart: Billy Ciinton. Forkosningar fara fram í Arizona í dag og er afar tvísýnt hvor hefur bet-
ur, Buchanan eða Bob Dole. Símamynd Reuter
Símon Peres ómyrkur í máli í þinginu:
skæruliðum í
stríð á hendur
fremstir