Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 DV
tilveran
Skemmtilegast
þegar Óðinn barðist
við Fenrisúlfinn
„Ég trúi því að það hafi mjög góð áhrif á börnin að ýta und-
ir ímyndunarafl þeirra. Það hefur mikið að segja um fram-
vindu námsins í framtíðinni að þau kunni að hugsa sjálfstætt.
Við viljum kenna þeim það ásamt því að nota ímyndunar-
aflið,“ segir Kristín Bjarnadóttir, kennari í Smáraskóla í
Kópavogi. I skólajium var ys og þys í síðustu viku,
spenningurinn lá i loftinu og gleðin skein úr hverju
andliti. Skólastofur voru á hvolfi og börnin dunduðu
sér áhugasöm við vinnuna. Kennarar skólans stóðu fyr-
ir þemaviku fyrir 1.-6. bekk og var þemað norræna
goðafræðin. Unnið var allan daginn og skólinn
undirlagður i málningu, kátum börnum, pappír
og listaverkum. Borðin eru notuð í fjöll og börn-
in hafa ekki setið við þau í heila viku.
tU þess að gera gipsstyttu. Þegar
börnin verða eldri missa þau
þennan ævintýraáhuga
því þetta eru ævintýra-
sögur. Við ætlum að
reyna að koma því
þannig fyrir að
við getum
geymt vinnu
barnanna til
næsta árs,“
segir Kristín.
Höfðar til barna
„Við vorum með þetta þema í fyrra og það
gafst mjög vel. Við ákváðum því að skreyta
allan skólann með sögum úr norrænu goða-
fræðinni í ár. Sögurnar höfða mikið til
barna því margar þeirra eru afar skemmti-
legar. Ég held að börn í 1.-6. bekk séu á
réttum aldri til þess að læra norrænu sögurnar
því þau eru móttækileg fyrir þvi á þessum
aldri,“ segir Kristín.
Sögunum úr goðafræðinni er skipt á jé
milli bekkjanna. Miðgarðsormurinn var "
fyrirferðarmikUl þar sem hann vafði sig
um alla ganga, bæði uppi og niðri. Sex ára
bekkurinn hefur fóndrað við Útgarð, Mið-
garðsorminn, tröllin og fjöllin í Útgarði. Annar
bekkur tekur söguna þegar Þór fór til Út-
garða-Loka og bein hafranna eru brotin.
Enn aðrir taka hrekkjasögur af Loka og
önnur skemmtileg ævintýri.
Húsvörður
fyrirmynd Loka
„Þriðji bekkur ger-
ir styttu af Loka þar
sem eitrið lekur
niður á hann. Þau
notuðu húsvörðinn
*
Árlegur
við-
burður
Börnin sitja inni í hartska Skrýmis en hann er
risastór jötunn úr norrænu goðafræðinni.
Að sögn Kristínar eru börnin á réttum aldri til þess
að læra um goðin á ævintýralegan hátt.
Fyrir börnunum eru sögurnar samfelld ævintýri
sem gaman er að.
Börnin voru yfir sig hrifin af því að úthýsi
í hanska skrýmis skuli hafa verið þumallinn
sem Þór og félagar sváfu í yfir nótt.
Ætlunin er
að gera þema-
viku um nor-
ræriu goða-
fræðina að ár-
legum við-
burði. Skólinn á
orðið mikið af
listaverkum sem
gaman væri að sýna.
Sjötti bekkur er til dæm-
is búinn að gera Fenris-
úlfinn með höndina á Tý uppi
í sér.
Endapunkturinn var rekinn á þemavikuna
með þorrablóti sem haldið var á fóstudag þar sem
foreldrum var boðið. Þar léku öll börnin hlutverk.
Sum klæddust jötnabúningum, aðrir álfabúning-
um, trölla og norna.
„Ég hugsa að það sé mjög sniðugt að taka sama
þema aftur og aftur. Kennaramir kynnast þessu enn
þá betur og taka fram nýjar sögur.
Þeir vinna kannski sama verkefni og einhver ann-
ar kennari vann í fyrra.
Þau leika eitthvert hlutverk um alian skólann og
eru i búningum.
-em
Börnin í Smáraskóla segjast
læra goðafræðina miklu betur
með því aið heyra sögurnar og
búa til persónurnar eftir eigin
höfði. Þór er mjög
myndarlegur með rautt hár og
skegg að hamrinum
ógleymdum en börnin ímynda
sér útlit hans og vinna útfrá
ímyndunaraflinu.
Loki er svo
skemmtilegur
,Ég er að teikna Fenrisúlfinn. Þetta er miklu skemmti-
legra heldur en að læra. Loki er svo skemmtilegur því
hann er svo mikill prakkari," segir Helgi Freyr
Rúnarsson í þriðja bekk. Þegar DV bar að garði
var hann mjög einbeittur á svipinn viö að koma
gullfallegri teikningu á blað.
Þema þriðja bekkjar er sögur um Loka.
Nemendur bjuggu til nöðruna með eitrinu
sem hékk fyrir ofan höfuð Loka.
-em
Heiðar Karl Ragnarsson er nem-
andi í fjórða bekk en fjórði bekkur
vinnur ýmislegt í þemavikunni, til
dæmis sitthvað um Óðin og
hrafna hans og Fenrisúlfmn,
„Við erum líka búin að
gera Ásgarð, hásætið hans
Óðins og tréð.
Mér finnst mjög gaman að læra
goðafræðina svona. Það er miklu
skemmtilegra heldur en að lesa
bara bókina. Skemmtilegasta sag-
an finnst mér þegar Óðinn barð-
ist við Fenrisúlfinn," segir
Heiðar Karl Ragnarsson.
em