Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Síða 15
DV ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Qlveran
Sköpuninog
hauskúpa Ýmis
Fimmti bekkur vinnur að sköp-
uninni og hauskúpu Ýmis. „í mín-
um hópi gerum við Niflheim sem er
mjög kaldur heimur. Annar hópur
gerir Múspellsheim en hann er
rauður og mjög heitur,“ segir Eva
María Árnadóttir í flmmta bekk.
Verkefni sjötta bekkjar er að gera
ask Yggdrasils. Thelma Hrönn Sig-
urdórsdóttir og Pétur Benediktsson
voru sammála um að það væri mjög
skemmtilegt að læra norrænu goða-
fræðina með þessari aðferð. „Mér
finnst þetta mjög skemmtilegt og ég
er búin að læra mjög mikið. Það er
mjög sniðugt að gera þetta svona,“
segir Thelma. „Það er miklu auð-
veldara að læra sögurnar á þennan
hátt. Maður fær miklu meiri áhuga
á sögunum," segir Pétur. „Ég væri
alveg til í að fá þemaverkefni í öðr-
um fögum, eins og sögu til dæmis,“
segir Thelma.
-em
Thelma, Pétur og Eva María eru í
fimmta og sjötta bekk. Þeim þykir
temavikan mjög gagnleg.
Kristín ásamt höfrum Þórs en i sögunni voru þeir étnir en lifnuðu alltaf við aftur. Eitt sinn var Þór plataður og bein
hafursins brotin en þá var hann haltur eftir það. DV-myndir GS
Miðgarðsormurinn er stór og Ijótur
„Þetta er búið að vera
ofsalega gaman. Ég er bú-
inn að gera grímur, jöt-
unn og Miðgarðsorminn.
Hann er svo stór og ljótur.
Við eigum eftir að búa til
halann á orminn," segir
Guðmundur Kristjánsson,
í fyrsta bekk Smáraskóla.
Hann munaði ekki um að
koma i viðtal hjá blaða-
manni og stilla sér upp
fyrir ljósmyndarann.
Verkefni sex ára bekkj-
anna í þemavikunni var
að búa til Miðgarðsorm-
inn, Utgarð og Jötun-
heima. Kennararnir segja
þeim norrænu sögurnar
til þess að þau geti notað
ímyndunaraflið til þess að
skapa þessar figúrur.
-em
Guðmundur býr sig
undir að mála.
Þrumuguðinn
Þór í uppáhaldi
Brynja Eyþórsdóttir, Kristín Geirsdóttir og Einar
E. Steinsson eru nemendur í öðrum bekk en þau
voru að undirbúa þorrablót þegar DV bar að garði.
„Við bjuggum til Þór þrumuguð og unnum með sög-
una þegar Þór slæst við köttinn og ellina,“ segir
Brynja. Þau eru öll sammála um að þetta sé ofsalega
skemmtilegt.
„Það var skemmtilegast að búa til grímu og
skemmtilegustu sögurnar eru um Þór og félags hans.
Á þorrablótinu ætla strákarnir í okkar bekk að leika
Þjálfa og stelpurnar Röskvu," segir Einar. „Ég ætla
að vera jötunn eða Röskva á þorrablótinu," segir
Brynja. „Ég ætla að vera álfur,“ segir Kristín.
-em Sjö ára krakkarnir halda mikið upp á þrumuguðinn Þór.
• Emile Henry leirvörum (20%)
• Brabanfia eldhúsvörum,
strauborS ofl. (20%)
• Ismet heimilistæki allt að 30%
^brabantiá
ismet