Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Síða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 23 Iþróttir dv dv Léttur riöill hjá Islandi i Japan: Fyrsti landsleikur gegn Áströlum - Bandaríkin og Japan líka í riðlinum Handbolti: Jafnteflið fýrir norðan breytir miklu - bæði á toppi og botni 1. deildarinnar Frjálsar íþróttir: Meistaramót hjá öldungum Meistaramót öldunga í frjáls- um íþróttum verður haldið í Baldurshaga um næstu helgi, dagana 2. og 3. mars. Þeir sem ætla að keppa á mót- inu þurfa að skrá sig á skrif- stofu FRÍ fyrir 28. febrúar. Keppt verður í innanhússgrein- um. -SK Aldurinn svarar vangaveltunum Austurrikismaðurinn Andre- as Berger, sem er fyrrverandi Evrópumeistari í spretthlaup- um, telur litlar líkur á því að hann snúi aftur á hlaupabraut- ina eftir að keppnisbanni hans lýkjur. frger Var á sínum tima dur i fjögurra ára keppnis- vegna inntöku ólöglegra lyfja. Dómstóll í Vín hefur nú allétt banninu en Berger, sem er margfaldur meistari í heima- landi sínu í 100 og 200 metra hlaupi, telur ekki miklar líkur á endurkomu á hlaupabrautina: „Það eru meiri líkur á því að ég hætti í keppnisíþróttum. í júlí verð ég orðinn 35 ára gamall. Þarf eitthvað að ræða þetta frek- ar?” spyr Berger. -SK Golf: Norman enn örugglega sá besti Ástralinn Greg Norman, er enn þá langbesti kylfingur heims ef marka má afrekslista yfir þá bestu sem birtur var í gær. Þar er Greg Norman með 13,24 stig en sá sem næstur kem- ur á listanum er Nick Price frá Zimbabwe með 10,11 stig. Þriðji er Ernie Els frá Suður Afríku. Athygli vekur mögur útkoma bandarískra kylfinga og hefur hún varla verið vesælli í langan tíma. Af tuttugu efstu kylfingum á listanum eru aðeins átta frá Bandaríkjunum en hafa oftast verið mun fleiri. Efsti banda- ríski kylfingurinn á listanum er Corey Pavin en hann er í sjötta sæti. -SK Tennis: Agassi kominn niður í 3. sætið Pete Sampras er nokkuð ör- uggur í efsta sæti heimslistans yfir bestu tennisleikarana í karlaflokki en nýr listi leit dags- ins ljós í gær. Agassi er með 4.805 stig í efsta sæti.. Austurríkismaðurinn Thomas Muster er í öðru sæti með 4.474 stig og Bandaríkja- maðurinn Andre Agassi vermir nú þriðja sæti listans með 4.432 stig. -SK Stórliðin skoruðu öll sex mörk Þrjú af sterkustu knatt- spyrnuliðum Evrópu, Ajax, Bayem Múnchen og Manchest- er United, skoruðu öll sex mörk í leikjum sínum um liöna helgi. Ajax vann Herenveen, 6-2, Bayern Múnchen vann botnli- Bayem Uerdingen, 6-1, og Man. Utd vann Bolton, 6-0. ___________________-SK Það er óhætt að segja að hand- boltalandsliðiö hafi fengið létta mótherja í riðlakeppninni á alþjóð- lega mótinu sem fram fer í Japan dagana 9.-14. apríl. Island er í riðli með Ástralíu, Bandaríkjunum og Japan og ætti því að eiga greiða leið í undanúrslit mótsins. Hinn riðillinn er mun sterkari en þar leika Hvíta-Rússland, Noregur, Suður-Kórea og Kína. Tvö efstu lið í hvorum riðli kom- Vegna Japansferðar íslenska landsliðsins hefur lokum 1. deild- arkeppni karla í handknattleik ver- ið flýtt, sem og úrslitakeppninni um meistaratitilinn. Síðasta umferðin, sem fram átti að fara 10. mars, hefur verið færð fram til sunnudagsins 3. mars og þar með verður lokaumferðin mið- vikudaginn 6. mars. Úrslitakeppnin hefst síðan strax laugardaginn 9. mars og 8-liða úr- slitunum verður lokið 15. mars. Undanúrslitin verða leikin dagana 19.-24. mars og síðan fer fyrsti úr- ast áfram og síðan mæta sigurlið riðlanna liðum númer tvö í undan- úrslitunum. Fyrsti leikur íslands verður gegn Ástralíu en það verður jafnframt fyrsti landsleikur þjóðanna í íþrótt- um. Hann fer fram 9. apríl en þann 10. mætast ísland og Bandaríkin og loks er leikið við Japana 11. apríl. Undanúrslitin eru leikin 13. apríl og úrslitaleikirnir um gullið og brons- ið þann 14. apríl. -VS slitaleikurinn um meistaratitilinn fram fimmtudaginn 28. mars. Þurfi fimm leiki til að knýja fram úrslit verður fimmti og síðasti leik- urinn háður laugardaginn 6. april og daginn eftir, á páskadag, flýgur landsliðið til Japans. Samkvæmt upphaflegri niðurröð- un átti undanúrslitum að ljúka 31. mars en úrslitaleikirnir áttu að standa yfir frá 12.-20. apríl. Úrslita- liðin tvö fá því aðeins 4-5 daga til undirbúnings í stað 12 daga eins og ráð hafði verið fyrir gert. Keila: Bikarkeppnin Átta liða úrslitin í bikar- keppninni í keilu fóru fram á fimmtudagskvöldið og lyktaði sem hér segir: Karlaflokkur: Stormsv.-Keilulandssv. .. 2238-2174 Úlfarnir-Keflavík a .2162-2100 Spilabræður-Lærlingar .. 1944-2228 Lávarðarnir-KR a ... 2120-2394 Kvennaflokkur: Kúlurnar-Afturgöngurnar 1608-2091 Tryggðatröll-Bombumar . 1947-1857 KFS Stöllur-Flakkarar . . . 1809-1931 Keflavík-Keilusystur .... 1911-1941 Þórsurum duga tveir sigrar Staðan í 2. deildinni í hand- knattleik var ekki rétt í blaðinu í gær. Fylkir er með 21 stig, ekki 22, og þar með dugar Þórsurum að vinna báða leiki sína til að ná þriðja sætinu í deildinni af Fylki. Asprilla og Curle voru ákærðir Eftir viðskipti Kólumbíu- mannsins Faustino Asprilla hjá Newcastle og Keith Curle, fyrir- liða Manchester City, í leik lið- anna um helgina þar sem þeim lenti saman hefur enska knatt- spyrnusambandið ákært þá fyrir ósæmilega hegðun á knatt- spyrnuvellinum. Þeir félagar fá nú 14 daga til að svara þessum ásökunum knattspyrnusam- bandsins. lan Wright til West Ham? Bresk blöð gera því skóna í gær að svo kunni að fara að Ian Wright, framherjinn snjalli hjá Arsenal, færi sig um set í Lund- únum og gangi til liðs við West Ham. Þá er vitað að Chelsea hef- ur áhuga á að fá Wright sem er orðinn hálfþreyttur í herbúðum Arsenal. Ripley meiddur Nú er ljóst að útherjinn Stuart Ripley leikur ekki með Black- burn á næstunni. Hann meiddist á læri í leiknum gegn Liverpool á laugardaginn og verður frá í einhverjar vikur. 50 stiga sigur hjá Keflavík Keflavík vann stórsigur á ÍS í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær. Þegar upp var staðið var munurinn 50 stig en lokatölur urðu, 36-86. Breiðablik-Tindast. (44-42) 91 87 0-4, 18-19, 33-27, 42-32, (44-42), 51-48, 58-59, 72-67, 80-79, 91-87. Stlg Breiðabliks: Michael Thoele 32, Halldór Kristmannsson 19, Birgir Mikaelsson 16, Agnar Olsen 13, Daði Sigurþórsson 8, Einar Hannesson 3. Stig Tindastóls: Torry John 26, Ómar Sigmarsson 20, Arnar Kárason 15, Pétur Guömundsson 11, Lárus D. Pálsson 9, Hinrik Gunnarsson 8. 3ja stiga körfur: Breiðablik 6, Tindastóll 13. Fráköst: Breiðablik 26, Tindastóll 25. Villur: Breiðablik 12, Tindastóll 24. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Kristinn Óskarsson, góðir. Áhorfendur: 150. Maður leiksins: Birgir Míkaels- son, Breiöabliki. Jafntefli KA og ÍBV í 1. deildinni í handbolta í fyrrakvöld kom verulega á óvart. Fæstir bjuggust við því að Eyja- menn myndu veita bikarmeisturunum einhverja keppni en þeir voru hins veg- ar hársbreidd frá sigri og úrslitin breyta miklu, bæði í topp- og botnbaráttu deild- arinnar. Jafnteflið setur strik í reikninginn hjá KA-mönnum. Þeir hefðu með sigri verið með undirtökin í baráttunni við Val um deildameistaratitilinn og heimaleikja- réttinn í oddaleik í úrslitakeppninni. Markatalan ræður á toppi deild- arinnar Nú eru hins vegar Valsmenn með undirtökin. Liðin eru jöfn að stigum þeg- ar þrjár umferðir eru eftir en markatala Vals er mun betri og það er hún sem ræður ef liðin verða efst og jöfn að stig- um. KA og Valur mætast á Akureyri á miðvikudagskvöldið og það er nánast hreinn úrslitaleikur um efsta sætið þó það gæti vissulega breyst ef óvænt úrslit verða í síðustu tveimur umferðunum. KA á síðan eftir leiki við fallbaráttu- liðin tvö, fyrst við Víking á Akureyri 3. Júlíus Jónasson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur verið að leika sérlega- vel með sínu nýja liði TV Suhr frá Sviss. Júlíus skrifaði undir tveggja ára samning við svissneska liðið fyrir skemmstu eftir að hafa leikið tvö ár þar á undan með Gummersbach í Þýskalandi. Júlíus hefur leikið þrjá leikið með TV Suhr og er óhætt að segja að hann byrji með tilþrifum. Júlíus hefur skorað 19 mörk í þremur .leikjum en í þeim tveimur siðustu hefur hann verið tekinn úr umferð. Það kom ekki að sök því á sunnudaginn var lagði TV Suhr Bern að velli, 24-22, og skoraði Júlíus átta mörk í leiknum. í fyrsta leiknum fyrir tveimur vikum sigraði TV Suhr Basel, 28-19 og var Júlíus þar með 8 mörk og þrjú í öðrum leiknum gegn Urdorf sem vannst 27-17. „Mér hefur gengið alveg ágætlega síðan að ég fór að leika með liðinu. Það var klárt áður en ég kom hingað að liðinu tækist ekki að leika í úrslitakeppninni efstu sex liðanna. mars og síðan við ÍBV í Eyjum 6. mars. Valur leikur við Aftureldingu að Hlíð- arenda 3. mars og við Vlking í Víkinni 6. mars. ÍBV stendur betur en Víkingur í fallbaráttunni Með stiginu á Akureyri á ÍBV alla möguleika á að forða sér frá falli í 2. deild, á kostnað Víkinga sem sitja eftir í erfiðri stöðu. ÍBV er með 11 stig en Vík- ingur 10 og ÍBV á hagstæðari leiki eftir. ÍBV fær Gróttu í heimsókn annað kvöld, sækir botnlið KR heim í Laugar- dalshöllina 3. mars og mætir KA í Eyj- um 6. mars. Víkingar leika á Selfossi annað kvöld og gegn KA á Akureyri 3. mars, og enda síðan gegn Val á heimavelli 6. mars. Ef ÍBV og Víkingur verða jöfn að stig- um í 10.—11. sæti deildarinnar ræður markatala ekki úrslitum um fallið. Þá myndu þau leika aukaleiki um 1. deild- arsætið og það félli í skaut því liði sem næði að vinna tvo leiki. -VS Liðið Vantaði aðeins eitt stig svo það tækist. Liðið leikur þess í stað í keppni neðri hlutans og er þar í efsta sæti, sagði Júlíus Jónasson í spjalli við DV í gærkvöldi. „Byggja upp sterkt lið fyrir næsta tímabil” „Það er á stefnuskrá Íiðsins að byggja upp fyrir næsta tímabil. í þeim tilgangi verða fengnir til félagsins sterkir leikmenn. Stefnan hefur verið sett á að komast í úrslitakeppnina um meistaratitilinn næsta vetur og vonandi gengur það eftir. Handboltinn hér í Sviss er eins og ég bjóst. Hann er ekki eins sterkur og í þýsku deildinni. Ætli að hann sé ekki svipaður á styrkleika og sá íslenski,” sagði Júlíus Jónasson. Júlíus sagði að þrjú liö væru í nokkrum sérflokki í svissneskum handknattleik. Þar ætti hann við Winterthur, sem hefði náð mjög góðum árangri í Evrópukeppni meistaraliða, og Amacidia og Borban-Luzern væru líka með lið í góðum gæðaflokki. -VS íslandsmótið í þolfimi: Heimsmeistari í Höllinni Þrefaldur heimsmeistari í þolfimi kvenna, Carmen Valderas frá Spáni, mun sýna listir sínar á íslandsmóti Fimleikasambandsins í greininni sem fram fer í Laugardalshöllinni á sunnudaginn kemur, 3. mars. Valderas vann öll stærstu mót heims á síðasta ári, þar á meðal heimsmeistaramótið í Frakklandi þar sem Magnús Scheving varð í 5. sæti í karlaflokki. Carmen Valderas mun sýna sigurrútínu sina frá heimsmeistaramót- inu í París og einnig sjá um kennslu í tveimur þolfimitímum í Laugar- dalshöll daginn fyrir mótið. Keppendur á mótinu verða um 35 talsins en um er að ræða annars vegar íslandsmót fullorðinna og hins vegar ungl- ingameistaramót. Magnús Scheving og Carmen Valderas á heimsmeistaramótinu í París í fyrra. Valderas sýnir á íslandsmótinu en Magnús mun ekki verja titil sinn í karlaflokki. -JKS Urvalsdeildin í körfuknattleik: Blikar unnu í spennandi leik Breiðablik vann góðan sigur á Tindastóli í jöfn- um og spennandi leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í Smáran- um í gærkvöldi. Lokatöl- ur leiksins urðu, 91-87, í hálfleik hafði Breiðablik tveggja stiga forystu, 44-42. Tindastóll byrjaði bet- ur en Blikarnir komust smám saman meira inn í leikinn og komust tíu stigum yfir. Dómgæslan fór í taugarnar á gestun- um og fékk meðal annars Páll Kolbeinsson þjálfari þeirra á sig tæknivillu í fyrri hálfleiknum. Ágætis leikkaflar sáust í síðari hálfleik og mun- urinn aldrei mikill. Blik- arnir reyndust sterkari í lokin en þá fengu Tinda- stólsmenn dæmdar á sig þrjár ásetningsvillur. Áður en til þess kom voru þeir með forystu í leiknum en Blikar tóku síðan leikinn í sínar hendur. Blikarnir, sem hafa komið mjög á óvart með frammistöðu sinni í vet- ur, léku oft ágætlega í leiknum og í jöfnu liði þeirra var Birgir Mika- elsson bestur. Hjá Tindastólsmönn- um voru Torrey John og Ómar Sigmarsson bestir. Liðið hefur oft leikið bet- ur í vetur. -JKS Breyting á Islandsmótinu í handbolta: Öllu lokið fyrir Japansferðina - lokaumferö deildarinnar flýtt um viku Júlíus leikur vel í Sviss - skorað 19 mörk í þremur leikjum Guðrún sló 18 ára met Ingunnar - var llka langt undir meti í 400 m hlaupi á ólöglegri braut Iþróttir með Blikum? Svo getur farið að Hanna Kjartansdóttir, ein af máttar- stólpunum í liði íslandsmeistara Breiðabliks í körfuknattleik kvenna, geti ekki leikið meira með liði sínu á þessu keppnis- timabili. Hanna var í gær flutt á spítala vegna sjóntaugarbólgu og er bú- ist við því að hún þurfi að vera á spítaíanum að minnsta kosti út þessa viku. Hanna mun þvl ekki leika með Breiðabliki gegn Keflavfk annað kvöld og heldur ekki gegn KR á sunnudaginn. Fram undan er svo úrslita- keppni um íslandsmeistaratitil- inn og mjög óvíst hvort hún getur tekið þátt í henni. -ih Guðrún Arnardóttir er greinilega í feiknaformi þessa dagana og verður fróðlegt að fylgjast með henni í sumar. NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Stórleikur Millers Hanna úr leik Guðrún Arnardóttir náði frábær- um árangri á innanhússmeistara- móti háskólanna í frjálsum íþrótt- um á suðaustursvæði Bandaríkj- arina sem fram fór í Lexington í Kentucky um helgina. Guðrún varð þriðja í 60 metra grindahlaupi og setti glæsilegt íslandsmet og sigraði síðan í 400 metra hlaupinu á tíma sem er langt undir íslandsmeti inn- anhúss. Það fæst þó ekki staðfest þar sem brautin var ekki lögleg. Guðrún hljóp 60 metra grinda- Júlíus er að gera það gott í Sviss. hlaupið á 8,31 sekúndu. Fyrra metið var orðið hvorki meira né minna en 18 ára gamalt en Ingunn Einarsdótt- ir setti það í Mílanó í mars árið 1978. I 400 metra hlaupinu sigraði Guð- rún á 53,19 sekúndum en íslands- metið innanhúss er 56,07 sekúndur og er í eigu Svanhildar Kristjóns- dóttur. Til þess að met fáist staðfest þarf hlaupið að fara fram á 200 metra braut en brautin í Lexington er 291 metri. I sínum útreikningum bæta Bandaríkjamenn 3/10 úr sek- úndu við tíma sem næst á svona braut og miðað við það var Guðrún að hlaupa á 53,50 sekúndum, eða 2,5 sekúndum undir metinu. Það er greinilegt aö Guðrún er í betra formi en nokkru sinni fyrr og hún er til alls líkleg í sumar. Hún keppir ekki á Evrópumeistaramót- inu innanhúss í Stokkhólmi 8.-10. mars þar sem hún fékk ekki farar- leyfi frá sínum háskóla. Bandaríska háskólameistaramótið fer fram sömu helgi og þar er Guðrún í aðal- hlutverki í sínu liði. -VS - Malone tryggöi Utah góðan sigur og Knicks er ekki svipur hjá sjón Utah Jazz kom leikmönnum Phoenix Suns snarlega niður á jörð- ina i nótt í NBA-deildinni í körfuknattleik. Utah sigraði 110-87 og gott gengi Phoenix undanfarið tók enda með tapinu stóra i nótt. Karl Malone lék ð vanda aðalhlut- verkið hjá Utah og skoraði 27 stig. John Stockton kom síðan í humátt á efgtir með 16 stig og 11 stoðsending- ar. Charles Barkley skoraði aðeins 17 stíg fyrir Phoenix og tók 6 frá- köst. Danny Manning var með 16 stig. Úrslitin í nótt uröu annars þessi: Boston-Indiana...........frl. 119-122 Utah Jazz-Phoenix Suns........110-87 LA Lakers-NY Knicks...........114-96 Sacramento-Detroit ............78-93 Stórleikur Reggie Miller gegn Boston Reggie Miller átti sannkallaðan stórleik í nótt gegn Boston og Indi- ana vann góðan útisigur. Miller skoraði 39 stig. Hann tryggði liði sínu sigurinn á síðustu sekúndun- um í framlengingunni. Leikmenn Boston þóttu með líf- legasta móti og Dino Radja var stigahæstur með 33 stig sem er það mesta sem hann hefur skorað á tímabilinu. David Wesley skoraði 23 stig fyrir Boston sem hefur tapað fimm leikjum í röð. • Lakers vann auðveldan sigur gegn NY Knicks sem virðist í mikl- um vandræðum þessa dagana. Cedric Caballos skoraði 27 stig fyrir Lakers og Elden Campell 17. Ant- hony Mason var með 23 stig hjá Knicks og Derek Harper 16. Enn voru þeir íjarverandi Patrick Ewing og Charles Oakley og að auki var J.R. Reed í leikbanni vegna atviks sem átti sér stað í leik Knicks gegn Phoenix i fyrradag. Reed fækkaði þá tönnum í munni A.C. Green eins og fram kemur hér á eftir. Detroit vann öruggan sigur gegn Sacramento Kings. Grant Hill skor- aði 21 stig fyrir Detroit og þeir Otis Thorpe og Lindsey Hunter skoraðu 17 stig. Billy Owens skoraði 21 stig fyrir Sacramento og Mitch Richmond bætti 17 við. Þetta var 11. tap Kings í röð og það er met hjá fé- laginu í NBA-deildinni. A.C. Green missti tennur og er líklega kjálkabrotinn Úrslitin aðfaranótt mánudagsins urðu þessi: Washington-Milwaukee . . . 111-103 Howard 25 - Baker 35. Minnesota-Atianta...........76-92 - Long 24. Phoenix-NY Knicks ........113-105 Barkley 25, Johnson 24 - Reed 22. Vancouver-SA Spurs .........84-95 Reeves 22 - Elliott 29. Miami-76ers...............108-101 Hardaway 20 - Portland-Detroit ...........81-93 Robinson 19 - Houston 23, Hill 23. NJ Nets-Boston............111-105 Gilliam 30, Childs 26 - Radja 22. Dallas-Toronto.............105-98 Jackson 24, McCloud 22, Kidd 20 - Stou- damire 23. LA Clippers-Seattle.......101-106 Barry 30 - Perkins 22, Kemp 21, Schrempf 19. Charles Barkley var maðurinn á bak við öruggan sigur Phoenix gegn New York. Þetta var fiórði sigur Phoenix í röð og sjöundi sigurinn í síðustu átta leikjum liðsins. Það gengur hins vegar ekkert hjá Knicks sem lék án Patricks Ewing og Charles Oakley sem eru meiddir. Knicks tapaði þarna í fimmta sinn í síðustu sjö leikjum og liðið er ekki líklegt til afreka í vetur. Nokk- ur harka var í leiknum. A.C. Green, sem leikið hefur síð- ustu 784 leiki Phoenix og Lakers í deildinni, missti tvær tennur í leiknum og var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. Hann lék þó með Phoen- ix í nótt gegn Utah Jazz n kom lítið við sögu í leiknum. Stórleikur Vins Bakers í liði Milwaukee dugði skammt gegn Washington. Baker skoraði 35 stig og hirti 21 frákast, það mesta á ferl- inum. Annar leikmaður fékk lítið fyrir stórleik sinn, nýliðinn Brent Barry í liði LAClippers, sem skoraði 30 stig gegn Seattle og stal 6 boltum. Clippers lá gegn sterku liði Seattle . Miami er að vakna til lífsins með nýja menn innanborðs. Tim Hardaway skoraði 20 stig og Walt Williams skoraði fjórar 3ja stiga körfur. Boston getur ekkert frekar en fyrri daginn og þetta fornfræga lið er ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Og það sem meira er, forráða-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.