Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 Fréttir r>v Islandsmótið í borðtennis unglinga 1996: Víkingar með níu gull - og HSK, KR og Stjarnan hlutu einn íslandsmeistaratitil hvert Islandsmeistarar í borðtennis unglinga 1996. Aftari röð frá vinstri: Hjalti Halldórsson, Víkingi, Arni Ehmann, Stjörn- unni, Haukur Smári Gröndal, Víkingi, Markús Árnason, Víkingi, Guðmundur E. Stephensen, Víkingi, Brynhildur Að- alsteinsdóttir, Víkingi, og Kolbrún Hráfnsdóttir, Víkingi. - Fremri röð frá vinstri: Hjördís Rún Albertsdóttir, HSK, Lára Hannesdóttir, Víkingi, Matthías Stephensen, Víkingi, og Kristín Ásta Hjálmarsdóttir, KR. DV-myndir Hson Ingimar Ari Jensson, HSK, stóð sig vel á Islandsmótinu. Hér er hann með móður sinni, Matthildi Róbertsdóttir, sem lætur sig sjaldan vanta þegar börnin hennar þreyta keppni. Á annað hundrað þátttakendur voru á íslandsmótinu í borðtennis sem fram fór í TBR-húsinu um síð- ustu helgi. Víkingar hlutu flesta meistara sem áður, 9 talsins. HSK, KR og Stjarnan hlutu einn titil hvert félag. Mikil sókn Það er greinilega mikil sókn í íþróttinni hér á landi og var þátt- taka mjög góð að þessu sinni; á ann- að hundrað keppendur mættu til leiks. Athygli vakti hve margir for- eldrar komu til þess að fylgjast með og taka þátt í þessari skemmtilegu íþrótt með krökkunum. Mótið var undir góöri stjórn Vík- ings eins og oft áður. Hjördís Rut Albertsdóttir, HSK. Sambandið loks að rétta úr kútnum Hilmar Konráðsson, stjórnarmað- ur borðtennisdeildar Víkings, hefur verið mjög virkur þátttakandi frá stofnun deildarinnar 1973: „Borðtennissambandið hefur átt í miklum íjárhagserfiðleikum undan- farið en er að rétta úr kútnum núna og staðan er alls ekki slæm. Hjá okkur Víkingum er Lýsing okkar öflugasti styrktaraðili. Einnig njót- um við aðstoðar Pizza-hússins og Domino’s- Pizza og er styrkur allra þessara aðila ómetanlegur. Mér finnst mikil uppsveifla i borðtennis um þessar mundir. Ung- um borðtennisspilurum fjölgar bæði hjá Víkingi og HSK og Stjarn- an og KR eru að gera góða hluti svo ég er bjartsýnn á framtíðna," sagði Hilmar. Gaman að leika með Dananum Michael Maze varð þrefaldur meistari og sigraði í öllum greinunum sem hann tók þátt í: „Ég er nokkuð ánægður með leik minn í þessu móti. Ég verð þó að segja eins og er að það er nauðsyn- Umsjón Halldór Halldórsson legt fyrir mig að fá tækifæri til að komast oftar út til æfinga og keppni gegn sterkum strákum. Það yrði líka góður undirbúningur fyrir Evr- ópumótið þar sem við Michael Maze munum spila tvíliðaleik. Það er frábært að fá tækifæri til að spila með Dananum. Hann er góður leikmaður og skemmtilegur félagi. Maze ætlar að koma í heim- sókn til íslands i apríl og taka spað- ana með sér,“ sagði Guðmundur. Hef engan þjálfara Hjördís Rut Albertsdóttir, Garpi á Hellu á Rangárvöllum, keppir undir merki HSK: „Þetta er í annað skipti sem ég verð íslandsmeistari. Þjálfara? Nei, ég hef aldrei haft neinn þjálfara en ég er með tennisborð heima og æfi mig á Hörpu, yngri systur minni, sem stóð sig mjög vel á mótinu og varð í 2. sæti í telpnaflokki," sagði Hjördís. Vonandi kemst stelpan sem fyrst undir handleiðslu góðs þjálf- ara því þarna er greinilega mikið efni á ferðinni. Ánægður með aðra lotuna Ingimar Ari Jensson, HSK, veitti Markúsi Árnasyni, Víkingi, mjög verðuga keppni í úrslitaleiknum í drengjaflokki: „Ég hef tapað fyrir Markúsi 3-4 sinnum í vetur en meiningin er að bæta úr því á næstunni. Önnur lot- an gegn Markúsi, sem ég vann, var nokkuð góð en í hinum tveimur komst ég aldrei almennilega í gang. Ég sæki æfingar hjá KR tvisvar í viku hjá góðum þjálfara, Kristjáni Viðari Haraldssyni, og einu sinni í viku æfi ég á heimaslóðum," sagði Ingimar. Hélt að þetta væri búið Markús Árnason, Víkingi, sigraði í drengjaflokki en varð að taka á honum stóra stnum til aö knýja fram sigur: „Ég hélt að leikurinn gegn Ingi- mar væri nánast búinn eftir fyrstu lotuna sem ég vann nokkuð örugg- lega. Meiningin var aö láta hann bara sækja í 2. lotu - en það fór á annan veg því hann sigraði. í odda- leiknum lék ég öðruvísi og allt gekk upp,“ sagði Markús. Borðtennis^unglinga: Úrslit á íslands- mótinu íslandsmótið í borðtennis unglinga 1996 fór fram í TBR- húsinu síðastliðna helgi. Úrslit urðu sem hér segir. Tvenndarleikur unglinga: 1. Guðmundur Stephensen/Kol- brún Hrafnsdóttir, Víkingi. 2. Ingimar Jensson/Elma Þórð- ardóttir, HSK. 3. ^1. Markús Ámason/Bryn- hUdur Aðalsteinsdóttir, Víkingi. 3.^1. Kjartan Baldursson/Jó- hanna Marteinsdóttir, Víkingi. TvUiðaleikur diengja, 16-17 ára: 1. Markús Árnason/Hjalti HaU- dórsson, Víkingi. 2. Ingimar Jensson/Axel Sæland, HSK. 3. -4. Baldur Jóhannsson/Gísli Einarsson, Stjörnunni. 3.-4. Gunnar Geirsson/Andri M. Helgason, Stjörnunni. Tvíliðaleikur stúlkna, 16-17 ára: 1. Kolbrún Hrafnsdóttir/Bryn- hUdur Aðalsteinsdóttir, Vík 2. Sæunn Viggósdóttir/María Kjartansdóttir, Vík. 3. Rannveig Gunnlaugsdótt- ir/Berglind Bragadóttir, Vík. Tvíliðaleikur sveina, 15 ára ogyngri: 1. Haukur S. Gröndal/Guð- mundur Stephensen, Víkingi. 2. Árni Ehmann/Hólmgeir Flosason, Stjömunni. 3. -4. Tómas Aðalsteinsson /Kjartan Baldursson, Víkingi. 3.-4. ívar Hróðmarsson/Arnar Ragnarsson, KR. Einliðaleikur Telpur, 12-13 ára: 1. Lára Hannesdóttir Víkingi 2. Harpa Albertsdóttir HSK 3. -4. írena Bermundez Vikingi 3.-4. Þóra Bjamadóttir Vikingi PUtar, 12-13 ára: 1. Árni Ehmann Stjarnan 2. Þorlákur Hilmarsson Víkingi 3. -4. Magnús Magnúss. Víkingi 3.-4. Ólafur Jónsson KR Sveinar, 14-15 ára: 1. Guðmundur Stephensen Vík. 2. Tómas Aðalsteinsson Vík. 3. -4. Haukur S. Gröndal Vík. 3.-4. Kjartan Baldursson Vík. Meyjar, 14-15 ára: 1. Hjördís Albertsdóttir HSK 2. Jóhanna Marteinsdóttir HSK 3. -4. Rannveig Gunnlaugsd. Vík. 3.-4. Berglind Bragadóttir Vík. Stúlkur, 16-17 ára: 1. Kolbrún Hrafnsdóttir Vík. 2. Ingunn Þóröardóttir HSK 3. -4. Sandra Tómasdóttir HSK 3.-4. Elma Þórðardóttir HSK Drengir, 16-17 ára: 1. Markús Árnason Víkingi 2. Ingimar Jensson HSK 3. -4. Axel Sæland HSK 3.-4. Gunnar Geirsson Stjörn. Hnokkar, 11 ára og yngri: 1. Matthías Stephenson Vik. 2. Kristinn Valtýsson HSK 3. -4. Darri Hilmarsson Vík. 3.-4. Jóhann Jensson HSK Tátur, 11 ára og yngri: 1. Kristín Hjálmarsdóttir KR 2. Ása Á. Hjálmarsdóttir KR 3. -4. Anna Guðmundsd. Vík. 3.-4. Eva Kristjánsdóttir Vík. „ Handbolti: Urslitakeppni 5. og 6. flokks Ákveðio hefur verið að úr- slitakeppni 5. flokks karla í handbolta fari fram á Akureyri 22.-24. mars og verður í umsjón KA og Þórs. Úrslitakeppnin í 5. flokki kvenna verður i umsjón Gróttu og fer hún fram í íþróttahúsi Seltjarnarness einnig 22.-24. mars. í báðum tilfellum er aö sjálf- sögðu keppt í A-, B- og C-liðum. Úrslitakeppnin í 6. flokki kvenna verður í umsjón FH 12.-14. aprU. Guðmundur Stephensen, Vikingi, Peter Nilsson, landsliðsþjálfari í borðtennis: Ef Gummi væri sænskur væri hann toppmaður í Svíþjóð Guðmundur Stephensen með þjálfara sínum, Peter Nilsson. Peter NUsson, þjálfari Víkings og landsliðsins í borðtennis, var að sjálfsögðu staddur á íslandsmótinu um síðustu helgi. í samtali við DV sagðist hann vera ánægður með hversu góð þátttakan hefði veriö á mótinu en sagðist þó vera áhyggju- fullur um framtíðina: „Það mætti vera mun meira um ferðir yngri leikmanna út til þess að spila gegn sterkari andstæðingum en bjóðast hér á íslandi. Það er í raun ótrúlegt hvað Guðmundur Stephensen hefur náð langt við þær aðstæður sem boðið er upp á. Ég get í þessu sambandi nefnt tvo leikmenn, þá Guðmund og Markús, sem báðir eru í Víkingi og mjög áhugasamir og efnilegir spilarar. Fyrir þá er það mjög brýmt að fá tækifæri til að mæta sterkum and- stæðingum erlendis i það minnsta einu sinni í mánuði. Það gerir gæfu- muninn um árangur síðar á ferlin- um. Guðmundur hefur farið í 2 keppn- isferðir og einu sinni í æfingabúðir síðan 1. september síðastliðinn. Sænsku strákamir, sem eru í svip- uðum gæðaflokki og Guðmundur, hafa aftur á móti spilað á 26 sterk- um mótum og farið í 6 æfingabúðir á sama tímabili. Allir geta séð hversu aðstöðumunurinn er geysi- lega mikill. Ef Guðmundur væri Svii væri hann örugglegá toppmaður í Sví- þjóð 1 sínum aldursflokki. Það er eins og menn hér á landi geri sér ekki almennilega grein fyr- ir því hversu Guðmundur er mikið efni og er sofandaháttur borðtermis- sambandsins í þessum veigamiklu málum alveg ótrúlega mikill," sagði Peter Nilsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.