Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Menning
Leikflokkurinn Bandamenn:
Sýnir
Amlóða
sögu sex
sinnum í
Danmörku
Leikflokkurinn Bandamenn
hefur að undanfornu verið að æfa
nýtt íslenskt leikverk, Amlóða
sögu eftir Svein Einarsson og leik
hópinn, við tónlist eftir Guðna
Franzson. Bandamönnum hefur
verið boðið að frumsýna leikinn i
Danmörku sem lið af hátíðahöld-
um í tilefni af því að Kaupmanna-
höfn er menningarborg Evrópu í
ár. AUs verða sex sýningar í Dan
mörku, þær fyrstu 3. mars nk. við
Krónborgarkastala á Helsingja
eyri í tengslum við Hamlet-hátíð.
Fjórar sýningar verða á Café
teatret í Kaupmannahöfn, m.a.
fyrir Norrænu ráðherranefndina.
Fyrsta sýning í Reykjavík verður
í Borgarleikhúsinu um miðjan
mars en sýningin er samvinnu-
verkefrii með leikhúsinu.
Byggir á elstu heimildum
Amlóða saga byggir á elstu
heimildum um þessa goðsagna-
persónu.'Amlóöi kemur t.d. mikið
fyrir i íslenskri bókmenntahefð
og er nafns hans sennilega fyrst
getið í íslenskri heimild, vísu eft-
ir 10. aldar skáldið Snæbjörn. í
sögunni er vikivaki og rímna-
kveðskapur, hið forna skrímsli
Finngálkn skýtur upp kollinum
og efldur er seiður aö fornum sið.
Um er að ræða dæmisögu fyrir
nútímann það sem áleitnar spurn
ingar dagsins í dag koma upp á
yfirborðið.
Leikflokkurinn Bandamenn var
stofnaður vorið 1992 til þess að
flytja leikgerð Sveins Einarssonar
af Bandamannasögu á Listahátíð
það ár. Var sá leikur framlag Nor
ræna hússins til listahátíðar og
Norrænu leiklistardaganna sem
samtímis voru haldnir í Reykja-
vík.
Leikarar eru sex, þau Ragn-
heiður Elfa Arnardóttir, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Borgar
Garðarsson, Felix Bergsson, Jak-
ob Þór Einarsson og Stefán Sturla
Sigurjónsson. Elín Edda Árna-
dóttir hannar búninga ásamt
Helgu Steffensen. Nanna Ól-
afsdóttir hefur verið til ráðgjafar
við hreyfingar og dans, ljósahönn-
uður er David Walters og tækni-
maður hópsins og sýningarstjóri
er Ólafur Örn Thoroddsen.
Sveinn Einarsson leikstýrir hópn-
um.
212 um-
sóknir til
Menningar-
sjóðs
útvarps-
stöðva
Umsóknarfrestur um styrki úr
Menningarsjóði útvarpsstöðva
rann út 15. febrúar sl. Alls bárust
212 umsóknir afls að fjárhæð um
450 milljónir króna, kostnaðará-
ætlun verkefnarina er rúmlega 1
milljarður króna. Til úthlutunar
eru hins vegar „aðeins“ um 30
milljónir króna.
Af þessum 212 umsóknum voru
119 um styrki til framleiðslu dag-
skrárefnis fyrir sjónvarp, 23 um
styrki til undirbúnings sjónvarps-
efriis og 70 um styrki til fram-
leiðslu efnis fyrir hljóðvarp.
Stjórn sjóðsins gerir ráð fyrir að
ljúka úthlutun fyrir lok mars.
-bjb
Jón Rúnar Arason og Þóra Einarsdóttir taka við styrkjum úr hendi Guðmundar Eiríkssonar, formanns stjórnar Söng-
menntasjóðs Marinós Péturssonar. DV-mynd GS
Þóra Einarsdóttir og Jón Rúnar Arason:
Efni í stórsöngvara
- styrkt úr Söngmenntasjóði Marinós Péturssonar
Önnur úthlutun úr Söngmennta-
sjóði Marinós Péturssonar fór fram
í íslensku óperunni sl. miðvikudag.
Tveimur styrkjum var úthlutað, 250
þúsund krónum í hvoru tilviki, til
Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu
og Jóns Rúnars Arasonar tenórs.
Þóra var einmitt fyrsti styrkþegi
sjóðsins árið 1992 en bæði þykja þau
efni í stórsöngvara og eru þegar far-
in að láta að sér kveða í söngheim-
inum.
Stofnfé sjóðsins er dánargjöf Mar-
inós Péturssonar sem var um árabil
kaupmaður í Reykjavík. Árið 1978
hætti hann fyrirtækjarekstri og
flutti til æskustöðva sinna á Bakka-
firði þar sem hann var trillukarl
síðustu tólf ár ævinnar. Marinó lést
árið 1991. Hann var alla tíð mikill
tónlistarunnandi og spilaði sjálfur
mikið á píanó. Síðustu árin á
Bakkafirði veitti hann börnum á
staðnum leiðsögn í tónlist.
Stofnfé sjóðsins var um 16 millj-
ónir. Honum er ætlað að styrkja
unga og efnilega söngvara til náms.
I stjórn sjóðsins eru Guðmundur Ei-
ríksson, Haukur Björnsson og Stef-
án Arngrímsson. Sjóðurinn er i um-
sjá íslensku óperunnar.
Þóru boðið í Töfraflautuna í
London
Þóra Einarsdóttir lauk 8. stigs
prófi frá Söngskólanum í Reykjavík
og prófl frá óperudeild Guildhall
School of Music and Drama. Hún
hefur sungið með Glyndebourne-óp-
erunni, m.a. í Don Giovanni eftir
Mozart. Þóra mun syngja hlutverk
Dísu í Galdra-Lofti eftir Jón Ás-
geirsson sem íslenska óperan frum-
sýnir á Listahátíð í vor og á tónleik-
um Styrktarfélags Islensku óper-
unnar í apríl. Þóru hefur boðist
hlutverk Paminu í Töfraflautunni
hjá Opera Factory í London næsta
haust og vinnur hún nú í London að
hlutverkum sínum með Láru Sarti
sem hefur verið kennari hennar
undanfarin ár.
Jón Rúnar vakti athygli með
Sinfóníunni
Jón Rúnar Arason lauk 8. stigs
prófi frá Söngskólanum í Reykjavík.
Hann fluttist síðan til Svíþjóðar og
starfaði við óperuna í Gautaborg í
tvö ár jafnframt því að sækja tíma
við óperuakademíuna þar. í ársbyrj-
un 1995 var Jón Rúnar ráðinn til að
syngja hlutverk Rudolfo í La
Bohéme eftir Puccini í óperunni í
Árósum og í framhaldi af því til óp-
erunnar í Gautaborg til að syngja
Pinkerton í Madama Butterfly eftir
Puccini. Jón Rúnar hefur sótt einka-
tíma víða, m.a. í MUanó, Róm og
London. Á komandi ári hyggst hann
vinna með kennara sínum, André
Orlowitz, í Kaupmannahöfn. Jón
Rúnar vakti óvænta en mikla at-
hygli tónleikagesta í Háskólabíói
með Sinfóníuhljómsveit fslands á
dögunum þegar hann kom, án kynn-
ingar, inn í aríu úr La Traviata sem
Alfredo á móti Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur í hlutverki Violettu. Inn-
koma Jóns kallaði fram gæsahúö
tónleikagesta, þvUíkur þótti söngur
hans. Ljóst er að þar fer efni í tenór
á heimsmælikvarða.
-bjb
Tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar íslands:
Sinfónían sló í
gegn í Orlando
DV Flórída:
Sinfóníuhljómsveit íslands
gjörsigraði áhorfendur sína í Or-
lando í Flórída á fyrstu tónleikum
sveitarinnar í Bandarikjaheimsókn-
inni. Var hvert sæti í 2.400 manna
áheyrendasal þétt skipað. Áheyrend-
ur ætluðu bókstaflega af göflunum
að ganga og voru bæði hljómsveitar-
stjórinn Osmo Vánska og hljóm-
sveitin hyUt í leikhléi og í hljóm-
leikalok. Ætlaði lófaklappinu aldrei
að linna og mátti heyra „bravo,
bravo“ víða úr salnum. Hljómsveitin
lék aukalag, Víxlspor eftir Jón Leifs,
við mikla hrifriingu áheyrenda.
Á dagskrá hljómsveitarinnar voru
íslenskir dansar, opús 11, eftir Jón
Leifs, Synfónía nr. 9, opus 95, eftir
Dvorák og Synfónía nr. 2, opus 43,
eftir Jean Sibelius.
Að loknum tónleikunum í Or-
lando var haldin móttaka í salar-
kynnum Bob Carr leikhússins þar
sem tónleikamir fóru fram. Borgar-
stjórinn í Orlando, Glenda Hood,
ávarpaði gesti. Hún hafði orð á að
hljómsveitin væri stórkostlega góð
og heiður að fá slíka heimsókn. Á
tónleikunum voru Einar Benedikts-
son sendiherra og kona hans, Elsa
Pétursdóttir. EUert Eiríksson frá
vinabæ Orlandoborgar, Reykjanes-
bæ, var einnig viðstaddur og fékk af-
hentan „borgarlykU" Orlando.
Þess má geta að engin sinfóníu-
hjjómsveit hefur verið starfandi í
Orlando eftir að hljómsveit borgar-
innar fór í verkfaU fyrir nokkrum
árum og kraföist launahækkana.
-A.Bj.
Miðnætur-
skemmtun í
Kaffileikhúsinu
Vegna mikiUa vinsælda Sápunn
ar og anna leikaranna sem í henni
leika hefur Kafflleikhúsið ákveðið
að framvegis verði eingöngu um
miðnætursýningar að ræða á fóstu-
dags- og laugardagskvöldum og
heflast þær kl. 23.30.
„Þetta er tilraun og algjör nýj-
ung í starfi Kafflleikhússins og af
því tUefni er boðið upp á: „Sápu
Delikatassen a la Heidy Stupp
elschmert" sem samanstendur af
leiksýningu, smárétti og einum
„hjartastyrkjandi" viö afar vægu
verði," eins og segir í fréttatilkynn-
ingu. Ef a.m.k. 40 koma saman í
hóp að sjá Sápu 314 er hægt að
koma á framfæri upplýsingum um
viðkomandi sem leikarar geta flétt
að inn í sýninguna. Þetta er jafn-
framt nýjung í íslensku leikhúsi en
sem kunnugt er var Kafflleikhúsið
nýlega tilnefnt til Menningarverð
launa DV í leiklist.
Stilltar myndir
í MS
Thalía, leikfélag Menntaskólans
við Sund, frumsýnir annað kvöld
leikverkið StUltar myndir í leik-
stjórn Vigdísar Jakobsdóttur.
Verkið er unnið í samvinnu leik-
ara og leikstjóra og er einskonar
klippimynd í leiklistarformi.
Áhorfendur kynnast 14 persón-
um sem til að byija með virðast
dæmigerðar týpur úr íslenskum
samtíma. En myndir fær á sig lit
eftir því sem líður á verkið og per
sónurnar trúa áhorfendum fyrir
sögum sínum, leyndarmálum og
draumum. AUs koma um 50 manns
nálægt sýningunni á einn eða ann-
an hátt. Sýnt er í Þrísteini, húsi
MS, og er uppselt á frumsýning-
una. Næstu sýningar verða nk.
föstudag, sunnudag og mánudag.
Uppeldisgreinar
úr Armanni á Al-
þingi í nýju riti
'lipfiddi/)
vaw'armfíitu
Rannsóknar-
stofnun Kenn-
araháskóla ís-
lands hefur gef-
ið út ritið Upp-
eldið varðar
mestu - Úr Ár-
manni á Al-
þingi, eftir
Baldvin Einars-
son. Um er að ræða umfjöllun
Baldvins um uppeldismál sem birt-
ist fyrst á prenti í tímariti hans,
Ármanni á Alþingi, árin 1828 og
1829. Textinn er endurprentaður í
heild að öðru leyti en því að sleppt
er síöasta hlutanum. ítarlegan inn-
gang að ritinu skrifar Ólafur
Rastrick.
Ritið er annað bindi í ritröðinni
Heimildarrit í íslenskri uppeldis-
og skólasögu sem hóf göngu sína
fyrir tveimur árum með endurút-
gáfu á bókinni Lýömenntun eftir
Guðmund Finnbogason. Að ritröð-
inni standa Rannsóknarstofnun
KHÍ, Félagsvísindastofnun og
Sagnfræðistofnun Háskóla Islands.
Ritnefnd skipa Guðmundur Hálf-
dánarson, Helgi Skúli Kjartansson
og Jón Torfi Jónasson en ritstjóri
er Loftur Guttormsson.
íslandskort í
Þjóðarbókhlöðu
Sýningu á 70 íslandskortum í
eigu Kjartans Gunnarssonar lyf-
sala lýkur í Þjóðarbókhlöðunni um
næstu helgi en hún hefur staðið
yfir frá 1. desember sl. Þá fékk
Landsbóksafri íslands - Háskóla-
bókasafn kortin að gjöf frá bönkum
og greiðslukortafyrirtækjum. Fyrr
á árinu hafði bókasafnið þegið
hluta úr kortasafninu að gjöf frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Um næstu helgi lýkur jafnframt
sýningu í Þjóðarbókhlöðunni um
Carl Christian Rafn, stofrianda
Landsbókasafnsins. -bjb