Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 28
32 í ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 Sviðsljós I>V Sandra er brúður á flótta Sandra Bullock gengur senn upp að altarinu. Ekki í alvör- unni heldur í myndinni Brúður á flótta. Þar mun hún væntan- lega leika konu sem hefur margoft gift sig en alltaf stungið af skömmu síðar þar sem hún er hrædd við að bindast. Það verð- ur svo tfl þess að blað eitt skrif- ar illa um hana og hún kemst í kynni við blaðamann. Fyrst er svona haturssamband milli þeirra en þar sem þetta er Hollywood verður úr því mikfl ást. Og þá hættir brúðurin sjálf- sagt að flýja. Grace Jones giftist lífverði Tískusýningarstúlkan og söngkonan Grace Jones, sem þekkt er fyrir sín þrumuskot i allar áttir, gekk að eiga tyrk- neskan fyrrum lifvörð sinn suð- ur í Ríó um daginn á miðri kjöt- kveðjuhátíð. Hann er 21 árs en hún mun vera eitthvað eldri. Um fimmtíu gestir voru við- staddir athöfnina sem fór fram í einkahúsi. „Grace hefur ekki talað um annað frá því hún kom til Ríó. Hún vildi giftast hvað sem það kostaði," sagði vinur hennar í viðtali við blað í Ríó. Hollywood-leikarar hita upp fyrir óskarsverðlaunin: Susan Sarandon valin sú besta fyrir nunnuhlutverk Susan Sharandon fékk verðlaun sem besta leikkonan þegar félag bandariskra kvikmyndaleikara kom saman um helgina og gerði upp árið sem leið. Sharandon var verðlaunuð fyrir hlutverk sitt í myndinni Dead Man Walking. Þar leikur hún nunnu sem veitir dauðadæmdum fanga hugg- un. Sean Penn leikur fangann dauða- dæmda en leikstjóri og höfundur handrits er Tim Robbins, sambýlis- maður Sharandon. Hún þakkaði þeim báðum að hún skyldi hreppa verðlaun- in. Það kom fáum á óvart að Nicolas Cage skyldi hreppa verðlaunin í flokki karlleikara. Þau hlaut hann fyrir hlut- verk sitt í myndinni Leaving Las Veg- as. Þar leikur hann ólánsaman hand- ritshöfund sem drekkur sig í hel. Cage sagði eftir verðlaunaafhend' inguna að margir hefðu ráðið fram- leiðendum myndarinnar frá því að gera hana en þeir hafi hunsað þau við- vörunarorð og uppskæru nú laun erf- iðisins. Sagði Cage velgengni myndar- innar vera merki um viðhorfsbreyt- ingu meðal kvikmyndagerðarmanna og áhorfenda. Þetta var siöasta meiri háttar verð- launaafhending fyrir afhendingu ósk- arsverðlaunanna i mars. Leituðu kvik- myndafíklar að vísbendingum um hver hreppti óskarinn þá en varð lítið ágengt. Engin kvikmynd var tilnefnd en tveir leikarar fengu verðlaun fyrir leik í aukahlutverki: Kate Winslet, fyr- ir hlutverk sitt í bresku myndinni Sense and Sensibility, og Ed Harris fyrir hlutverk sitt á jörðu niðri í Apollo þrettánda. Harris fagnaði verð- laununum sérstaklega en hann sagði leikara vera hörðustu gagnrýnendur kvikmyndaleiks sem til væru. Robert Redford var heiðraður sér- staklega fyrir framlag sitt til kvik- mynda en hann gat ekki mætt. Susan Sharandon og Nicolas Cage hampa hér verðlaunum sem bestu leikararnir á síðasta ári vestra að mati starfs- bræðra þeirra. Símamyndir Reuter i vSIMI 9 0 4 - 5 0 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. 4 i Þú þarft aðeins eitt símtal j í Lottósíma DV til að fá nýjustu | tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó ! og Kínó ? \ LOTTÓs/mi 9 0 4 - 5 0 0 0 Leikkonan og leikstjórinn Jodie Foster heldur hér á verðlaunum sem henni hlotnuðust á sérstakri hátíð bandarískra kvikmyndatökumanna sem haldin var í Los Angeles um helgina. Verðlaunin fékk Foster fyrir að stuðla að fram- gangi kvikmyndagerðar. Aðrir sem fengið hafa þessi verðlaun eru Martin Scorsese, Steven Spielberg og Gregory Peck. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.