Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 32
% f
i I , N i
Ráðherrar virðast að mati Jó-
hönnu ekki gera sér grein fyrir
kjörum fólks.
Ráðherrar úr
jarðsambandi
„Fólk hlustar hnípið og von-
dauft á ráðherra sem virðast
vera úr jarðsambandi við kjör
fólksins í landinu."
Jóhanna Sigurðardóttir í DV.
Ritstjóri sem mis-
skilur
„Við ritstjóra Alþýðublaðsins
er ekki hættandi á að eiga frek-
ari orðastað. Hann myndi vafa-
laust misskUja mig.“
Sverrir Hermannsson í Morg-
unblaðinu.
Ummæli
Engir styrkir
„Erlenda styrki? Flokkurinn
fær enga erlenda styrki. Punkt-
ur.“
Sigurður E. Arnórsson, gjald-
keri Alþýðuflokksins, í DV.
Trommuleikarinn
var góður
„Til að vera ekki algjör fýlu-
poki get ég sagt að trommuleik-
arinn hafi verið góður."
Heimir Viðarsson í leikdómi um skóla-
sýningu í Morgunblaðinu.
Keppi kannski
alltaf veikur
„Ég var mjög afslappaður á
mótinu, kannski vegna þess að
ég var veikur og því gekk mér
svona vel. Ég held ég verði bara
alltaf að keppa veikur."
Jón Arnar Magnússon í DV.
Uppruni frí-
merkja
írinn James Chahners prent-
aði fyrsta frímerkið í Dundee
1834 en formleg notkun frí-
merkja hófst ekki fyrr en. 1838 er
Rowland Hill hafði staðið fyrir
endurbótum á bresku póstþjón-
ustunni. í fyrstu var burðargjald
greitt við móttöku en ekki við
sendingu.
Fyrstu límbornu frímerkin,
sem tekin voru í notkun i Bret-
landi 6. maí 1840, voru svart
pennymerki og blátt tveggja
pensa merki, bæði voru þau með
mynd af Viktoríu drottningu.
Það var síðan Henry Archer sem
smíðaði fyrstur manna tæki til
að aðskilja frímerki. Þetta var
1847 og voru þá frímerkin aðskil-
in með skurði. Archer endur-
bætti síðan tæki sitt ári síðar og
skipti frímerkjaörkinni með
gataröðun.
Blessuð veröldin
Póstkort
Póstkortið varð til í Philadelp-
hiu árið 1861. Var það John P.
Charlton sem fékk fyrstur
manna útgáfurétt. Hann seldi út-
gáfuréttinn pappírskaupmanni,
sem hét Lipman, og sá seldi síð-
an kort með áletruninni „Póst-
kort Lipmans samkvæmt einka-
leyfl". Austurríkismaðurinn
Emmanuel Herrman varð fyrst-
ur til að senda póstkort með fyr-
irfram greiddu burðargjaldi,
gerði hann það árið 1869.
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Léttskýjað fyrir austan
í dag verður suðvestan gola eða
kaldi og él sunnan og vestan til á
landinu en víðast léttskýjað austan
til í dag. í nótt gengur vindur í norð-
an kalda eða stinningskalda með élj-
um um landið norðanvert en sunn-
Veðrið í dag
anlands verður léttskýjað. Hiti verð-
ur nálægt frostmarki suðvestan til
en tveggja til 15 stiga frost annars
staðar þegar líða tekur á daginn.
Kuldinn verður mestur í innsveit-
um norðaustan til. Á höfuðborgar-
svæðinu verður suðvestan gola eða
kaldi og él í dag en norðan og norð-
yestan gola eða kaldi og skýjað með
köflum í nótt. Veður fer heldur
hlýnandi og þegar líða tekur á dag-
inn verður hiti nálægt frostmarki.
Sólarlag í Reykjavík: 18.38.
Sólarupprás á morgun: 8.41.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.02
Árdegisflóð á morgun: 01.47
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaö -13
Akurnes léttskýjaó -12
Bergsstaöir alskýjaó -11
Bolungarvík snjóél á síð.kls. -8
Egilsstaöir heiöskýrt -15
Keflavíkurflugv. skýjaö -4
Kirkjubkl. snóél -9
Raufarhöfn alskýjaö -13
Reykjavik snjóél -9
Stórhöfði snókoma -4
Ósló léttskýjaó 1
Stokkhólmur þokumóöa 1
Amsterdam hrímþoka -1
Barcelona rigning 9
Chicago þoka 4
Frankfurt léttskýjaö 2
Glasgow skýjaö 2
Hamborg rigning á síó.kls. 3
London þoka í grennd -0
Lúxemborg þokumóöa 3
Paris skýjaö 3
Róm þokumóóa 3
Mallorca alskýjaö 8
New York heiöskírt 7
Nice rigning 10
Nuuk snjókoma -9
Vín þokumóöa -6
Washington alskýjaö -10
Winnipeg skýjaó -22
-8°
* i
ti
-13
-13°
?
-9°
* .
V'
-13°
>K
-4°
*
V
Q° /• //
Logn
S y
Veðrið kl. 6 í morgun
Sveinn Arnarson stýrimaður:
Æfingin skilaði sér
Ungur Grindvíkingur, Sveinn
Arnarson, stýrimaður á Þorsteini
GK, vann mikið björgunarafrek í
fyrradag þegar hann kastaði sér út
í ískaldan sjóinn eftir vinnufélaga
sínum, Sigurgeiri Bjarnasyni há-
seta, en slysið varð þegar þeir
voru að leggja netin við Krýsuvík-
urberg. Sigurgeir fékk færi um
vinstri fótinn og brotnaði illa við
ökkla áður en hann kastaðist í sjó-
inn. Sveinn lýsir því svo sem næst
gerðist: „Það varð að hafa snör
handtök. Ég hljóp upp í brú og fór
þar í flotgalla, sem ávallt er þar til
Maður dagsins
taks, og rétt náði að renna
rennilásnum upp áður en ég henti
mér í sjóinn.“ Sveinn var hins
vegar vettlingalaus og varð að
sögn fljótt kalt á höndunum.
Sveinn gerir ekki mikið úr af-
reki sínu, segir aðeins að hann
hafi gert það sem honum hafi ver-
ið kennt í Björgunaskóla Slysa-
varnafélagsins.
Sveinn er ekki gamall, tuttugu
Sveinn Arnarson.
og tveggja ára, og er að hefja stýri-
mannsferil sinn: „Ég er búinn að
vera á sjó frá því ég var sextán
ára, en þó með hléum. Ég fór í
stýrimannaskólann á Dalvík 1993
og kláraði skólann en gat f
nokkurn tíma á eftir ekki farið á
sjóinn þar sem ég fékk brjósklos í
bakið. Ég hóf störf sem stýrimaður
á Þorsteini GK síðastliðið haust en
þá byrjaði næstum alveg ný áhöfn
á skipinu.“
Sveinn sagði að veiðin hefði
géngið vel síðan þeir hófu veiðar,
en þeir eru á þorskveiðum. „Við
veiðum í net og erum í dagsferð-
um, förum að morgni og komum
inn á kvöldin."
Sveinn sagðist ekki vera neitt
eftir sig: „Þetta var mikill kuldi en
ég jafnaði mig fljótt. Ég hef áður
stokkið í sjóinn þótt það hafi ekki
verið í björgunarskyni, en við vor-
um látnir gera þetta í skólanum í
æfingaskyni og á sjómannadaginn
er farið í sjóinn, okkur og öðrum
til skemmtunar, þannig að ég veit
hversu kaldur sjórinn getur verið
en þetta er í fyrsta sinn sem þessi
kennsla nýtist mér.“
Sveinn er fæddur og uppalinn í
Grindavík og þar á hann unnustu
sem heitir Ema Rós Bragadóttir
og eru þau barnlaus. Hann sagði
áhugamál sín vera æði mörg en
nefndi mótorhjól og skíði. Um
áframhaldandi veru á sjónum
sagði Sveinn: „Ég verð örugglega
einhver árin á bátum. Draumur-
inn er að halda áfram að læra en
tíminn verður að leiða í ljós hvort
ég sé mér fært að láta þann draum
rætast.“ -HK
Stjarnan varð bikarmeistari fyrir
stuttu og hefur verið í efsta sæti
deildarinnar frá upphafi keppn-
istímabiisins.
Kvennaleikir í
handbolta og
körfubolta
Það er ekki mikið um að vera
í íþróttum innanlands í kvöld en
þó er leikið bæði í 1. deild
kvenna í handbolta og í 1. deild
kvenna í körfubolta. Þegar er
orðið ljóst hvaða átta lið í 1.
deild kvenna í handboltanum
fara í úrslitakeppnina en barátt-
an er enn innbyrðis um sæti sem
skiptir máli í komandi keppni.
Einn leikur er í kvöld í 1. deild-
inni, íslandsmeistarar Stjörn-
unnar leika á Akureyri gegn ÍBA
og hefst leikurinn kl. 20.30. Einn
leikur er einnig f 2. deild karla,
Ármann og Fjölnir leika í Laug-
ardalshöll kl. 20.00.
Einn leikur er einnig í kvöld í
1. deild kvenna í körfuboltanum
Iþróttir
og fer hann fram í Grindavík en
grindvísku stúlkurnar leika
gegn Val kl. 20.00. Á sama tíma
fer fram einn leikur í Seljaskól-
anrnn í unglingaflokki, er það
viðureign ÍR og KR.
Bridge
ítölsku spilararnir Lanzarotti,
Buratti, Versace og Lauria voru sig-
ursælir á stórmótinu í bridge á dög-
unum og hefur gengið vel í keppn-
um frá því að þeir urðu Evrópu-
meistarar. Þeir stóðu sig vel í For-
bo-mótinu í Ilollandi sem haldið var
í Hollandi 9.-11. febrúar og urðu tfl
dæmis í 5. sæti í mjög sterkri 70
sveita keppni. Hér er eitt spil úr
þeirri keppni sem kom fyrir í leik
ítölsku sveitarinnar við danska
unglingasveit. Sagnir gengu þannig
fyrir sig í lokuðum sal, austur gjaf-
ari og enginn á hættu:
4 8743
V 2
♦ KD108542
* D
4 Á6
* Á1084
4- ÁG963
4 84
♦ 102
•* DG93
♦ 7
* ÁK10753
* KDG95
* K765
* --
* G962
Austur Suður Vestur Norður
Lanzar. Ron Buratti Bröndum
2« pass pass 2-f
pass p/h 2« pass 3f
NS voru I vandræðum með sagn-
imar og enduðu í heldur ógæfuleg-
um samningi. Buratti hafði lítinn
áhuga á að spila annan samning en
tígul og sleppti því að dobla.
Trompliturinn gat eðlilega legið
skár fyrir sagnhafa en honum tókst
þó að skrapa heim 6 slögum. Sagnir
tóku aðra stefnu á hinu borðinu:
Austur Suður Vestur Norður
M. MadsenVersace L. Madsen Lauria
1* 1* 3f pass
pass Dobl p/h
Stökk J. Madsens var veik hindr-
un og Versace „gleymdi" að sjálf-
sögðu ekki að dobla þann samning
til úttektar þegar kom að honum að
segja. Með tiltölulega einfaldri vörn
hefðu ítalirnir getað tekið spilið 6
niður. ítalirnir þurftu að taka á ás-
ana þrjá og spila síðan spaða. Norð-
ur getur síðan fengið stungu í lauf-
litnum og einn trompslag til viðbót-
ar. ítölunum tókst ekki að ná spil-
inu nema 2 niður en þeir græddu
samt sem áður 10 impa á spilinu.
ísak Öm Sigurðsson