Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Qupperneq 33
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 DV Steinunn Þórarinsdóttir við gerð eitt verka sinna. Verk úr járni, gleri, gifsi og blýi í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir sýning á verkum Steinunnar Þórarinsdóttur. Verkin sem Steinunn sýnir eru aðallega úr járni en einnig not- ar hún bæði gifs, gler og blý. í verkum sínum er Steinunn iðu- lega á mörkum fantasíu og raunveruleikans en verkin fjórt- án, sem hún sýnir, eru öll frá- sagnarkennd og eins og fyrr er maðurinn í fyrirrúmi í verkun- um á einn eða annan hátt. Steinunn Þórarinsdóttir nam höggmyndalist á Ítalíu og í Englandi en hefur síðastliðin fimmtán ár unnið hér heima og hefur meðal annars verið fengin til að vinna stóra minnisvarða, svo sem í Sandgerði og í Grund- Sýningar arfirði, auk þess sem verk henn- ar prýða fjölmargar opinberar byggingar. Sýning Steinunnar í Gerðar- safni er níunda einkasýning hennar en auk þess hefur hún tekið þátt í á þriðja tug samsýn- inga bæði hér heima og erlend- is. Þá hefur Steinunn unnið leikmyndir fyrir leikhús. Sýn- ingin í Gerðarsafni stendur til 10. mars. Grétar og Bjarni í Kaffi Reykjavík í kvöld skemmta Grétar Örv- arsson og Bjami Arason í Kaffi Reykjavík. ITC-deildin Harpa Fundur verður í kvöld kl. 20.00 að Sigtúni 9, Reykjavík. Fundurinn er öllum opinn. Kvenfélagið Hreyfill heldur bingó í Hreyfilshúsinu í kvöld kl. 20.00. Aðalfundur Crohn’s og Colitis Ulcerosa samtakanna verður í kvöld í fé- lagsmiðstöðinni Frostaskjóli á annarri hæð í KR-húsinu. Snorri Ingimarsson geðlæknir flytur erindi. Samkomur ITC-deildin IRPA Ræðukeppnisfundur verður í safnaðarheimili Grafarvogs- kirkju í kvöld kl. 20.30. Öllum heimil þátttaka. Andlegt uppeldi Bahá’í samfélagið í Hafnar- firði býður alla velkomna á fyr- irlesturinn Andlegt uppeldi í Góðtemplarahúsinu við Suður- götu, Hafnarfirði, kl. 20.30 í kvöld. Tvímenningur Bridsdeild Félags eldri borg- ara í Kópavogi veröur með tví- menning í kvöld kl. 19.00 að Gjá- bakka, Fannborg 8. Signý, Björk og Schuil í Borgarleikhúsinu í kvöld: Ljóðadúettar úr ýmsum áttum „Uppistaðan í dagskránni er safn ljóðadúetta úr ýmsum átt- um auk nokkurra einsöngslaga. Hugmyndin að þessum tónleik- um hefur verið að gerjast um nokkurn tíma. Við Björk höfum Skemmtanir starfað mikið saman á ýmsum vettvangi og þekkjumst vel. Síð- ast sungum við dúetta saman fyrir fjórum árum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Þegar Borgarleikhúsið ákvað að standa fyrir tónleikum fannst okkur komið kjörið tækifæri og fengum Gerrit tO liðs við okk- ur,“ sagði Signý Sæmundsdóttir sópransöngkona í samtali við DV en hún mun ásamt Björk Jónsdóttur sópran koma fram á tónleikum í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.30. Undirleikari verður Hollendingurinn Gerrit SchuO, sem leikur á píanó. Á efnisskránni eru dúettar eftir PurceO, Haydn, Schumann, Brahms, Dvorák og Rossini auk skoskra þjóðlagadúetta sem ekki hafa heyrst áður hérlendis. Þá syngja Björk og Signý ein- söngslög eftir Haydn og Bizet. Alls flytja 24 lög á tónleikunum, sem verða í senn í léttum og ljúfum anda. Signý sagði að þær vonuðust til að geta flutt dagskrána á fleiri tónleikum þar sem mikiU undirbún- ingur lægi að baki hennar. Signý og Björk þarf vart að kynna íslenskum tónlistarunnendum. Björk hefur sungið með Sinfóníu- hljómsveit íslands, flutt einsöng með fjölda kóra og haldið fiölmarga ljóðatónleika. Sl. haust tók hún þátt í uppfærslu Hvunndagsleikhússins á Trjóudætrum við tónlist Leifs Þór- arinssonar. Signý hefur tekið þátt í óperuuppfærslum hérlendis og er- lendis og sungið þar mörg titilhlut- verk. Hún hefur haldið fiölda ein- söngstónleika, komið fram með Sin- fóníuhljómsveit íslands og sungið einsöng með kórum. Einnig hefur Signý flutt töluvert af nútímatónlist sem m.a. hefur sérstaklega verið samið fyrir hana. Hringganga á Álftanesi Álftanesið býður upp á margar skemmtilegar gönguleiðir og er frekar snjólétt. Hringgangan á kort- inu er hressandi ganga. Farið er að Bessastöðum og gengið fyrir neðan garð og út á Bessastaðanes eftir ökuslóð. Vestast á Bessastaðanesi komum við að rústum Skansins sem gerður var á 17. öld til varnar Umhverfi sjóræningjum. Þar er hægt að rifia upp danskvæðið um Óla skans sem bjó í Skansinum í lok síðustu aldar. Haldið er áfram með Seilunni, vík- inni við Skansinn, og ströndinni vestan við Breiðabólstað og Akrakot fylgt. Margt skemmtilegt ber fyrir augu á þessari leið. Heimild: Gönguleiöir á íslandi. Eyri Akrakotg*" Breiðabójssíaður! Kasthúsatjöca HrakhólraárV7 ALFTANES EyvinöarstaðÍL Bessastáðir Lambhúsatjörn Skógtjörn Gálgahraun Hliösnes Seilan Kársne; KOPA Arnarnes- vogur Ófært á heiðum austanlands Góð vetrarfærð er um alla helstu þjóðvegi landsins. Á Austurlandi er hafinn mokstur á Vatnsskarði eystra en ófært er um Mývatns- og Færð á vegum Möðrudalsöræfi og Vopnafiarðar- heiði, þá er Jökuldalur þungfær. Á leiðunum Egilsstaðir-Unaóos og Unaós-Borgarfiörður var verið að moka í morgun og var gert ráð fyr- ir að þær leiðir opnuðust fyrir há- degi. Á leiðinni Reykjavík-Akur- eyri er snjór sumstaaðar á vegum, má þar nefna Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði og skafrenningur er í Vatnsskarði. 0 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir C^) LokaörSt°ÖU ® Þungfært 0 Fært fjallabílum Ástand vega Alexander Máni eignast Litli drengurinn á myndinni fæddist á fæðingardeild Landspítal- ans 18. febrúar kl. 21.42. Hann var Barn dagsins bróður við fæðingu 3.235 grömm að þyngd og 50 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Ráðhildur Guðrún Guð- rúnardóttir og Kári Þórir Kárason. Hann á einn bróður, Alexander Mána, sem er fimm ára. Alan (Robin Williams) áhyggju- fullur á svip. Jumanji Stjörnubíó og Sam-bíóin frumsýndu um helgina ævin- týramyndina Jumanji en Jumanji er nafn á hættulegu og dularfullu spili sem býr yfir yfir- náttúrlegum krafti. Þeir sem leika leikinn þurfa að vera und- ir það búnir að mæta hættum sem eru ekki af þessum heimi. Myndin hefst 1969 þegar Alan Parish er 12 ára. Hann verður fórnarlamb leiksins þar sem honum tókst ekki að klára spilið. Hann lokast inni í spilinu. Önn- ur söguhetja, Judy, uppgötvar spilið og ásamt bróður sínum sínum, Peter, kastar hún tening- unum og opnast þá sú vídd sem skilur að þennan heim og annan og Alan sleppur út eftir 26 ára veru í spilinu en nú á eftir að Kvikmyndir klára spilið. Robin Williams leikur aðal- hlutverkið en auk hans leika í myndinni Kirsten Dunst, Bonnie Hunt og Jonathan Hyde. Leik- stjóri myndarinnar er Joe John- ston sem er fyrrum brellumeist: ari við margar frægar myndir eins og Star Wars og Indiana Jo- nes-myndirnar og leikstjóri Ho- ney, I Shrunk the Kids. Nýjar myndir Háskólabíó: Casino Laugarásbió: Skólaferðalagið Saga-bíó: Dumbo-aðgerðin Bíóhöllin: Bréfberinn Bíóborgin: Heat Regnboginn: Forboðin ást Stjörnubíó: Jumanji Gengið Almennt gengi LÍ nr. 11 26. febrúar 1996 íd. 9,15 Eining Kaup Sala Tollqenqi Dollar 65,630 65,970 67,300 Pund 101,290 101,810 101,150 Kan. dollar 47,720 48,020 48,820 Dönsk kr. 11,6670 11,7290 11,6830 Norsk kr. 10,3390 10,3960 10,3150 Sænsk kr. 9,7430 9,7960 9,5980 Fi. mark 14,5230 14,6090 14,7830 Fra. franki 13,1530 13,2280 13,1390 Belg. franki 2,1970 2,2102 2,1985 Sviss. franki 55,4900 55,8000 55,5000 Holl. gyllini 40,3100 40,5400 40,3500 Þýskt mark 45,1400 45,3700 45,1900 it. lira 0,04182 0,04208 0,04194 Aust. sch. 6,4150 6,4550 6,4290 Port. escudo 0,4337 0,4363 0,4343 Spá. peseti 0,5368 0,5402 0,5328 Jap. yen 0,62390 0,62760 0,63150 írskt pund 104,120 104,760 104,990 SDR 96,55000 97,13000 97,83000 ECU 82,9100 83,4000 82,6300 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan 1 3 Iv- sr í 7 £ )o II II ri ib- ur /7 l& 1 :'ló J Lárétt: 1 pyngja, 5 svik, 7 hermir, 9 óðagot, 11 vöxtur, 12 óþétt, 14 fals, 16 fiárhirðar, 17 duga, 19 frjó, 20 hræðast, 21 kurteisi. Lóðrétt: 1 vandræði, 2 neðan, 3 renningar, 4 hindra, 5 hlé, 8 skálma, 10 missti, 13 væla, 15 rugl, 16 eldstæði, 18 vein, 19 gyltu. Lausn á slðustu krossgátu. Lárétt: 1 þró, 4 skær, 8 jálkur, 9 áö- ur, 10 lim, 11 semja, 13 ha, 14 til, 16 órar, 18 stæður, 20 át, 21 summa. Lóðrétt: 1 þjást, 2 ráð, 3 ólum, 4 skrjóð, 5 kular, 6 æri, 7 ríma, 12 eitt, 13 harm, 15 læs, 17 róa, 18 sá, 19 um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.