Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1996, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1996, Page 2
26 MÁNUDAGUR 4. MARS 1996 DV Iþróttir íS _ a\ r WakJrA ( Jason Dozzell var í sviðsljósinu í ensku knattspyrnunni um helgina en þá skoraði hann sigurmark Tottenham gegn Southampton með góðum skalla. Dozzell, sem hefur varla skorað þýðingarmeira mark á ferlinum, fagnar því hér á White Hart Lane á laugardag. Símamynd Reuter Úrslit í ensku knattspyrnunni Coventry-West Hara.......2-2 0-1 Cottee (2.), 1-1 Salako (7,), 2-1 Whelan (15.), 2-2 Rieper (22.). Leeds-Bolton ...........0-1 0-1 Guðni Bergsson (16.). Man City-Blackburn .....1-1 0-1 Shearer (57.), 1-1 Lomas (84.). Middlesboro-Everton......0-2 0-1 Grant (28.), 0-2 Hinchcliffe (45.). QPR-Arsenal ............1-1 1-0 Gallen (20.), 1-1 Bergkamp (49.). Sheff Wed-Nott Forest...1-3 0-1 Howe (10.), 0-2 McGregor (46.), 1-2 Kovacevic (50.), 1-3 Roy (80.). Tottenham-Southarapton . . . 1-0 1-0 Dozzell (64.). Wimbledon-Chelsea...........1-1 0-1 Furlong (35.), 1-1 Clarke (sjálfsmark á 37.). Liverpool-Aston Villa.......3-0 1-0 McManaman ( ), 2-0 Fowler ( ), 3-0 Fowler (). Staðan f úrvalsdeildinni Newcastle 27 19 4 4 52-25 61 Man Utd 28 17 6 5 55-29 57 Liverpool 28 16 7 5 56-24 55 Aston Villa 28 14 7 7 39-24 49 Tottenham 28 13 9 6 35-25 48 Everton 29 13 7 9 44-30 46 Arsenal 28 12 9 7 36-26 45 Chelsea 29 11 10 7 38-39 43 Nott Forest 28 11 10 7 38-39 43 Blackburn 29 12 6 11 43-34 42 West Ham 29 11 6 12 33-39 39 Leeds 26 10 5 11 31-38 35 Middlesb. 29 9 7 13 28-39 34 Sheff Wed 28 7 8 13 37-46 29 Wimbledon 28 6 8 14 40-56 26 Coventry 28 5 11 12 35-51 26 Man City 28 6 8 14 20-40 26 Shampton 27 5 10 12 27^0 25 QPR 28 6 4 18 23-42 22 Bolton 29 5 4 20 29-58 19 Úrslit í 1. deild Birmingham-Sheff Utd.........0-0 Derby-Huddersfield ..........3-2 Luton-Crystal Palace.........0-0 Millwall-Wolves..............0-1 Portsmouth-Charlton..........2-1 Reading-Watford .............0-0 Southend-Norwich.............1-1 Stoke-Bamsley................2-0 WBA-Port Vale ...............1-1 Grimsby-Sunderland ..........0-4 Ipswich-Leicester............4-2 Oldham-Tranmere..............1-2 Staðan í 1. deild Derby 34 17 12 5 55-37 63 Sunderland 33 15 12 6 41-25 57 Charlton 32 13 13 6 46-35 52 Stoke 32 14 10 8 45-34 52 Huddersf. 32 13 10 9 45-37 49 Barnsley 33 12 11 10 43-48 47 Ipswich 31 12 10 9 57-46 46 Leicester 33 11 13 9 49-47 46 Cr.Palace 32 11 13 8 42-40 46 Southend 33 12 9 12 3342 45 Millwall 35 11 11 13 34-45 44 Portsmouth 34 11 10 13 54-54 43 Norwich 34 10 11 13 44-43 41 Wolves 32 10 11 11 4342 41 Tranmere 32 10 10 12 42-38 40 Birmham 31 10 10 11 4342 40 Grimsby 31 9 12 10 35-41 39 SheffUtd 35 9 11 .15 41-50 38 Reading 32 8 14 10 3340 38 Luton 33 9 10 14 31-44 37 Oldham 31 8 12 11 39-35 36 WBA 32 10 6 16 38-51 36 Port Vale 30 7 12 11 35-42 33 Watford Hva 31 Ið 5 »1 11 í 15 ei 32-45 ris 26 t í kvöld? Tvö efstu og bestu liðin í ensku knattspymunni, Necastle og Manchester United, leika í kvöld í úrvalsdeildinni og bíða margir yfir sig spenntir eftir þessum stórleik. Sigri Newcastle í leiknum má telja möguleika liðsins á meist- aratitli mun betri en áður en vinni United er liöið jafnvel lík- legra til að vinna meistaratitil- inn. Leikurinn hefst klukkan sjö í kvöld og hann er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 3. -SK Wright fékk áminn- ingu af hörðustu gerð Ian Wright, leik- maður Arsenal, slapp með skrekkinn þegar kveðinn var upp úr- skurður í máli hans sem upp kom eftir að Wright kallaði enska dómara litla Hitlera. Wright, sem alltaf er í einhverjum vand- ræðum, fékk mjög harða áminningu. Má Wright teljast hepp- inn með þessa niður- stöðu en flestir bjugg- ust við mun strangari útkomu. -SK „Giggs aldrei verið betri” - segir Alex Ferguson, stjóri United Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United, er og hefur lengi verið mjög hrifmn af hinum unga og snjalla Ryan Giggs. Ferguson segir Giggs afar mikilvægan hlekk í liðinu og hann sé nú að leika sitt besta tímabil til þessa. „Giggs hefur þroskast mikið. Hann á mjög góðar sendingar og skilur leikinn geysilega vel. Síðasta tímabil var erfitt hjá honum vegna meiðsla en nú hefur hann aldeilis slegið í gegn hjá okkur. Spilamennska hans í vetur hefur farið fram úr okkar björtustu vonum,” segir Ferguson. -SK Enska knattspyrnan um helgina: Sigurmark frá Guðna - Guðni Bergsson tryggði Bolton sigur gegn Leeds með góðu marki Guöni Bergsson var held- ur betur í sviðsljósinu á laugardag í ensku knatt- spyrnunni. Hann skoraði þá sigurmark Bolton Wanderes gegn Leeds United á Elland Road og tryggði Bolton þrjú stig í fallbaráttunni og ekki mun af veita. Sigurinn var auðvitað auðmýkjandi fyrir Leeds og stuöningsmenn liðsins sem sumir höfðu komið til leiks- ins um langan veg. Þetta var aðeins fimmti sigur Bolton á tímabilinu í úr- valsdeildinni og annar úti- sigurinn í vetur. Hvort þetta mark Guðna og sigurinn geta hjálpað Bolton í erfiðri fallbaráttu kemur í ljós á næstu vikum. Liverpool á fleygiferð Liverpool er að gera það gott þessa dagana og fylgir Newcastle og Manchester United eins og skugginn í toppbaráttunni. Liverpool tók Aston Villa í bakaríið í gær á Anfield og það er ljóst að Liverpool er líklegt til að blanda sér alvarlega í toppbaráttuna. Ef Newcastle og United misstíga sig er Liverpool allt eins líklegt til að hampa meistaratitlinum í vor eins og liðið leikur í dag. Leikmenn Liverpool skoruðu þrjú mörk á fyrstu 7 mínútum leiksins. Fyrst Steve McManaman og siðan komu tvö mörk frá Robbie Fowler. Með þessum sigri er Liverpool aöeins tveimur stigum á eftir Man. Utd í þriðja sæti og aðeins 6 stigum á eftir Newcastle. Meö þessum ósigri má segja að möguleikar Aston Villa hafi farið fjandans til en liðið á þó enn möguleika á Evrópusæti. Tottenham vann dýrmæt- an sigur á heimavelli sínum gegn Southampton. Jason Dozzell skoraði sigurmarkið og Tottenham hefur góða möguleika á að ná Evrópu- sæti. Það er ekki á hverjum degi sem Dozzell nær þeim áfanga að skora fyrir Tottenham því hann skor- aði síðast fyrir Tottenham fyrir fimm mánuðum. Manchester City komst af hættusvæðinu á botninum með því að ná jafntefli gegn Blackburn. Norður-írinn Steve Lomas tryggði City stigið. Fallbaráttan er að komast á fulla ferð. Coventry og West Ham skildu jöfn á laugardag og öll fjögur mörkin voru skoruð á að- eins 22 mínútum. Hið lélega lið Wimbledon heldur áfram að ná í stig á ótrúlegan hátt. Chelsea varð að gefa eftir tvö stig gegn Wimbledon um helgina og því miður virðist þetta leið- inlega lið Wimbledon líklegt til að halda sæti sínu i úr- valsdeildinni. Chelsea færði Wimbledon stigið á laugar- dag með sjálfsmarki á silf- urfati. Steve Clark skoraði sjálfsmarkið og á örugglega erfitt um þessar mundir því þetta var annar leikurinn í röð sem hann skorar sjálfs- mark. Hvorki gengur né rekur hjá Middlesboro. Liðið tap- aði níunda leik sínum af tíu síðustu leikjum á laugardag gegn Everton. Brasilíumað- urinn Branco kom inn á þegar tíu mínútur voru til leiksloka en hafði vitaskuld ekki mikið með úrslit leiks- ins að gera. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.