Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1996, Side 3
MÁNUDAGUR 18. MARS 1996
23
I>V íþróttir
Jóhannes R. Jóhannesson hefur átt í útistöðum við Snókersambandið:
Rekinn úr landsliðinu
- Snókersambandið vildi fá helminginn af hugsanlegu verðlaunafé
Jóhannes B. Jóhannesson, einn sterkasti snókerleikari
landsins, veröur ekki í íslenska landsliðinu sem keppir á
mjög sterku móti þriggja landsliða i Belgíu og úrslitin fara
síðan fram á Taílandi. Þetta er stærsta og mesta peningamót
sem haldið hefur verið hjá landsliðum.
Jóhannes, sem náð hefur besta árangri íslenskra snóker-
manna á erlendri grund, var að eigin sögn rekinn úr lanslið-
inu eftir að hafa mótmælt áformum Snókersambands íslands
um að hirða helming af hugsanlegu verðlaunafé.
„Liðið var valið á dögunum og þeir Kristján Helgason og
Eðvarð Matthíasson voru valdir í liðið auk mín. Þarna á mót-
inu í Belgíu eru fjögur lið í riðli og við eigum nokkuð góða
möguleika á því að komast í úrslitin á Taílandi. Þar er verð-
launaféð fyrir neðsta sætið um 150 þúsund krónur á mann og
3,5 milljónir á mann fyrir sigurvegara.
Við vorum boðaðir á fund með Snókersambandinu fyrir
viku og þar var okur tjáð að sambandið færi fram á það að fá
helming af hugsanlegu verðlaunafé okkar, alveg sama í hvaða
sæti við lentum. Ég sagði þeim mína hlið á málinu. Ég hef far-
ið á HM áhugamanna í Afríku og tvö Evrópumót og alltaf
greitt fyrir allar mínar ferðir sjálfur. Það eina sem
Snókersambandið hefur greitt er þátttökugjald sem er mjög
lág upphæð. Þá má einnig minnast á vinnutap samhliða þess-
um ferðum. Ég sagði þeim sem sagt af óánægju minni með
þessa framkomu þeirra. Þeir hringdu síðan í mig daginn eft-
ir og sögðu mér að mín væri ekki óskað i
landsliðið vegna þessarar uppákomu minnar,
eins og þeir orðuðu það. Mér var sagt að það
væri engin þörf fyrir mig í liðinu og ég þyrfti
engar áhyggjur að hafa af þessu. Ég sagði
þeim hjá Snókarsambandinu að mér fyndist
þetta aÚs ekki rétt. Ég bauð þeim síðan í lok
viðræðnanna að þeir fengju 30-50 þúsund af
hugsanlegum verðlaunum mínum, svona til
að gera þá ánægða, en það skipti bara engu
máli. Þeir buðust þá tO að skipta hugsanlegu
verðlaunafé jafnt á milli en þá sá ég að þetta
þýddi ekkert lengur,“ sagði Jóhannes en eng-
Afríku. Jóhannes komst alla leið í úrslitaleikinn en fram að
því hafði engum íslenskum snókerleikara tekist að komast í
8-manna úrslit á mótinu.
„Mér finnst nú einum of langt gengið þegar
sérsambandið ætlar að hirða af manni allt
hugsanlegt verðlaunafé. Sérstaklega kannski
þegar í hlut á sérsamband sem aldrei hefur
borgað neitt fyrir mann. Það er ekki hægt að
vera endalaust eins og góðgerðarstofnun. Mér
finnst þetta alls ekki forsvaranlegt. Þeir til-
kynntu mér að þeir hygðust nota þetta hugsan-
lega verðlaunafé til uppbyggingarstarfs innan
sambandsins. Mér finnst dapurlegt til þess að
hugsa að við þrír hefðum átt að sjá um allt
uppbyggingarstarf hjá sambandinu. Annars
vil ég bara óska þeim sem fara góðrar ferðar
inn íslenskur snókermaður hefur náð betri Jóhannes R. Jóhannesson var °S vona að þeir standi sig sem best. Eg vil taka
árangri en hann á mótum erlendis. rekinn úr landsliðinu og keppir Það skýrt fram að á milli okkar spilaranna eru
Á Evrópumótinu í Búdapest varð Jóhann- ekkjBelgíu. engin leiðindi. Þau hafa öll komið frá
es í 3.^1. sæti og þá náði hann hæsta skori Snókersambandinu í þessu máli,“ sagði Jó-
allra keppenda á mótinu í einu stuði. Sama ár fór Jóhannes á hannes R. Jóhannesson. Jóhannes B. Jóhannesson tekur sæti
heimsmeistaramót áhugamanna í Jóhannesarborg í Suður- nafna síns í landsliðinu. -SK
Lið KA verður styrkt fyrir næsta vetur:
Einar Gunnar
og Sigurður á
óskalistanum
KA-menn hafa í hyggju að styrkja lið sitt nokkuð fyrir næs*a leiktíma-
bil enda útlit fyrir að tveir af bestu leikmönnum þess fari utan, þeir Juli-
an Duranona og Patrekur Jóhannesson.
Patrekur fer sem kunnugt er til Essen og líklegt er að Duranona fari
til liðs á Spáni eða Frakklandi. Á Akureyri trúa menn engu öðru en að
tilboð muni koma í Duranona og ekki er reiknað fastlega með honum á
næsta tímabili.
Tveir leikmenn eru efstir á óskalista Alfreðs Gíslasonar, þjálfara KA,
samkvæmt áræðanlegum heimildum DV. Einar Gunnar Sigurðsson,
stórskytta á Selfossi, er líklega á leiðinni norður. KA-menn töluðu við
hann í fyrra en þá var Einar Gunnar ekki tilbúinn að flytja norður.
Hinn leikmaðurinn sem Alfreð hefur áhuga á er Sigurður Bjarnason í
Stjörnunni. Heimildir segja að Alfreð hafi mikíð álit á Sigurði og sé mjög
spenntur fyrir að fá hann norður.
Alfreð hefur ekki enn sett sig í samband við leikmennina tvo en sam-
kvæmt heimildum DV mun það gerast á næstu dögum. -SK
Kýpur og ísland fékk
Malta koma gullverðlaun
í sumar á Irlandi
KSÍ hefur komist að sam- íslenskar fimleikastúlkur
komulagi við Kýpurmenn um lentu í fyrsta sæti á liðakeppnis-
landsleik þjóðanna og verður móti í áhaldafimleikum á íra-
hann háður á Laugardalsvelli 5. landi um helgina.
ágúst. Þá hefur einnig verið Þetta er árlegt mót en auk Is-
samið við Möltumenn um A- og lendinga tóku Austurríki og N-
21-árs leiki og verða þeir báðir írland þátt í mótinu auk tveggja
14. ágúst. liða frá íralandi.
KSÍ hefur unnið að því að fá Á stigum fékk ísland 137.809
leik 24. apríl til undirbúnings stig, N-írland 135.751 og Austur-
fyrir leikinn gegn Makedóníu í ríki 132.825 stig. Nína Björg
riðlakeppni HM. Magnúsdóttir hlaut samanlagt
Boð kom frá Kanadamönnum flest stig keppenda, alls 34.734
en KSÍ fannst ferðalag þangað of stig og Elva Rut Jónsdóttir varð
langt. önnur með 34.633 stig.
-VS -JKS
Mike Tyson hefur hér gengið frá Frank Bruno sem liggur bjargarlaus í
köðlunum. Skömmu síðar stöðvaði dómarinn bardagann og Tyson hafði
unnið ótrúiegan sigur. Símamynd Reuter
Tyson rotaði Bruno
Mike Tyson er heimsmeistari á ný í þungavigt hnefaleika. Tyson sigraði
Bretann Frank Bruno á rothöggi snemma í þriðju lotu og voru yfirburðir
Tysons algjörir og bardaginn mun styttri en flestir höfðu spáð.
Tyson byrjaði strax á fyrstu sekúndunum að þjarma illilega að Bruno, lét
höggin dynja á höfði Brunos sem átti ekkert svar við leiftursnöggum högg-
um Tysons. Strax í fyrstu lotu var ljóst í hvað stefndi. Þá fékk Bruno mjög
slæman skurð á augabrún. Bruno stóð 2. lotu en með naumindum þó og þeg-
ar um mínúta var liðin af þriðju lotu rotaði Tyson Bruno sem tapaði þar
með titlinum til Tysons. -SK
Góður sigur Bochum
íslendingaliðunum
í Þýskalandi gekk
ágætlega um helgina.
Waldof Mannheim,
Lið Bjarka Gunn-
laugssonar,' sigraði
Wattenscheid, 1-0, og
Bochum, lið Þórðar
Guðjónssonar, sigr-
aði Lúbeck, 3-1.
Hvorugur þeirra var
á meðal markaskor-
ara. Eyjólfur Sverris-
son og félagar í Hert-
ha Berlin léku ekki.
Bochum er efst í 1.
deildinni með 42 stig
og hefur leikið tveim-
ur leikjum meira en
Duisburg sem hefur
38 stig.
Hertha er í 10. sæti
og Mannheim í 12.
sæti.
- JKS
Kristjáni vegnar vel
- Dormagen upp töfluna
Kristján Arason.
Kristjáni Arasyni,
sem þjálfar Dor-
magen í þýska hand-
boltanum, vegnar vel
með lið sitt en um
helgina gerði það
jafntefli við THW
Kiel, 22-22.
Kiel er í efsta sæti
með 36 stig og stefnir
enn eina ferðina á
þýska meistaratitil-
inn. Dormagen skríð-
ur hægt og. bítandi
upp töfluna og er
komið í 9. sætið með
25 stig.
-JKS
Deildabikar:
Markasúpa
HK-ÍR ....................1-3
Hafþór Hafliðason - Benedikt Bjama-
son , Pálmi Guðmundsson, Guðjón
Þórðarson.
Skallagrímur-Selfoss......3-1
Valdimar Sigurðsson 2, Garðar
Newman - Jóhannes Snorrason.
Vlkingur R.-Fram .........O-l
- Haukur Hauksson.
Valur-Dalvik..............6-1
Sigþór Júlíusson 2, Arnljótur Davíðs-
son, Geir Brynjólfsson, Böðvar
Bragason, Salih Heimir Porca- Sverr-
ir Björgvinsson.
Breiðablik-Reynir S......10-0
Sævar Péturson 3, Arnar Grétarsson
3, Theadór Hervarsson, Hreiðar
Bjarnason, Pálmi Haraldsson, Ant-
hony Karl Gregory.
Fylkir-Þróttur R .........3-1
Þórhallur Dan Jóhannsson 2, Ingvar
Ólafsson - Sigfús Kárason.
HK-Tindastóll ...... 5-1
Hallmundur Albertsson 2, Ámi Ey-
þórsson, Hafþór Hafliðason, Hugi
Sævarsson - Guðbrandur Guöbrands-
son.
Haukar-Tindastóll.........0-1
- Guöbrandur Guðbrandsson.
Keflavik-Þór..............2-1
Róbert Sigurðsson 2 - Kristján Örn-
ólfsson.
FH-Dalvik.................6-1
Davíð Ólafsson 3, Jón G. Gunnarsson
2, Hrafnkell Kristjánsson - Gunnlaug-
ur Gunnlaugsson.
Völsungur-FH............ 1-5
Guðni R. Helgason - Davíð Ólafsson,
Jón G. Gunnarsson, Guðlaugur Bald-
ursson, Hörður Magnússon, Hrafn-
kell Kristjánsson.
Léttir-Þróttur R..........0-0
Fylkir-Höttur ............4-1
Kristinn Tómasson 3, Bergþór Ólafs-
son - Sigurður Magnússon.
Völsungur-Valur...........0-2
Arnljótur Davíðsson, Salih Heimir
Porcha.
Sindri-Viðir..............0-3
Björgvin Björgvinsson, Sigurður
Torfason, Þorvaldur Logason.
Grindavik Sindri..........3-3
Ólafur Ingólfsson 2, Grétar Einarsson
- Hermann Stefánsson 2, Pálmar
Hreinsson.
Höttur-Léttir.............2-1
Skallagrímur-Ægir ........1-0
Valdimar Sigurðsson.
Fram-Grótta ............. 3-1
Þorbjöm Atli Sveinsson 2, Guðmund-
ur Gíslason - Kristinn Kærnested.
Þór A-Breiðablik..........1-6
Árni Þór Ámason _ Arnar Grétars-
son, Anthony Carl, Gunnlaugur Ein-
arsson, Arnaldur Loftsson, ívar Sig-
urjónsson, Gunnar. B. Ólafsson.
-JKS