Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Síða 16
Iþróttafréttir eru einnig á bls. 34
tilboð frá
Stjörnunni
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 199611
íþróttir
íþróttir
Aldursforseti handknattleiksdómara í 1. deildinni:
„Gefst ekki upp
fyrr en ég dett
dauður niður"
- segir Gunnlaugur Hjálmarsson í hressilegu viðtali við DV
Stjörnumenn hafa
sent Sigurði Gunnars-
syni tilboð um að ger-
ast næsti þjálfari 1.
deildarliðs félagsins.
Eins og DV skýrði
frá á mánudag þá
voru Stjömumenn
spenntir að fá Sigurð
til að taka við þjálfun
félagsins af Viggó Sig-
urössyni og í gær
með
staðfestu stjórnar-
menn hjá Stjömunni
að Sigurður væri
þessa dagana að
skoða tilboð frá félag-
inu sem hann fékk í
vikunni.
Valdimar áfram
með Selfyssinga
Valdimar Gríms-
son verður áfram við
stjórnvölinn hjá Sel-
fyssingum og var
gengið frá samning-
um þar að lútandi á
dögunum. Enginn
hefur yfirgefið her-
búðir félagsins og er
stefnt að því að
styrkja liðið fyrir
næsta tímabil.
-GH
Gunnlaug Hjálmarsson þekkja
margir unnendur íþrótta. Um ára-
tugaskeið hefur hann verið í eld-
línunni, fyrst sem leikmaður og
dómari í handknattleik, en sem
dómari í seinni tíð. Gunnlaugur
er 58 ára gamall en lætur engan
bilbug á sér finna. Hann dæmir
enn í 1. deild karla og stendur sig
ekki lakar þar en margir þeirra
yngri.
Gunnlaugur er elsti starfandi
handknattleiksdómarinn. Margir
þekktir dómarar hafa lagt flautuna
á hilluna um fimmtugt en þá mega
þeir ekki lengur dæma alþjóðlega
leiki. Gunnlaugur er ekki á þeim
buxunum að hætta:
„Ég hætti ekki að dæma fyrr en
ég dett dauður niður eða þeir reka
mig endanlega. Mér finnst það
mesta furða miðað við aldur hvað
ég hef fengið að dæma í vetur þvi
auðvitað átti ég að vera hættur
þessu fyrir löngu. En ég hef svo
mikið gaman af þessu, að koma
innan um fólk og ekki síst unga
fólkið. Ég vil ekki alveg slíta sam-
bandi við þetta fólk. Þetta hefur
verið manns hálfa líf fram til
þessa,“ segir Gunnlaugur.
Byrjaði 1961 á Hálogalandi
og sér ekki eftir því
„Ég byrjaði að dæma árið 1961.
Ég hef því dæmt í 35 ár og það er
ágætt. Þetta byrjaði þannig að eng-
inn fékkst í þetta og oftar en ekki
dreif maður sig í sturtu til að
dæma næsta leik á eftir. í byrjun
varð maður að dæma í meistara-
flokki þó að maður væri að spila
leiki. Það gengi varla i dag.“
- Hverju þakkar þú góða heilsu
og að þú ert enn að dæma á meðal
þeirra bestu, 58 ára gamall?
„Ætli ég segi ekki bara eins og
gamanleikarinn George Burns:
„Pakki af sígarettum á dag og eitt-
hvað af koníaki með. Nei, í alvöru
talað, þá er maður líklega bara
þokkalega af guði gerður. Svo má
auðvitað ekki gleyma þvi að dóm-
gæslan er óskaplega mikil rútínu-
vinna."
- Hvernig eru íslenskir dómarar
í dag?
„Stærsti gallinn og helsta vanda-
málið hjá íslenskum dómurum í
dag er að þeir eru alltaf að dæma
hjá sömu leikmönnunum. Menn
eru farnir að þekkja alla út og inn
og það er sáralítið sem kemur á
óvart. Ég held að dómarar hér hafi
staðið sig mjög sæmilega í vetur og
fengið góða umíjöllun, betri en oft
áður.
Annars er ég stoltastur af því í
gegnum minn dómaraferil að hafa
verið með nokkra af bestu dómur-
um landsins í dag í uppeldi þegar
ég var formaður dómaranefndar.
Hér má nefna Rögnvald Erlings-
son, Stefán Arnaldsson, Ólaf Har-
aldsson og fleiri. Það kostaði oft
blóð, svita og tár þegar þessir dóm-
Gott mót fatlaðra
Körfuknattleikur:
Williford áfram með Haukum
- fór af landi brott með undirskrifaðan samning
Eurar voru að koma upp og enginn
vildi dæma með þeim. Ég er mjög
stoltur af því að eiga þessa dómara
sem uppeldissyni í dómgæslunni."
„Ruddi að vissu leyti braut-
ina á íslandi"
„Það má segja að ég hafi gegnt
öllum störfum sem hugsast getur i
kringum þetta. Ég var formaður
Handknattleiksdómarafélags
Reykjavíkur, formaður dómara-
nefndar og fyrsti íslenski hand-
boltadómarinn sem stóðst alþjóð-
legt próf. Það má segja að maður
hafi að vissu leyti rutt brautina og
þess vegna kannski á maður erfitt
með að hætta þessu.
Handboltinn er auðvitað spenn-
andi í dag en mér finnst getumun-
urinn alltof mikill á liðunum. Það
má líka segja að okkur vanti af-
burða handknattleiksmenn. Þeir
virðast ekki liggja á lausu þessa
stundina. Valur og KA bera höfuð
og herðar yfir hin liðin. Enn er
maður að bíða eftir því að Hauk-
arnir verði eitthvað meira en efni-
legir. Svo veit maður ekki hvað
þeim tekst að gera í framtíðinni
kjúklingabændunum I Mosfells-
bænum."
„Ein skytta í deildinni og
hinir drífa ekki að marki“
„Leikimir hjá Val og KA verða
auðvitað mjög spennandi. Hitt er
svo annað mál að lið KA hefði ekki
verið fugl né fiskur í vetur ef það
hefði ekki haft Kúbumanninn
Duranona innan sinna raða. Það
verður að segjast eins og er að þaö
er sorglegt fyrir íslenskan hand-
knattleik að aðeins einn leikmaður
í 1. deild karla skuli geta skotið á
markið fyrir utan eða frá punkta-
línu.
Og þessi eini sem þetta getur er
erlendur leikmaður. Þessi mörk
öll eru skoruð með gegnumbrotum
og menn virðast verða að koma sér
langt inn í vítateig andstæðingsins
til þess að skjóta á markið og eiga
möguleika á að skora. Það er ein
skytta í deildinni. Hinir drífa varla
á markið. Duranona hefur verið
að gera stórkostlega hluti. Og mest
fyrir hans tilstilli og góðs gengis
liðsins er KA orðið stórveldi í ís-
lenskum handknattleik. Mér skilst
aö um 80 strákar æfi með 5. flokki
karla hjá KA. Alfreð Gíslason á
auðvitað mjög stóran þátt í þessu
líka.“
„HM skildi ekkert eftir sig“
„íslenskur handknattleikur á í
vanda í dag. Menn misstu auðvitað
af stórkostlegu tækifæri þegar
heimsmeistarakeppnin fór fram
hér og skildi lítið sem ekkert eftir
sig nema vandræði og slæma um-
fjöllun. Þetta var keppni sem átti
að auka veg íþróttarinnar en hún
skilaði akkúrat engu fyrir íþrótt-
ina. Kannski bara slæmri umfjöll-
un og málaferlum. Þetta var mótið
sem átti að lyfta íþróttinni örlítið
upp á við. Niðurstaðan varð allt
önnur,“ sagði Gunnlaugur.
Hann lék á sínum tíma 47 lands-
leiki í handknattleik og missti ekki
úr leik í áratug. Þá dæmdi Gunn-
laugur tæplega 150 landsleiki eða
Evrópuleiki og deildaleikir hér
heima skipta mörgum hundruð-
um. -SK
Gunnlaugur Hjálmarsson er elsti starfandi dómarinn í 1. deild og liggur ekki á skoðunum sínum frekar en vant
er. Gunnlaugur segir Duranona hjá KA eina leikmanninn sem talist geti skytta í 1. deildinni. DV-mynd Brynjar
DV, Akranesi:
íslandsmót fatlaðra íþróttamanna í
bogfimi, lyftingum og boccia fór fram
á Akranesi á dögunum og voru kepp-
endur alls 430 víðs vegar af landinu.
íslandsmót fatlaðra var síðast hald-
ið á Akranesi árið 1982. Þá voru ýms-
ar endurbætur gerðar á íþróttamann-
virkjum á Skaganum sem komu sér
vel á dögunum. Það voru íþróttafélag-
ið Þjótur á Akrariesi og íþróttabanda-
lag Akraness sem sáu um undirbún-
ing og framkvæmd mótsins. Kiwanis-
klúbburinn Esja í Reykjavík gaf öll
verðlaun til mótsins.
Jón M. Árnason, ÍFR, sigraði I
flokki fátlaðra I bogfimi, Óskar Kon-
ráðsson, ÍFR, varð annar. Þröstur
Steinþórsson, ÍFR, sigraði í opnum
flokki í boccia og annar varö Ásmund-
ur Marteinsson, ÍFR.
í kvennaflokki í bogfimi sigraði Est-
er Finnsdóttir, ÍFR, en Ester Stein-
dórsdóttir, Akri, varð önnur.
í lyftingum hreyfihamlaðra sigraði
Arnar Klemensson, Viljanum, en ann-
ar varð Atli Brynjarsson, ÍFR. Gunnar
Erlingsson, Ösp, sigraði í lyftingum
þroskaheftra og þar varð Ásmundur
Pétursson, Ösp, í öðru sæti.
í boccia var um hörkukeppni að
ræða eins og í hinum greinunum. I U-
flokki sigraði c-lið Grósku, a-lið Akurs
varð í ööru sæti og b-lið Grósku í
þriðja sæti. I atrennuflokki sigraði a-
lið ÍFR, b-lið ÍFR varð í öðru sæti og
bronsið vann a-lið Aspar.
Eik H sigraði í 3. deild og Nes C
varð í öðru sæti og Ösp M I þriðja.
Þjótur A vann 2. deild, Kveldúlfur A
varð í öðru sæti og b-liðið í þriðja
sæti. Ösp A vann 1. deild, ÍFR B 1 öðru
sæti og Akur A í þriðja sæti.
-SK
Gífurleg þátttaka var á íslandsmóti fatlaðra á Akranesi um síðustu helgi en
keppendur voru alls um 430. -DV-mynd DÓ
Bikarmeistarar Hauka í
körfuknattleik eru bjartsýnir á að
Bandaríkjamaðurinn Jason Willi-
ford muni leika áfram með
Haukaliðinu á næsta keppnistíma-
bili. Williford reyndist Haukunum
mjög sterkur, hann féll vel inn í lið-
ið og hann átti drjúgan þátt í vel-
gengni liðsins í vetur.
„Hann fór með undirskrifaðan
samning frá okkur út í dag (í gær)
og við gáfum honum smáfrest að
skila honum aftur til baka. Við
erum mjög bjartsýnir á að hann
komi aftur til okkar enda líkaði
honum dvölin hjá okkur mjög vel,“
sagði Sverrir Hjörleifsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar Hauka, í
samtali við DV í gærkvöldi.
Byrjar næsta tímabil í
tveggja leikja banni
Fari svo að Williford spili næsta
vetur með Haukunum eins og allt
útlit er fyrir byrjar hann næsta
keppnistímabil í tveggja leikja
banni en aganefnd Körfuknattleiks-
sambands íslands úrskurðaði
Bandaríkjamanninn í tveggja leikja
bann eftir leikinn gegn Grindavík
þar sem Williford var rekinn út úr
húsinu.
Að sögn Sverris er ekki búið að
ganga frá þjálfarararáðningu en
rætt verður fyrst við Reyni Krist-
jánsson, þjálfara Hauka í vetur.
Haukarnir stefna á að halda öllum
sinum mannskap og hafa í hyggju
aö styrkja leikmannahópinn.
-GH
Páll Beck hjá Nyborg í Danmörku:
Stjarnan og Fram hafa sýnt honum áhuga
Páll Beck handknattleiksmaður,
sem leikið hefur með danska 1.
deildarliðinu Nyborg í vetur og lék
með KR-ingum, er með tilboð um að
leika áfram með danska liðinu á
næsta keppnistímabili.
Páll er að íhuga tilboðið frá Dön-
unum og eins þaö aö koma aftur
heim og samkvæmt heimildum DV
þá hafa Stjarnan og Fram sýnt
áhuga á að fá þennan skemmtilega
leikmann í sínar raðir fyrir næsta
keppnistímabil.
Páll hefur staðið sig vel með Ny-
borg í vetur en liðinu tókst ekki að
komast í úrslitakeppnina um
danska meistaratitilinn.
-GH/VS
Titillinn blasir
við Keflvíkingum
„Nú er það engin spurning að við ætl-
um að klára þetta á fóstudaginn," sagði
Björg Hafsteinsdóttir, leikmaður Kefla-
víkur, eftir annan sigur Keflavíkur á KR
í úrslitum 1. deildar kvenna.
KR-stúlkur komu mjög grimmar til
leiks, staðráðnar í að hefna tapsins í
Keflavík á sunnudag. Þær léku mjög
góða vörn á Keflavíkurstúlkurnar og
leiddu með einu stigi í hálfleik, 30-29.
Síðari hálfleikur var mjög kaflaskipt-
ur. KR-ingar skoruðu fyrstu sjö stigin
og komust i 37-29, þá kom mjög góður
leikkafli hjá Keflavíkurstúlkum og þær
komust í 37-41. KR náði að bíta frá sér
og minnka muninn jafnt og þétt, en
Keflavík er með leikreyndasta lið deild-
arinnar og það kom þeim að góðum not-
um og sigruðu þær, 60-63.
Leikurinn var mjög hraður og
skemmtilegur, bæði lið léku mjög góða
vörn án þess þó að leika grófan leik.
„Við vissum að þær myndu koma al-
veg brjálaðar í þennan leik. Þær fóru
strax í 3-2 vöm, sem gekk mjög vel hjá
þeim f fyrsta leiknum en okkur tókst að
komast fram hjá henni. Þá fóru þær í
maður á mann vörn og tókst að loka á
Veronicu og Önnu Maríu, sem hafa ver-
ið okkar stigahæstu leikmenn og okkur
gekk illa að koma boltanum inn á þær í
fyrri hálfleik. En við fundum leið út úr
því í seinni hálfleiknum og ætlum að
vinna þær í þriðja sinn á fostudaginn og
komast í páskaleyfi,“ sagði Björg Haf-
steinsdóttir.
Anna María Sveinsdóttir var stiga-
hæst í liði Keflavíkur með 17 stig og
Veronica Cook skoraði 16.
Guðbjörg Norðfjörð var langbest og
stigahæst í liði KR með 26 stig, Kristín
Jónsdóttir skoraði 6 stig. -ih
Anna Maria Sveinsdóttir, Keflavík, smeygir sér fram hjá Helgu Þorvaldsdóttur, KR,í
öðrum leik liðanna í Hagaskóla í gær. Keflavík vann leikinn og þarf nú aðeins einn
sigur til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn. DV-mynd Brynjar Gauti
Körfuknattleikur kvenna - úrslit:
Gullit til BBC
Margir hafa velt því fyrir sér
hvort Ruud Gullit spilar í Evr-
ópukeppninni á Englandi í sum-
ar en svo verður ekki. Hann hef-
ur gert samning við bresku sjón-
varpsstöðina BBC og verður sér-
fræðingur stöðvarinnar við lýs-
ingar á leikjum í keppninni.
Giggs launahæstur
Ryan Giggs, hinn frábæri leik-
maður Manchester United, hefur
skrifað undir risasamning við
íþróttavörufyrirtækið Reebook
og er samningurinn til 6 ára.
Samningurinn er sá stærsti sem
gerður hefur verið við leikmann
í ensku knattspyrnunni. Giggs
mim fá 600 milljónir næstu 6
árin og meira ef hann vinnur
meistaratitil eða bikar með
United. Með þessum samningi
veröur Giggs launahæsti leik-
maður á Englandi.
Ferguson áfram
Martin Edwards, stjómarfor-
maður Manchester United, hefur
kveðið niður þær sögusagnir að
United vilji ekki endumýja
samning við Alex Ferguson,
stjóra liðsins. „Ferguson á eftir
18 mánuði af samningi sínum og
við ætlum að reyna að fram-
lengja hann til þriggja ára í sum-
ar,“ sagði Edwards.
Brolin til Liverpool?
Sænska blaðið Aftonbladet
greinir frá því í gær að tvö félög
séu nú á höttunum eftir Tomas
Brolin eftir að hann lýsti því yfir
að hann vildi fara frá Leeds. Það
eru Parma, sem seldi hann til
Leeds, og Liverpool.
Rush til Portsmouth?
Terry Fenwick, framkvæmda-
sfjóri Portsmouth, hefur farið
fram á við Liverpool að félagið
selji hann til Portsmouth eftir
þetta keppnistímabil. Fyrr í vet-
ur ákvað Liverpool að Rush
fengi frjálsa sölu frá Liverpool í
lok leiktíðarixmar.
Torino rekur og ræður
ítalska 1. deildarlið Torino rak
í gær Franco Scoglio þjálfara í
kjölfarið á slökum árangi liðsins
á tímabilinu en liðið er í fjórða
neðsta sæti deildarinnar og er í
mikilli fallhættu. ístað Scoglio
réð Torino Lido Vieri en hann
hefur þjálfað varalið félagsins og
verið markmannsþjálfari.
Fowler á bekknum
Terry Venableas tilkynnti í
gær byrjunarlið Englendinga
sem mætir Búlgörum í vináttu-
lardsleik á Wembley í kvöld.
Flestum á óvart er Robbie
Fowler ekki í byrjunaliðinu en
talið var víst að hann fengi tæki-
færi þar sem Alan Shearar er
meiddur. Terry Venableas ákvað
hins vegar að tefla fram Les
Ferdinand og Teddy Sheringham
í fremstu víglínu.
Byrjunarliðið
Byijunarliðið er þannig skip-
að: David Seaman er i markinu.
Varnarmenn eru Gary Neville,
Stewe Howey, Gareth Southgate
og Stuart Pearce. Miðjumenn
eru Steve Stone, Paul Gascoigne,
Paul Ince og Steve McManaman
og framherjar eru þeir Teddy
Sheringham og Les Ferdinand.
Paul Ince leikur I ensku lands-
liðstreyjunni í fyrsta sinn í eitt
ár og Gareth Southgate hjá
Aston Villa leikur í fyrsta sinn I
byrjunarliði Englendinga.
Króatar unnu
Króatia sigraði ísrael, 2-0, í
vináttuleik, í Króatíu í gær. Igor
Stimac og Goran Vlaovic
skoruðu mörkin. -GH
ÍA vann aftur
Skagamenn munu leika
áfram í úrsvalsdeildinni í
körfuknattleik en þeir unnu sig-
ur á Þór Þorlákshöfn í öðrum
leik liðanna um úrvalsdeildar-
sæti í Þorlákshöfn í gær, 89-105,
eftir að heimamenn höfðu yfir-
höndina í hálfleik, 54-49.
Þróttur N er yfir
Þróttur Neskaupstað sigraði
HK, 2-3, í þriðja úrslitaleik lið-
anna um íslandsmeistaratitil-
inn í blaki kvenna í Digranesi í
gær og tóku forystu, 2-1, í ein-
vígi liðanna um titilinn. Úrslit í
hrinunum urðu: 12-15, 15-2,
3-15, 15-10, 7-15.
Tékkar sigruðu
Tékkar unnu 3-0 sigur á
Trykjum í vináttulandsleik í
knattspyrnu í Tékklandi í gær.
-GH
Fylkir sigraði Leiftur
Fylkir sigraði Leiftur frá Ólafsfirði, 1-0, í deilda-
bikarkeppninni í knattspymu í gær en leikurinn
fór fram á malarvellinum í Árbænum. Eina mark
leiksinS skoraði Þorsteinn Þorsteinsson í fyrri hálf-
leik.
Þetta var þriðji leikur Árbæjarliðiðsins og hefur
það unnið aÚa leiki sína en leikurinn var sá fyrsti
sem Ólafsfirðingar spila í keppninni.
Næst verður leikið í deildabikarkeppninni aimað
kvöld en þá mætast nafnarinir Þróttur Reykjavík
og Þróttur Neskaupsstað og fer leikurinn fram á Ás-
völlum í Hafnarfirði og hefst klukkan 20.30.
-GH
Sigurjón \ góðu formi
Sigurjón Amarson, kylfingur úr GR, keppti um
síðustu helgi á tveimur eins dags mótum á Tommy
Armour mótaröð atvinnumanna.
Á fyrra mótinu, sem fram fór á Stoncrest golf-
vellinum í Flórída, hafnaði Siguijón í 8. sæti af 35
keppendum með 72 högg sem er par vallarins en
mótið vannst á 67 höggum.
Á síðara mótinu, sem fram fór á Oaks golfvellin-
um í Flórída, var Sigurjón í 11. sæti á 74 höggum,
eða tveimur höggum yfir pari vallarins. 45 keppend-
ur tóku þátt í mótinu. Sigurjón hefur tekið þátt í
mörgum mótum að undanfornu og virðist í góðu
formi. -GH