Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Blaðsíða 32
V K IV G A IfTTt ti f v & i v-' v KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö i hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst.oháÖ dagblað MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Kaupmannahöfn: íslendingur í gæslu- varðhald - fyrir ofbeldishótanir DV, Kaupmannahöfn: 47 ára gamall íslendingur var í gær úrskurðaður í 27 daga gæsluvarðhald, þar af átta daga í einangrun, í lögregludómstólnum í Kaupmannahöfn. Maðurinn er sakaður um að hafa hótað beitingu valds og þannig náð rúmlega 411 þúsund dönskum krónum, jafnvirði 4,7 milljóna íslenskra króna, af 37 ára gömlum Dana allt frá því í júli í fyrra. Daninn, sem býr í úthverfi Kaupmannahafnar, segir að íslendingurinn hafi bæði hótað sér og fjölskyldunni beitingu ofbeldis ef — hann neitaði að borga. -Ari Skeiöarárhlaup: Gæti tekið viku að ná hámarki - segir Stefán Benediktsson „Þetta gerist ekki í stökkum. _ Vatnið eykst frekar hægt en jafnt og ■ ~"*þétt og ég ætla að það geti tekið allt að viku að það nái hámarki," sagði Stefán Benediktsson, þjóðgarðsvörð- ur í Skaftafelli, um Skeiðarárhlaup sem nú er hafið. Hann sagði að vatn hefði verið með allra mesta móti í Grímsvötn- um. Það hefði ekki verið jafn mikið vatn þar í síðustu hlaupum og nú er. Samt sagðist hann ekki eiga von á neinum ósköpum í sambandi við þetta hlaup. „Og ef maður tekur mið af fortíð- inni, síðustu 20 árum eða svo, þá held ég að mannvirki, vegir og brýr, séu ekki í hættu,“ sagði Stefán Benediktsson. -S.dór ~ í höfn í Litháen „Þeim var einfaldlega ýtt út úr brúnni og bannað að hafa samband við land. Þeir eru þreyttir en nú er þessum leik að ljúka og ég á von á að mennirnir komist bráðlega heim,“ sagði Sigurður Grétarsson hjá Úthafsafurðum hf. við DV í morgun. Litháíski togarinn Vydunas var væntanlegur til hafnar í Litháen um hádegið í dag. Þar tekur lögfræðing- ur Úthafsafurða við þeim og aðstoð- ar við að komast heim eftir langa og ^ sögulega sjóferð. Mennirnir fengu að láta vita af sér í gær en síðan ekki söguna meir. -GK L O K I Framkvæmdastjóri stoðtækjasmiöjunnar Össurar hf. segir upp störfum: Sakaður um að hafa stolið aðal- hugmyndinni - tilhæfulaus rógburður, segir Tryggvi Sveinbjörnsson „Þeir nota það sem átyllu að ég hafi ætlað að stela aðalhugmynd fyrirtækisins og hefja framleiðslu í eigin nafni í útlöndum. Þaö er rakalaus lygi og rógburður," segir Tryggvi Sveinbjömsson, fyrrum framkvæmdastjóri stoðtækjafyrir- tækisins Össurar, en hann sagði upp störfúm í gær eftir langvar- andi ágreining við eiganda fyrir- tækisins. Á fundi með starfsmönnum var sagt að Tryggvi væri grunaður um að hafa ætlað sjáifúr að hefja fram- leiðslu á svokallaðri silíkonhulsu, sem er aðalframleiðsluvara Össur- ar hf. og hefur borið hróður fyrir- tækisins víða um lönd. Eigandinn, Össur Kristinsson stoðtækjasmið- ur, var m.a. útnefndur maður árs- ins í íslensku viðskiptalífi á síð- asta ári. Pétur Guðmundsson, stjórnar- formaður Össurar hf., sagði í sam- tali við DV í morgun að sam- skiptaörðugleikar hefðu verið or- sök þess að Tryggvi hætti. „Þetta var orðið ástlaust hjóna- band,“ sagði Pétur. Hann vildi ekki staðfesta að Tryggvi heföi verið borinn sökum um að hafa stolið aðalhugmynd fyrirtækisins. „Ég get ekkert um það sagt. Ég trúði hins vegar að vandamálin hefðu verið leyst nú í janúar en svo var ekki,“ sagði Pétur. Össur Kristinsson hefur nú sjálfur tekið við daglegum rekstri fyrirtækis síns. Það er með fram- leiðslu í Reykjavík, Lúxemborg og í Kalifomíu. „Það hefur gengið illa að vinna með eigandanum. Þessi ágreining- ur hefur magnast síðustu þrjá mánuði. Eigandinn vildi hafa af- skipti af daglegum rekstri án þess að vera ætlað hlutverk þar sam- kvæmt skipuriti fyrirtækisins. Það hafa margir hætt þama vegna samstarfsörðugleika og nú var röðin komin að mér,“ sagði Tryggvi. Ekki náðist í Össur Kristinsson vegna þessa máls í morgun. -GK Ræðuskörungarnir í áttunda og níunda bekk Rimaskóla keppa á morgun í Ráðhúsi Reykjavíkur til úrslita á móti tí- unda bekk Hagaskóla í ræðukeppni grunnskólanna. Krakkarnir heita Jón Hjörleifur Stefánsson, Gústaf Ólafsson, Ingvar Lárusson og Ásta Mekkin Pálsdóttir. Umræðuefnið er fréttir. -em/DV-mynd GS Veðrið á morgun: Víða skýjað Á morgun verður hæg norð- an- og norðvestanátt um norð- anvert landið en víðast hægari annars staðar. Bjartviðri aust- an til á landinu en víða skýjað annars staðar. Veðrið í dag er á bls. 44 Langholtssókn: Áminning eða jafn- vel brott- vikning - segir sr. Ragnar Fjalar Sr. Ragnar Fjalar Lárusson, pró- fastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, mun halda fundi með aðilum að deilunni í Langholtskirkju í þess- ari viku en hann fylgist með því hvort úrskurður vígslubiskups, sr. Bolla Gústavssonar, sé haldinn. Sr. Ragnar Fjalar segir við DV að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum með útvarpsviðtal við sr. Flóka Kristinsson i þættinum Þriðji mað- urinn um sl. helgi. Honum hafi fundist lítill sáttatónn í viðtalinu. „Það er ómögulegt að segja hvað gerist, en ef deilan heldur áfram og klögumálin ganga á víxl þá verður að koma til áminning og jafnvel brottvikning, eins og úrskurður vígslubiskups kveður á um.“ -SÁ REIMAR OG REIMSKÍFUR Powlseti Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499 Súpa og salatbar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.