Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Fréttir Úthafskarfaveiðarnar: Atök um úthlutun afla- heimilda í uppsiglingu „Nei, það er ekki búið að ákveða með hvaða hætti úthlutun aflaheim- ilda til úthafskarfaveiða- verður," sagði Jón B. Jónasson, skrifstofu- stjóri sjávarútvegsráðuneytisins, í samtali við DV í gær. Hann sagði að úthafsveiðinefnd væri með málið til meðferðar. Um er að ræða 45 þúsund lestir af úthafskarfa sem féflu í hlut íslands á fundi Norðaustur-Atlantshafsveið- iráðsins í siðustu viku. í fyrra stun- duðu 29 íslenskir togarar veiðar á Reykjaneshryggnum en 28 árið 1994. Ljóst er að i uppsiglingu eru hörkuátök um hvaða reglur veröi látnar gilda við úthlutun kvótans. Uppi eru mörg sjónarmið. Lands- Varasarair gaskveikjarar: Tættist í sundur DV sagði frá því fyrir nokkru er gaskveikjari sprakk skyndi- lega í loft upp þar sem hann lá á eldhúsbekk. Þetta virðist ekki einsdæmi því að Ólína Haraldsdóttir lenti í því sama fyrir nokkrum mán- uðum úti á Spáni. Hún var úti í sólbaði og gaskveikjarinn í sí- garettuveski við hlið hennar sprakk skyndilega og tættist sí- garettuveskið og pakkinn innan í því í sundur í sprengingunni. Báðir kveikjaramir voru af þeirri gerð sem er hvað algeng- ust hér á landi og fást í flestum matvörubúðum og sjoppum. -SÁ - engar reglur til um við hvað á að miða úthlutunina samband íslenskra útvegsmanna vill að veiðireynsla skipanna verði látin gilda. Sumir vilja láta miða við aflareynslu í fyrra en aðrir að tekið verði tillit til lengri tíma. Enn aðrir vilja að útgerðarfélögin fái kvótann því sum útgerðarfyrirtæki eru með fleiri en eitt skip. Og svo eru þeir sem benda á að taka verði tilliti til skipa sem eru að koma inn í veiðina eftir breytingar, eins og Hringur frá Grundarfirði, svo dæmi sé tekið. Það verður allavega ekki auðvelt að búa til úthlutvmarreglur svo öllum líki og sjálfsagt verða uppi deilur hver sem lendingin verður. í fyrra veiddu 29 íslenskir togarar 27.215 lestir af úthafskarfa sem er 20. Krefjast af- sagnar biskups „Meint brot Ólafs Skúlasonar gegn konunum eru alvarleg og þau eru refsiverð," segir í ályktun sem Kvenna- og karlakeðjan, samtök gegn kynferðisofbeldi, hafa sent frá sér. Þar er þess krafist að Ólafur Skúlason biskup víki úr starfi, ann- aðhvort að fullu eða tímabundið. -GK Sýsluvegur - ekki sýslumaður - leiörétting á kjallaragrein Þau leiðu mistök urðu í setningu kjallaragreinar Jóns Kjartanssonar í DV sl. mánudag að fyrirsögnin brenglaðist. Fyrirsögnin átti að vera „Sýslu- vegur klýfur jörð“. - Þetta leiðrétt- ist hér með og biður blaðið viðkom- andi aðila afsökunar á mistökun- um. þúsund lestum minna en árið 1994. Ástæðan fyrir því var sjómanna- verkfallið sem stóð yfir á besta tíma karfaveiðanna sem eru mánuðirnir apríl og maí. Veiðin á úthafskarfanum er þegar hafin enda þótt úthlutunarreglurn- are séu ekki tilbúnar og úthlutun kvótans því ekki byrjuð. -S.dór Landaður úthafskarfi Hólmadrangur ST Baröi NK Tjaldur SH Ottó N. Þorl. RE Kaldbakur EA Sléttanes ÍS Már SH Rán HF Gnúpur GK Sturlaugur H. Bööv. AK Skagfiröingur SK Haröbakur EA VíöirEA Ólafur Jónsson GK Guöbjörg ÍS Breki VE Snorri Sturluson RE Svalbakur EA Höfrungur III AK Vestmannaey VE Ýmir HF Júlíus Geirmundsson ÍS Vigri RE Þerney RE Haraldur Kristj. HF Örfirisey RE Málmey SK Baldvin Þorsteinsson EA Siglir Sl - ísl. skipa frá jan. '95 til des. '95 - 449.487 514.412 520.258 529.503 546.948 549.054 652.685 691.266 742.844 760.898 1.120.228 1.120.325 1.299.898 1.487.637 ■■ 1.920.014 ■IMS9I 2.291.463 ■■■■■ 2.310.238 3.085.616 4.563.402 DV Dagfari Hvað sagði biskupinn? Biskupinn yfir íslandi hefur dvalið erlendis að undanfórnu. Skrapp til Strassbourg til að sinna skyldustörfum og var sagður taka sér nokkurra daga frí á eftir. Lái honum hver sem vifl. En séra Ólaf- ur sleppur ekki svo auðveldlega frá vandamálunum. Það fær víst eng- inn flúið sjálfan sig og þjóðkirkjan er ekki tilbúin að sleppa biskupn- um þótt hann bregði sér til út- landa. Vandamál kirkjunnar eiga sér engin landamæri og jafnvel þótt lögfræðingar hafi tekið að sér að kljást við aflar konumar í lífi biskups og jafnvel þótt vígslubisk- upinn að norðan hafi tekið að sér að setja niður deilur í Langholts- sókn þá reynist kirkjunnar mönn- um tiltölulega auðvelt að grafa upp ný mál sem biskupinn varða. Nú er það nýjast í biskupssögum nútímans að biskup er sagður hafa sagt eitthvað í síma við sóknar- nefndarformanninn i Langholts- sókn skömmu fyrir jólin sem bisk- up segist alls ekki hafa sagt. Bisk- up er með öðrum orðum borinn fyrir því að hafa leyft Jóni Stefáns- syni að fara í leyfi yfir jólahátíð- amar og þar með siglt öllu kirkju- starfi í sókninni í strand. Þetta kemur meðal annars fram í salómonsdómi vígslubiskups þegar hann komst að þeirri niðurstöðu að deiluaðilar í Langholtssókn skyldu sitja sem fastast og halda áfram deilum sínum. Nú er sem sé ekki lengur deilt um það hvort séra Flóki fari eða veri, né heldur hvort Jón organisti fari eöa veri, heldur um hitt hver hafi leyft Jóni að fara áður en hann kom aftur! Biskup er sakaður um að hafa ráðlagt sóknarnefndinni að leyfa Jóni að fara. Þessu vísar bisk- up á bug með þeim orðum að hann hafi ekki lengur neina tiltrú á hinu góða í manninum ef hið illa er mögulegt í staðinn. Það eina sem biskup gerði var að hann svaraði því til í símtali við sóknameíhdar- formanninn hér heima að ef Jón ætti frí þá ætti hann frí. Eitthvað hefúr þetta svar biskups skolast til og enn er biskupinn agndofa yfir hinum illu öflum sem elta hann á röndum. Enda hefur biskupinn yfir íslandi játað það í síma frá Strass- bourg að hann sé búinn að týna trúnni. Þaö var eins gott að hann var kominn úr landi áður en hann gaf út þessa yfirlýsingu og það var líka eins gott að þaö er talsamband við Strassbourg svo biskup geti lýst skoðun sinni á trúarlífinu á ís- landi. Ef ekki er lengur hægt aö treysta því að rétt sé eftir manni haft það sem maður segir í innanlandssím- anum hér heima þá er öruggara að komast í símann í útlöndum til að rétt sé hermt. Biskup mun fram- vegis aldrei tala í síma nema frá útlöndum og aldrei tala í síma nema öll þjóðin hlusti á. Sóknar- nefndarformaðurinn hefur gefið út sjálfstæða yfirlýsingu þar sem seg- ir að viðtöl hans við biskup hafi verið trúnaðarmál og þess vegna geti hann hvorki játað né neitað hvað þeim fór í milli, en hitt er rétt, segir sóknamefndarformaður- inn, að leyfi til handa Jóni var samþykkt samhljóða i sóknar- nefndinni, án þess að biskupinn kæmi þar að öðru leyti nærri. Eftir stendur þess vegna spum- ingin hvað biskupinn sagði við sóknarnefndarformanninn og hvort vígslubiskup fer með ósatt mál eða biskupinn fer rangt með. Af þessu öllu sést að það er ekki einfalt mál að vera biskup yfir ís- landi þegar menn em hættir að taka mark á því sem biskupinn segist hafa sagt af því að sagt er að hann hafi sagt annað en hann sagði, sem er að minnsta kosti skil- ið öðmvísi en það var sagt. Er nema von að biskupinn haldi til í Strassbourg? Er nema eðlilegt að biskupinn flýi kirkjuna sína, eftir að hafa týnt trúnni? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.