Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
Fréttir
Rlkissaksóknari vegna meintra ólöglegra kúfiskveiða Æsu:
Felldi malið niður að feng-
inni umsögn ráðuneytisins
misskilningur hjá útgerðinni en Einar Oddur hafði munnlegt leyfi
Ríkissaksóknari sá ekki ástæðu
til að höfða mál gegn útgerð Einars
Odds Kristjánssonar á Flateyri
vegna kúfiskveiða Æsu á Önundar-
firði 1 byrjun árs 1993. Ejns og kom
fram í DV í gær færði Landhelgis-
gæslan Æsu til hafnar á Flateyri
vegna meintra ólöglegra veiða.
Leyfi Æsu til tilraunaveiða var
runnið út en sjávarútvegsráðuneyt-
ið gaf út nýtt leyfi daghm eftir að
gæslan tók skipið. Landhelgisgæsl-
an kærði útgerðina, þrátt fyrir feng-
ið leyfi, og eftir lögreglurannsókn á
ísafirði bauð sýslumaður dómsátt í
málinu. Útgerð Æsu neitaði sátt og
fór málið til ríkissaksóknara.
Ríkissaksóknari óskaði eftir
greinargerð frá ráðuneytinu og í
henni segir m.a.:
„Ráðuneytið telur, að hér hafi
fyrst og fremst verið um misskiln-
ing að ræða hjá útgerð skipsins,
sem skömmu áður hafði tekið við
rekstri þess. Sé því ekki ástæðu tO
frekari aðgerða af hálfu ríkissak-
sóknara. Ráðuneytið mun ekki beita
ákvæðum laga nr. 37/1992 vegna
þessa máls.“
í greinargerðinni segir að skipið
hafi fengið leyfi til tilraunaveiða á
kúfiski. Skipið hafi verið sérstak-
lega flutt inn til þess að sinna þessu
verkefni og veiðitilraunir hafi farið
fram í samráði við Hafrannsóknar-
stofnun og undir eftirliti hennar.
„Enda þótt leyfi til skipsins hafi
formlega verið gefin út árlega legg-
ur ráðuneytið áherslu á, að ekkert
hafi verið því til fyrirstöðu að skip-
ið fengi leyfi og staðfesti ráðuneytið
það samstundis þegar eftir því var
óskaö,“ segir jafnframt í greinar-
gerð ráðuneytisins.
Að fenginni greinargerðinni
komst ríkissaksóknari að þeirri nið-
urstöðu að ekki hafi verið ástæða til
að gefa út ákæru og málið því látið
niður falla.
í yfirheyrslum hjá lögreglunni á
ísafirði sagði Einar Oddur að þegar
komið hefði verið að endurnýjun
leyfisins hefði hann haft samband
við Hafrannsóknarstofnun og hún
mælt með stækkun tilraunasvæðis-
ins og áframhaldandi leyfisveitingu
til tilraunaveiða. Búið hefði verið
að ganga frá því við ráðuneytið að
tilraunaleyfi Æsu yrði endurnýjað.
Það hefði hins vegar verið mistök
hjá útgerðinni að sækja ekki leyfið
til sjávarútvegsráðuneytisins.
Munnlegt leyfi hefði því verið fyrir
veiðunum.
Eins og kom fram í DV í gær hef-
ur Alþýðuflokkurinn, með Össur
Skarphéðinsson í broddi fylkingar,
óskað eftir umræðu á Alþingi um
það hvort Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra hafi verið að hygla
Einari Oddi flokksbróður sínum
með því að gefa út leyfi fyrir Æsu
þegar Landhelgisgæslan var búin að
taka skipið.
-bjb .
Þeir eru sætir og kelnir, kiðlingarnir sem fæddust í Húsdýragarðinum í vikunni. Þeir hafa ekki enn þá fengið nöfn en
eru hafur og huðna. Margrét Dögg Halldórsdóttir húsdýrahirðir segir mjög skemmtilegt að umgangast ungviðið.
t DV-mynd ÞÖK
Heimsmarkaösverð á rækju á niðurleið:
Mikil spenna er nú
ríkjandi á markaðnum
- kaupendur halda að sér höndum, segir fulltrúi SH
Drífa Sigfúsdóttir:
Nýr formað-
ur Neytenda-
samtakanna
„Ég hef verið formaður Neytenda-
samtakanna í tólf ár og síðustu sex
árin einnig framkvæmdastjóri. Ég
tel og hef talið eðlilegt að skilja á
milli þessara starfa og er mjög
ánægður nú þegar Drífa Sigfúsdótt-
ir, bæjarfulltrúi á Suðurnesjum,
býður sig fram til formennsku,“ seg-
ir Jóhannes Gunnarsson sem áfram
mun gegna stöðu framkvæmda-
stjóra samtakanna.
Aðspurður hvort einhver leiðindi
hefðu valdið því að Drífa tæki nú
við formennskunni á þingi samtak-
anna 3. og 4. maí sagði Jóhannes
svo alls ekki vera.
„Hér ríkir mikil eindrægni milli
manna og ég tel að þetta muni
styrkja samtökin og efla þannig hag
neytenda. Þetta mun styrkja fram-
varðasveit Neytendasamtakanna og
þótt eflaust muni einhverjir nýir
straumar fylgja nýjum formanni á
ég ekki von á neinni byltingu."
Jóhannes Gunnarsson sagðist
ekki vera að draga sig út'úr þessari
starfsemi, sagðist hafa komið inn í
þetta af hugsjón á sínum tíma og
hafa verið svo heppinn að hafa get-
að haft hugsjónarstarf sitt að lifi-
brauði. Hann sagðist áfram myndu
koma sjónarmiöum samtakanna á
framfæri en vitaskuld væri það
fyrst og fremst hlutverk formanns-
ins að vera talsmaður þeirra út á
við. -sv
Gáfust upp í
krapinu
„Þeir voru búnir að ganga lengi
blautir og voru orðnir fótsárir af
þeim völdum, sérstaklega annar,"
segir Einar Brynjólfsson, formaður
Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu.
Menn sveitarinnar sóttu í gærkvöldi
tvo Frakka inn í Landmannalaugar.
Frakkarnir voru búnir að vera 13
daga á göngu yfir hálendið og áttu
pantað flug heim á súnnudag. -GK
„Það er umtalsverð aukning á
rækjuveiði. Flæmski hatturinn er
ákveðið spurningarmerki vegna
þess hve mörg skip stefna þangað.
Það eru því ákveðnar þreifingar í
gangi meöal kaupenda. Menn kaupa
svona eins og sagt er frá hendinni
til munnsins og reyna aö átta sig á
hvernig verðið muni þróast. Það
hefur orðið framleiðsluauking og
nokkur birgöasöfnun því seljendur
bíða líka. Það er því ákveðin spenna
ríkjandi á markaðnum. Rækjuverö
hefur lækkað um 10 til 15 prósent
frá því í haust en það er ekki verð-
hrun,“ sagði Gylfi Þór Magnússon,
framkvæmdastjóri markaðsmála
hjá SH, í samtali við DV.
Magnús Reynir Guðmundsson er
framkvæmdastjóri Togaraútgerðar
ísafjarðar. Þeir selja sína rækju
milliliðalaust á erlendan markað.
Hann sagði að verðlækkun hefði
orðið á iðnaðarrækju. Aftur á móti
hefði ekki orðið verðfall á úthafs-
rækjunni í Japan.
Magnús segir að mjög hafi borið á
sölutregðu og þar af leiðandi birgða-
söfnun, alveg síðan um áramót. Það
væri ljóst að kaupendur ætluðu sér
að ráða ferðinni hvað heimsmark-
aðsverði viðkemur og því héldu þeir
að sér höndum eftir að hafa keypt
mikið í haust.
Hann sagði að aukin sókn í rækj-
una á Flæmska hattinum myndi
hafa eitthvað að segja en benti á að
um leið og íslensku skipin færu
þangað drægi úr veiði hér við land.
Magnús sagðist hafa heyrt að 97
rækjutogskip hefðu verið að veiðum
á Flæmska hattinum um páska.
Auðvitað hefði það sitt að segja þeg-
ar svo mörg skip væru komin í veið-
ina hvaö þá ef þeim ætti eftir að
fjölga.
-S.dór
Stuttar fréttir
Aðild fyrir áramót
Stefnt er að þvi að ljúka samn-
ingum um aukaaðild fslendinga
og Norömanna aö Schengen-
samkomulaginu fyrir áramót,
samkvæmt fréttum RÚV.
Ekki meiri sparnað
Stjórnendur Sjúkrahúss
Reykjavíkur treysta sér ekki til
að ná fram meiri sparnaði í
rekstri á árinu og vísa ábyrgð á
hendur heilbrigðisráðherra.
Samkvæmt RÚV vantar 200
milljónir upp á.
Riða á Stekkjardal
Riða hefur greinst á bænum
Stekkjardal í Svínavatnshreppi.
Samkvæmt RÚV er þetta 4.
riðutilfellið í A-Húnavatnssýslu í
vetur.
Gunnar hættir
Gunnar Ragnars hefur til-
kynnt að hann sé hættur sem
framkvæmdastjóri Útgerðarfé-
lags Akureyrar af persónulegum
ástæðum. Ákvörðunin er sögð
tengjast því að dótturfélög Sam-
herja hafi gert tilboð í hlut Ak-
ureyrarbæjar í ÚA.
Systkinaafsláttur
Líkur eru á að tekinn verði
upp systkinaafsláttur með öðru
bami á leikskólum Reykjavíkur-
borgar. Þetta kom fram I Tíman-
um.
K. Richter kaupir
Heildverslunin K. Richter í
Garöabæ hefur keypt bygginga-
vörudeild fyrirtækisins Kristján
Ó. Skagfjörð.
Ný verðbólguspá
Seðlabankinn hefur gefið út
nýja verðbólguspá sem gerir ráð
fyrir 2% veröbólgu á þessu ári.
Þetta er lægri verðbólga en spáð
var í upphafi ársins vegna
minni verðhækkanna á fyrsta
ársfjórðungi en reiknað hafði
verið með.
Sveifiur jafnaðar
Jafna má sveiflur í íslensku
efnahagslífi með því að láta sjáv-
arútveginn greiða fyrir veiði-
heimildir. Gjaidið mætti hækka
ef vel áraði í sjávarútvegi en
lækka þegar á móti blési. Þetta
kom fram á ráðstefnu í gær um
framtíð íslensks iðnaðar.
Fjárfest í Oz
íslenskir fjárfestar hafa með
kaupum sínum á hlut í tölvufyr-
irtækinu Oz staðfest mat jap-
anskra fjárfesta að fyrirtækið sé
900 miUjóná virði. Stöð 2 greindi
frá þessu.
-bjb