Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Blaðsíða 18
26 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Ice-Cup mót FH: Úrslit leikja í alþjóðlegu handbolta- móti FH Um páskana, 3.-7. apríl, fór fram hið árlega, alþjóðlega handboltamót FH, Ice-Cup, og var góð þátttaka bæði innlendra og erlendra liða og ljóst að þessu móti vex ásmegin með ári hverju. Úrslit urðu sem hér seg- ir: 5. flokkur karla: 1. sæti......................ÍR 2. sæti................Víkingur 3. sæti..................Haukar Besti markv.: Finnur Eiríksson, Víkingi. Besti vamarm.: Bjarni Þór Jónsson, Haukum. Besti sóknarm.: Ægir Friðgeirsson, ÍR. 5. flokkur kvenna: 1. sæti...................Valur 2. sæti...................ÍR(1) 3. sæti.................. . ÍR(2) Besti markv.: Anna Linda, ÍR. Besti Vamarm.: Kristín Þóra, Val. Besti sóknarm.: Svanhildur Þorbjömsdóttir. 4. flokkur karla: 1.-2. Valur-Keflavík......10-11 (Fyrsti titill Keflavíkur í opinberu móti). 3. -4. FH-Víkingur........16-15 Besti Markv.: Stefán Þ. Hannesson, Val. Besti varnarm.: Valdimar Þórsson, Val. Besti sóknarm.: Þórarinn Kristjánsson, Keflavík. 4. flokkur kvenna: 1.-2. FH-ÍR.................5-7 3. sæti: Völsungur. Besti markv.: Simone Schlect, Turbin, Leipzig. Besti varnarm.: Þórdís Brynjólfsdóttir. Besti sóknarm.: Drífa Skúladóttir, ÍR. 3. flokkur karla: 1.-2. Stjarnan-FH.........16-22 3. sæti: Kiel, Þýskalandi Besti markv.: Björn Mánason, Stjömunni. Besti varnarm.: Sverrir Öm Þórðarson. Besti sóknarm.: Thirmo Gabriel, Kiel. 3. flokkur kvenna: 1. -2. ÍR-FH..............11-14 3. sæti:...................UL-1 2. flokkur kvenna: 1. -2. UL-2-Furuset, Nor..10-11 3. sæti:...................UL-1 Besti markv.: Guðmunda Torfadóttir, UL-18. Besti varnarm: Rut Steinsen, UL-18. Besti sóknarm.: Asa Karen Johannessen, Furuset, Noregi. 2. flokkur karla: 1. sæti......................FH 2. sæti................Stjarnan 3. sæti...................Valur Besti markv.: Jökull Þórðarson. Besti vamarm.: Gunnar Narfi Gunnarsson. Besti sóknarm.: Láms Long, FH. Handbolti 5. fl. kvenna: Elfa Björk er í 5. flokki í umfjöllun um íslandsmeist- ara í 5. flokki kvenna sl. þriðju- dag misritaðist foðurnafn fyrir- liða 5. flokks A-liðs Stjörnunnar en stelpurnar urðu íslands- meistarar. Hún Elfa Björk er Er- lingsdóttir en ekki Kristinsdótt- ir og svo er hún auðvitað í 5. flokki. í texta undir mynd af Stjörnunni var villa í nafni Karenar Ýrar Lárusdóttir. Stúlkurnar eru beðnar afsökun- ar á þessum mistökum. Úrslitakeppnin fór fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi fyrir skömmu. íþróttir unglinga Ice-Cup - alþjóölegt handboltamót FH í yngri flokkum: Alveg eins og heima - sögðu norski stelpurnar frá Furset í Osló - fyrsti titill Keflavíkur í handbolta ÍR-stelpurnar urðu lce-Cup meistarar í 4. flokki, unnu FH í úrslitaleik, 7-5. Þjálfari stúlknanna er Karl Erlingsson. Hann hefur verið að gera góða hluti hjá ÍR undanfarið. Þýsku strákarnir frá Kiel sem léku í 3. flokki. Frá vinstri: Benjamin Wille, Ern- in Fary, Christoph Hamann og Björn Alperts. Þeim fannst músíkin á diskó- tekunum á íslandi ekki lik þeirri sem er í Kiel. (Sjá viðtal). Það sem bar einna hæst á Ice- Cup-móti FH í handbolta um pásk- ana var sigur Keflavíkurstrákanna í 4. flokki gegn Val í úrslitaleik, 13-12. Þetta mun í fyrsta skipti sem Keflavík sigrar í handknattleik í op- inberu móti. Úrslitaleikurinn var geysispennandi og ómögulegt að segja til um á hvorn veg hann færi fyrr en dómarar flautuðu af. Lið Vals er ekki skipað neinum aukvis- um og verður því að telja frammi- stöðu Keflvíkinganna mjög athyglis- verða. Þegar liðið er skoðað vel kemur í ljós að hér eru á ferð sömu strákar, að mestu, sem skipa 4. flokk í knatt- spyrnu en sá flokkur varð íslands- meistari innanhúss í vetur. Hér eru því augljóslega á ferð framtíðarleik- menn Keflavíkur. Athygli vakti að norska liðið Furuset, sem er úthverfl í Osló og ber sama nafn, sigraði UL-18 ára með eins marks mun. Óþarfi hefði verið að taka svo sterkt til orða að um íslenskt landslið væri að ræða. « Alveg hefði nægt að nefna það úr- valslið. Liðið mætti engan veginn þannig undirbúið til leiks að hægt væri að nefna það því nafni enda tapaði það fyrir því norska, sem var ekki óréttlátt. Heildarúrslit mótsins eru á öðr- um stað á síðunni. Öll umgjörð mótsins var til mik- ils sóma fyrir FH og ljóst að mótið er komið til að vera. Framkvæmda- stjóri þess var Geir Hallsteinsson. Umsjón Halldór Halldórsson Norsku stúlkurnar frá Furuset urðu glaðar eftir sigurinn gegn UL-18,11-10, í keppni 2. flokks. Hér er nokkrar þeirra, frá vinstri: Christel M. Flatmo, 18 ára, Line Amundsen, 19 ára, og Sissei M. Mangerut, 19 ára. (Sjá viðtal). DV-myndir Hson okkar í mótinu sem hefur verið mjög skemmtilegt í alla staði,“ sagði Gúðrún. Þjálfari ÍR-liðsins er Karl Erlingsson. Skemmtilegt mót Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir, fyrirliði 4. flokks ÍR, sem sigraði FH í úrslitaleik, 7-5, var að vonum ánægð: „Þetta er í fyrsta skipti sem við sigrum i Ice-Cup-mótinu og er það góð tilfinning. Við unnum alla leiki Guðrún Drífa Hólmsteinsdóttir, fyrir- liði 4. flokks ÍR, hampar hér sigur- ^laununum. Mjög svipað og heima Norsku stelpurnar, Christel M. Flatmo, 18 ára, Line Amundsen, 19 ára, og Sissel Mangerod, 19 ára, leika með norska liðinu Furuset sem er í útjaðri Oslóar. Þær norsku sigruðu íslenska UL-18 ára, 11-10, í mjög spennandi úrslitaleik í keppni 2. flokks: „Við erum afar ánægðar með sig- ur gegn íslenska liðinu og finnst okkur mótið í heild og reyndar ferð- in til Islands hafa verið mjög skemmtileg í alla staði. í Furuset er handbolti aðalíþróttagreinin og mikill og almennur áhugi fyrir íþróttinni. Besti árangur okkar er 2. sætið í meistarakeppni Oslóarsvæð- isins sem er ágætt. í Furuset er mjög góð samstaða meðal íbúanna og gott að búa þar. Okkur finnst Hafnarfjörður um margt minna á okkar heimaslóðir. Þjálfari okkar og fararstjóri í þessari ferð er Björn Erik Börresen og er hann frábær og að okkar mati besti handboltadóm- ari heimsins," sögðu norsku stúlk- urnar. Björn Erik hefur dæmt marga landsleiki hér á landi og vak- ið verðskuldaða athygli. Keflavíkurstrákarnir komu á óvart og sigruðu hið sterka lið Vals, 13-12, í úr- slitaleik. Þetta er fyrsti sigur Keflavikur í handknattleik í opinberu móti til þessa. Merkilegur dagur fyrir íþróttastarfsemi í þeim bæ. Strákarnir urðu einnig flestir íslandsmeistarar 1996 í innanhússknattspyrnu. Óheppnir gegn Stjörnunni Benjamin Wilte, Ernin Fary, Christoph Hamann og Björn Alpers léku með þýska skólaliðinu frá Kiel í Þýskalandi og gerðu strákarnir jafntefli við Stjörnuna í keppni 3. flokks, 13-13, og urðu í 3. sæti sem er þokkalegur árangur: „Handboltinn er mun harðari hér en í Kiel og sló það okkur svolítið út af laginu. Ferðin hefur annars verið FH-stúlkurnar urðu lce-cup meistarar í 3. flokki, unnu ÍR, 14-11, eftir nokkuð spennandi leik. Þjálfari stelpnanna er Viðar Símonarson. á margan hátt skemmtileg en mús- íkin á diskótekinu kom okkur mjög í opna skjöldu því hún er allt öðru- vísi en við eigum að venjast heima - en annars var þetta allt í lagi,“ sögðu þýsku piltarnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.