Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
Fréttir
Forsætisráðherra staðfestir fréttir um slaka stjórn við endurreisn Bessastaða:
Úttektir og hönnun fýrir
65 milljónir lítils virði
- Ríkisendurskoðun byrjaði að vara við óstjórninni fyrir fimm árum
Engin raunveruleg kostnaðará-
ætlun var til þegar hafist var handa
við endurbyggingu og nýbyggingu
húsa á Bessastöðum árið 1989. Til
var svokölluð „greinargerð" um
verkið en viðurkennt er af Davíð
Oddssyni forsætisráðherra í svari
við fyrirspurn Ágústs Einarssonar á
Alþingi að það hafi ekki verið „eig-
inleg kostnaðaráætlun eða ígildi
slíkrar áætlunar".
í umræddri greinargerð var talið
að kostnaður við viðgerðir og ný-
byggingar gætu numið 200 til 240
milljónum. Nú er viðurkennt að
þessi kostnaður verður í það
minnsta 920 milljónir eða sá sem
greint var frá í DV 13. september
1995. Raunverulegur kostnaður er
því fjórum til fimm sinnum meiri
en upphaflega „áætlunin" gerði ráð
fyrir.
Allar framkvæmdir fara þannig
langt fram úr áætlunum þótt 125
milljónum hafi verið varið í hönn-
un, eftirlit og úttektir. Þannig var
árið 1991 varið 65,2 milljónum í
hönnun og eftirlit og úttektir vegna
framkvæmda þess árs. Verkið fór
samt sem áður 56,9% fram úr áætl-
un, reyndist kosta 176,5 milljónir en
ekki 112,4 milljónir.
Ríkisendurskoðun gagnrýndi
þetta harðlega á sínum tíma. I end-
urskoðun ríkisreiknings fyrir 1991
eru hönnuðirnir á Bessastöðum
minntir á að „hönnunarkostnaður
virðist einkum ráðast af því hversu
vel verk eru undirbúin." Þeir fá og
skömm í hattinn fyrir „tvíhönnun
og þríhönnun“ og sagt er að úttekt-
ir, sem Bessastaðanefnd lét vinna
fyrir sig, hafi verið gagnslitlar.
Framkvæmdum á Bessastöðum
er stjórnað af Bessastaðanefnd und-
í/oflfr«ntai*ö8#ff— --------- —•
cwl 'tatyrtr 3K miajýnum [ y.rtdii m
pTi -w\r \ jL 1 SöMgllgiwPppWaSSpwg atMÍ 1
DAGBLAOIÐ - VÍSIR 208. TBL. - 85. OG 21. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 13. S6PTEMBER 1995, VERD 1 LAUSASÓLU KR, 150 M.Ai
Ahofnin sem stundar grásleppuna á Víkurberginu. Hilmar og Sveinn Zóphóníassynir og Pétur Bóas Jónsson.
DV-mynd Örn
Ár á Bessastöðum
- framkvæmdir 1991 -
Hönnun, úttektir
og eftiriit
Unrlráaitliin furir /roml/iraimrfir
A
100
150 200 millj.
DV
ir yfirstjórn forsætisráðuneytisins.
Nefndin annast áætlanagerð en
verkefnisstjóri nefndarinnar hefur
verið Pétur Stefánsson hjá Almennu
verkfræðistofunni.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki
árið 1998 en til þess að það takist
þarf að veita 220 milljónir til fram-
kvæmdanna næstu þrjú ár til við-
bótar við þær 37 milijónir sem þeg-
ar eru á áætlun.
Þessar 220 milljónir, sem nú vant-
ar, eru um það bil sama upphæðin
og áætlað var að framkvæmdir á
Bessastöðum myndu kosta í heild
þegar byrjað var að áætla kostnað-
inn árið 1989. -GK
Suðurland:
Hótel og gistihús
fá vottun og
skipt í sjö flokka
DVVík:
Ferðamálasamtök Suðurlands
héldu aðalfund í Vík í Mýrdal 13.
aprU í framhaldi af ráðstefnu sem
samtökin héldu um skipulag ferða-
mála og framtíð ferðamálasamtaka.
Á fundinum kynnti Björn S. Lár-
usson, formaður, eftirlit með ferða-
þjónustuaðilum sem Heilbrigðiseft-
irlit Suðurlands hefur komið á og
felst það i því að veita aðilum í
ferðaþjónustu vottun um heilbrigð-
is- og umhverfiseftirlit. Útbúinn hef-
ur verið sérstakur gátlisti í því tU-
efni sem notaður verður tU þess að
taka saman upplýsingar um aðbún-
að. vegna þjónustu og umhverfis-
þátta.
Hótelum og gistihúsum er skipt
niður í sjö flokka eftir umfangi
rekstrar. Þar eru í fyrsta flokki
stærri gistihús sem starfa allt árið;
- eru með veitingasal, vínveitingar
og sundlaug. Hótel í þessum flokki
eru skoðuð fjórum sinnum á ári og
í því felst skoðun á öllum heilbrigð-
isþáttum í samræmi við gátlista.
Sýnataka á neysluvatni, sundlaug-
arvatni og matvælum. Meðalstór og
minni gistihús eru skoðuð einu
sinni á ári og eru að miklu leyti
sömu atriði athuguð hjá þeim og
stærri hótelum.
Gefin verða út vottorð um skoðun
árlega og verða þau bæði á íslensku
og ensku til staðfestingar því að fyr-
irtækið uppfylli án athugasemda
skilyrði laga og reglugerða er varða
hollustu og hreinlæti, gæði matvæla
og neysluvatns.
Á fundinum var kosin stjórn og
hana skipa Björn S. Lárusson, Sel-
fossi, formaður, og aðrir í stjórn eru
Sigurður Ingi Jóhannsson, Dalbæ,
Hrunamannahreppi, Droplaug Erl-
ingsdóttir, Norður-Hvammi, Mýr-
dal, Hrefna Halldórsdóttir, Hvera-
gerði, Páll Pálsson, Vestmannaeyj-
um, Erla ívarsdóttir, Geirlandi,
Skaftárhreppi, Rut Gunnarsdóttir,
Stokkseyri, Halldóra Magnúsdóttir,
Hvolsvelli og Ásta Begga Ólafsdótt-
ir, Leirubakka. -PP
Sigluflörður:
14 trillur á grásleppu
DV, Fljótum:
í vor stunda 14 trillur og bátar
grásleppuveiðar frá Siglufirði og er
það svipaður fjöldi og undanfarin
ár. Veiðin hefur farið þokkalega af
stað og munar þar mestu blíðskap-
arveður. Hægt er að vitja um nánast
eftir hendinni.
I fyrravor var ákaflegr treg veiði
og var svo alla vertíðina. Mátti
heita alger dauði í byrjun og var
miklum sjávarkulda kennt um hve
lítið var um grásleppu fyrir Norður-
landi.
Um miðjan apríl nú voru flestir
bátarnir komnir með 10-20 tunnur
af hrognum og þá er einnig þorskur
byrjaður að koma í netin. Veiði-
svæði Siglufjarðarbáta er á svæðinu
frá Almenningum og norður að Héð-
insfirði. -ÖÞ