Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 25 íþróttir íþróttir Knattspyrna: Ferdinand ekki með gegn Króötum Les Ferdinand, knattspyrnu- maður ársins í Englandi, getur ekki leikið með Englendingum gegn Króötum næsta miðviku- dag vegna meiðsla. Ferdinand skoraði sigurmarkið gegn Búlgörum fyrir skömmu. Líkleg- ast er talið að Robbie Fowler frá Liverpool taki stöðu hans. Ro- bert Lee, félagi Ferdinands hjá Newcastle, hefur einnig orðið að draga sig út úr hópnum og sömu- leiðis Phil Neville, leikmaður Man. Utd. Blak: Oldungamót í Stykkishólmi DV, Stykkishólmi: Mikill viðbúnaður er nú í Stykkishólmi þar sem von er á um 500 gestum til bæjarins dag- ana 25.-28. apríl. Blakdeild Snæ- fells stendur þá fyrir einu stærsta íþróttamóti sem haldið hefur verið í bænum, öldunga- móti blaksambandsins. Alls hafa 59 lið víðs vegar af landinu skráð sig til keppni en elsti keppandinn verður Stefán Ólafsson frá Akureyri sem er 76 ára gamall. Keppendur á mótinu eru 30 ára og eldri. -BB Júdó: íslandsmótið á morgun íslandsmeistaramót Júdósam- bands íslands verður haldið í íþróttahúsinu við Austurberg í Reykjavík á morgun, laugardag. Mótið hefst klukkan 13.30 og keppt er í öllum flokkum karla og kvenna, 15 ára og eldri. „ Fimleikar: Islandsmótið í trompfimleikum íslandsmótið í trompfimleik- um verður haldið í íþróttahús- inu við Strandgötu í Hafnarfirði á morgun, laugardag. unglinga- mótið hefst klukkan 10 en mót fullorðinna klukkan 14. Á ungl- ingamótinu eru þátttakendur um 120 frá 7 félögum en fullorðn- ir keppendur eru um 80 frá 6 fé- lögum. Fimleikafélagið Björk sér um mótshaldið og að því loknu, klukkan 17.30, hefst innanfélags- mót hjá Björkunum en þar er um að ræða einstaklingskeppni i frjálsum æfingum. Badminton: Vormót TBR Vormót TBR í badminton fer fram í TBR-húsunum um helg- ina. Keppt er í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í A- og B-flokk- um karla og kvenna. Mótið hefst klukkan 13 á morgun og heldur áfram klukkan 10 á sunnudag. Sunna kjörin í sjötta skipti DV, Blönduósi: Sunna Gestsdóttir var á dög- unum útnefnd íþróttamaður USAH fyrir árið 1995. Þetta er í sjötta skipti sem hún verður þessa heiðurs aðnjótandi. -GB Leiðrétting í umfjöllun um landsmótið á skíðum í þriðjudagsblaðinu var rangt farið með sigurvegara í 3x3,5 km skíðagöngu kvenna. Það var sveit Ólafsfjarðar sem sigraði. Þá var ekki farið rétt með nafn Hönnu Daggar Mar- onsdóttur og er beðist velvirð- ingar á þessu. Scott setti glæsilegt met - gerði 11 3ja stiga körfur fyrir Orlando Dennis Scott, hinn snjalli leik- maður Orlando Magic, setti met í 3ja stiga körfum í NBA-deildinni í nótt. Scott skoraði 11 slíkar í sigri liðsins á Atlanta en fyrra metið, 10, áttu Brian Shaw, Joe Dumars og Ge- orge McCloud. Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Orlando-Atlanta ...........119-104 Scott 35, Shaq 22 - Ehlo 20. Charlotte-Milwaukee.......103-111 Anderson 28, Rice 20 - Robinson 23, Respert 20. Cleveland-New York...........92-77 Brandon 20 - Ewing 18. Chicago-Detroit.............110-79 Jordan 30, Kukoc 16, Brown 16 - Dallas-Denver...............132-98 Jackson 25, McCloud 23 - MacLean 29. Houston-LA Clippers .......115-107 Olajuwon 35, Cassell 20, Drexler 17 - Vaught 24. San Antonio-LA Lakers.. . . . 103-100 Robinson 29, Elliott 23 -Campbell 27. Vancouver-Utah ..............79-94 King 21 - Malone 26, Hornacek 19. Leikmenn Charlotte fóru illa að ráði sínu þegar þeir töpuðu fyrir Milwaukee á heimavelli. Með sigri hefðu þeir náð Miami, sem nú stendur með pálmann í höndunum í einvígi liðanna um úrslitasæti. Cleveland vann mikilvægan sigur á New York en liðin berjast um flórða sætið í Austurdeildinni og líklegt er að þau mætist í 1. umferð úrslitakeppninnar. LALakers missti niður 21 stigs forystu í San Antonio og tapaði, 103-100. Bob Hill, þjálfari San Ant- onio, sagði að markmiðið væri að vinna fleiri sigra en Orlando til að fá heimavallarréttinn ef liðin myndu mætast í úrslitum deildar- innar. Phil Jackson, þjálfari Chicago, hætti við að hvíla Michael Jordan sem skoraði 30 stig gegn Detroit, þrátt fyrir að hann léki aðeins í 24 mínútur af 48. Grant Hill og Joe Dumars léku ekki með Detroit vegna meiðsla og veikinda. „Ég held að fólkið í Vancouver hafi fengið góða kynningu á NBA- körfunni í vetur þrátt fyrir alla ósigrana," sagði Brian Winters, þjálfari nýliða Vancouver, eftir 67. ósigur vetrarins, gegn Utah. -VS Tölfræðin í NBA-deildinni: Muresan kemur mest á óvart Fyrir síðustu leikhelgina í banda- rísku NBA-deiIdinni í körfuknatt- leik er ljóst að kunnugleg nöfn verða efst á flestum listum yfir bestu einstaklinga vetrarins. Michael Jordan hjá Chicago er langstigahæstur með 2.481 stig, eða 30,5 stig í leik. Næstir á eftir honum eru Hakeem Olajuwon, Shaquille O’Neal, Karl Malone og David Rob- inson. Dennis Rodman hjá Chicago er með langbestu útkomuna í fráköst- um eins og oft áður. Rodman hefur tekið 14,9 fráköst að meðaltali í leik og 908 samtals. Næstir koma David Robinson, Dikembe Mutombo, Shawn Kemp og Charles Barkley. John Stockton hjá Utah er að vanda með langflestar stoðsending- ar. Hann hefur átt 903 slíkar í vetur, eða 11,3 í leik. Næstir eru Avery Johnson, Jason Kidd, Rod Strick- land og Damon Stoudamire. En það óvænta er að rúmenska tröllið Gheorghe JVIuresan hjá Was- hington er með bestu skotnýting- una. Muresan hefur hitt úr 58,4 pró- sentum skota sinna á tímabilinu. Á eftir honum koma Shaquille O'Neal, Chris Gatling, Shawn Kemp og Dale Davis. -VS Grafarholtsvöllurinn aldrei opnað fyrr Ákveðið hefur verið að opna Grafarholtsvöllinn á sumardaginn fyrsta í næstu viku. Að sögn manna, sem sjá um völlinn, hefur ástand vallarins sjaldan eða aldrei verið betra. Flatir vallarins voru slegnar 16. apríl. Á sumardaginn fyrsta verður leikið á sumarflötunum og er það einsdæmi á þessum árstima á golfvellinum í Grafarholti. Vallarstjóri telur ástand vallarins verða líkt því sem venjulega er í byrjun júni. Á sumardaginn fyrsta verður keppt um Amesonskjöldinn og verður ræst út frá kl. 10. Skráning fer fram á skrifstofu GR. -JKS Knattspyrna: Ellefu nyliðar fara til Eistlands Það verða ellefu nýliðar í íslenska 21 árs landsliðinu í knattspymu sem mætir Eistlendingum í vináttu- leik sem fram fer í Kehtna í Eist- landi næsta þriðjudag. Aðeins fimm leikmenn í hópnum hafa áður leikið með liðinu. Það eru markverðirnir Atli Knútsson úr Leiftri og Árni Gautur Arason úr ÍA og síðan þeir Brynjar Gunnarsson, KR, Sigurbjörn Hreiðarsson, Val, og Sigurvin Ólafsson, Stuttgart. Nýliðarnir eru eftirtaldir: Jó- hannes Harðarson, ÍA, Stefán Þórð- arson, ÍA, Bjami Þorsteinsson, KR, Gunnar Einarsson, Val, Sigþór Júlí- usson, Val, Ólafur Stígsson, Fylki, Kjartan Antonsson, Breiðabliki, Ólafur Bjarnason, Grindavík, Ragn- ar Árnason, Stjörnunni, Guðni Rún- ar Helgason, Völsungi, og Bjarnólf- ur Lárusson, ÍBV. Atli byrjar í Eistlandi Atli Eðvaldsson stýrir 21 árs lið- inu í fyrsta skipti á þriðjudag. Það er skemmtileg tilviljun að það skuli vera í Eistlandi því Atli er sem kunnugt er ættaður þaðan. Faðir hans, Eðvald heitinn Hinriksson, var landsliðsmarkvörður Eistlands á fjórða áratugnum. -VS Harpa Melsted og Heiðrún Karlsdóttir eru hér sigri hrósandi eftir glæstan sigur á Stjörnunni í íþróttahúsinu í Strandgötu í gær. Með sigrinum tryggðu Haukastúlkur sér hreinan úrslitaleik sem verður í Garðabæ á morgun. Á innfelldu myndinni er Judit Esztergal að skora eitt af sjö mörkum sínum í leiknum. DV-myndir Brynjar Gauti Haukar með byr í seglin - unnu öruggan sigur á Stjörnunni og knúðu fram hreinan úrslitaleik „Stelpurnar leika betur með hverjum leiknum sem líður. Þær hafa öðlast sjálfstraust, stressið er farið af þeim og þær hafa mjög gaman af því sem þær eru að gera. Við erum sterkari í dag og ég er sannfærður um að við vinnum titilinn í Garðabæ á laugardaginn,“ sagði Petr Baumruk, þjálfari Hauka, við DV eftir glæsilegan sigur á Stjörn- unni, 24-16, í fjórða úrslitaleik liðanna um Islandsmeistaratitilinn í kvenna- flokki. Með sigrinum jöfnuðu Hauka- stúlkur metin, 2-2, í einvígi liðanna um titilinn og liðin eigast við í hrein- um úrslitaleik í Garðabæ á morgun. Eins og staðan lítur út í dag þá verð- ur að telja Haukastúlkur líklegri til að vinna titilinn eftirsótta og ef það gerð- ist kæmi það flestum ef ekki öllum handboltaáhugamönnum mjög á óvart enda er Stjarnan íslandsmeistari og hefur auk þess unnið deildar- og bikar- meistaratitilinn á tímabilinu. Eftir sigur Stjörnunnar í fyrstu tveim- ur leikjunum áttu flestir von á að eftir- leikurinn yrði auðveldur fyrir Garða- bæjarliðið að innbyrða íslandsmeist- aratitflinn annað árið í röð. En sigur Haukanna í þriðja leiknum breytti stöðunni heldur betur. Haukastúlkurn- ar mættu fullar sjálfstrausts í Strand- götuna í gær og þær léku meistarana úr Garðabænum oft mjög grátt líkt og í þriðja leiknum í Garðabæ á dögunum. Haukarnir náðu strax undirtökunum í leiknum. Judit Esztergal gaf liðinu tóninn og með snjöllum leik hennar í byrjun náðu Haukarnir öllum völdum á vellinum. Haukar léku sterka vörn og áttu gestirnir í mestum vandræðum með að brjóta hana á bak aftur auk þess sem Vigdís Sigurðardóttir varði Haukamarkið með tilþrifum. Haukar höfðu fjögurra marka forskot i leikhléi og eftir að hafa skorað tvö fyrstu mörk- in í síðari hálfleik voru úrslitin ráðin. „Við vorum staðráðnar í að tryggja okkur oddaleikinn og nú þegar það hef- ur tekist ætlum við alla leið og það kemur ekki til greina annað en vinna titilinn," sagði Hulda Bjarnadóttir, hinn knái leikmaður Hauka, við DV eftir leikinn. Haukastelpurnar beittu brostækninni I leiknum í gær. Þær höföu gaman því sem þær voru að gera og uppskáru góð- an leik. Sterk vörn Haukanna og frg- bær markvarsla Vigdísar Sigurðardótt- ur átti einna stærstan þátt í sigrinum. Vigdís varði 18 skot, þar af 2 vítaköst. Þá átti Judit Esztergal mjög góðan leik, hún skoraði grimmt í byrjun og stjórnaði leik Haukaliðsins mjög vel. Liðsheild Hauka var annars mjög sterk. Það yrði ekki leiðinlegt fyrir Hauka ef stelpunum tækist að vinna ís- landsmeistaratitflinn á 65 ára afmæli félagsins og kannski kominn tími til því Haukar urðu síðast íslandsmeistar- ar í kvennaflokki árið 1945. Stjörnustúlkur léku í hefld mjög illa og sérstaklega var sóknarleikur þeirra slakur. Það hefur komið illa við leik Stjörnunnar að Herdís Sigurbergsdótt- ir er meidd. Hún lék þó með í gær, lék varnarleikinn í fyrri hálfleik en þegar líða fór á seinni hálfleikinn lék hún einnig í sókninni og lét þá strax að sér kveða. Stjörnustúlkur gerðu sig seka um mörg slæm mistök og eigi liðinu að takast að verja titilinn þarf allur leik- ur liðsins að breytast til batnaðar. „Það sem er að gerast hjá okkur er að hræðslan við að tapa er svo mikil að við erum að flýta okkur allt of mikið og gera of mörg mistök. Við höfum áður lent vandræðum og losað okkur úr þeim og það verður bara að gerast á laugardaginn. Við lentum í áfalli að missa Herdísi. Nú er hún að koma til baka og verður á fullu í síðasta leikn- um,“ sagði Ragnheiður Stephensen, leikmaður Stjörnunnar, við DV eftir leikinn. -GH Haukar-Stj arnan (12-8) 24-16 2-0, 2-2, 4-4, 34, 10-6, (12-8) 14-8, 16-11, 18-13, 21-13, 23-15, 24-16. Mörk Hauka: Judit Esztergal 7, Auöur Hermannsdóttir 5, Hulda Bjamadóttir 4, Heiðrún Karlsdóttir 3, Harpa Melsted 3/1, Kristín Konráös- dóttir 1, Rúna Lísa Þráinsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 18/2. Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Stephensen 3, Herdís Sigurbergsdótt- ir 3, Sigrún Másdóttir 3, Margrét Vil- hjálmsdóttir 2, Guðný Gunnsteins- dóttir 2, Rut Steinsen 1, Inga Fríða Tryggvadóttir 1, Nina K. Björnsdóttir 1. Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 4, Sóley Halldórsdóttir 4. Brottvísanir: Haukar 10 mín., Stjarnan 10 mín. Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson, góðir. Áhorfendur: Um 700 og mjög góö stemning. Maður leiksins: Vígdis Sigurð- ardóttir, Haukum. Körfuknattleikur: Albert hættur? gefur ekki kost á sér í landsliðið Körfuknattleiksmaðurinn Al- bert Óskarsson, lykilmaður í liði Keflvíkinga mörg undanfarin ár, er alvarlega að spá í að leggja skóna á hilluna. Hann hefur til- kynnt Jóni Kr. Gislasyni lands- liðsþjálfara að hann gefi ekki kost á sér í landsliðið í verkefnið sem er fram undan en það er und- ankeppni Evrópumótsins sem fram fer hér á landi síðari hluta maímánaðar. „Það bendir allt til þess að ég sé hættur í körfuboltanum. Ég er hreinlega búinn að fá nóg. Það fer orðið gríðarlega mikill tími í þetta og þar sem ég er í nýju starfl og er kominn með fjölskyldu gengur þetta ekki upp,“ sagði Albert Ósk- arsson í samtali við DV í gær. Al- bert er 28 ára gamall og hefur leik- ið 8 ár með meistaraflokki Kefl- víkinga. Hann hefur átt fast sæti í landsliðinu og standi hann við ákvörðun sína verður sjónarsvipt- ir að þessum baráttumikla leik- manni. Hinrik ekki með Þetta eru ekki einu slæmu tíð- indin fyrir Jón Kr. landsliðsþjálf- ara því í gærkvöldi dró Hinrik Gunnarsson, Tindastóli, sig út úr landsliðshópnum. Hann á erfitt um vik vegna atvinnu sinnar. Þá er ljóst að Falur Harðarson leikur ekki með i Evrópukeppninni en hann fingurbrotnaði á dögunum og hefur Haukamaðurinn Pétur Ingvarsson verið kallaður í hóp- inn. Þá hefur Davíd Grissom ekki gert upp hug sinn hvort hann ætlar að vera með. „Það er auðvitað mjög sorglegt ef Albert ætlar að hætta. Þetta er fráhær leikmaður sem er mjög mikilvægur hverju liði. Þá er einnig bagalegt að missa Hinrik enda einn af stærri mönnunum hjá okkur. En það þýðir ekkert að örvænta. Við eigum góðan hóp af leikmönnum og stefnan hefur ver- ið tekin á að verða í einu af tveim- ur efstu sætunum í riðlinum," sagði Jón Kr. við DV í gær. Riðillinn, sem leikinn verður hér á landi 22.-26. maí, er þannig skipaður: ísland, Danmörk, ír- land, Kýpur, Lúxemborg og Alban- ía. Tvær efstu þjóðirnar komast í 32 liða úrslitin sem verða á tímabilinu 1997-1999. -GH Handknattleikur: Gunnar og Knútur með Víkingum Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka í vetur, hefur ákveðið að leika með gömlu félögum sínum úr Víkingi í 2. deildinni á næsta keppnistímabili. Gunnar, sem þjálf- aði og lék með Víkingum í tvö ár áður en hann fór til Hauka, verður Víkingum mikill liðsstyrkur en eins og komið hefur fram þá hefur Guðmundur Pálsson ákveðið að ganga til liðs við Fram sem og markvörðurinn, Reynir Reynisson. Þá hefur verið gengið frá samn- ingi við Knút Sigurðsson þess efnis að hann leiki áfram með Víkingum en hann var markahæsti leikmaður liðsins í vetur. Víkingar ætla að staldra stutt við í 2. deildinni og hafa í hyggju að styrkja lið sitt fyr- ir næsta tímabil. Árni Indriðason mun þjálfa Víkinga áfram. -GH Islendingarnir hafa lokið keppni Islenska badmintonfólkið, sem tók þátt í Evrópumótinu í Herning í Danmörku, er allt úr leik. í einstaklinskeppninni voru allir íslendingarnir slegnir út í gær og töpuðust Eillir leikirnir fyrir utan einn. Tryggvi Nielsen og Drífa Harðardóttir unnu búlgarskt par 11. umferð en voru síðan slegin út í 2. umferð af sænsku pari. Árni Þór Hallgrímsson og Broddi Kristjánsson tóku ekki þátt í einstaklingskeppninni en Tryggvi Nielsen og Jónas Huang landsliðsþjálfari komu inn í tvfliðaleikinn fyrir þá en töpuðu naumt fyrir Þjóðverjum. -JKS Tennis: Sampras og Chang sluppu í gegn Pete Sampras og Michael Chang lentu báðir í nokkrum erfiðleikum í 3. umferð opna jap- anska meistaramótsins í tennis í gær en sluppu þó báðir áfram í átta manna úrslitin. Sampras vann Magnus Norm- an frá Svíþjóð, 5-7, 34, 6-2, og Chang sigraði Jeff Tarango frá Bandaríkjunum, 5-7, 6-3, 6-4. -VS Knattspyrna: lordanescu áfram með Rúmena Anghel Iordanescu hefur framlengt samning sinn sem landsliðsþjálfari Rúmena í knatt- spyrnu um tvö ár. Hann sagði af sér í síðasta mánuði þar sem ekki var hlustað á ásakanir hans um mútur i deildaleikjum í Rúmeníu. Rúmenar leika í úrslitum Evr- ópukeppninnar í Englandi í sumar og eru með íslendingum í riðli í undankeppni HM. Þeir koma hingað til lands þann 9. október. -VS Deildabikarinn: Konurnar byrja í kvöld Deildabikarkeppni kvenna í knattspymu hefst í kvöld með tveimur leikjum. Stjarnan og ÍA leika í Garðabæ klukkan 19 og KR og Afturelding á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 20. Þá mætast ÍA og Skallagrímur í deildabikarkeppni karla á Akranesi í kvöld klukkan 19. Leikurinn ræður úrslitum um hvort liðið kemst áfram í keppn- inni og dugar ÍA jafntefli. Yngvi í Víking i blaðinu í gær var mishermt að Yngvi Borgþórsson úr ÍBV væri kominn í Þrótt. Hið rétta er að hann er genginn í Víking eins og áður hafði verið sagt frá. Papin vill fara Enn bætast við fleiri stjörnur í hópi þeirra sem vilja fara frá Bayern Múnchen. Sá nýjasti er Jean Pierre Papin. Hann segist vilja verða meistari og Evrópu- meistari með liðinu en síðan fara i burtu. Helst af öllu vill hann fara til Montpellier. Met hjá Stoke Mike Sheron sló met þegar hann skoraði sitt sjötta mark fyrir Stoke í jafnmörgum leikj- um gegn Charlton í fyrrakvöld. Firmakeppni FH Firmakeppni FH í innanhúss- knattspyrnu verður haldin í Kaplakrika laugardaginn 27. apr- íl og hefst kl. 15. Skráning er í símum 5653980 (Leifur), 5553374 (Ægir) og í 5652534 í Kaplakrika. Valur sigraði Valur lagði Fram, 2-0, á Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu í gær. Arnljótur Davíðs- son og Geir Brynjólfsson skor- uðu mörkin í síðari hálfleik. Rapid mætir París SG Það verða Rapid Vin og París SG sem leika til úrslita í UEFA- keppninni. Rapid lagði Feye- noord, 3-0, og samanlagt 4-1 og París vann 1-0 sigur á Deportivo og samanlagt 2-0. Patrice Loko skoraði sigurmarkið á 58. mín. -GH Reykjavíkurmótið 1996 A DEILD • GERVIGRASIÐ LALGARDAL Laugardagur 20. apríl kl. 17:00 KR - Þróttur R DEILD • LEIKAISVÖLLLR Laugardagur 20. apríl kl. 17:00 Leiknir - Fjölnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.