Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Page 29
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 37 Bubbi Morthens er nú að hefja tónleikaferðalag sitt um Vestur- og Norðurland. Tón- leika- ferðalag Bubba Bubbi Morthens leikur á tón- leikum í félagsheimilinu í Búð- ardal en tónleikamir hefjast klukkan 23:00. Tónleikarnir eru upphaf tónleikaferðalags sem hefst á Vestur- og Norðurlandi, Tónleikar sem Bubbi fer að jafnaði í á hverju ári. Á tónleikunum verða frumflutt ný lög sem eru væntanleg á næstu plötu í bland við eldra efni sem allir lands- menn þekkja. Hunang Hljómsveitin Hunang verður með tónleika á Kaffi Reykjavík í kvöld og einnig annað kvöld. Hunang leikur dansvæna tón- list, bæði eigið efni og annarra í bland á tónleikunum. Stutt- myndin Gas í kvöld verður íslenska stutt- myndin Gas frumsýnd í Há- skólabíói klukkan 19.30. Myndin verður frumsýnd á sama tíma í Borgarbíói á Akureyri. Gas er rúmlega hálftímalöng kvikmynd og framleiðendur myndarinnar eru Filmumenn. Samkomur Heilsuvika Félagsmiðstöðin Hólmasel í Seljahverfi í Reykjavík stendur fyrir heilsuviku fyrir 8.-10. bekk. Heilsuvikan hófst þann 15. aprfl og lýkur í dag. Félagsvist Félag eldri borgara verður með félagsvist í Risinu, Hverfis- götu, klukkan 14.00 í dag. Guð- mundur stjórnar og allir eru velkomnir. Göngu-Hrólfar fara í sína venjulegu göngu kl. 10.00 í fyrramálið. Skemmtanir Rósenbergkjallarinn: Doría er nýstofnuð hljómsveit Rokkhljómsveitin Langbrók hefur hætt störfum og ný hljómsveit er risin í framhaldi af því. Þrír meðlima Langbrókarinnar eru í nýju hljómsveitinni sem feng- ið hefur heitið Doría. Hún er skipuð 6 meðlimum, þar af tveimur söngkonum úr Söngsystrunum, en þær eru einmitt þessa dagana að skemmta á Hótel íslandi í sýningunni Bitlaárin. Nýja sveitin Doría ætlar að stíga fyrstu skrefin í tónleikahaldi í Rósenbergkjallar- anum í kvöld og flytja hressa popp- og rokktónlist. Doría er að vinna að frumsömdu efni og stefnan verð- ur tekin á hljóðver bráðlega þar sem lögin verða tek- in upp fyrir geislaplötu. Meðlimir nýju sveitarinnar eru Alli langbrók söng- ur og gítar, Andri Hrannar trommur og röddun, Bryn- dís Sunna söngur, Ofur Baldur hljómborð og röddun, Pétur Jensen bassi og Regína Ósk söngur. Alli langbrók í nýju sveitinni Doríu sem skemmtir í Rosenbergkjallaranum í kvöld. Veður spillir færð Á sunnanverou Snæfellsnesi og á Fróðárheiði er vont ferðaveður vegna hvassviðris. Á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku gengur á með dimmum éljum og þar er hálka. Á Vestfjörðum eru Hálsamir í Barðastrandarsýslum orðnir ófærir en á norðanverðum fjörðunum er snjór á vegum og nokk- Færð á vegum ur hálka. Verið er að moka Stein- grímsfjarðarheiði og veginn til Drangsness og búist er við að það opnist fljótlega. Norðan- og norðaust- anlands er víða éljagangur og hálka á vegum og verið að moka til Sigluíjarð- ar en þar er bleytuhríð. Á Norðaust- ur- og Austurlandi er víðast hálka og þungfært á Möðrudalsöræfum en haf- inn mokstur á Fjarðarheiði og í Vatnsskarði. m Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkanir C^) LokaðrStÖÖU ^ Þungfært (g) Faert fjallabílum Dóttir Halldóru og Péturs Þessi litla stúlka kom í heiminn klukkan 1.45 sunnudaginn 14. apríl. Barn dagsins Hún vó 3520 grömm við fæðingu og mældist 51,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Halldóra Jóhannesdótt- ir og Pétur Pétursson og þau voru að eignast sitt fyrsta barn. Fjandvinirnir John og Max eiga í stöðugum erjum. Grumpier Old K Men Sambíóin sýna myndina Grumpier Old Men í Bíóhöflinni. Myndin skartar fríðum flokki úrvalsleikara, Jack Lemmon, Walter Matthau, Sophiu Loren, Ann-Margret og Darryl Hannah. Myndin er sjálfstætt framhald myndarinnar Grumpy Old Men sem sýnd var við miklar vin- sældir fyrir tæpum þremur árum. Það er sumar í bænum Wa- basha í Minnesota, heimabæ Kvikmyndir gamlingjanna Johns (Lemmon) og Max (Matthau). Þeir fjandvin- irnir hafa stundað veiði saman í mörg ár en nú hefur Maria Ra- getti (Loren) flutt til bæjarins og ákveður að opna ítalskan veit- ingastað í Wabasha. Þeir félag- arnir eru ekki hrifnir af þeirri hugmynd og reyna allt til þess að koma í veg fýrir opnun staö- arins. En Ragetti er þrjósk ag hún ætlar sér ekki einungis sig- ur í þessu máli heldur ætlar hún sér einnig að fanga hjarta Max. Inn i þetta blandast önnur mál en sonur Max hefur í hyggju að giftast dóttur John. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 80 19. apríl 1996 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollnengi Dollar 66,580 66,870 66,630 Pund 100,960 101,480 101,200 Kan. dollar 48,790 49,090 48,890 Dönsk kr. 11,4740 11,5350 11,6250 Norsk kr. 10,2640 10,3210 10,3260 Sænsk kr. 9,8800 9,9340 9,9790 Fi. mark 14,0690 14,1520 14,3190 Fra. franki 13,0430 13,1170 13,1530 Belg. franki 2,1548 2,1678 2,1854 Sviss. franki 54,5900 54,8900 55,5700 Holl. gyllini 39,5900 39,8200 40,1300 Þýsktmark 44,2800 44,5100 44,8700 ít. líra 0,04235 0,04261 0,04226 Aust. sch. 6,2940 6,3330 6,3850 Port. escudo 0,4315 0,4341 0,4346 Spá. peseti 0,5307 0,5340 0,5340 Jap. yen 0,62210 0,62580 0,62540 írskt pund 104,430 105,070 104,310 SDR/t 96,50000 97,08000 97,15000 ECU/t 82,9000 83,3900 83,3800 Slmsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan Lárétt: 1 listi, 5 bergmála, 7 ringul- reið, 9 skaut, 11 handsama, 12 skort, 13 fjarlægast, 15 feitin, 17 land, 19 beitu, 20 innyfli, 21 stingur. Lóðrétt: 1 kúst, 2 slungið, 3 kvabb, 4 hæð, 5 fallvalt, 6 grip, 8 illkvittni, 10 fifl, 12 æviskeið, 14 gras, 16 ösl- uðu, 18 hvílt. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 hrátt, 6 bæ, 8 lúðu, 9 ráð, 10 ámu, 11 nett, 13 sárnir, 16 trúan, 18 öl, 19 ull, 20 Kani, 21 rafmagn. Lóðrétt. 1 blástur, 2 rúm, 3 áður, 4 tunna, 5 treina, 6 bát, 7 æð, 12 talin, 14 árla, 15 röng, 17 úlf. 20 km.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.