Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1996, Qupperneq 32
tjórfaldur
| I. uinningur
Á
Vertu ídðbúín(n) vinningi
KIN
FRETTASKOTIÐ
SIMINN sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjalst óhað dagblað
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996
Helgarblað DV:
Nærmynd
- af Pétri
Kr. Hafstein
I helgarblaði DV að þessu sinni
verður ítarleg nærmynd af Pétri Kr.
Hafstein forsetaframbjóðanda. Þá
verður rætt við Höskuíd Skarphéð-
insson, fráfarandi skipherra hjá
Landhelgisgæslunni, sem gerir upp
fortíðina og segir m.a. frá samskipt-
um sínum við breskan landhelgis-
brjót þar sem beita þurfti vopnavaldi
til að réttlætið næði fram að ganga.
Rætt verður við Teit Þórðarson,
landsliðsþjálfara Eista í knattspyrnu,
sem mætir bróður sínum og félögum
hans í íslenska landsliðinu bráðlega.
Loks má geta þess að rætt verður við
ung danspör á heimsmælikvarða,
Bowie-aðdáendur og marga fleiri.
Nýtt afbrigði salmonellu:
salmonella
hefur greinst
Eitt afbrigði salmonellu enteriti-
lis, sem býr um sig í legi og eggja-
^éftðurum hænsna og berst þaðan í
egg, hefur nú greinst á íslandi, að
sögn Jóns Gíslasonar, forstöðu-
manns Hollustuverndar ríkisins.
Þetta salmonelluafbrigði er þekkt
í Bretlandi, Spáni og víðar og er or-
sök þess að yfirleitt eru linsoðin egg
ekki lengur á boðstólum á hótelum
og í veitingahúsum.
„Það er engin stórhætta að sýkj-
ast af salmonellu með því að neyta
linsoðinna eggja í löndum þar sem
eggjasalmonella hefur greinst.
Rannsóknir sýna að um það bil eitt
egg af hverjum þúsund er sýkt.“
I leiðbeiningum frá Hollustu-
vernd Danmerkur segir að hætta á
sýkingu sé mest við neyslu hrárra
—eggja og rétta sem innihalda hrá egg
eða mjög linsoðin. Salmonellan
drepst við 70-75 gráða hita. -SÁ
Rannsókn hafin á Qárreiöum Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis:
Grunur um fjar-
drátt fyrrum
sparisjóðsstjóra
- sparisjóðsstjórinn sagði upp í desember og fór frá staðnum
„Við endurskoðun í desember
komu í ljós atriði sem stjórn
sjóðsins þótti ástæða tU að láta
rannsaka nánar. Þá vinnu er ver-
ið að vinna núna,“ segir Kristín
Kristjánsdóttir, formaður stjórnar
Sparisjóðs Þórshafnar og ná-
grennis.
Grunur um fjárdrátt hefur
komið upp í Sparisjóðnum eftir að
sparisjóðsstjórinn lét af störfum í
byrjun desember á síðasta ári.
Sparisjóðsstjórinn sagði þá upp
starfi sínu eftir nær áratug við
sjóðinn og fór frá Þórshöfn.
HeimUdir DV herma að miUjón-
ir króna vanti í sjóöi Sparisjóðs-
ins en ekki fæst staðfest að svo sé.
Kristín Kristjánsdóttir lagði
áherslu á að aðeins væri verið að
kanna viss atriði í bókhaldinu og
hún ætlaði ekki að dæma um
hvort þar væri um fjárdrátt að
ræða.
Þórður Ólafsson, forstöðumað-
ur bankaeftirlits Seðlabankans,
vísaði frá sér að ræða mál Spari-
sjóðsins á Þórshöfn þegar DV leit-
aði eftir upplýsingum þar.
Nýr sparisjóðsstjóri hefur verið
ráðinn að sjóðnum á Þórshöfn og
tekur hann tU starfa innan
skamms. -GK
Tveir frambjóðenda til embættis forseta Islands, Ólafur Ftagnar Grímsson og Guðrún Agnarsdóttir, funduðu með
nemendum Verslunarskóla íslands í hádeginu í gær en nemendurnir óskuðu eftir fundinum. Þetta var fyrsti opinberi
framboðsfundurinn sem Ólafur Ragnar mætti á. Þess má geta að Guðrún Agnarsdóttir verður í vor 35 ára stúdent
frá Verslunarskólanum, enda sagðist hún hafa haft sérstaka ánægju af því að mæta í skólann og rifja upp gamlar og
góðar minningar. Hér eru Ólafur Ragnar og Guðrún á tali við einn verslunarskólanema. Frambjóðendur eru komnir
á fullt í baráttunni og hefur Guðrún Pétursdóttir t.d. verið á ferð um Norðurland. DV-mynd BG
4 rásir til Sýnar:
Nefndinni
heimilt og
skylt
- segir Kjartan Gunnarsson
„Mín viðbrögð eru engin. Þetta er
erindi til stjórnvaldsnefndar og ég
afgreiði það ekki í blöðunum.
Nefndin á eftir að koma saman og
fjalla um erindið," sagði Kjartan
Gunnarsson, formaður útvarpsrétt-
arnefndar, við DV um þá beiðni
Stöðvar 3 að nefndin endurskoði
ákvörðun sína að taka tvær sjón-
varpsrásir frá stöðinni og úthluta
þeim til Sýnar. Stöð 3 hefur jafn-
framt óskað eftir þvi að úthlutunin
verði stöðvuð.
Útvarpsréttarnefnd úthlutaði Sýn
tveimur rásum til viðbótar sem
voru áður hjá Stöð 2. Kjartan sagði
að nefndinni hefði verið heimilt
samkvæmt lögum og skylt að bregð-
ast við beiðni Sýnar um að fá fiórar
rásir til viðbótar til að endurvarpa
efni erlendra sjónvarpsstöðva. -bjb
Lést í skuröaðgerð:
Ríkið ekki
bótaskylt
Hæstiréttur hefur dæmt að ríkið
sé ekki bótaskylt vegna dauða rúm-
lega fimmtugrar konu sem lést í
skurðaðgerð árið 1990. Börn kon-
unnar kröfðust bóta en töpuðu mál-
inu bæði fyrir héraðsdómi og
Hæstarétti.
Konan var í aðgerð vegna bijósk-
loss. Við aðgerðina urðu mistök
þannig að ósæð fór í sundur og
tókst ekki að stöðva blæðinguna.
Meirihluti Hæstaréttar taldi að ekki
hefði verið um vítaverð mistök að
ræða.
Hjörtur Torfason hæstaréttar-
dómari skilað sératkvæði og taldi
hann ríkið bótaskylt vegna þess að
mistökin í aðgerðinni hefðu leitt til
dauða konunnar. -GK
Hafnarfjörður:
Drengur varð
fyrir bíl
Sex ára drengur úr Hafnarfirði
liggur á gjörgæsludeild eftir að
hann varð fyrir bíl í þröngri íbúðar-
götu á miðvikudagskvöldið.
Drengurinn skaust út frá heimili
sínu og út milli bíla við götuna þeg-
ar slysið varð. Lenti hann fyrst á
horni bílsins og síðan undir honum.
Fór eitt hjóla bílsins yfir höfuðið á
drengnum.
Drengurinn höfuðkúpubrotnaði
og er alvarlega slasaður. Hann mun
þó ekki í lífshættu. -GK
L O K I
Veðrið á morgun:
Úrkomu-
lítið
Á morgun verður norðaust-
anátt, enn þá allhvöss austast á
landinu en annars hægari i öðr-
um landshlutum. Smáél verða
norðan- og vestanlands, skúrir
á Austurlandi en annars úr-
komulítið.
Veðrið í dag
er á bls. 36
□PEL
Opel Vectra
Frumsýnd um
helgina
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfða 2a Sími: 525 9000