Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1996, Side 4
» mmist
FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1996
ísland
-plötur og diskar—
t 1. (1 ) Pottþétt 4
Ýmsir
t 2. ( 8 ) Stone Free
Úr leikriti
9 3. ( 2 ) Load
Metalica
$ 4. ( 3 ) The Score
Fugees
9 5. ( 4 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
| 6. ( 6 ) Paranoid and Sunburnd
Skunk Anansie
t 7. (Al) 2nd Toughest in the Infants
Underworld
t 8. (- ) Dúkka upp
Greifarnir
t 9. ( - ) Sumar nætur
Stjórnin
$ 10. ( 7 ) Older
George Michael
111. (16) Rokkveisla aldarinnar
Ýmsir
112. (20) Down on the Upside
Soundgarden
f 13. (18) Falling into You
Celine Dion
114. (14) Óskalög sjómanna
Ýmsir
9 15. ( 9 ) Gling Gló
Björk
116. (- ) Odelay
Beck
117. ( 5 ) Trainspotting
Ýmsir
9 18. (10) íslandslög 3
Ýmsir
119. (Al) The Great Escape
Blur
t 20. ( - ) His + Hers
Pulp
London
-lög-
t 1. ( 2 ) Killing Me Softly
Fugees
• t 2. ( - ) Born Slippy
Underworld
9 3. ( 1 ) Three Lions
Baddiel & Skinner & Lightning S...
| 4. ( 3 ) Mysterious Girl
Peter Andre Featurning Bubbler R...
t 5. ( 5 ) Because You Loved Me
Celine Dion
t 6. ( - ) 1 In Too Deep
Belinda Carlisle
t 7. (-) You Are Making Me High
Toni Braxton
# 8. ( 7 ) Keep on Jumpin'
Todd Terry Featuring Martha W....
t 9. ( 8 ) Don't Stop Movin'
Livin' Joy
t 10. ( - ) Nice Guy Eddie
Sleeper
New York
-lög-
t 1.(3) How Do U Want/California Love
2Pac (Featuring Kc and Jojo)
t 2. ( 2 ) You're Makin' Me High/Let It Flow
Toni Braxton
t 3. ( 4 ) Bone Thugs-N-Harmony
The Crossroads
t 4. ( 4 ) Give Me One Reason
Tracy Chapman
t 5. ( 5 ) Macarena
Los Del Rio
t 6. ( 7 ) Because You Loved Me
Celine Dion
9 7. ( 6 ) Always Be My Baby
Mariah Carey
# 8. ( 7 ) Twisted
Keith Sweat
t 9. ( - ) Quad City DJ's
C'Mon Nride It (The Train)
| 10. ( 9 ) Why I Loved so/Ain't Nobody
Monica
Bretland
— plötur og diskar —
t 1.(1) Recurring Dream
Crowded House
t 2. ( 2 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 3. ( 4 ) Falling into You
Celine Dion
# 4. ( 3 ) Mosely Shoals
Ocean Colour Scene
t 5. (10) The Smurfs Go Pop
Smurfs
t 6. ( - ) (What’s the Story) Morning Glory
Oasis
# 7. ( 5 ) The Score
Fugees
9 8. ( 6 ) Older
George Michael
t 9. (- ) 84 Bizare Fruit/Bizare Fruit
M People
I 10. (1 ) 1977
Ash
Bandaríkin
— plötur og diskar —
| 1. (1 ) Load
Metallica
| 2. ( 4 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 3. ( 3 ) The Score
Fugees
9 4. ( 2 ) Secrets
Toni Braxton
t 5. ( - ) Keith Sweat
Keith Sweat
t 6. ( 6 ) New Beginning
Tracy Chapman
t 7. ( 7 ) 1999 Eternal
Bone Thugs-N-Harmony
9 8. ( 5 ) Falling into You
Celine Dion
I 9. ( 8 ) Soundtrack
The Nutty Professor
t10. ( - ) Crash
Tragic Kingdom
Hljómsveitin Zalka:
Hljómsveitin Zalka var stofn-
uð snemma í vor en hefur nú
þegar vakið athygli fyrir það
skemmtilega íslenska rokk sem
sveitin flytur og semur. Þó
hljómsveitin sé ný þá eru með-
limir hennar langt frá því að
vera ókunnir poppbransanum
þrátt fyrir ungan aldur þeirra
flestra. I þetta sinn eru þeir Þór
Breiðfjörð söngvari og Georg
Bjamason bassaleikari sem eru
málsvarar Zölku.
ísiensk hljómsveit
Þór, söngvari Zölku, leggur
áherslu á að hljómsveitin sé
fyrst og fremst íslensk rokk-
hljómsveit. „Við semjum allt
okkar efni á íslensku og mér
finnst virðingarvert að lista-
menn eins og Björk þýðir sín
lög, sem jafnvel hafa orðið mjög
vinsæl á ensku, yfir á íslensku
þegar hún spilar hér. í raun
mætti kerfið hér vera meira
eins og það er úti á Spáni þar
sem innlendri tónlist er gert
sérstaklega hátt undir höfði.
Mér finnst hins vegar hafa bor-
ið á því að fjölmiðlar séu of opn-
ir fyrir þeim listamönnum sem
hafa komist hátt á erlendum
vinsældalistum. Þetta gildir um
bæði erlenda og islenska lista-
menn. íslendingar eru oft að
apa tískuna eftir útlendingum. I
raun er það þannig að flestir
tónlistarmenn þurfa að sanna
sig áður en þeir fá spilun á út-
varpsstöðvunum. Þetta er nokk-
urs konar vitahringur,“ segir
Þór. Hvað varðar frægð og
frama erlendis þá segja þeir fé-
lagar að það blundi í öllum tón-
listarmönnum. „Annars á þetta
allt eftir að koma í ljós enda má
segja að bandið hafi ekki almenni-
lega hrist saman fyrr en nú. Þetta
er líka allt spurning um lögmál
markaðarins,“ segir Georg.
Helgum okkur
tónlistinni
Bæði Georg og Þór eru sammála
um að líf tónlistarmannsins á ís-
landi í dag sé erfitt en gaman. „Ég
er rólyndismaður og æsi mig ekki
yfir hlutunum en það verður að
segjast að það að vera tónlistarmað-
ur er nokkuð lýjandi. Oft er það
stressandi og mikið álag að standa
uppi á sviði. Hins vegar verð ég að
segja að mér finnst þetta vera fylli-
lega þess virði. Ég vildi til dæmis
ekki þurfa að standa undir því álagi
sem fylgir starfi eins og þjónsstarf-
inu. Við höfum helgað okkur þessu
verkefni og þetta er mikil vinna,“
segir Þór. „Það er nokkuð skondið
en þegar maður segist vera tónlist-
armaður þá er maður spurður hvort
maður vinni ekki. Það finnst mér
ekki alveg passa,“ segir Georg.
Samstarfið er gott
Að sögn Georgs og Þórs er
samstarfið hjá hljómsveitarmeð-
limum afargott. „Það sem er mik-
ilvægast til þess að hlutirnir
gangi upp er að menn séu hrein-
skilnir hver við annan og hlutirn-
ir séu útkljáðir án þess að klíkur
myndist. Skoðanamunur er
alltaf til staðar en ef menn vilja
að hlutirnir leysist þá á sér stað
ákveðin „efnafræði" og hlut-
sveitarinnar eru virkir í laga-
smíðum," segir Georg.
Farið víða
Hljómsveitin Zalka leggur áhersla á að hún sé íslensk rokkhljómsveit og því sé frum-
samin tónlist sveitarinnar öli flutt á íslensku. Hljómsveitina skipa Þór Breiöfjörö söngv-
ari, Georg Bjarnason bassaleikari, Ólafur Hólm trommuleikari, Tómas Tómasson gítar-
leikari og Björgvin Harri Bjarnason gítarleikari.
Eins og margar aðrar ís-
lenskar hljómsveitir hefur
Zalka spilað á böllum úti um
allt land. Þessi feröalög hafa
gengið vel og Þór segir að það
sé ekki sist nýtt efni hljómsveit-
arinnar sem líkar vel. „Það eru
margir gamlir jaxlar í bransan-
um sem halda þvi fram að
„standardar" eins og Long Tra-
in Running séu þaö eina sem
virki. Ég held að við höfum
sýnt að þaö er ekki alveg rétt.“
Þegar þeir félagar eru spurðir
hvar þeim hafi líkað best að
spila segir Georg að það hafi
verið á ísafirði. þegar hann er
spurður hvað hafi gert þann
stað svona skemmtilegan er
hlegið og ekkert sagt. Sumt er
greinilega betur látið ósagt.
Þór vill endilega koma því að
að Georg sýni afar sérstakan
dans í hvert skipti sem bandið
treður upp. „Hann er frægur
fyrir að vera með langa snúru í
bassanum og svo tók hann einu
sinni upp á því að dansa þenn-
an ægilega fíflalega dans á
Astró. Hann dansar eins og
brjálæðingur en það bitnar
ekki á spilamennsku hans. Þeg-
ar hann gerðu þetta fyrst mun-
aði minnstu að hinir gætu ekki
spilað fyrir hlátri.
Kjarnyrt tónlist
Þór Breiðfjörð segist
helst
imir ganga upp,“ segir Þór. Georg
er sammála: „Þetta er alveg eöal-
hópur," segir hann.
Margt í
pokahorninu
Zalka er meö plötu í undirbún-
ingi sem á að taka þátt i næstu jóla-
vertíð. Nú þegar hefur lagiö Enda-
laust haf náð nokkrum vinsældum
og annað lag mun vera í fæðingu en
það ber vinnuheitið Ég hef ekkert
gert. Þór segir að útgefendur hafi
tekið hljómsveitinni vel. „Við
verðum varir við
áhuga hjá flestum
en hjá sumum
gætir nokkurs
ótta við eitt-
hvað nýtt.
Margir segja
að nú séu að eiga sér stað ákveðin
skil í íslensku tónlistarlifi þvi nokk-
ur stór bönd séu að hætta. Það má í
raun segja að markaðslega séð
séum við að reyna að fylla i það
tómarúm sem hugsanlega myndast
en við ætlum ekki að flytja eins tón-
list. Til þess að geta haft tónlistina
að lifibrauði þurfum við að vera
nokkuð stórir hér á fslandi," segir
Þór. Hann og Georg segja að hljóm-
sveitin eigi mikið af efni en núna sé
hafin vinna við að útsetja það. Þór
semur textana en uppistaðan í efn-
inu mun koma frá Tómasi
Tómassyni trommara og Ólafi
Hólm, gítarleik-
ara hljóm-
sveitarinnar.
„Annars er
það þannig
að allir
meðlimir
hljóm-
hafa gaman af alls konar tónlist.
„Maður er svona helst að spá í
víða blöndu af soul-rokki en
líka hef ég lúmskt gaman af góðri
gospeltónlist." Hann hefur reyndar
þegar gert garðinn frægan í söng-
leikjunum Jesus Christ Superstar
og Hárinu þar sem hann lék aðal-
hlutverkið. Fljótlega kemur út disk-
ur þar sem meðal annars má finna
lagið Kviðristu sem Þór syngur með
Margréti Sigurðardóttur. Þór var
einnig í hljómsveitinni Svifi með
Georg. Georg er einnig í hljómsveit-
inni Noel Einsteiger sem gaf út
minningarplötu um Pétur Inga Þor-
gilsson. Platan hét Heitur vindur og
um hana segir Þór að hún sé afar
vanmetin. „Þetta er ein af þeim
plötum sem ekki komst upp á yfir-
borðið í islensku tónlistarlífi." Ge-
org spilaði einnig á tímabili með
hinni góðkunu hljómsveit Vinum
Dóra.
Horfa á
Dallas-þætti
Þegar spurt er um næstu helgi þá
segja þeir að ætlunin sé að taka það
rólega. „Ætli við horfum ekki á
gamla Dallas-þætti, fórum út að
hjóla, bjóðum elskunum okkar út að
borða og poppum. Sennilega æfum
við líka smávegis og búum okkur
enn frekar undir plötuútgáfuna.
Þarnæstu helgi spilum við svo í
Víðihlíð í Vestur-Húnavatnssýslu.
Það verður svona ekta sveitaball,“
segir Þór að lokum. -JHÞ