Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 sauðárkrókur Vörumiðlun: Ekki bara slátur frá mömmu - í daglegum ferðum til Reykjavíkur Magnús Svavarsson byrjaöi með tvær hendur tómar þegar hann hóf vöruflutninga til Akureyrar fyrir 17 árum en í dag rekur hann myndar- legt flutningafyrirtæki, Vörumiðlun, í samstarfi við Kaupfélag Skagfirð- inga. DV-mynd PÖK í vetur mátti lesa og heyra fréttir nánast daglega af baráttu skipafé- laganna tveggja, Eimskips og Sam- skips, um að tryggja sér eignarhluta í vöruflutningafyrirtækjum víðs vegar um landið. Tilgangurinn helg- aði meðalið í flestum tilvikum og nú hafa skipafélögin ítök í ílestum helstu fyrirtækjunum. En undan- tekning á þessu er á Sauðárkróki. Skipafélögin sýndu bæði Vöruflutn- ingum Magnúsar Svavarssonar hf. og vöruflutningadeild Kaupfélags Skagfirðinga áhuga en heimamenn völdu frekar þann kost að samein- ast en að taka tilboðum Samskips og Eimskips. Upp úr viðræðum við kaupfélags- menn var stofnað nýtt fyrirtækí, sem nefnist Vörumiðlun, og er í meirihlutaeigu kaupfélagsins. Tíu flutningabílar af öllum stærðum eru í þjónustu fyrirtækisins og álíka margir starfsmenn. Vörumiðlun mun einnig sinna verkefnum fyrir Eimskipsmenn. „Hugsunin með sameiningunni var fyrst og fremst að koma upp daglegum ferðum á milli Sauðár- króks og Reykjavíkur. Áður vorum við með ferðir þrisvar í viku,“ sagði Magnús Svavarsson í samtali við DV en hann byrjaði með tvær hend- ur tómar, ef svo má segja, fyrir 17 árum þegar hann hóf akstur á milli Sauðárkróks og Akureyrar. Síðan hefur reksturinn undið upp á sig með tímanum og öllum þeim breyt- ingum sem hann hefur haft í för með sér. Sem aðra ástæðu fyrir sameining- unni við kaupfélagið nefndi Magnús stóraukna tækni í vöruflutningum með tilkomu gámanna m.a. Síðan þyrfti sérútbúna bíla til að flytja vörur eins og kjöt og fisk. „Þannig að við flytjum ekki bara slátur frá mömmu,“ sagði Magnús og hrosti út í annað. Frá þvi Vörumiðlun tók til starfa 1. maí sl. hafa viðtökur verið góðar, að sögn Magnúsar. Heimamenn hafa tekið daglegu ferðunum vel, ekki síst þeir sem reka t.d. verk- stæði þar sem alltaf er þörf á vara- hlutum. -bjb íS- / asi jjfr Við hlið þjóðarinnar í 110 ár Landsbankinn hefur verið traustur aflvaki í uppbyggingu atvinnulífs um land allt Við óskum íbúum Sauðárkróks til hamingju með afmœlisárið. Sf mS? s Iforystu til framtíðar tfr Landsbanki íslands Æ ... Banki allra landsmanna Ártorgi 1, Sauðárkróki • Sími 453-5353 • Fax 453-6040 Einangraðu með þéttullarplötum fró Steinullarverksmiðjunni Rétt val ó einangrunarefnum er afar mikilvægt: ÞaS stuSlar aS öryggi og vellíSan. Það er staðreynd að hitaveitu- svæðin eru ekki óþrjótandi orkulindir. Að einangra eftir ó er alltaf erfitt og kostnaðarsamt. Þegar hús eru klædd að utan er nauðsynlegt að einangra. Fyrir þessu eru fjölmörg rök. • Það sparar orku og fjórmuni. • Það eykur þægindi, því veggir fó hærra og jafnara hitastig. • Veggir jDorna fyrr og alkalí- skemmdir hætta. • Tæring burðarvirkis stöðvast. Steinull fró Steinullarverksmiðjunni er úrvals einangrun undir allar gerðir útveggjaklæðninga og einangrar jafnt gegn kulda, bruna og hljóði. - úrvals hitaeinangrun ÞÉTTULLARPLÖTUR - úrvals hljó&einangrun KSMIÐ. 9k 3 N SteinullarverksmiSjan hf. SauSórkróki - sími: 453-5000 - fax: 453-5106 Söluskrifstofa og róSgjarfaþjónusta Fosshólsi 17-25 - sími: 567- 4716 fax: 587-5402 - GSM: 893-1334 a 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.