Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 8
22 sauðárkrókur MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 DV RKS-skynjaratækni, ört vaxandi fyrirtæki á Króknum: Samið við einn stærsta frysti- vélaframleiðanda í heimi Eitt þeirra fyrirtækja á Sauðár- króki sem eru farin að vekja athygli á landsvísu er RKS-skynjaratækni. Fyrirtækið, sem er alfarið í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, er ungt að árum og afrakstur tilraunaverkefn- is sem hófst í Háskóla íslands. Meg- inframleiðslan er skynjarar sem nema og vara við leka á ammohíaki og freoni, eða kæligasi, í frystiklef- um. Nýlega var undirritaður sam- starfssamningur við danska fyrir- tækið Sabroe, einn stærsta frysti- vélaframleiðanda í heimi, um út- flutning á skynjurum undir þeirra nafni sem fylgja framleiðslu fyrir- tækisins. Ævintýrið hófst í Há- skólanum Ævintýrið hófst í Háskólanum eins og áður greinir. Þar voru menn að prófa sig áfram með gasskynjara sem sögðu til um ferskleika fisks. Dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon tók einn skynjarann, fyrir freon og ammoníak, frá og komst í samband við RKS-skynjaratækni í gegnum Iðntæknistofnun. 1 samvinnu við Þorstein voru gerðar áætlanir um frekari þróun á skynjurum af þessu tagi. Árið 1993 fór í þá vinnu og árið eftir hófst sala á framleiðslunni hér innanlands. „Danska fyrirtækiö Sabroe, sem er einn af eigendum kælismiðjunn- ar Frosts í Reykjavík, setti sig fljót- Rögnvaldur Guömundsson, til hægri á myndinni, skoöar hér nýjustu fram- leiðsluna ásamt Hróbjarti Jónassyni rafvirkja sem lengi vel var eini starfs- maöur fyrirtækisins. DV-mynd ÞÖK lega í samband við okkur og sýndi áhuga á samstarfi við okkur. Við funduðum með þeim og ákváðum að breyta vörunni i samræmi við alþjóðlega staðla. Núna seljum við skynjarana undir nafninu Unisafe og Sabroe sér um að flytja þá út um allan heim,“ sagði Rögnvaldur Guð- mundsson, verkfræðingur og iðn- rekstrarfræðingur, í samtali við DV en hann hefur verið framkvæmda- stjóri RKS-skynjaratækni frá upp- hafi eða frá árinu 1992. Rögnvaldur er fæddur og uppalinn á Flateyri en fluttist til Sauðárkróks árið 1991. RKS-skynjaratækni sér sjálft um sölu á skynjurunum á innanlands- markaði og einnig til Noregs og Frakklands. Nýlega fundust sam- starfsaðilar í Noregi, Svíþjóð og Danmörku sem eru reiðubúnir til að selja skynjara þar. Þeir samning- ar eru afrakstur svokallaðs fyrir- tækjamóts í Svíþjóð á vegum Evr- ópusambandsins sem forráðamenn RKS-skynjaratækni sóttu i lok júní. Skynjarar í Vestfjarða- göng Fyrirtækið, sem gert var að hlutafélagi um síðustu áramót, er þegar farið að auka umsvifin. Á dögunum var gerður samningur við Vegagerðina um þróun og uppsetn- ingu á 15 koltvísýringsskynjurum í Vestfjarðagöngunum. Þessir skynj- arar verða settir upp til prufu í næsta mánuði. Ef vel tekst til gæti svo farið að skynjarar af þessari tegund fari upp I öðrum veggöngum á landinu. Þá tók RKS-skynjaratækni yfir framleiðslu á skráningarbúnaði sem nefnist Medistor af öðru fyrir- tæki, Fjölnemum. Búnaðurinn er hannaður til að hafa eftirlit með t.d. matvælaframleiðslu og gæðum hennar, s.s. hitastigi og öðru. Sala fyrir 30 milljónir Að sögn Rögnvalds er gert ráð fyrir að RKS-skynjaratækni flytji út skynjara fyrir 20 milljónir á þessu ári og salan á innanlands- markaði nemi 10 milljónum. Þar sem þetta er fyrsta heila rekstrar- árið er ekki vert að geta útflutn- ingsverðmætis síðasta árs, Rögn- valdur sagði allar tekjur hafa farið í þróunarkostnað. Auk Rögnvalds var í fyrstu einn rafvirki í vinnu hjá RKS-skynjara- tækni en í dag eru starfsmennirnir 8 talsins, þar af tveir verkfræðing- ar og einn tæknifræðingur. „Við vinnum samkvæmt gæða- staðlinum ISO-9001 og erum núna að sækja um að gæðakerfi okkar verði vottað. Við vonum að fá þá vottun núna í haust,“ sagði Rögn- valdur. RKS-skynjaratækni tekur þátt í sjávarútvegssýningunni í Laugar- dalshöll í haust en nánari upplýs- ingar má nálgast á heimasíðu fyrir- tækisins á Internetinu. Slóðin er: http://www.arctic.is/fin/rks £/fui/miu/ iScuu$áf*/u*óAs - o(//)ooUa/uís - ^/tfa/t/ölu /4, SSO tfamfár/trófiur, síml 408-6*748 ,<47)tíar iitnafár/t/HÍ/ui oa , H7ttitjfi[j/tuHf<u', suo■ qtffertftuMetui! 8/titiftiiigi/ui <•/' e/ut tí si/itunt/tun/it sittti oirf . (<íti/t/o(iuitt. /y/ritt/ttitt/i/uii e/' re/tú[ /ittti/i/'ei/isiui ot//ootta/uis. ^f/ters/tt er /öt/fi tr otuu/tufti oi/uut ot/ s/n/rli/et/tin/rttt/tuit/. /frtfitf er /itit/sttetl /nifittri oitf /ii/t/ertíti oertf/ttt/s/tö/uuui. f/tttint/i fff/'isti/t ffiristö/erst/öttir VÖRUFLUTNINGAR BJARNA HARALDSSONAR Stofnsett 1 954 Afgreiösla í Reykjavík: Landflutningar Skútuvogi 8 S: 568 5400 Afgreiösla Sauöárkróki: Verslun Haraldar Júlíussonar Farsími: 852 2824 Frá Sauöárkrók: Mánudaga og fimmtudaga kl. 14 Frá Reykjavík: Þriöjudaga og föstudaga ki. 16 Sími: 453 5124 , Rekstur Steinullarverksmiðjunnar: I föstum skorðum eftir mótbyr í upphafi - þróunin í rátta átt, segir Einar Einarsson framkvæmdastjóri Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Steinullarverksmiöjunnar, í lagernum en vel hefur gengið aö selja steinullina síöasta misseriö, jafnt innanlands sem utan. DV-mynd ÞÖK „Þetta er komið meira i fastar skorður en var fyrstu árin. Þróunin hefur verið í rétta átt. Nýtingin á af- kastagetu fyrirtækisins er ásættan- leg og við getum einbeitt okkur að því sem við eigum að gera, að fram- leiða og selja steinull,” sagði Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Stein- ullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki, í samtali við DV en verksmiðjan fagnaði 10 ára afmæli síðastliðið haust. Hagnaður síðasta árs nam 35 milljónum króna. Síðustu árin hefur steinullin ver- ið framleidd á þrískiptum vöktum en fastir starfsmenn eru í kringum 40. Afkastageta verksmiðjunnar á ári er um 6.600 tonn. Undanfarin ár hafa farið um 2.700 tonn á innan- landsmarkað og 3.300-3.500 tonn til útflutnings. Helstu markaðslöndin eru Bretland og Þýskaland en einnig fer töluvert af steinull til Færeyja, Hollands, Belgíu og fleiri landa. Met var slegið í framleiðslu og söluverðmæti á síðasta ári þegar framleidd voru tæplega 7.300 tonn af steinull, eða um 700 tonnum umfram hannaða afkastagetu, og söiuverð- mætið fór í rúmar 560 milljónir króna. Að sögn Einars er ástæðan fyrir þessari aukningu aðallega sú að framleitt var verulegt magn fyrir verksmiðju í Bretlandi sem var í endurbyggingu. í ár er reiknað með að flytja út um 3.500 tonn af steinull og heildar- söluverðmæti, að innanlandsmark- aði meðtöldum, verði í kringum 520 milljónir. Undanfarin ár hafa farið í að greiða niður þessa stórfjárfestingu en framreiknaður stofnkostnaður nemur 1,2 milljörðum króna. Einar sagði það ganga samkvæmt áætlun að greiða niður skuldir. í árslok er stefnt að því að nettóskuldir verði komnar niður í 230-240 milljónir en þær hafa lækkað mjög mikið sein- ustu sex árin. Helstu éigendur Steinullarverk- smiðjunnar eru ríkissjóður og stór- fyrirtækið Partek í Finnlandi, með um 30% hlut hvor. Næstur kemur Sauðárkróksbær með um 24% hlut og aðrir stórir hluthafar eru Byko, Húsasmiðjan og Kaupfélag Skagfirð- inga. Hlutafé nemur 212 milljónum króna. Einar hefur verið framkvæmd- stjóri verksmiðjunnar frá haustinu 1988. Á undan honum stýrði Þórður Hilmarsson fyrirtækinu en fyrsti framkvæmdastjórinn var Þorsteinn Þorsteinsson. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.