Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 33 "V 24 fejauðárkrókur Eldsmiðjan í Árbakka endurreist af iðnadarmönnum á Króknum: Eins og gamli maðurinn hafi skroppið í kaffi kaupfálagið skuldar enn 50 krónur fyrir skrufur frá því árið 1948! í Ionaðarmannafélagi merkasti iðnaðarmaður sem búið nú var ákveðið að láta Félagar í Iönaðarmannafélagi Sauðárkróks tóku sig til nýlega og opnuðu smiðju Ingimundar Bjarna- sonar eldsmiðs við Suðurgötu 5 svo hægt væri að sýna hana ferðamönn- um og öðrum sem leið eiga um göt- una undir Nöfunum. Eldsmiðjan er líklega sú eina sinnar tegundar hér á landi sem varðveist hefur í óbreyttri mynd. Húsið nefnist Árhakki og í daglegu tali oft Iðnaðarmannahúsið þar sem Iðnaðarmannafélag Sauðár- króks hefur átt þar félagsaðstöðu ásamt fleiri félögum i bænum. Húsið var reist árið 1922 af Páli Jónssyni trésmið en Ingimundur og kona hans, Sveinsína Bergsdóttir, keyptu það af Páli árið 1925 og ólu þar upp fjórar dætur og bjuggu í húsinu til dauðadags. Fjölskvldan bjó á efri hæð hússins og eldsmiðj- an var á neðri hæðinni. Þar starfaði Ingimundur alla sina tíð og eftir hann liggja ómetanlegir munir, m.a. heyýta sem hann smíðaði og fékk einkaleyfi fyrir á sínum tíma. Með járn- og eldsmíði aflaði Ingimundur heimilinu tekna alla ævi en í við- byggingu við húsið voru fjós, haug- hús, heygeymsla og aðstaða fyrir nokkrar kindur. Eftir að iðnaðarmenn á Króknum höfðu lagað lítillega til í kjallaran- um er eins og skilið hafi verið við eldsmiðjuna í gær. Þar er allt á sín- um stað, meira að segja tóbaksdósir, reikningar og persónulegir munir í eigu Ingimundar. Meðal reikninga er einn á kaupfélagið frá árinu 1948 fyrir skrúfur. Reikningurinn er upp á 50 krónur og er ógreiddur. Ingimundur er tvímælalaust einn hefur á Sauðárkróki. Frægt er við- kvæði hans þegar menn leituðu til hans á seinni árum: „Ja, Ijót er saga þín, drengur minn. Hefurðu talað við þá á verkstæðunum?“ Allir munimir hafa verið skráðir af Sigríði Sigurðardóttur safnverði í Glaumbæ en hún telur þessa smiðju hafa stórmerkilegt og um leið skemmtilega sögufræðilegt gildi sem sé vel þess virði að leyfa ferða- fólki og öðrum að berja augum. Að sögn Halls Sigurðssonar, for- manns Iðnaðarmannafélags Sauðár- króks, hefur lengi staðið til að koma kjallaranum í stand eftir að félagið tók efri hæðina i gegn undir félags- starfsemi sina. Vegna afmælisársins hendur standa fram úr ermum og leyfa nú- tímamanninum að hverfa áratugi aftur í tímann og kynnast hand- verki fyrri hluta aldarinnar. Hállur sagði að smiðjan hefði stórkostlegt sögulegt gildi, og enn væri hægt að smíða þar ýmislegt úr jámi. Enda var ákveðið að láta járnsmið vera að störfum í smiðjunni ákveðinn hluta dags þannig að fólk geti lifað sig inn í gamla og horfna tíma. „Smiðjan og allt í henni er óbreytt, hatturinn hans Ingimundar hangir á snaganum við dyrnar að stiganum og lúgunni upp um eld- húsgólfíð, eins og gamli maðurinn hafi skroppið í kaffi,“ sagði Hallur. -bjb Hallur Sigurðsson, formaður Iðnaðarmannafélags Sauöárkróks, r.ieð heyýt- una sem Ingimundur Bjarnason fékk einkaleyfi fyrir á sínum tíma. DV-mynd ÞÖK INNAIULANDS Á STETTARFÉLAGSVERÐI SOFANDI Á SÉRKJÖRUM Tveggja manna herbergi ; GOLF OG GISTIIUG m/baði og morgunverði ! ; Innifalið er: 800 ' Gisting, morgunverður ; þriggja rétta kvöidverður Í og ENDALAUST GOLF Eins manns herbergi m/baði og morgunverði 4.000 5.900 Mjólkursamlag KS það fjórða stærsta á landinu: KS-súrmjólkin hefur slegið í gegn - svo ekki sá minnst á alla verðlaunaostana Flottasti ruslabíll landsins Umboðsmaður DV að störfum Á Sauðárkróki er starfrækt fjórða stærsta mjólkursamlag landsins af Kaupfélagi Skagfirðinga. Mjólkur- samlagið var stofnað 1934 en tók til starfa árið 1935 og svo skemmtilega vill til að í gær, 16. júlí, voru ná- kvæmlega 61 ár liðið frá fyrsta vinnsludegi. Á þessum tíma hefur framleiðslan stöðugt orðið fjölbreytt- ari enda tækninni fleygt fram. t dag starfa um 20 manns í samlaginu. „Ég held að megi segja að þetta hafl gengið vel í gegnum árum. Að sjálfsögðu hafa komið erfiðleikatím- ar, eins og til dæmis í mjólkurflutn- ingunum fyrstu árin og gæðamálin voru lengi vel erfið. Síðan hefur þetta farið stöðugt batnandi," sagði Snorri Evertsson mjólkursamlagsstjóri I samtali við DV. Samlagið á Sauðár- króki hefur alla tíð framleitt osta auk hefð- bundinnar mjólkurfram- leiðslu. Ostarnir hafa þótt í fremstu röð. í seinni tíð hafa ostar eins og Maribo, Kúmen- Maribo og Grettir marg- sinnis hlotið verðlaun og ostameistarinn Haukur Pálsson og hans menn orðnir landsfrægir fyrir afurðir sínar. Þá má ekki gleyma nýjasta ostin- um, Gotta. „Við erum einnig stoltir af því að framleiða Mozarella-ost sem mikið er notaður ofan á pitsur. Sú fram- leiðsla hefur farið fram síðustu tvö Björg Jónsdóttir, til vinstri á myndinni, hefur verið umboðsmaður DV á Sauðárkróki í 9 ár og er ein af mörgum fulltrúum blaðsins sem haldið hafa tryggð við DV á landsbyggöinni. Hér afhendir hún þau eintök sem blaðber- inn Sólborg Hermundardóttir sé um að koma í hendur áskrifenda. Sólborg hefur um nokkurt skeiö boriö út DV og eldri systkini hennar sömuleiðis. Segja má aö starfið hafi gengið i erfðir í fjölskyldunni, líkt og algengt er þeg- ar heilsubætandi blaðburður er annars vegar. -bjb/DV-mynd ÞÖK Snorri Evertsson, samlagsstjóri Mjólkursamlags KS, teygar hér KS-súrmjólk meö súkkulaöi- og jaröarberjabragöi en súrmjólkin hefur svo sannarlega slegiö í gegn. DV-mynd ÞÖK Án efa er fiottasta ruslabíl landsins ekið um götur Sauðárkróks og byggðir Skagafjarðar. Eigandinn er Ómar Kjartansson, sem séö hefur um sorphirðu á svæðinu mörg undanfarin ár. DV-mynd bjb árin og gengið mjög vel, enda höfum við yfir að ráða mjög góðri vél til slíkra hluta,“ sagði Snorri. Fullvirðisréttur Mjólkursamlags KS er nú 8,6 milljónir mjólkurlítra. Á ársgrundvelli er samlagið að selja um 500 þúsund lítra af nýmjólk, um 200 þúsund lítra af léttmjólk, 60 þús- und lítra af undanrennu, um 400 þúsund litra af KS-súrmjólk sem er ávaxtasúrmjólk, 117 þúsund lítra af venjulegri súrmjólk, um 30 þúsund lítra af rjóma. Um 66 tonn eru fram- leidd af smjöri, 112 tonn af smjörva, um 330 tonn af feitum osti og 350 tonn af mögrum osti. Osturinn, smjörið og smjörvinn fara frá Sauðárkróki um allt land í dreifingu Osta- og smjörsölunnar en Mjólkursamsalan í Reykjavík sér um dreifingu á KS-súrmjólkinni. Mjólkurafurðir fara um sveitir Skagafjarðar og súrmjólk fer einnig til Húnvetninga. Auk ostanna má segja að KS-súr- mjólkin hafi í seinni tíð slegið í gegn hjá samlaginu. i dag eru fram- leiddar fimm tegundir með mismun- andi ávaxtabragði. Framleiðslan hófst fyrir 10 árum, fyrst í litlu magni fyrir heimamarkað. Aðspurður sagði Snorri að sam- lagið á Sauðárkróki ætti bjarta framtíð fyrir sér. Markmiðið væri ávallt að efla og bæta framleiðsluna. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.