Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 17
JE>V MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1996 sauðárkrókur Trésmiðjan Borg á þremur sviðum byggingariðnaðar: Verkstæði, viðgerðir og verktakastarfsemi - innréttingasmíðin færist stöðugt í vöxt Trésmiðjan Borg hefur verið starfrækt á Sauðárkróki í 33 ár og er eitt af traustustu iðnfyrirtækjum hæjarins. Hjá Borg starfa að jafnaði 30 manns en í sumar eru starfs- mennirnir ríflega 40 talsins. Fyrir- tækið hefur haslað sér völl á þrem- ur sviðum byggingariðnaðarins; með verktakastarfsemi, innréttinga- smíði á verkstæði og viðgerðum og viðhaldi á gömlum húsum. Á verkstæðinu framleiða Borgar- menn bæði staðlaðar innréttingar og sérsmíðaðar innréttingar eftir óskum hvers og eins. Innréttinga- smíðin hefur færst í vöxt á síðari árum. Stöðluðu innréttingarnar eru tvær. Önnur nefnist Kvartett sem hefur verið framleidd fyrir Egil Árnason hf. í Reykjavík en hönnuð- ir eru' Guðbjörg Magnúsdóttir og Sigurður- Hallgrímsson arkitektar. Kvartett hefur verið í þróun síðustu tvö ár og selst vel, að sögn Guð- mundar Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra og eins eigenda Tré- smiðjunnar Borgar. Meðal annars fengu Kvartett-innréttingarnar verðlaun á hönnunardegi Samtaka iðnaðarins á síðasta ári. Hin inn- réttingin nefnist T-Borg og hefur fyrirtækið einkum séð sjálft um sölu á henni. Húsbyggjendur og arkitektar hafa síðan getað lagt fram séróskir um innréttingar, hvort sem um er að ræða í einbýlishús eða stofnanir. Handverksmenn frá Borg hafa kom- ið víða við með innréttingar sínar. Auk fjölda einbýlishúsa um allt land eru innréttingar frá fyrirtæk- inu að hluta eða öllu leyti í húsum eins og Ráðhúsi Reykjavíkur, Borg- arleikhúsinu, Þjóðarbókhlöðunni og nýja Hæstaréttarhúsinu. Aðspurður sagði Guðmundur að ekki stæði fyr- ir dyrum að hefja útflutning á inn- réttingum, áherslan væri lögð á inn- anlandsmarkað enda samkeppnin við innflutning hörð á því sviði. Trésmiðjan Borg tekur af krafti þátt í verktakastarfsemi með tilboð- um í byggingar og samningum um þær.'Ef síðustu framkvæmdir eru nefndar til sögunnar má nefna Bóknámshús Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki, endurbyggingu skóla- hússins á Hólum í Hjaltadal, smíði parhúsa á Sauðárkróki, stækkun Búnaðarbankans og viðbyggingu íþróttahússins á Sauðárkróki. Tvær síðasttöldu framkvæmdirnar eru unnar í samstarfi með byggingar- fyrirtækinu Friðriki Jónssyni sf. undir nafninu Óstak hf. en það fyr- irtæki byggði Steinullarverksmiðj- una á sínum tima. „Síðan erum við í viðgerðum og viðhaldi á gömlum húsum og höfum sérhæft okkur meira í því í seinni tíð. Sem dæmi nefni ég að við erum að gera við Kirkjuhvammskirkju hjá Hvammstanga og Riis-húsið á Borðeyri," sagði Guðmundur. Um ástandið i byggingariðnaði sagði Guðmundur að það hafi áður verið verra, ekki síst í byggingar- framkvæmdum. Meira sé a.m.k. byggt á Sauðárkróki í ár en í fyrra. „Þegar við horfum til framtíðar þá þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Við sjáum til dæmis að á næstu árum muni viðhald á göml- um húsum aukast. En menn mega ekki hlaupa í þann þátt með ein- hverjum látum. Það verður að Níunda sumarið hjá Hótel Áningu: Heilsárshótel er draumurinn - boðið upp á landsins bestu listamenn og kokka Sumarið í ár er það níunda sem Hótel Áning rekur sumarhótel í húsakynnum heimavistar Fjöl- brautaskólans á Sauðárkróki. Hin síðari ár hefur Áning einnig rekið hótel í Varmahlíð ásamt veitingaað- stöðu. Alls er þetta gistirými fyrir um 200 manns, þar af fyrir 140 manns í heimavistinni á Sauðár- króki þar sem 71 herbergi standa ferðalöngum til boða. Ef reksturinn í Varmahlíð og á Sauðárkróki er samanlagður þá starfa alls tæplega 40 manns á Hótel Áningu. Auk þess að bjóða upp á gistingu sér Áning um að bóka í hestaferðir, Drangeyjarferðir, skoðunarferðir á sögufræga staði í Skagafirði, fljóta- siglingu um Jökulsá vestri og Hjaltadalsá og skipuleggja ráðstefn- ur. Þá gefst ferðamönnum kostur á að kaupa pakka inniheldur gist- ingu, kvöldverð og golf í einn dag á glæsilegum 9 holu golfvelli Golf- klúbbs Sauðárkróks að Hlíðarenda. Vigfús Vigfússon hótelstjóri sagði við DV að með tilkomu bóknáms- húss Fjölbrautaskólans fyrir tveim- ur árum hefði aðstaða til ráðstefnu- halds stórbatnað og væri nú með því besta sem þekktist á lands- byggðinni. Meðal ráðstefna í sumar má nefna lyflæknaþing þar sem 180 manns voru saman komnir. Vigfús sagði að frá upphafi hótel- reksturs Áningar hefði verið lögð á það höfuðáhersla að bjóða upp á fyrsta flokks mat og þjónustu, enda aðstaða öll hin besta á hótelinu. Landsins bestu kokkar væru ávallt í starfsliði hótelsins og matargestir, hvort sem það eru hótelgestir eða bæjarbúar, gætu síðan rennt niður kræsingum undir lifandi tónlistar- flutningi. Meðal listamanna sem Áning hefur verið með í boði i sum- ar má nefna Diddú, Egil Ólafsson og Jónas Þórir. Þá hefur söngvarinn góðkunni, Jóhann Már Jóhannsson, verið fastágestur á dagskránni með sínum ljúfa söng að hætti „Konn- anna“. Að loknum kvöldverði og tónlist geta gestir Áningar brugðið sér á koníaksstofuna og átt huggu- lega kvöldstund í rómantísku um- hverfi. Aðspurður um hvernig sumarið hefði gengið sagði Vigfús að júní hefði farið rólega af stað en síðan væri gistinýting mjög góð til hausts- ins, eða þar til skólastarf hefst á ný og sumarhótelið leggst undir vetrar- feldinn. Hin síðari ár hefur það ver- ið draumurinn að koma upp heils- árshóteli á Sauðárkróki og hafa Án- ingarmenn sett það á stefnuskrá sína en yfir vetrarmánuðina er Hót- el Varmahlíð helsta gistiaðstaðan í Skagafirði. Hlutfall erlendra ferðamanna í gistingu hefur verið um 80 prósent. Að hluta hafa þetta verið ferðamenn af skemmtiferðaskipum, oft um 200 í einu, sem gista á Áningu á leið sinni til Akureyrar og Mývatns eft- ir að hafa komið norður yfir Kjöl og skoðað Gullfoss og Geysi. Vigfús sagði að þessir ferðamenn væru góðir gestir. -bjb kynna sér hvaða aðferðir henti best til að gera við hús. Ekki hefur alltaf verið vandað nægilega vel til við- halds á undanförnum árum. Hins vegar hafa arkitektar og verkfræði- stofur verið að sérhæfa sig meira í viðgerðum á byggingum. Það hefur einnig haft í för með sér að þekking iðnaðarmanna hefur vaxið á þessu sviði og þar af leiðandi fylgjast þeir betur með þróuninni," sagði Guð- mundur. -bjb Guðmundur Guðmundsson, framkvaemdastjóri Trésmiðjunnar Borgar, fylgist hér með Birni Sverrissyni að störfum í innréttingasmíðinni. DV-mynd ÞÖK Hluti af Kvartett-innréttingunni sem Trésmiðjan Borg hefur síðustu misserin framleitt fyrir Egil Árnason hf. í Reykjavík og er til sýnis í versl- un fyrirtækisins í Ármúla 10. DV-mynd GVA Blóm, blómaskreytingar og gjafavörur við öll tækifæri Verið velkomin í 4b llmcmdl Itllð . Blóma- og gjafabúðin Hólavegi 22, Sauöárkrók, sími 453-5253 TM-öryggi færðu hjá okkur Þeir sem láta skynsemina ráða tryggja hjá Tryggingamiðstöðinni. TRYCGINGA MIÐSTÖÐIN HF Söluumboð Sauðárkróki: Bókabúð Brynjars, Suðurgötu 1 • Sími 453 5950 • Fax 453 5661 Vigfús Vigfússon hótelstjór. DV-mynd ÞÖK Byggjum einbýlishús og sumarhús eftir óskum hvers og eins Fyrirliggjandi teikningar af húsum ef óskað er. Ódýr og vönduð vinna. Sendum tilboð ásamt verklýsingu innan tveggja daga. Mikil reynsla af timburhúsum. Einnig alhliða trésmíðavinna Dæmi: • Utanhússklæðningar • Pallar • Þök • Glerjun Húsin eru ekki í einingum. Reisum öll hús á lóðarstað um allt land. Stuttur afgreiðslutími. LAUFHAGA 14, SELFOSSI SÍMI 482-1169 & 896-6649

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.