Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Page 12
44 Qyndbönd
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 33 "V
Kroppasýning
Ef mér skjöplast eigi er þetta þriðja myndin um
garpinn Dar sem er ekki ósvipaður Conan the Bar-
barian. Það eru helst þrjú atriði sem greina þá að.
í fyrsta lagi er Dar öllu norrænni i útliti en Conan.
Conan er mið- eða austurevrópskur barbari en Dar
er germanskur barbari. í öðru lagi hefur Dar það
umfram Conan að geta rabbað við dýr og fengið þau
til að snatta fyrir sig og í þriðja lagi er Dar öllu
vinalegri en hinn ábúðarmikli Conan. í öllu falli
eru þeir báðir hálfnaktir barbarar með risastór
sverð. Það er fremur létt yfir Beastmaster. Aðstand-
endur myndarinnar virðast gera sér grein fyrir því að þeir hafa hvorki
fé né hæfileika til að gera almennilega kvikmynd svo þeir setja traust
sitt á stælta likama og fimmaurabrandara. Kroppamir eru nógu stælt-
ir en gallinn er að handritshöfundurinn og framleiðandinn David Wise
virðist ekki átta sig á því að handritið er bara ekkert fyndið. Það eina
í myndinni sem er verulega fyndið er skrímslið Braxus sem á að vera
stærsti og versti vondikallinn.
BEASTMASTER: THE EYE OF BRAXUS. Útgefandi: ClC-myndbönd. Lelkstjóri:
Gabrlelle Beaumont. Aöalhlutverk: Marc Singer. Bandarísk, 1995. Sýnlngarími: 97
mín. Bönnuö börnum yngri en 16 ára. -PJ
$irJ **
Svartur Marlowe
Devil in a Blue Dress gerist í Los Angeles á eftir-
stríðsámnum. Denzel Washington leikur Easy Raw-
lins sem er nýbúinn að missa vinnuna og á í vand-
ræðum með afborganir af húsinu sínu þegar honum
er óvænt boðið starf við að hafa uppi á konu nokk-
urri. Þar sem hann er kominn í veruleg íjárhags-
vandræði og vel er greitt fyrir verkið þekkist hann
boðið þótt fullur efasemda sé. Enda kemur fljótt á
daginn að valdamiklir menn eru að spila refskák og
flækist hann í alls konar ófögnuð sem erfitt reynist
fyrir hann að losna úr. Myndin er fremur fáránlegt
samsull af injög svo hvítri einkaspæjarakvikmyndahefð og svörtum
jive-kúltúr og gengur ekkert alltof vel upp. Denzel Washington er orð-
inn efar þreyttur og virðist alveg hafa staðnað og Jennifer Beals er lé-
leg Bacall/Garbo/Dietrich eftirlíking. Eini skemmtilegi leikarinn er
Don Cheadie í hlutverki Mouse, ofstopafulls aðstoðarmanns Easy. Sem
betur fer er söguþráðurinn ágætur svo að myndin endist ágætiega þess-
ar 100 mínútur sem það tekur að horfa á hana.
DEVIL IN A BLUE DRESS. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Carl Franklin. Að-
alhlutverk: Denzel Washington, Jennifer Beals og Tom Sizemore. Banda-
risk, 1995. Sýningartími: 100 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára.
15. júlí til 22. júlí '96
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 1 3 Seven Myndform Spenna
2 3 Wmmm 2 Sabrina ClC-myndir Caman
3 2 4 Ace Ventura when Nature Calls j Warner -myndir Caman
Ný 1 Ðesperado Skífan Spenna
5 4 6 Assassins Warner -myndir Spenna
6 5 2 Something to Talk About Warner -myndir Gaman
7 7 5 The American President ClC-myndir Gaman
S Ný 1 %£»BkÍ£Í: y.' * Mad Love Sam-myndbönd Caman
9 S 9 The Net Skífan Spenna
10 6 7 Dangerous Minds Sam-myndbönd Spenna
11 12 3 Losing Isaiah ClC-myndir Drama
12 9 7 Goldeneye Warner -myndir Spenna
13 1S 2 Jury Duty Skífan Gaman
14 11 10 Usual Suspect Sam-myndbönd Spenna
15 13 4 To Die for Sam-myndbönd Spenna
16 14 3 Operation Dumbo Drop Sam-myndbönd Gaman
17 16 2 Lokastundin Háskólabíó Spenna
Ný 1 ] The Tie that Binds Háskólabíó Spenna
19 15 5 j The Scarlett Letter Skífan Drama
20 19 11 Crimson Tide Sam-myndbönd Spenna
MYNDBAHDA
ÖíIÖj'JjÍY)!
★★lL
Barnamynd fyrir fullorðna ***
Ég veit ekki hversu skemmtileg börnum þykir
Skýjahöllin en það ætti ekki að vera foreldrum mikil
raun að horfa á hana með bömunum sínu því að
söguþráðurinn er raunsær og vitrænn, þrátt fyrir að
viðfangsefnið sé að láta drauma sína rætast, og boð-
skapur myndarinnar beinist eiginlega fremur að full-
orðnu fólki en bömum. Það má því segja að Skýjahöll-
in sé barnamynd fyrir fúlloröna. Lummulegt, vondra
blaðastráka-atriði hefði mátt missa sín en annars er
myndin ávallt mjög trúverðug og persónurnar einlæg-
ar. Myndin fjallar um átta ára strák, Emil, sem lang-
ar að eignast hund og er reiðubúinn að leggja allt í sölurnar til að sá
draumur megi rætast. Foreldrar hans búa við kröpp kjör og sérstaklega
á faðir hans erfitt en skuldum vafinn vinnur hann myrkranna á milli
og koma þreyta hans og áhyggjur fram í skapvonsku gagnvart fjölskyld-
unni. Hann er skúrkurinn í myndinni en ákaflega mannlegur skúrkur
og sér að sér í lokin án þess að það virki ótrúverðugt. Tilgerð hrjáir
mikið leik í íslenskum myndum en hér er hún með minnsta móti þótt
örlítið örli á henni. Kári Gunnarsson stendur sig frábærlega sem Emil
og Guðrún Gísladóttir sýnir mjög góðan leik.
SKÝJAHÖLUN. Útgefandl: Myndform. Leikstjóri: Þorstelnn Jónsson. Aöalhlutverk: Kári
Gunnarsson. íslensk, 1995. Sýnlngartíml: 85 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -PJ
Tvær með Antonio Banderas
Pamela ofurgella
Af kápu spólunnar mætti ætla að Pamela And-
erson silíkonbomba væri í aðalhlutverkinu í
myndinni en í rauninni er það í höndum Dean
Stockwell og spuming hvort hlutverk Pamelu eða Davids Warners sé
stærra. Myndin fjallar um ungan vísindamann á uppleið sem vanræk-
ir kærustuna sína (Pamelu) því að hann er önnum kafinn við að gera
tímamótauppgötvanir, enda snillingur hinn mesti. Eins og löngu var
búið að sýna fram á með örlögum hins ógæfusama doktors Franken-
stein eiga visindamenn ekkert með að storka náttúrunni en ungi vís-
indamaðurinn hefur sennilega verið of upptekinn til að lesa þá sögu því
hann kemur sér í heljarvandræði með því að vasast i minningum lát-
ins fólks og stunda sálnaflakk og svoleiðis kukl. Svo klikkar myndin á
boðskapnum með því að láta allt reddast í lokin. Myndin fær tvær og
hálfa stjömu, eina og hálfa fyrir Pamelu súperbeib, silíkondraumsýn-
ina sem gleður hjörtu okkar allra, eina og hálfa fyrir að vera svo mik-
ið út í hött að hún er óvart svolítið fyndin, og hálfa í mínus fyrir að
endurtaka sig villt og galið alla myndina.
NAKED SOULS. Útgefandl: Háskólabíó. Lelkstjóri: Lyndon Chubbuck. Aðalhlutverk:
Dean Stockwell, Pamela Anderson og David Warner. Bandarísk, 1995. Sýningartími:
95 mín. Bönnuö bömum yngrl en 16 ára. -PJ
Seven
Brad Pitt, Morgan
Freeman, Kevin
Spacey og Gwy-
neth Paltrow.
Lögreglumað-
urinn Sommer-
set, sem er um
það bil að fara á
eftirlaun, og eft-
irmaður hans, hinn ungi Mills, fara
saman í útkall þar sem komið hefur
verið að manni einum látnum við
hroðalegar aðstæður. Þrátt fyrir
langa reynslu hefur Sommerset
aldrei upplifað neitt í líkingu við
þetta morð. Hann fer samstundis að
gruna að hér búi eitthvað meira að
baki en í fyrstu sýnist og uppgötvar
eftir aðra heimsókn sína á morð-
staðinn að hér er um að ræða aftöku
sem tengist höfuðsyndunum sjö.
Grunurinn verður að vissu þegar
tilkynnt er um aðra aftöku og orðið
„græðgi“ er málað á vegg með blóði
hins myrta. Nú vita þeir að þeir geta
átt von á fimm aftökum til viðbótar
og hefst nú æsispennandi leit áð
hinum djöfullega morðingja sem
virðist ætíð vera skrefi á undan.
og með giftingu sér hann fram á
aukin viðskipti og stórgróða. En þá
kemur Sabrina fram á sjónarsviðið.
Hún er dóttir einkabílstjóra Linusar
og á meðan hún dvaldi í París
breyttist hún úr óharðnaðri stúlku í
glæsilega konu. Þegar hún kemur að
heimsækja föður sinn verður hinn
tilvonandi brúðgumi yfir sig ást-
fanginn. Linus neyðist því til aö
grípa til sinna ráða og koma í veg
fyrir að bróðir hans og Sabrina nái
saman.
með haganlega útbúna gítartösku
fulla af vopnum. Mexíkóskir undir-
heimamenn bera ábyrgð á dauða
unnustu hans og hann hefur svarið
þess eið að koma foringja eiturlyfja-
salanna, Bucho, fyrir kattarnef. Til
þess nýtur hann aðstoðar hinnar
íðilfögru Sölmu Haeyk og besta vin-
ar síns. En hinn slægi og ófor-
skammaði Buccho er valdamikill og
ræður yfir heilum her misindis-
manna sem hlýða hverri skipun
hans. En að takast á við Mariachi er
það sama og að ana út í dauðann.
Maðurinn er gjörsamlega ósigrandi
og ef hann hættir að skjóta þýðir
það að hann er að hlaða.
Besir ad ö;
!*er?to
Pesass#
IfllSÍ...
Ace Ventura:
When Nature
Calls
Assassins
Sabrina
Jim Carrey
Ace er truflað-
ur við hugleiðslu
í afskekktu
búddaklaustri
þar sem hann hefur leitað sáluhjálp-
ar og huggunar eftir að hafa mistek-
ist að bjarga lífi þvottabjarnar. Sá
sem truflar hann er breskur konsúll
í afrísku smáriki og erindið er að fá
Ace til að hafa uppi á horfinni leður-
blöku sem er heilagt dýr í augum
eigenda sinna, hins friðsama
Wachati-ættbálks. Finnist leðurblak-
an hins vegar ekki fljótlega er örlög-
unum storkað og stórhætta á að ætt-
flokkastríð brjótist út. En til að Ace
takist þetta verður hánn að snúa á
hættulega óvini.
Desperado
Antonio Banderas,
Salma Hayek og
Cheech Marin
Antonio Band-
eras leikur hinn
svala Mariachi
sem ferðast um
Sylvester Stallone
og Antonio Band-
eras
Robert er
leigumorðingi
sem lengi hefur
verið talinn sá
besti. Samt sem
áður hefur hann
um langt skeið reynt að finna leiðir
til að hætta. Hann verður því að
taka á öllu sem hann á þegar hann
verður sjálfur skotmark leigumorð-
ingja sem heitir Miguel. Sá býr yfir
brjálæðislegum metnaði og hefur
hugsað sér að verða sá eftirsóttasti
en til að svo megi verða þarf hann
að ryðja Robert úr vegi. Það á því
mikið eftir að ganga á þegar þessir
tveir fá sama verkefnið. Þeim er
báðum falið að myrða konu að nafni
Electra. Robert ákveður að nota
þetta tækifæri tii að losna úr brans-
anum og ásamt Electru reynir hann
að brjóta sér leið til frelsis. En fyrst
þurfa þau aö losna við hinn kapp-
sama Miguel.
Harrison Ford, Julia
Ormond og Greg
Kinnear
Linus Larrabee
er sannkallaður
viðskiptajöfur en
öðru máli gegnir
um bróður hans.
Sá er glaumgosi sem lifir kóngalífi á
þeim peningum sem bróðir hans sér
honum fyrir. En þegar bróðirinn
verður ástfanginn áf dóttur auðjöf-
urs og hún af honum sér Linus fram
á að loksins geti bróðirinn gert gagn