Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1996, Page 14
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996 JLlV
14
tflveran
* je
Mataræði breytt hjá heilli skipshöfn
fleiri sjómenn hafa óskað eftir breytingum
Frá því í maí í vor hefur staðið
yfir í skipinu Mælifelli, sem siglir
með vörur umhverfis ísland og
Samskip gera út, verkefni sem
miðar að þvi að breyta mataræði
skipshafnarinnar. Áætlað er að
verkefnið, sem er tilraun, standi í
hálft ár en ekki stendur til að fara
í gamla horfið aftur.
Það eru Anna Elísabet Ólafsdótt-
ir næringarfræðingur og Borghild-
ur Sigurbergsdóttir næringarráð-
gjafi hjá Næringarráðgjöfinni sf.
sem vinna verkefnið í samráði við
skipshöfnina.
Ragnar Pálsson, starfsmanna-
stjóri hjá Samskipum, sem er
ánægður með hvemig til hefur tek-
ist, sagði að í ráði væri að fara af
stað með sams konar verkefni í
Dísarfellinu að ósk skipshafnar-
innar.
Hann sagði að hefðir hefðu skap-
ast varðandi mataræöi til sjós. Þær
hefðu miðast við vosbúð sjómanna.
Nú væm þær orðnar úreltar og
full þörf á að breyta til. Þetta
fyndu skipshafnirnar sjálfar.
-ÞK
Verulega dregið úr fitu ug salti en
aukning á kolvetni og trefjum
- hefur gengið mun betur en ég átti von á, segir Anna Elísabet Ólafsdóttir næringarfræðingur
„Við höfum verið að breyta fæð-
inu hjá skipshöfninni á Mælifellinu.
Það er vegna þess að fæðið hefur
verið of feitt og trefjasnautt og
kannski helst til próteinauðugt og
saltríkt líka. Markmiðið er líka að
fólkinu líði betur og að þeir sem
þess þurfa geti megrað sig,“ sagði
Anna Elísabet.
Hún sagði ekki óalgengt að yflr-
menn skipa væru of þungir og í
áhættuhópi gagnvart hjarta- og æða-
sjúkdómum. Yfirþyngdarmönnum á
Mælifellinu var boðin einstaklings-
ráðgjöf og vigtun sem allir þáðu.
Eitt af því sem skipshöfnin gagn-
rýndi, þegar farið var að ræða mat-
aræðið, var að ekki væri hægt að
halda jól þar sem alltaf væri svo flnt
í matinn.
Meðal þess sem þær Anna Elísa-
bet og Borghildur hafa gert er að
draga verulega úr fitu og salti í fæð-
inu og auka kolvetni og trefjar.
Majones og smjörlíki er ekki keypt
inn lengur, olía er notuð i staðinn,
djúpsteikingarpotturinn fór til
dæmis út. Þá er hamsatólg ekki not-
uð lengur.
„Mjólkurvörar eru keyptar miklu
magrari en áður, einnig álegg.
Skipshöfnin fær tvær heitar máltíð-
ir á dag eftir sem áður. Þeir vildu
halda því.“
Að sögn Önnu Elísabetar var
alltaf saltfiskur og/eða skata með
hamsatólg á laugardögum og mjólk-
urgrautur með slátri á eftir. Hún tel-
ur að sérstaklega fyrir yfirmenn sé
þetta allt of feitt fæði.
Breytingunum vel tekið
„Það var okkar ósk að verkefnið
miðaðist við Mælifellið, það siglir
umhverfis ísland og öll innkaup em
gerð hér heima. Það er auðveldara
að fylgjast með því en þegar keypt
er inn erlendis.
Margar róttækar breytingar er
búið að gera á mataræðinu. Aðeins
hefur verið dregið úr kjötmáltíðum
og grænmetismáltíðir em komnar í
staðinn. Kokkurinn er að sjálfsögðu
aðalmaðurinn í þessu með okkur.
Menn hafa tekið þessu mjög vel,
mun betur en ég hélt.“
Tíu menn em um borð í einu en
alls eru það um fimmtán menn sem
taka þátt í verkefninu.
„Við gemm matseðlana og upp-
skriftimar og vinnum í samvinnu
við kokkinn og sú samvinna hefúr í
alla staði gengið mjög vel,“ sagði
Anna Elísabet.
Reyndar era margar uppskriftim-
ar frá matsveininum.
Anna Elísabet sagðist telja að sá
matur sem nú væri í boði um borð í
Mælifellinu væri nánast veislumat-
ur eftir sem áður.
Þær Anna og Borghildur vildu
leggja áherslu á að þetta væri ekk-
ert megrunarfæði heldur fæði fyrir
vinnandi fólk.
-ÞK
Um borð í Mælifellinu. Frá vinstri, Borghildur Sigurbergsdóttir næringarrað-
gjafi, Anna Elísabet Ólafsdóttir næringarfræðingur, Ásgeir Þorláksson mat-
sveinn, Valdimar R. Olgeirsson skipstjóri, Ragnar Pálsson, starfsmanna-
stjóri hjá Samskipum, og Henning Alfmundsson stýrimaöur. DV-mynd JAK
Ásgeir Þorláksson matsveinn lætur vel af sam-
starfinu við þær Önnu Elísabetu og Borghildi.
DV-mynd JAK
Aðalmunurinn að fara eftir uppskriftum og vigta allt
- segir Ásgeir Þorláksson, matsveinn á Mælifellinu
„Þetta er búið að vera allt í lagi og lítið um
óánægju meðal skipverja. Það er þó frekar að
yngri mennimir kvarti yfir einstaka réttum
en þeir eldri,“ sagði Ásgeir Þorláksson, mat-
sveinn á Mælifellinu, þegar hann var spurður
um reynsluna af því að mataræðinu var
breytt hjá skipshöfninni.
Ásgeir sagði að það tæki heldur lengri tíma
að elda nú en áður þar sem nú þyrfti að fara
eftir uppskriftunum, vigta allt.
Hann lét vel af samstarfínu við þær stöllur
Borghildi og Önnu Elísabetu og var sammála
þeim um að verkefhið hefði gengið vel. Hann
sagði að menn hefðu viljað þessar breytingar
sjálfir, það væri ekki hann sem væri að neyða
neinu upp á þá.
„Sósurnar eru magrari, mjólkurvörurnar,
svo sem osturinn, sömuleiðis. Við breyttum
úr 26% yfir í 17% feitan ost, annað álegg er
einnig magrara. Grænmetisréttir hafa aukist
á matseðlinum, menn borða bara vel af brauði
þegar þeir em, sérstaklega yngri mennirnir,“
sagði hann.
-ÞK
Er allur léttari
r
- segir Asmundur Helgason válstjóri
„Mér list alveg skínandi vel á þetta, ég hef
lést um sex kíló og þarf að fara að fá ný fot
hjá útgerðinni," sagði Ásmundur Helgason,
vélstjóri á Mælifellinu, og
hnippti í Ragnar starfs-
mannastjóra þegar
hann var spurður
um reynslu sína af
breyttu mataræði
um borð.
„Ég er allur létt-
ari og mæli alveg
hiklaust með
þessu, mér finnst
maturinn líka betri.“
Hann sagðist samt ekki finna eins mikinn
mun á matnum og hann hefði haldið.
Ásmundur, sem nú er sitt 26. ár á sjó, telur
að verkefnið ýti undir að menn borði öðmvisi
í landi einnig. Hann sagðist ekki vera farinn
að hreyfa sig meira enn þá enda væri engin
æfingaaðstaða um borð.
-ÞK
Ásmundur Helgason
vélstjóri er hæst-
ánægður meö fæðið
eftir breytinguna og
hefur lést um sex kíló.
DV-mynd JAK