Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1996, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996
33
G
cö
N
U
cö
E-
Cfl
Cfl
cö
u
—I
-H
Cn
3
Cfl
Cfl
•r-H
o
T3
G
o
Cfl
'ð
-cð
Cn
o
cö
Cfl
<1-1
.-q
•i—i
&
Cn
• H
m
Frásögn Koraks:
„Pasha Ronchi var
um aö lestin væri
hlaöin vopnum...
••• °9
aö halda til uppreisnar!"
Fréttir
Vænir laxar hafa komiö á land undanfarna daga úr Gljúfurá í Víðidal en
veiöst hafa 33 laxar í ánni í sumar og er það mun betri veiöi en í fyrra.
DV-mynd LK
Píparinn í
snörpum
Aðaldal
Tuttugu punda lax veiddist á
dögunum í Laxá í Aðaldal. Það var
hinn ötuli veiðimaður, Hinrik
Þórðarson, pípulagningameistari
á Akureyri, sem veiddi laxinn á
svarta túbu á Núpafossbreiðu.
Laxinn lét sig húrra niður foss-
inn og undir brú þar skammt frá.
Löndun lauk eftir tuttugu mínútur
eftir mikinn eltingaleik og fum-
laus handtök píparans. Var laxinn
mjög leginn og vó 20 pund.
Annars hefur veiði verið mjög
róleg í Laxá í Aðaldal og menn
verið að reita upp einn og einn
smálax neðan Æðafossa. Heim-
ildamaður DV sagði í gær að
margir laxanna væru ekki nema
eitt og hálft pund.
Lá sofandi á bakkanum er
laxinn tók
Syfjaður veiðimaður lenti í æv-
intýri á bökkum Laxár í Aðaldal á
dögunum, nánar tiltekið við Stað-
artorfu.
Lítið var af laxi á svæðinu en
eitthvað um urriöa. Veiðimaaður-
inn kastaði út og lét svo færið
liggja. Hann sofnaði síðan frá öllu
saman en greip í færið annað slag-
ið. Taldi hann þá gjarnan um sil-
ung að ræða er hann fann fyrir
narti á hinum enda línunnar. Síð-
an kom að því að umræddur veiði-
maður, sem reyndar er félagi áður
nefnds Hinriks pípara, tók til við
að hífa inn færið. Lá línan þá í
stórum sveig niður ána. í sama
mund og hinn syfjaði veiðimaður
hífði inn stökk lax þvert út af hon-
um. Veitti hann laxinum ekki sér-
staka athygli fyrr en styttast fór í
enda línunnar. Á endanum var 12
punda lax sem magagleypti
maðkinn og haíði hann barist fyr-
ir lífi sínu á meðan veiðimaðurinn
ráfaði um draumalöndin.
Vænir laxar í Gljúfurá
„Þetta var barátta sem stóð yfir
í 20 mínútur og endaði meö því að
ég landaði 12 punda laxi í veiði-
stað númer 22. Fiskurinn tók
maðkinn,, sagði Julíus Sigur-
hjartsson, en hann var að koma úr
Gljúfurá íViðidal í gærdag. En
vænir laxar haga veiðst í ánni og
veiðimaður sem renndi fyrir
skömmu veiddi 18,19 og 20 punda
fiska.
„Það voru vænir laxar ofar í
ánni en þeir fengust ekki til að
taka hjá mér. Þeir voru tveir í
kringum 20 pundinn. Ég fór í
morgun en þá voru þeir farnir
eitthvað ofar í ána. Það hafa veiðst
33 laxar og stærsti fiskurinn enn-
þá er 20 pund. Ég sá 6-7 laxa í
Brúðarhylnum um hádegi en þeir
fiskar tóku ekki„ sagði Júlíus enn-
fremur.
Lítið af gæsinni
„Það þarf að kólna meira til að
fá fuglinn niður. Hann er i góðu
yfirlæti uppá fjöllum í beijum og
öðru góðgæti„sagði gæsaskytta á
Blönduósi sem er búinn að hafa 10
gæsir.
En þeir sem DV ræddi við í gær
voru á sama máli og þessi gæsa-
skytta. Fluginn væri uppá fjöllum
og léti ekki sjá sig fyrr en kólnaði
verulega.
Veiðimenn sem voru við lax-
veiðar ofarlega í Gljúfurá i Víði-
dal í fyrrdag sáum mikið af gæs-
um. Þar var hann í berjum og
hafði það gott. En þær voru fljótar
þegar þær urðu varir við manna-
ferðir.
Guðráður Jóhannsson frá
Beinakeldu sagði frá merkilegu í
gærdag. Veiðimaðurinn sem hann
frétti af fékk fjórar heiðargæsir og
allar voru þær mjög smáar. Þær
voru eins og endur að stærð.
• , *