Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 Fréttir Mikill munur á refsingum i tveimur alvarlegum ofbeldismálum á Vesturlandi: ítrekun brota og fjjöldi þolenda skiptir minnstu - Akranesstúlka sett inn strax en Borgfirðingur gekk laus og braut áfram af sér Hvemig má það vera að tvítugur maður með „einbeittan brotavilja", sem veldur 12 manns líkamsmeið- ingum í mörgum aðskildum saka- málum, hlýtur 12 mánaða fangelsi, þar af 9 skilorðsbundna, á meðan 18 ára stúlka fær 24 mánaða óskilorðs- bundið fangelsi fyrir eina líkams- árás? Svarið kann að vera heldur flókn- ara en framangreind orð bera með sér en ef marka má nýgengna dóma í tveimur ofbeldismálum, annars vegar á Akranesi og hins vegar í Borgamesi, er ljóst að verulegs ós- amræmis kann að gæta þegar refs- ingar eru ákvarðaðar. Að minnsta kosti virðist fjöldi brota, fjöldi þolenda og ítrekunar- áhrif hafa ákaflega litið að segja gagnvart ofbeldismönnum á íslandi - menn fá frekar hinn altalaða „af- slátt“ í dómskerfmu í stað refsi- þyngingar þegar menn gerast sekir um ítrekaðar og jafnvel „stórfelldar líkamsárásir" eins og raun bar vitni í Borgarfjarðarmálinu. Afleiðingar skipta mestu Hvað varðar Akranesárásina var 18 ára stúlka, Linda Dögg Ragnars- dóttir, sakfelld fyrir „stórfellda lík- amsárás" sem hafði varanlegar af- leiðingar í för með sér fyrir fómar- lambið. Stúlkan sem varð fyrir hné- sparki Lindu Daggar hlaut áverka sem hefðu orsakað dauða ef hún hefði ekki gengist strax undir að- gerð. Árásin var tilefnislaus og hrottafengin samkvæmt dóminum. Fjölskipaður Héraðsdómur Vest- urlands taldi 24 mánaða óskilorðs- bundna refsingu hæfilega. Hvort málinu verður áfrýjað er óljóst. Refsingin er hins vegar ekki ólík dómum í hliðstæðum líkamsárásar- málum þar sem afleiðingarnar verða eins alvarlegar og raun bar vitni. 12 mánaba fangelsl, þar af 9 skllorösbundnlr Fimm líkamsmeiöingamál - gekk alltaf laus En hvemig er Borgaríjarðarmál- ið? Þar var ekki um færri en fimm líkamsmeiðingamál að ræða - Björgvin Sigursteinsson, tvítugur Borgfirðingur, var dæmdur fyrir að hafa valdið 12 manns líkamsmeið- 24ra mánaöa óskllorös-bundlö fangelsl. PV ingum! Hann var dæmdur fyrir tvær stórfelldar líkamsárásir, það er að nefbrjóta tvo menn við tvö ólík tækifæri, eitt mannrán með misþyrmingum í félagi við tvo aðra menn, gáleysisakstur og almanna- hættu með því að valda meiðslum 7 ungmenna í bílslysi og enn aðra lík- amsárás með því að valda tveimur mönnum áverkum með riffilskefti. Auk þess var hann dæmdur fyrir ölvunarakstur. Brotin voru öll framin á ólíkum stöðum og á mismunandi tímum. Aldrei var sakborningurinn settur inn og stöðvaður af heldur fékk hann nánast ótrauður að halda brot- um sínum áfram. Hann var ekki einu sinni sviptur ökuréttindum eft- ir að hafa orðið valdur að meiðslum ungmennanna sjö i bílslysinu. Árásarstúlkan í Akranesmálinu var hins vegar umsvifalaust úr- skurðuð í gæsluvarðhald og sat hún inni í 56 daga - þar skiptu væntan- lega afleiðingarnar fyrir fómar- lambið mestu máli. Eða hvað? Sækjandinn er sáttur viö Borgarfjaröardóminn Ólíklegt er að Borgarfj arðarmál- inu verði áfrýjað. Ef sakbomingur- inn áfrýjar ekki sjálfur verður hlut- skipti hans því sennilega 3 mánaða afplánun í fangelsi fyrir framan- greind brot (12/9). Stefán Skarphéðinsson, sýslum- aður og sækjandi í málinu, sagði í samtali við DV í gær að gagnvart hans embætti teldi hann ekki ástæðu til áfrýjunar með hliðsjón af dómum í hliðstæðum málum. Borg- aifjarðardómurinn er með öðrum orðum jafnvel heldur strangari en reiknað hafði verið með. Hvernig má það vera? Jú, þetta eru þær línur sem Hæstiréttur hef- ur gefið á undanfórnum árum með dómum sínum i hliðstæðum ofbeld- ismálum. Refsingarnar eru ekki meiri en framangreind dæmi bera með sér - jafnvel þótt líkamsárás- irnar teljist stórfelldar og menn brjóti síendurtekið af sér. -Ótt Verslunarmenn: Gerð viðræðu- áætlunar lokið Verslunarmannafélag Reykja- víkur og Félag íslenskra stórkaup- manna hafa lokiö við gerð við- ræðuáætlunar vegna komandi kjarasamninga. Aðilar eiga að til- kynna skriflega fyrir 1. nóvember hverjir hafi samningsumboð fyrir þeirra hönd. Enn fremur eiga þeir að koma sér saman um efnisatriði viðræðna við gerð kjarasamninga fyrir 15. nóvember. Þá er i samkomulaginu gert ráð fyrir því að hafi kjarasamningar ekki tekist fyrir 13. desember verði málinu sjálfkrafa vísað til ríkis- sáttasemjara. Þetta mun vera fyrsta fullbúna viðræðuáætlunin vegna komandi kjarasamninga samkvæmt nýju lögunum um stéttarfélög og vinnu- deilur. -S.dór LÍKAMSÁRÁSARMÁL í BORGARFIRÐI: Sakborningur tvítugur karim. 1. brot: Skallar og kýlir 17 ára pilt í andlit svo hann nefbrotnar. 2. brot: Nefbrýtur karl- mann með hnefahöggi. 3. brot: Veldur sjö ung- mennum líkamsmeiöing- um meö gáleysisakstri - tveir bílar í árekstri. Fjögur flutt á sjúkrahús í þyrlu. 4. brot: Tekur mann nauðugan inn í bíl í félagi við tvo aðra. Þeir aka með hann á brott, mis- þyrma honum á ieiðinni, kasta honum síð- an út, afklæða hann, sparka í hann og berja og úða málningu yfir hár hans og fatnað. 5. brot: Veitir tveimur mönnum áverka með því að berja þá í höfuðið með riffilskefti. 6. brot: Ölvunarakstur. Olíkar LIKAMSARAS Á AKRANESI: Sakborningur átján ára stúlka. 1. brot: Stúlka gefur annarri hnéspark í höfuö með þeim afleiðingum að þolandinn hlýtur varanleg- Dagfari Framsóknarkjördæmi n Dagfari las það í einhverju dag- blaði að framsóknarmenn hefðu haldið fund um kjördæmamálin og kosningaréttinn. Þessi fundur verð- ur að teljast til nokkurra tíðinda í pólitíkinni því framsóknarmenn hafa lítið sem ekkert viljað ræða um kjördæmamál síðan einhvern timann snemma á öldinni. Það var þegar Framsóknarflokkurinn var beittur þeim órétti að aðrir stjórn- málaflokkar beittu sér fyrir breyt- ingum á kjördæmaskipaninni eftir að Framsóknarflokkurinn náði meirihluta á þingi með 35% at- kvæða. Þetta þótti framsóknarmönnum svívirðileg atlaga að lýðræðinu og hafa neitað að breyta kjördæma- skipaninni nema það eitt sé tryggt að flokkurinn haldi þingmanna- fjölda sínum hvað sem öllum kjör- dæmum og atkvæðatölum viðkem- ur. Svo hefur reyndar verið með aðra flokka líka, enda var það svo þegar kosningalöggjöfinni var breytt síðast að flokkamir og þing- mennirnir, sem þá sátu, sam- þykktu breytingu með því eina skilyrði að þeir héldu þingmanna- tölu sinni og þeir þingmenn, sem þá sátu á alþingi, héldu sætmn sín- um. Það skilyrði fékkst viðurkennt og síðan hefur enginn hætt á þingi nema vegna ellihrumleika eða and- láts. Nú em framsóknarmenn allt í einu famir að tala um kjördæma- skipan og kosningarétt. Það veit ekki á gott. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, flutti ræðu á þessum fundi. Hann sagðist vera á móti núverandi kjördæmaskipan. Hann var líka á móti því að breyta landinu í eitt kjördæmi. Halldór var á móti ýmsu og sagði flokks- mönnum sínum frá þvi að hann væri hlynntur breytingum án þess að segja hverjum. „Aðalatriðið,“ sagði Halldór „er að Framsóknar- flokkurinn er ekki á móti breyting- um, svo framarlega sem breyting- amar hafa ekki skaöleg áhrif á þingmannafjölda framsókn- arflokksins." Þetta var framsóknar- lega mælt hjá Halldóri sem jafnan er hreinskiptinn maður og sjálfum sér samkvæmur. Hann vill sjá breytingar sem Framsóknarflokk- urinn græðir á. Aðrar ekki. Kjósendur og atkvæðisréttur þeirra skiptir ekki höfuðmáli, reyndar alls engu. Það era hags- munir flokksins og flokkanna sem ráða því hvort kjördæmaskipan er breytt. Og þó einkum og sér í lagi hagsmunir Framsóknarflokksins. Hahdór segir að Framsókn hafi 47% atkvæða á Austurfjörðum en hafi samt ekki nema tvo þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn er með rétt rúm 30% atkvæða en hefur einnig tvo þingmenn í kjördæminu. Þetta þykir Halldóri bera vott um rang- látu kjördæmaskipan og hann vill breyta henni, þótt ekki væri nema fyrir austan. Við þurfum sveigjan- lega kosningalöggjöf. Kjördæmin verða að ráðast af fylgi flokkanna en ekki það að fylgi flokkanna ráð- ist af Qölda kjósenda á bak við flokkana. Halldór vill t.d. hafa fleiri en einn þingmann á Vestfjöröum af því að þar eru svo margir flokkar sem bjóða fram að þeir verða að fá sína fulltrúa á þing. Jafnvel þótt kjósendafjöldinn gefi ekki tilefni til þess. Þessi framsóknarpólitík hefur leitt til þess að kjördæmaskipanin er eins og hún er og verður áfram eins og hún á að vera til að flokk- amir fái sína menn, hvað sem at- kvæðamagninu líður. Þetta er ekki spuming um rétt kjósenda heldur styrk flokka. Hvers vegna ekki að skipta kjördæmunum fyrirfram upp á milli flokkanna? Þá breyt- ingu mundu allir samþykkja, þ.e.a.s. allir nema kjósendur. En það hlustar enginn á þá hvort sem er. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.