Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Blaðsíða 32
Vinningstölur miðvikudaginn 16.10.’96 5 :25mjU7 ÍÍYÍ9Y45' Vlnningar Fjöldi vlnninga Vinningsupphxð 1. 6 af 6 2 54.112.000 2.5af6l 0 1.300.458 3. 5 af 6 8 69.110 4. 4 aft .273 3.880 S.3afi° :io'“985 220 Heildoníinninnupphxá Á Islandi 110.807.278 2.583.278 Vinningstölur 16.10/96' iQöXzHI) KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 33550 5555 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 Dagsbrún: Búa sig undir nýtt framboðtil stjórnar „Þaö er rétt. Við sem stóöum að framboði gegn núverandi stjóm síð- ast emm að undirbúa okkur fyrir framboð í komandi stjórnarkjöri í byrjun næsta árs. Hvort af því verð- ur kemur svo í ljós,“ sagði Kristján Ámason, foringi stjórnarandstöð- unnar í Verkamannafélaginu Dags- brún. Hann sagði að ef til átaka kæmi á vinnumarkaði, í tengslum við kom- andi kjarasamninga, mundi hann hvetja sína menn til að styðja við bakið á núverandi stjórn felagsins fari hún í hart. Hann sagði að jafn- framt myndu hann og hans félagar vera með strangt aðhald að stjórn- inni á næstunni. Kristján var spurður hvort útilok- að væri að sátt næðist milli stjórnar og stjórnarandstöðu í félaginu. „Ég skal ekki segja um það. Þeir eru margir hugdjarfir, þessir ungu menn sem em í stjómarandstöð- unni. Þeir telja að stjórnin eigi ekk- ert inni hjá þeim. Þannig var tónn- —— ínn í þeim eftir síðustu stjórnarkos- ingarnar og ég held að það hafi ekk- ert breyst," sagði Kristján Árnason. -S.dór Jón Baldvin Hannibalsson: Vill ekkert segja „Ég segi ekkert um það á þessari stundu,“ var það eina sem Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins, sagði þegar hann var 'spurður hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur þegar hann hættir sem formaður flokksins í næsta mánuði. Þrjú embætti hafa verið nefnd sem hugsanlegt væri að hann tæki við. í fyrsta lagi að hann taki við starfi bankastjóra í Landsbankan- um af Björgvini Vilmundarsyni. í öðru lagi há staða hjá Alþjóðasam- bandi jafnaðarmanna. í þriðja lagi að stofna eigi sendiherramebætti fyrir Eistland, Lettland og Litháen og að Jón Baldvin taki við því. Þetta var borið undir Jón Bald- vin. Svarið var stutt og einfalt: „Ég segi ekki orð.“ -S.dór - sjá einnig bls. 7 Þrjú sakamál í kjölfar kæru barnaverndaryfirvalda: Þremur bræðrum gefin að sök mök við unga stúlku - aðskilin lagaákvæði gilda um mök við 13 og 14 ára börn Þrír bræður á Austurlandi hafa verið ákærðir fyrir að hafa haft meint kynferðismök við unga stúlku sem bjó í sama byggðarlagi og þeir á síðastliðnu ári. Samkvæmt ákæru var stúlk- an 13 ára þegar bræðurnir byrj- uðu að hafa mök við hana en þeim er jafnframt gefið að sök að hafa fengið hana til lags við sig eftir að hún varð 14 ára. Bræðurnir eru ákærðir hver í sínu lagi þó svo að í öllum tilvik- um sé um sama meinta brotaþol- ann að ræða. Þeim er því gefið að sök að hafa verið með stúlkunni hver í sínu lagi á þvi tímabili sem um er að ræða. Vegna þessa var ákveðið að höfða þrjú aðskilin dómsmál gegn bræðrunum. Málið kom upp á seinni hluta síðastliðins árs þegar barna- verndaryfirvöld fengu spumir af því að grunur léki á að verið væri að misnota stúlkuna. í kjöl- far þess hófst lögreglurannsókn. Bræðumir eru ákærðir fyrir brot á 202. grein almennra hegn- ingarlaga. Þar segir að hver sem hafi samræði eða önnur kynferð- ismök við bam yngra en 14 ára skuli sæta fangelsi allt að 12 árum. Önnur kynferðisleg áreitni varði fangelsi allt að 4 árum. Hvað varðar meint brot sem áttu sér stað eftir að stúlkan varð 14 ára er stuðst við sömu hegningarlagagrein en aðra málsgrein, því þegar brotaþoli nær þeim aldri gilda talsvert frá- bragðin lagaákvæði. Þar segir að hver sem „með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt tælir ungmenni á aldrinum 14-16 ára til samræðis eða annarra kyn- ferðismaka" skuli sæta fangelsi allt að 4 árum. Það er Héraðsdómur Austur- lands sem tjallar um mál bræðr- anna þriggja. -Ótt Ikveikja Gamall bíll stóð í Ijósum logum á Bláfjallavegi í gærkvöld. Slökkvilið var kallaö út og slökkti eldinn. DV-mynd S Ný skýrsla: Frekari rann- sóknir á jarð- skjálftahættu „Við erum að yfirfara skýrsluna og taka saman niðurstöður," sagði Guðmundur Bjamason umhverfís- ráðherra í morgun um skýrslu sem nefnd vísindamanna og Almanna- vama hefur gert um jarðskjálftavá og vamir gegn henni. Ráðherra segir að í skýrslunni sé lagt til að nokkrir fjármunir verði settir í frekari rannsóknir og upp- lýsingaaöflun áður en raunverulegt hættumat verði gert. í henni komi fram hugmyndir sem skipa þurfi sérstakan starfshóp til að athuga frekar og fylgja eftir. „Þingmenn Suðurlands fluttu á síðasta þingi ályktunartillögu um frekari vinnu í þessu efni sem var vísað til ríkisstjómarinnar vegna þessarar vinnu sem þá var hafin. Við þurfum að hafa efni hennar í huga þegar við fjöllum um frekari úrvinnslu málsins," sagði Guð- mundur Bjamason umhverfisráð- herra í samtali við DV í morgun. -SÁ Hafnarfjörður: Eldur í blokk Mikinn reyk lagði frá fjölbýlis- húsi í Smárahvammi í Hafnarfirði. Þegar slökkvilið kom á vettvang var ljóst að kviknað hafði í sorpgeymslu í kjallara hússins. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins og reykræsti gang hússins. Að sögn lögreglu voru fáir í búar í húsinu og komust aflir auðveldlega út. Talið er að skemmdir vegna reyks séu þónokkrar. -RR Kveikt í gömlum bíl Lögreglu og slökkviliði í Reykja- vík var tilkynnt um klukkan 23 í gærkvöld að bíll stæði í ljósum log- um við Bláfjallaveg. Þegar á vettvang var komið reyndist vera um gamlan bíl að ræða sem að öllum líkindum var ónýtur. Að sögn lögreglu þykir lík- legt að einhverjir óprúttnir náungar hafi verið þama á ferð og kveikt í bílnum. Lögregla og slökkvilið vill ítreka að það er bannað að kveikja eld á al- mannafæri. -RR SAMHERJAMENN ERU S^NNKALLAPIR VIKINGAR! Veðrið á morgun: Slydduél við norður- ströndina Á morgun verður norðaust- læg átt með skúram austan- lands en slydduéljum við norð- urströndina. Á Suðvestur- og Vesturlandi verður lengst af bjart veður. Hiti verður á bil- inu 1 til 8 stig, hlýjast suðaust- anlans. Veöriö í dag er á bls. 36 Kvöld- og helgarþjónusta Með bfOther er auðvelt að merkja myndirnar i fj ölskyldualbúminu brother Verð frá kr. 6.995 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.