Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996 Fréttir Fyrsti þingmaður Vestfirðinga í yfirheyrslu DV: Ekki barðir til hlýðni - segir Einar K. Guðfinnsson Hver er vandi Vestflrðinga? „Vestfirðingar eiga auðvitað við vanda að stríða. Ég held hins vegar að ýmislegt sem hefur verið sagt um hann sé ofmælt og ég hef fulla trú á þvi að þeir vinni sig út úr honum. Til að átta sig á orsökum hans þarf að líta um öxl. Upp úr miðjum síð- asta áratug var þorskveiði í há- marki en efnahagsmálum hins veg- ar stjórnað með þeim hætti að Vest- firðingar nutu þess ekki. Gengis- skráningin var kolvitlaus og sjávar- útvegurinn, bolfiskvinnslan og frystingin rekin með stórfelldu tapi þannig að í stað þess að Vestfirðing- ar og aðrir sem voru í útgerð væru að safna til mögru áranna fóru fyr- irtækin á hnjánum inn í þann þorskaflasamdrátt sem síðar kom. Þetta er rót vandans. Ég held að engum manni dytti í hug nú að stjóma efnahagsmálum þjóðarinnar þannig að loðnuvinnslan væri rekin með tapi.“______________________ Af hverju varð vandinn Vest- firðingum þyngri í skauti en öðr- um? ____________________________ „Enginn annar landshluti er eins háður þorskveiðum og Vestfirðir. Þess vegna hefðum við auðvitað, ef allt hefði verið eðlilegt, átt að hafa haft góða afkomu á síðasta áratug en sjávarútvegurinn á Vestíjörðum var, eins og annars staðar, rekinn með tapi.“______________________ Hafið þið, þingmenn Vestfirð- inga, ekki hingað til kennt kvóta- kerflnu um vandann?_____________ „Jú, enda held ég að það sé hár- rétt. Kvótakerfið var sett á á sínum tíma sem neyðarráðstöfun til eins árs og menn trúðu ekki að þær innri mótsagnir sem okkur finnast vera í því gætu leitt til annars en að það spryngi innan frá. Vestfirðingar reyndu að aðlaga sig kvótakerfinu en þegar það var sett á var ákveðið frumkvæði og forskot tekið frá okk- ur. Ekki má þó gleyma því að ýmis fyrirtæki á Vestfjörðum hafa allt frá upphafi kvótakerfisins fjárfest um- talsvert í aflaheimildum. Skaðvaldurinn Vestflrðir, sem liggja mjög vel við þorskveiðunum, töpuðu auðvitað á kvótakerfinu, en auk þess var ýmis- legt í framkvæmd þess okkur mjög óhagstætt. Þannig var t.d. með handafli tekin ákvörðun um að taka hluta af þeim þorskveiðikvóta sem vestfirsk skip áttu fullkomlega rétt á miðað við veiðireynslu þeirra og færa til annarra landshluta. Slíkt myndi tæpast gerast í dag. Við teljum líka að mjög margt sé athugavert við kvótasetninguna á rækjunni og þar hafi á vissan hátt verið gengið milli bols og höfuðs á mörgum rækjufyrirtækjum á Vest- fjöröum sem höfðu fjárfest í rækju- úthaldi og staðið í útgerð en fengu síðan engan rækjukvóta. Sama var með grálúðuna sem var vestfirsk sérveiði. Grálúðuveiði- reynslu Vestfirðinga var dreift um allt land sem varð til þess að það frumkvæði sem við höfðum sýnt var í engu metið og tekjuöflun þessa veikburða landshluta var stórlega skert.“_________________________ Hvaða annað fyrirkomulag sérðu skárra en kvótakerflð?__________ „Ég er þeirrar skoðunar að eðli- legra sé að reyna að þróa á einhverj- um hverjum árum svokallaða flota- og sóknarstýringu. Ég hef trú á að það kerfi sé hagfelldara þeim byggð- um sem búa nær miðunum og eðli- legra sé þess vegna að það sé notað, enda sé það hagkvæmara fyrir þjóð- arbúið í heild.“________________ Þessi skoöun átti erfitt uppdrátt- ar á landsfundi þíns flokks á dög- unum og tillaga ykkar Vestfirð- inga um hana felld._____________ „Við urðum undir á landsfundi og það viðurkennum við og tökum því. Við teljum hins vegar að sjón- armið okkar hafi vakið athygli og því hafl til nokkurs verið barist.“ Voruð þið ekki fremur barðir niður af flokksforystunni?________ „Það var auðvitað þannig að for- maður flokksins og sjávarútvegsráð- herra sameinuðust í því að mæla gegn okkar tillögu. Þeir eru mjög öflugir stjómmálamenn og ég held að úrslitin undirstriki það fyrst og fremst.“__________________________ Þið vilduð endurskoða fiskveiði- stjórnunarkerfið vegna ýmissa annmarka á því. Af hverju eru forystumennirnir hræddir við endurskoðun?______________________ „Það er eðlilegra að spyrja þá að því en mér fannst ekkert að óttast i þessari tillögu nema síður væri. Ég held að það hefði verið mjög gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn að sam- þykkja hana, ella hefði ég ekki lagt hana fram, en ég geri ráð fyrir að sú áhersla sem kemur fram í síðustu setningu hennar á sóknar- og flota- stýringu hafi farið fyrir brjóstið á mönnum. Við vorum ekkert barðir til hlýðni og greiddum auðvitað at- kvæöi með okkar eigin tillögu og gegn tillögu sjávarútvegsráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins og erum ekki hræddir við eitt né neitt, enda ganga mál ekki þannig fyrir sig í Sjálfstæðisflokknum. Það er einfaldlega tekist á um þessa hluti í málefnalegri umræðu og það hefur verið rækilega gert í flokknum. Ég flutti þessa tillögu á sínum tíma í málefnanefnd flokksins um sjávarútvegsmál. Hún var síðan flutt á landsfundinum af Einari Oddi Kristjánssyni og Ólafi Hanni- balssyni, þannig að hún hefur verið rædd mjög rækilega og málefnalega. En auðvitað hefur öll umræða ein- hveija niðurstöðu.“ ______________ Tveimur stoðum undir land- vinnslu og þar með atvinnulífi Vestfjarða hefur verið kippt burtu. Önnur er afnám línu- tvöföldunar og hin er kvótasetn- ing á steinbít. Þetta gerist án andmæla ykkar, þingmanna Vestfiarða. Hvers vegna?___________ „Við töldum á sínum tíma, þegar við stóðum frammi fyrir linu- tvöfólduninni, að það væri skárri Yfirheyrsla Stefán Ásgrímsson kostur að taka hana inn í aflamark- ið með þeim hætti sem gert var heldur en að láta smám saman naga hana af sér, eins og var að gerast. Á síðasta fiskveiðiári dugði línu- tvöfóldunarpotturinn bara fram í miðjan febrúar en sóknin var vax- andi og það lá fyrir að hlutdeild Vestfirðinga í honum var smám saman og óumflýjanlega að minnka. Þarna vantaði flotastýringu en að- eins var um að ræða sóknarstýr- ingu. Ekkert samkomulag náðist um að taka upp flotastýringu og tak- marka sóknina sem hefði auðvitað verið óskadraumur okkar, vest- firskra sjálfstæðismanna. Skást úr því sem komið var Þegar við stóðum frammi fyrir því að á nýhöfnu fiskveiðiári myndi línutvöfoldunin líklega duga tvo til þrjá mánuði og línutvöfóldunar- hvatinn væri smám saman að hverfa út úr kerfinu töldum við miklu betra úr því sem komið var að skipta þessu upp núna meðan staða Vestfirðinga væri þó sæmileg. Við féllumst á að gera það með þeim hætti að línubátamir fengju strax í upphafi 60% af pottinum og síðan 40% af því sem þá varð eftir til skiptanna. Þetta þýddi það að þorskveiði- hlutdeild Vestfirðinga jókst við þetta og þeir fá stærri hlut í þeirri þorskveiðiaukningu sem menn telja fyrirsjáanlega á næstu árum en þeir hefðu fengið að óbreyttu. Svipaða sögu er að segja um steinbítinn þannig að ég held að allir geti verið sammála um að þetta hafi að öllu samanlögðu verið betri leið en að viðhalda óbreyttu ástandi.“_______ Varst þú ekki einhvern tíma hlynntur kvótakerfinu?____________ „Nei, það hef ég aldrei verið. Við sem höfum þurft að taka ákvarðan- ir varðandi fiskveiðistjórnunina, bæði á vettvangi hagsmunasamtaka og á Alþingi, höfum oft staðið frammi fyrir því að- þurfa að meta hvort við eigum að taka þátt í því að hafa áhrif á mótun fiskveiðistjórn- unarkerfisins eða berjast til síðasta blóðdropa án þess að hafa áhrif á hina praktisku stefnumótun. Við Vestfirðingar, og ég meðal annars, höfum sætt tvenns konar gagnrýni: fyrir að vera of einstreng- ingslega á móti kvótakerfinu en líka fyrir það að hafa stundum tekið þátt í því að móta útfærslu þess með þeim hætti sem ég tel skynsamleg- an. Ég hef ekkert á móti því að fá gagnrýni sína úr hvorri áttinni en finnst stundum sérkennilegt þegar hvortveggja gagnrýnin kemur frá einum og sama manninum.11_________ En er það ekki tvískinnungur að berjast á móti kvótakerfinu og taka þátt í að afhema línutvöfold- un og kvótasetja steinbít?______ „Það er einmitt þetta sem ég er að tala um, að við stöndum oft frammi fyrir mjög erfiðu vali, annars vegar að hafa engin áhrif á mótunina eða hins vegar að slá af ýtrustu kröfum og taka þá þátt í að móta útfærslu kvótakerfisins þannig að það verði skynsamlegra og skaplegra.“_____ Telurðu að kvótakerfið verði lunglíft?_______________________ „Það verður aldrei til neitt þús- undáraríki í fiskveiðistjómun en ég held hins vegar að óraunhæft sé að ætla annað en að kerfið muni verða við lýði um óákveðinn tíma. Sjálf- um finnast mér þó miklar og óá- sættanlegar mótsagnir innan þess, ekki síst í ljósi þeirra óeðlilegu hækkana sem orðið hafa á verð- mæti aflaheimilda sem ég kalla froðuhækkanir. Þær endurspegla fyrst og fremst það falska verð- mætamat sem kvótakerfið skapar." Gerist það vegna þess hve lítill hluti alls afla fer í sölu á mark- aði?____________________________ „Verðmyndun á kvóta er mjög sérkennileg og stór hluti kvótavið- skipta á sér stað sem jöfn skipti á fisktegundum þannig að verðlagið á kvótanum myndast með mjög sér- kennilegum hætti. Það er í raun ákaflega fábrotinn og ómerkilegur markaður sem ræður verðinu og maður sér ekki að það endurspegli afkomuna í greininni né verðþróun á afurðum. Það gerðist t.d. í lok síð- asta fiskveiðiárs að kvótaverð stór- hækkaði þrátt fyrir að afkoma í þorskveiðum og -vinnslu væri eins og hún er.“_____________________ Framkvæmdastjóri Odda á Pat- reksfirði segir að þingmenn Vest- fjarða hafi hreinlega bannað mönnum á sínum tíma að fjár- festa í kvóta vegna þess að kerfið yrði skammlíft. Gerðuð þið það? „Ég hef aldrei heyrt um neinn vestfirskan þingmann sem hefur bannað útgerðum að kaupa kvóta og hef ég þó bæði starfað við útgerð og sem þingmaður.“_________________ Hvað sérðu til bjargar Vestfjörð- um?_____________________________ „I fyrsta lagi mega menn ekki draga upp of dökka mynd af Vest- fjörðum. Það er margt sem lofar góðu, t.d. sú uppstokkun sem nú er að gerast á norðanverðum Vest- fjörðum í atvinnulífinu. Hún er vís- bending um að menn vilji sparka sér út úr erfiðleikunum. Það er stór- kostleg uppbygging í Bolungarvík og á Flateyri, svo dæmi séu tekin af handahófi. Vaxandi afli Þorskveiðin, aðalburðarás at- vinnulífsins á Vestfjörðum, hefur verið í mikilli lægð en á síðasta ári jókst loks magn landaðs afla í fjórð- ungnum í fyrsta skipti um árabil og sú aukning kom frá aflamarksbát- um sem bendir til að menn séu að ná vopnum sínum. Ég verð líka var við það að mörg lítil fyrirtæki og iðnaður eru í vexti og mannlíf og menning hafa ætíð verið mjög öflug á Vestfjörðum. Þróunin er á alla vegu en á ýmsum stöðum er við- námsþrótturinn verulegur þrátt fyr- ir allt. Með þeim breytingum sem urðu á fiskistjómunarkerfinu varðandi smábáta þá em Vestfirðingar líka að fá nýja viðspymu þar. Aðstaða til smábátaútgerðar er mjög góð á Vestfjörðum og ég tek eftir því að margir útvegsmenn eru nú að fjár- festa í slíkum skipum. Verð á þorskaflahámarki er að minnsta kosti fjórfalt lægra en á kvóta og þarna felast miklir möguleikar sem ég tel að muni skila sér í auknum afla og aukinni fiskvinnslu á Vest- fjörðum á næstu mánuðum og miss- erum.“ -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.