Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1996, Page 26
34
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1996
Afmæli
Björgvin Sigurður Sveinsson
Björgvin Sigurður Sveinsson,
fyrrv. verslunarmaður, Bæjarholti
3, Hafnarfírði, er sjötíu og fimm ára
í dag.
Starfsferill
Björgvin fæddist í Ólafsvík og
ólst þar upp. Hann flutti til Grinda-
víkur á stríðsárunum og var þar til
sjós nokkrar vertíðir. Þá flutti hann
í Garðabæ þar sem þau hjónin áttu
heima til 1953. Þau fluttu þá til
Hafnarfjarðar þar sem þau hafa átt
heima síðan.
Björgvin starfaði í Sindra-stáli
um árabil og síðan á bensínstöð
Essó við Reykjavíkurveg í Hafnar-
firði uns hann hætti
störfum fyrir aldurs sak-
ir.
Fjölskylda
Björgvin kvæntist 25.6.
1950 Hólmfríði Ásu Vig-
fúsdóttur, f. 17.10. 1926,
húsmóður. Hún er dóttir
Vigfúsar Jóns Vigfússon-
ar sjómanns og Eppepen-
íu Ásbjörnsdóttur hús-
móður.
Börn Björgvins og
Hólmfríðar Ásu eru Vig-
fús J. Björgvinsson útgerðarmaður,
kvæntur Kristínu Ó. Kristinsdóttur
Björgvin Siguröur
Sveinsson.
Björgvin
kvæntur
húsmóður og eiga þau
saman þrjú börn, auk
þess sem hún á tvö böm
frá því áður; Rúnar B.
Björgvinsson, lést 1975,
hann eignaðist eina dótt-
ur; Eðvarð Björgvinsson
byggingaverktaki, kvænt-
ur Ástu L. Friðriksdóttur
leikskólastarfsmanni og
eiga þau fjögur börn;
Guðný Björgvinsdóttir
verkakona, hún á þrjú
börn og er eitt látið; Ingi-
björg Björgvinsdóttir hús-
móðir, hún á þrjú börn;
H. Björgvinsson múrari,
Ágústu Hauksdóttur ritara
og eiga þau þrjú börn; Ásbjörg
Björgvinsdóttir, gift Jóni Þórðar-
syni pípulagningameistara, og eiga
þau tvö böm.
Systkini Björgvins: Þórkatla, nú
látin, húsmóðir í Reykjavík; Krist-
rún, starfsmaður við leikskóla, bú-
sett í Garðabæ; Gunnar, nú látinn,
leigubílstjóri í Garðabæ; Ámi, raf-
virki í Grindavík; Kristþór, starfs-
maður við Keflavíkurflugvöll, bú-
settur í Keflavík.
Foreldrar Björgvins voru Sveinn
Árnason sjómaður og Guðný Ás-
mundsdóttir húsmóðir en þau era
bæði látin.
Björgvin og Hólmfríður Ása eru í
London á afmælisdaginn.
Hólmfríður Ása Vigfúsdóttir
Hólmfríður Ása Vigfús-
dóttir húsmóðir, Bæjar-
holti 3, Hafnarfirði, er sjö-
tug í dag.
Starfsferill
Hólmfríður fæddist í
Hafnarfirði og ólst þar
upp. Er hún gifti sig hófu
þau hjónin búskap í
Garðabæ en fluttu til
Hafnarfjarðar 1953 þar
sem þau hafa búið síðan.
Auk heimilisstarfa vann
Hólmfríður um árabil hjá
Norðurstjörnunni í Hafnarfirði.
Fjölskylda
Hólmfríður giftist 25.6.
1950 Björgvini Sigurði
Sveinssyni, f. 17.10.1921,
fyrrv. verslunarmanni.
Hann er sonur Sveins
Ámasonar og Guðnýjar
Ásmundsdóttur húsmóð-
ur sem bæði eru látin.
Börn Hólmfríðar og
Björgvins Sigurðar eru
Vigfús J. Björgvinsson
útgerðarmaður, kvænt-
ur Kristínu Ó. Kristins-
dóttur húsmóður, og
eiga þau saman þrjú böm, auk þess
sem hún á tvö böm frá því áður;
Rúnar B. Björgvinsson, lést 1975,
hann eignaðist eina dóttur; Eðvarð
Björgvinsson byggingaverktaki,
kvæntur Ástu L. Friðriksdóttur
leikskólastarfsmanni, og eiga þau
fjögur böm; Guðný Björgvinsdóttir
verkakona, hún á þrjú börn og er
eitt látið; Ingibjörg Björgvinsdóttir
húsmóðir, hún á þrjú börn; Björg-
vin H. Björgvinsson múrari, kvænt-
ur Ágústu Hauksdóttur ritara, og
eiga þau þrjú börn; Ásbjörg Björg-
vinsdóttir, gift Jóni Þórðarsyni
pipulagningameistara, og eiga þau
tvö börn.
Systkini Hólmfríðar era Sólberg,
búettur í Reykjavík; Erna, búsett í
Keflavík; Sigurbjörg, húsmóðir í
Hafnarfirði; Óskar, fyrrv. formaður
Sjómannasambandsins, búsettur í
Hafnarfirði; Leifur, sjómaður i Vog-
um; Guðrún, húsmóðir á Seltjamar-
nesi; Guðmimdur, verkstjóri í Hafn-
arfirði; Ásbjörn, kaupmaður í Hafn-
arfirði.
Foreldrar Hólmfríðar Ásu vora
Vigfús Jón Vigfússon sjómaður og
Eppepenía Ásbjömsdóttir húsmóðir
sem bæði eru látin.
Hólmfríður Ása og Björgvin Sig-
urður era í London á afmælisdag-
inn.
o
Hólmfríður Ása
Vigfúsdóttir.
Steinar Magnússon
Steinar Magnússon, stýrimaður
og skipstjóri hjá Eimskipafélagi ís-
lands, Funafold 9, Reykjavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Steinar fæddist í Reykjavík, ólst
þar upp í Stórholtinu og hefur átt
heima í Reykjavík alla tíð. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skóla verknáms, stundaði nám við
Stýrimannaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan farmannaprófi 1969.
Steinar hefur starfað hjá Eim-
skipafélagi íslands frá 1963 og er þar
nú stýrimaður og skipstjóri.
Fjölskylda
Steinar kvæntist 26.7. 1986 Mar-
gréti Aðalsteinsdóttur, f. 11.2. 1964.
Hún er dóttir Aðalsteins F. Örnólfs-
sonar, vélstjóra og húsvarðar í
Kópavogi, og Elínar Eiríksdóttur
húsmóður.
Sonur Steinars frá fyrra hjóna-
bandi er Ægir Þór, f. 3.5. 1979.
Böm Steinars og Margrétar eru
Kristrún, f. 4.1. 1984; Sigurður Rún-
ar, f. 26.1.1988; Ema Guðrún, f. 19.5.
1989; Ólöf Rún, f. 9.12. 1991; Bjarki
Rúnar, f. 9.1. 1996.
Systkini Steinars eru Ólafur
Magnússon, f. 15.8. 1949, bílstjóri á
Hreyfli; Þröstur Magnússon, f. 15.8.
1959, skrifstofumaður hjá RARIK.
Háifsystkini Steinars, samfeðra,
eru Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 6.6.
1918, búsett í Reykjavik; Ragnheið-
ur Magnúsdóttir, f. 14.3.1916, d. 29.4.
1969, búsett í Reykjavík; ísleifur
Steinar Magnússon, f. 28.11. 1923, d.
25.1. 1946.
Foreldrar Steinars: Magnús Ólafs-
son, frá
Úlfljóts-
vatni í
Grafn-
ingi, f.
20.8. 1888,
d. 1.1.
1989, bíl-
stjóri í
Reykja-
vík, og Guðrún Sveinsdóttir frá
Miklaholti í Biskupstungum, f. 3.11.
1919, húsmóðir.
Steinar verður á Flórída á afmæl-
isdaginn.
Andlát
Steinar Magnússon.
Torfi Hjartarson
i Reykjavík 1949-62 og sat
í ýmsum opinberum
nefndum. Torfi var heið-
ursfélagi Dómarafélags-
ins og var sæmdur fjölda
heiðursmerkja, íslenskra
og erlendra.
Fjölskylda
Torfi kvæntist 1.2. 1934
Önnu Jónsdóttur, f. 23.7.
1912, d. 25.1.1992, húsmóð-
ur. Hún var dóttir Jóns
Torfi Hjartarson.
Torfi Hjartarson, fyrrv. tollstjóri
og fyrrv. sáttasemjari ríkisins,
Flókagötu 18, Reykjavík, lést þriðju-
daginn 8.10. sl. Hann verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í dag, kl. 13.30.
Starfsferill
Torfi fæddist á Hvanneyri í Borg-
arfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1924, embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1930 og dvaldi í London við
framhaldsnám 1930-31.
Torfi var starfsmaður við skrif-
stofu Alþingis 1926 og 1927, mál-
flutningsmaður í Reykjavík 1931-32,
settur sýslumaður og bæjarfógeti á
ísafirði 1932-33, fulltrúi hjá sýslu-
manni og bæjarfógeta á Akureyri
1933, sýslumaður og bæjarfógeti á
ísafirði 1934, tollstjóri í Reykjavík
1943-72, varasáttasemjari ríkisins
1944 og sáttasemjari ríkisins
1945-79.
Torfi var formaður SUS frá stofn-
un 1930-34, bæjarfulltrúi á ísafirði
1940-43, fulltrúi íslands á tollafund-
um Norðurlanda 1957-72, formaður
Nordiska Tulladministrativa Rádet
1960-61 og 1967-68, oddviti yfirkjör-
stjómar við bæjarstjómarkosningar
Sigurðssonar, vélfræðings
og útgerðarmanns í Hrísey, og k.h.,
Sóleyjar Jóhannesdóttur.
Börn Torfa og Önnu: Hjörtur, f.
6.7.1934, d. 17.3.1935; Hjörtur, f. 19.9.
1935, hæstaréttardómari í Reykja-
vík, kvæntur Nönnu Þorláksdóttur
læknaritara, og eiga þau þrjú böm;
Ragnheiður, f. 1.5. 1937, rektor MR,
gift Þórhalli Vilmundarsyni prófess-
or, og eiga þau þrjú böm; Sigrún, f.
23.10. 1938, d. 21.12. 1991, húsmóðir í
Kanada, var gift dr. Rohert Kajioka
Ph.D. og eignaðist hún þrjár dætur;
Helga Sóley, f. 13.9.1951, hjúkranar-
fræðingur í Reykjavík.
Bræður Torfa voru Snorri, f. 22.4.
1906, d. 27.12. 1986, skáld og bóka-
vörður, og Ásgeir, f.
21.11. 1910, d. 28.7. 1974,
kennari og bókavörður.
Foreldrar Torfa vora
Hjörtur Snorrason, f.
29.9. 1859, d. 1.8. 1925,
alþm., skólastjóri á
Hvanneyri og bóndi á
Skeljabrekku og í Amar-
holti, og'k.h., Ragnheiður
Torfadóttir, f. 17.6. 1873,
d. 27.12.1953, húsfreyja.
Ætt
Hjörtur var sonur Snorra, b. á
Skerðingsstöðum, bróður Sigríðar,
langömmu Jóns M. Samsonarsonar
handritafrceðings. Snorri var sonur
Jóns, b. i Glerárskógum, Sigurðsson-
ar, og Sigríðar Daðadóttur.
Móðir Hjartar var María Magnús-
dóttir, hreppstjóra í Magnússkógum,
Magnússonar, skálds og hreppstjóra
á Laugum, Jónssonar (Lauga-Magn-
úsar), langafa Friðjóns Jenssonar,
læknis á Akureyri, og Bjama Jens-
sonar, hreppstjóra í Ásgarði, fóður
Torfa, læknis á Sauðárkróki. Móðir
Maríu var Guðlaug Brandsdóttir, b. í
Dagveröamesi, Jónssonar, bróður
Steinunnar og Þuríðar, ættmæðra
Ormsættarinnar.
Meðal systkina Ragnheiðar var Ás-
geir efhaverkfræðingur, faðir Torfa
hagfræðings, Markús, b. í Ólafsdal,
faðir Ásgeirs verkfræðings og Sverris
dýralæknis, og Áslaug, móðir Ragn-
ars H. Ragnars tónlistarmanns og
amma Hjálmars tónskálds og Magn-
úsar Torfasonar hæstaréttardómara.
Ragnheiður var dóttir Torfa, skóla-
stjóra í Ólafsdal, Bjamasonar, b. í
Bessatungu, Bjamasonar, b. á Ytri-
Hrafnabjörgum, Tjörfasonar.
Móðir Ragnheiðar var Guðlaug
Zakariasdóttir, b. á Heydalsá, Jó-
hannssonar, prests í Garpsdal, Berg-
sveinssonar, prests á Staö í Grunna-
vík. Móðir Guðlaugar var Ragnheið-
ur ljósmóðir, dóttir Einars dbrm. í
Kollafjarðamesi, Jónssonar. Bræður
Ragnheiðar voru alþingismennimir
Ásgeir á Þingeyrum og Torfi á Kleif-
um og Magnús, varaþingmaður í
Klift. Móðir Ragnheiðar Jjósmóður
var Þórdís Guðmundsdóttir, systir
Guðrúnar, langömmu Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara.
Til ham- ingju með af- mælið 17. október
90 ára
Pétur Jóramsson, Faxabraut 13 (Hlévangi), Keflavík, verður níræður á morgun. Hann tekur á móti ættingjum og vinum í Oddfellowhúsinu, Grófinni 6, Keflavík, á morgun frá kl. 18.00- 21.00. Gunnar Mariusson, Árgötu 8, Húsavik. Guðbjörg Guðnadóttir, Skipasundi 88, Reykjavík.
85 ára
Pétur Jónsson, Þórunnarstræti 103, Akureyri.
80 ára
Sveinbjörn Ólafsson, Álfaskeiði 30, Hafnarfirði. Ásta Stefánsdóttir, Köldukinn 14, Hafnarfirði. Páll Sigurðsson, Hæðargarði 35, Reykjavík.
75 ára
Guðrún Jóna Bergsdóttir, Bergstaðastræti 57, Reykjavík. Guðmundur Ingi Bjarnason, Hringbraut 50, Reykjavík. Arnfríður Róbertsdóttir, Furulundi 1C, Akureyri. Halldór Pétursson, Hrafnistu, Reykjavík. Pálmi Sigurðsson, Ægisstig 3, Sauðárkróki. Lilja Þórarinsdóttir, Seljabraut 36, Reykjavík.
70 ára
Ásta Helgadóttir, Hæðargarði 30, Reykjavík. Stefanía Guðnadóttir, Árskógum 8, Reykjavík.
60 ára
Jónas Ragnar Franzson, Heiðarbraut 1A, Keflavík.
50 ára
Jón Gísli Jónsson, Áifhólsvegi 43, Kópavogi. Jón P. Kristinsson, Laufásvegi 59, Reykjavík. Sigxu'laug Gestsdóttir, Hringbraut 43, Reykjavík. Unnar Kristinsson, Smáratúni 46, Keflavík. Einar Sæmundsson, Hringbraut 78, Keflavík.
40 ára .
Þórður Sverrisson, Blómvangi 12, Hafnarfirði. Böðvar Sigurðsson, Rauðagerði 68, Reykjavík. Arndís Anna Sveinsdóttir, Litlageröi 2, Hvolsvelli. Haraldur Björnsson, Funafold 23, Reykjavík. Sveinn Karlsson, Langholtsvegi 108A, Reykjavík.