Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Page 3
U"V FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 HLJÓMPLéTU Nirvana — From the Muddy Banks of the Wíshkah Hröð rokkkeyrsla *★* PTl l 0. ‘".ÍS |! • \ i 4 ■ hJ : i i4M .!.« SiWíf' Þrátt fyrir dvínandi vinsæld- ir Seattle tónlistarinnar virðast frumkvöðlar hennar halda velli. Ótímabaert andlát forsprakkans og sú staðreynd að þessir sömu frumkvöðlar starfa ekki lengur saman í hljómsveit breyta því ekki. Nirvana var mjög þung og hrá, það var hluti sjarmans og þannig náði hún til fjölmargra. Með útgáfu MTV, Unplugged og dauða söngvarans, gítarleik- arans og lagasmiðsins Cobains stækkaði hlustendahópur hljómsveitarinnar mikið. Á Unplugged plötunni gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Eftirlifandi með- limir hljómsveitarinnar gátu þó ekki látið það ógert að leyfa al- menningi að heyra i hljómsveitinni eins og flestir muna eftir henni. Á sviði var hún hröð, reið og rokkuð og þannig kemur hún fram á plötunni From the Muddy Banks of the Wishkah. í heild er platan feiknavel sett saman. Ekki fá allir hittaramir að fylgja með þó lagið Smells Like Teen Spirit sé á sínurt stað. Tríóið sýnir samt að því fylgdi kraftur á sviði. Strákamir em feiknaþétt- ir og það eina sem dregur þá niður er misjafn söngur Cobains og mögulega sú staðreynd að flest lögin era flutt mun hraðar en mað- ur á að venjast en það er líka hluti af tónleikastemningunni. Bestu tónleikasprettina má finna í lögunum School, Drain You, Been a Son, Scentless Apprentice og Polly (þar sem kassagítarinn er látinn víkja fyrir rafmagnsgítarnum). Þeir sem ekki upplifðu tónleika með Nirvana meðan hljómsveit- in var og hét fá það tækifæri hér og nú og það heima í stofu. Guðjón Bergmann Roy Rogers - Rhythm & Groove Engir kúrekasöngvar *★* Þeir sem hafa gaman af blús- skotinni rokktónlist ættu að gefa Roy Rogers gaum. Ekki þeim gamla sem reið Trigger um fjöll og firnindi. Sá Roy sem hér um ræðir er um það bil helmingi yngri en gamli kúrek- inn, kemur frá San Francisco og hefúr undanfarinn áratug getið sér gott orð sem blús- og blúsrokksöngvari, gítarleikari með sérgáfu í slidegítarleik og upptökustjóri. Helsta afrek hans á því sviði er það að hann hefur stýrt upptökum fjögurra síð- ustu hljómplatnanna sem blúströllið John Lee Hooker hefur sent frá sér. Að auki er hann fastamaður í hljómsveit gamla mannsins þá sjaldan hann kemur fram á tónleikum núorðið. Rhythm & Groove er sjötta platan sem Roy Rogers hljóðritar í eigin nafni. Lög hennar bera því glöggt vitni að Rogers kann öll helstu trikkin til að búa til áheyrilega blúsrokkplötu og ekki spill- ir að hann fær Charlie Musselwhite til að spila með sér á munn- hörpu í lögunum My Heart’s Desire og einkar eftirtektarverðu, ósungnu lagi er nefnist Blues for Brazil. I því lagi gefur að heyra skemmtilegan samleik þeirra tveggja. Að öðra leyti lætur Roy Ro- gers það eiga sig að hrúga á plötuna gamalkunnum stjömum, nema hvað söngkonan Maria Muldaur syngur á móti honum í lag- inu För the Love of a Woman. Á Rhythm & Groove era fjórtán lög. Tólf þeirra eru eftir Roy Rogers en hin era Built for Comfort eftir Willie Dixon og Your Mind Is on Vacation eftir Mose Allison. Þau skera sig ekkert úr heildinni sem hlýtur að þýða aðeins það eitt að Roy Rogers er vel frambærilegur lagahöfundur. Gítarleikurinn er einnig í góðu lagi en ef eitthvað mætti betur hljóma er það söngrödd hans. Þar hef- ur Bonnie Raitt vinninginn. Að öðra leyti er það hin ágætasta skemmtun að hlýða á Rhythm & Groove. Ásgeir Tómasson Spooky Boogie - Greatest Hits Anægjulegt afturhvarf *★* Tónlist og tiska gengur í hringi og hér er komið afar ánægjulegt afturhvarf með fýrstu hljómplötu Spooky Boogie. Fullt af gömlum góðum smellmn í flottum útsetningum. Gömlu góðu Jackson 5 smellim- ir og allt hitt. Á plötunni er einnig að finna 4 frumsamin lög eftir þá félaga sem óneitanlega fölna við hlið þessara gömlu smella. Þar stendur upp úr lagið Liebe Ohne Herzt eftir Scobie í ágætri Bee Gees útsetningu. Hljómsveitin státar af fjölmennri söngsveit en hæst ber framlag Stefáns Hilmarssonar og Richards Scobie. Þeir sýna góða takta á plötunni, Stefán sem helíum útgáfa af James Brown og Scobie reynir fyrir sér á lægri nótum sem eins konar Barry White íslands. Hljómur plötunnar ber það með sér að spooky menn hafa einsett sér að ná gamla sándinu en útsetningar era oft á tíðum framlegar og skemmtilegar. Mergurinn málsins: Líflegt og skemmtilegt. Magnús Þór Ásgeirsson tónlist i7 ' ' V V Fámálir en kraftmiklir - Weezer kvnnir Pinkerton Hljómsveitin Weezer kemur úr San Femando dalnum í Los Angel- es. Hún var stofnuð árið 1992 en vakti fyrst á sér athygli með sinni fyrstu breiðskífu árið 1994. Platan var samnefnd hljómsveitinni og innihélt meðal annars lögin Say it Aint so og Buddy Holly en það síð- amefnda vann til femra MTV-tón- listarverðlauna fyrir: besta tónlist- armyndbandið (í alternative flokkn- um), bestu leikstjórn (Spike Jonze), bestu klippingu og besta (breaktro- ugh) myndbandið (ýmsir flokkar sem þýðast seint og illa). Hljómsveitina prýðir mikill kraft- ur. Drengimir sem hana skipa heita: Rivers Cuomo (gítar og söng- ur), Brian Bell (gítar og söngur), Matt Sharp (bassi og söngur) og Pat Wilson (trommur). Þeir eru sagðir fámálir og lítið gefnir fyrir fjöl- miðlafárið. í þeirra örfáu orðum segjast þeir tala í gegnum tónlist- ina, annað þarf fólk ekki að vita. Önnur breiðskífa hljómsveitarinnar er nú komin á markaðinn en henn- ar var beðið með mikilli eftirvænt- ingu. Platan ber nafnið Pinkerton og inniheldur 10 lög. Sjáum hluta af inngangi þessarar plötu: Hei, allir. Velkomin á nýju Weezer plötuna. Ég hef verið í tvær vikur að reyna að finna eitthvað til að segja í þess- um inngangi en hingað til hefur mig langað til aö æla á allt sem ég hef skrifað. Leyfið mér bara að segja að ég er mjög ánægður og upp með mér að heyra mínar flóknustu tilfinningar komnar i þennan bún- ing. Lögin tiu eru í þeirri röð sem ég samdi þau (tvær smá undartekn- ingar). Svo í heild þá segir platah frá baráttu minni við minn innri Pinkerton... Rivers Cuomo. GBG Fjör á Selfossi Hljómsveitin KKK leikur fyrir dansi í Gjánni á Selfossi laugar- dagskvöldið 19. október. Sveitin leikur alhliða danstónlist en hana skipa þeir James Olsen, Tómas Tómasson, Páll Eyjólfsson, Berg- ur Geirsson og maður að nafni Villi sem mun vera aðalsprautan í HÍK. SÍN á Kringlukránni Föstudaginn 18. október og laugardaginn 19. október leika þeir félagar Guðmundur Símon- arson og Guðlaugur Sigurðsson fyrir gesti Kringlukrárinnar. Samkvæmt fréttatilkynningu leika þeir félagar tónlist við allra hæfi. Sixties á uppskeruhátíð KSÍ Það verður mikið um dýrðir á Hótel íslandi föstudagskvöld- ið 18. október en þá verður upp- skeruhátíð KSÍ haldin með pompi og prakt. Það verða eng- ir aðrir en strákamir í Sixties sem halda uppi fjörinu á þessu hátíðarkvöldi knattspyrnunn- ar. Sixties heldur síðan uppi stuði eins og hennar er von og vísa á Hótel íslandi laugardag- inn 18. október. Það kvöld verð- ur haldin hin vinsæla skemmt- un Bítlaárin 1960-1970 þar sem söngvarar eins og Björgvin Halldórsson og Bjami Arason fara á kostum. Rúnar Þór í Reykjavík og í Borgarnesi Trúbadorinn Rúnar Þór gefur ekki eftir viö spilamennskuna þessa helgina frekar en aðrar. Föstudaginn 18. október leikur hann fyrir gesti og gangandi á Blúsbamum í Reykjavík. Á laug- ardeginum verður hann hins veg- ar í Borgamesi þar sem hann spilar í Hreiðrinu. Rúnar Júl. á Blúsbarnum Það verður greinilega mikið um að vera á Blúsbarnum um helgina en hann Rúnar Júl. verður að spila þar laugardag- inn 19. október. Vax um Hljómsveitin Vax verður í Gjánni á Selfossi föstudaginn 18. október og á Staðnum, Keflavík, laugardaginn 19. október. Hljómsveitin leikur rokk, diskó og nýrómantík og að sögn Helga Georgssonar úr Vax hefur spila- mennskan í sumar og haust gengið helgina vel. Meira er á döfinni hjá Vax og er sveitin að huga að útgáfumálum. „Við erum að vinna að tveimur lög- um sem við gefum jafnvel út í des- ember. Það verður samt ekki gefið neitt út nema við séum ánægð með lögin,“ sagði Helgi. -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.