Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Blaðsíða 11
Íl3 o FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 Bruce Willis leikur tímaferðalanginn. Með honum á myndinni er Madelaine Stowe. Árið 1962 gerði franski kvik- myndaleikstjórinn Chris Marker stuttmyndina La Jetée, sem varð David og Janet Peoples innblástur fyrir handrit þeirra að 12 Monkeys. Sagan fjallar um tímaflakk og tekur áhorfandann í mismunandi heima, þannig að þörf var talin á leikstjóra sem gæti gefið myndinni einstakt sjónrænt gildi. Handritshöfundarn- ir og framleiðandinn, Charles Roven, leituðu því til Terry Gilliam. Þrátt fyrir að vilja helst skrifa hand- ritin að eigin myndum leist honum það vel á handritið að hann sam- þykkti að leikstýra mynd eftir hand- riti annarra í annað sinn á ferli sín- um. Terry Gilliam komst í kvik- myndahransann eftir óhefðbundn- um leiðum. Hann vann fyrir sér sem teiknari hjá tímaritinu Help! áður en hann fór að sjá um teikni- myndagerð fyrir Monty Pythons Flying Circus sjónvarpsþættina. Fljótlega fór hann einnig að leika með hópnum og leikstýrði fyrstu kvikmynd þeirra, Monty Python and the Holy Grail, ásamt Terry Jo- nes. Tveimur árum seinna leik- stýröi hann í fyrsta skipti upp á eig- in spýtur myndinni Jabberwocky. Hann er best þekktur fyrir þær myndir sem á eftir komu: Time Bandits, Brazil, The Adventures of Baron Munchausen og The Fisher King, en þær eiga allar það sameig- inlegt að vera áberandi sjónrænar. Terry Gilliam hefur skapað eigin stíl án þess að endurtaka sig um of, en meistaraverk hans er stðrmynd- in Brazil. Sagan byijar árið 2035. Dóms- dagsvírus hefur eytt 99% mann- kynsins, og leifamar hírast neðan- jarðar. í von um að fortíðin hafi eitt- hvað að geyma sem geti hjálpað þeim að byggja sér framtíð, sendir hópur vísindamanna sjálfboðaliða aftur í tíma til 1996. Sjálfboðaliðinn Cole kemur til ársins 1996 og er tal- inn geðveikur. Honum er komið fyr- ir á geðveikrahæli, þar sem hann hittir Jeffrey Goines, truflaðan son vísindamanns sem gæti hafa haft eitthvað að gera með vírusinn sem sigraði mannkynið, og Dr. Kathryn Railly, sálfræðing sem telur Cole geðveikan í fyrstu, en fer að efast um greiningu sína þegar á líður. myndbönd 1 * Cole sjálfur er í martraðakenndri aðstöðu og tekm að efast um eigin geðheilsu, en einu vísbendingar hans eru dularfull bemskuminning og einkennileg merki um eitthvað sem kallast Her hinna tólf apa. í hlutverk Cole þurfti mann sem gæti virst vamarlaus annars vegar og sterkur og hættulegur hins veg- ar. Atriði úr Die Hard, þar sem Bruce Willis er að tína gler úr fót- unum á sér meðan hann talar við konu sína í símanum og grætur, sannfærði Terry Gilliam um að Bruce Willis væri tilvalinn í hlut- verkið. Eftir að hafa öðlast vinsæld- ir fyrir leik í sjónvarpsþáttunum Moonlighting, lék hann í fyrstu kvikmynd sinni, Blind Date, en 1988 sló hann fyrst rækilega í gegn sem lögreglumaðurinn John McClane í Die Hard. Síðan hafa tvær fram- haldsmyndir fylgt í kjölfarið, en hann hefur einnig átt hlutverk í myndum eins og Color of Night, The Bonfire of the Vanities, Death Beco- mes Her, The Player, In Country, Nobodys Fool og Pulp Fiction. Hann hefur einnig ljáð rödd sína myndun- um Look Who’s Talking og Look Who’s Talking Too. Hann er vænt- anlegur í vestra Walter Hill, Last Man Standing, byggðum á Yojimbo eftir Kurosawa. Greindarlegt yfirbragð og fegurö Madeleine Stowe, ásamt leikhæfi- leikum að sjálfsögðu, tryggðu henni hlutverk sálfræðingsins. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í mynd- inni Stakeout, og í kjölfarið fylgdu , hlutverk í Unlawful Entry, Closet Land, Revenge og The Two Jakes. Mest lof hefur hún fengið fyrir hlut- verk sín i The Last of the Mohicans, Blink, og Short Cuts, en fyrir hana fékk hún verðlaun Gagnrýnenda- samtakcmna í Bandaríkjunum fyrir besta leik í aukahlutverki. Terry Gilliam er hrifinn af því að taka áhættur með leikara og setja f þá í öðruvísi hlutverk en þeir hafa áður átt við, og fékk því Brad Pitt til að leika Jeffrey Goines, villtan og brjálæðislegan taugasjúkling. Hlut- verk hans sem geðsjúki morðinginn í Kalifomia er það sem næst kemst hlutverki hans í 12 Monkeys. Vel- gengni í sjónvarpsþáttum og mynd- um leiddu til þess að hann fékk hlutverk sæta puttaferðalangsins í Thelma & Louise, og ferill hans hef- ur verið á beinu brautinni síðan. Hann hefur m.a. leikið í myndunum A River Runs through It, Johnny 4' Suede, Cool World, Trae Romance, áðurnefndri Kalifomia, Legends of the Fall, Interview with the Vamp- ire og Seven. Þá er von á honum í nýjustu mynd Barry Levinson, Sleepers. -PJ UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT Egill Ólafsson Þrátt fyrir að horfa verulega lítiö á myndbönd á ég mér eina uppáhaldsmynd sem ég horfi reglulega á. Það er besta mynd sem ég hef séð og hún heitir Amarcord eftir Federico Fellini. Þetta er ítölsk mynd frá árinu 1974 sem sýnir mannlegt eðli á fallegan hátt. í henni era ekki frægir leikarar en þeir eru góðir. Það era nefhilega til svo margir góðir leikarar sem verða aldrei frægir. Aftur á móti er ástæðan fyrir því að ég horfi svona lítið á myndbönd sú að á þeim tíma sem fólk horfir yfirleitt á myndbönd, það er að segja á kvöld- in, þá er ég í vinn- unni. Svo horf- ir maður ekki á myndbönd á daginn. Það er eins og að borða popp á morgn- ana. Passar einfaldlega ekki. Ég reyni nú samt að fara öðru hverju í kvik- myndahúsin. Síðast sá ég Djöflaeyjuna og skemmti mér mjög vel. Mér fannst myndin góð og leikararnir ekki síðri. íslenskar myndir geta verið mjög góðar og það er synd að það skuli ekki vera hugsað betur um þessa grein hér á landi. Það er alltaf verið að telja þessa smáaura sem kastað er í íslenska kvikmyndagerð. Það er alls ekki nógu gott. -ilk Barb Wire Aðdáendur Strandvarða- skutlunnar Pamelu Andí son láta sig c ugglega ha það að horfa Barb Wire o ar en einu sinni, enda má segja að myndin sé skrifuð og gerð fyrir Pamelu, sem sýnir á sér fagran kroppinn í tíma og ótíma. Barb Wire er spennumynd um kalda og klára stúlku sem ekki þolir að karl- menn kalli hana „vinan“. Hún er mannaveiðari, sem einnig rekur rosalegan töffarabar. Þegar fyrram kærasti biður hana um að hjálpa sér í baráttu gegn spilltum stjómar- her slær hún til og þaö munar um minna þegar stúlkan sú arna tekur til hendinni. Háskólabíó gefúr út Barb Wire 21. október og er hún bönnuð bömum innan 16 ára. Mighty Aphrodite Mighty Ap- hrodite er nýjasta kvikmynd snill- ingsins Woody Allens og í henni leikur Allen íþróttafrétta- manninn Lenny, sem hefur ættleitt dreng. Þar sem hann telur drenginn mikinn gáfu- mann þá leggur hann út í leit að móðurinni og býst við að hún hljóti að vera í efri stigum þjóðfélagsins. Það kemur honum því ekki litið á óvart þegar hann kemst að því að móðir drengsins er gleðikona. Eins og Woody Allens er von og vísa fer hann ekki troðnar slóðir og má geta þess að grískur kór kemur mikið við sögu í myndinni. Mia Sorvino sem leikur gleðikonuna fékk ósk- arsverðlaun fyrir leik sinn í mynd- inni. Margir góðir leikarar koma fram, má þar nefna F. Murray Abra- ham, Claire Bloom, Helen Bonham Carter, Peter Weller og Olympia Dukakis. Skífan gefur út Mighty Aphrodite 23. október og er hún leyfð öhum aldurshópum. M|{ iHTY ATHfiOt'IK 1 i m | h ■ *** Amnesia Amnesia er dramatísk spennumynd um prestinn Paul KeUer sem er kvæntur en á í eldheitu ástar- sambandi við kennara sonar síns, Veronicu. í mikiUi togstreitu á miUi sektarkenndar og ástar til Veronicu tekur hann þá ákvörðun að setja eigin dauða á svið. Með því móti getur hann hafið nýtt líf með hjákonunni. Ekki tekst betur tU en svo að í sviðsetningunni dettur hann á grjót og missir minnið. Presturinn álpast inn á hótel þar sem hann hafði átt ástarfúndi með Veronicu. Þar ræður ríkjum kona sem notfærir sér minnisleysi hans tU að gera hann að elskhuga sínum. Aðalhlutverkin i Amnesia leika John Savage, Ally Sheedy og SaUy Kirkland. Stjörnubíó gefur út Amnesiu 22. október og er hún bönnuð börnum innan 16 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.