Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996
Ofbeldi í
■ w
sjonvarpi
Á morgun heldur útvarps-
réttarnefnd ráðstefnu á Hót-
el Sögu um ofbeldisefni í
sjónvarpi. Ráðstefnan stend-
ur frá kl. 13.00 til 17.00 og er
öllum opin.
Formaður útvarpsréttar-
nefndar, Kjartan Gvmnars-
son, mun setja ráðstefhuna
og menntamálaráðherra,
Björn Bjamason, flytur
ávarp. Fjallað verður um
málefnið frá ýmsum sjónar-
hornum og munu fjölmargir
aðilar flytja stutt erindi. Að
loknum erindum verða svo
pailborðsumræður.
Útvarpsréttamefnd tók til
starfa fyrir 10 árum og hefur
hún það hlutverk að veita
leyfi til einkarekinna út-
varpsstöðva ásamt því að
fylgjast með því að stöðv-
amar fylgi tilsettum lögum
og reglum í starfi sínu.
-ilk
Gleðileikur í Loftkastalanum
im> helgina
LIIKHÚS
23
Á sunnudaginn verður frum-
sýndur gleðileikurinn Deleríum
Búbónis í Loftkastalanum. Höf-
undar þessa klassíska gamanleiks
eru þeir bræður Jónas og Jón
Múli Árnason.
Deleríum Búbónis var sýnt
fyrst árið 1960 og söngvarnir úr
sýningunni hafa lifað með þjóð-
inni allar götur síðan. Einn ást-
sælasti leikari okkar til margra
ára, Árni Tryggvason, leikur í
sýningunni en hann lék einnig í
uppfærslunni árið 1960.
Auk Árna eru leikendur þau
Magnús Ólafsson, Rúrik Haralds-
son, Sigurveig Jónsdóttir, Mar-
grét Ákadóttir, Hinrik Ólcifsson,
Pálína Jónsdóttir, Þorsteinn Guð-
mundsson og Kjartan Bjarg-
mundsson.
Delerium Búbónis gerist í
Reykjavík árið 1960, á heimili
Ægis Ó. Ægis forstjóra og eigin-
konu hans. Ásamt mági sínum,
jafnvægismálaráðherranum, ætl-
ar hann að flytja til landsins út-
lenskan lúxus handa „sauðsvört-
um íslenskum almúganum" en
óvænt atvik setja strik i reikning-
inn og skyndilega er alls óvíst
hvort börn landsins muni halda
jólin hátíðleg. Ástamál fléttast svo
inn í þetta allt saman og málin
Leitt hún skyldi vera skækja
sunnudagur kl. 20.30:
í hvítu myrkri
fóstudagur kl. 20.30
laugardagur kl. 20.30
Nanna systir
sunnudagur kl. 20.00
Hamingjuránið
fostudagur kl. 20.00
Þrek og tár
laugardagur kl. 20.00
Kardemommubærinn
sunnudagur kl. 14.00
Dóttirin hoppar hér í fang unga iðjuleysingjans sem hún er svo ástfangin af.
DV-mynd Hilmar Pór
verða heldur betur flókin.
í sýningunni eru sungnar perl-
ur Jóns Múla eins og Einu sinni á
ágústkvöldi, Úti er alltaf að snjóa,
Ástardúett, Brestir og brak og
Ljúflingshóll.
Sýningin á sunnudaginn hefst
kl. 20. -ilk
Listsprengja ungs fólks
Unglist heitir listahátíð ungs
fólks og á morgun byrjar hún að
leggja undir sig miðborg Reykja-
víkur, allt frá sundlaugum og
kaffihúsum til virðulegra tón-
leika. Þetta er fimmta árið í röð
sem listahátíð þessi er haldin og
mun hún hafa vaxið og dafnað
með ári hverju.
Hátíðin er opinn vettvangur
þar sem ungt fólk getur bæði
notið lista og tjáð sig, gert til-
raunir, skapað, komið sér á
framfæri og fengið tækifæri til
að vinna að hugmyndum sínum
í skapandi umhverfi. Allt er
framkvæmanlegt á Unglist,
rokk, ballett, hannyrðir, mynd-
list og leiklist eru dæmi um dag-
skrárliði. Fjölmargir listamenn
hafa tekið þátt i Unglist og í ár
verða þeir fleiri en nokkru sinni
fyrr.
Listahátíðin stendur til laug-
ardagsins 26. október.
-ilk
Svanurinn
laugardagur kl. 20.00
Ef væri ég gullfiskur
laugardagur kl. 20.00
Largo Desolato
sunnudagur kl. 16.00
Barpar
fústudagur kl. 20.30
laugardagur kl. 20.30
Stone Free
fostudagur kl. 20.00
laugardagur kl. 23.30
íslenska óperan
Master Class
fostudagur kl. 20.00
sunnudagur ki. 20.00
Loftkastalinn
Deleríum Búbónis
sunnudagur kl. 20.00
Sirkús Skara skrípó
laugardagur kl. 20.00
Á sama tíma að ári
fostudagur kl. 20.00
Hermóður og Háðvör
Birtingur
fostudagur kl. 20.00
laugardagur kl. 20.00
Stykkishólmur:
Karlakór Reykjavíkur
og Diddú syngja
Karlgkór Reykjavikur
heldur tónleika í Stykkis-
hólmi á morgun og hefjast
þeir kl. 17. Einsöngvari
verður með kórnum og mun
það vera hin eina sanna Sig-
rún Hjálmtýsdóttir, sópran-
söngkona, oftar nefnd
Diddú. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir ætlar að leika á
píanó en stjórnandi kórsins
er Friðrik S. Kristinsson.
Efnisskráin er fjölbreytt og
flutt verða íslensk og erlend
lög.
Kórinn hefur svo hugsað
sér að heimsækja líka St.
Fransiskussystur í Stykkis-
hólmi og syngja í kapellu
þeirra en í ár eru liðin sex-
tíu ár frá komu systranna í
Hólminn. Systurnar verða
heiðursgestir á tónleikum
Karlakórs Reykjavíkur.
-ilk
KVIKMYNDAHA TIÐ
HÁSKÓLABÍÓS OG DV
Aime Parillaud Matt DHlon
Gabriel Býrne
rrAE-uGHJT.-1
Prankie Starlight er
gerd af framleidendim My
Left Foot sem var med
Laniel Lay Lewis í
adalhlutverki.
Frankie Stjörnuglit er
byggd á œvisögu Lindsay
Hogg, dverg sem ólst upp
í írlandi og vard
þekktur rithöfundur.
Karlakór Reykjavíkur er skipaður föngulegum karlmönnum eins og sjá má á
þessari mynd.
frankie Stjörnuglit er hjartnæm saga
um sigur andans yfir efninu
sem lætur engan ósnortinn.
Med adalhlutverk fara Anne Parillaud
(Hikita), Matt Lillon (Outsiders) og
G-abriel Byrne (The Usual Suspects)
SKRIFTUNIN OG HULDUBLOMIÐ
VERÐA SÝNDAR ÁFRAM