Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1996, Síða 12
★ '*
2° ipiyndbönd
★ ★
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1996 TIV
MYNDB/WDA
ödöm'jj
Broken Arrow ★★i
Kjamorkusprengjum rænt
Hér segir frá tveimur flugmönnum í Bandaríkja-
her, öðrum góðum en hinum illum. Sá illi rænir tveimur kjamorku-
sprengjum og reynir að kúga fé út úr Bandaríkjastjóm meðan sá góði
reynir að stöðva þann illa með öllum tiltækum ráðum (sá góöi vinnur,
merkUegt nokk). Leikstjóri myndarinnar er hasarmeistarinn John Woo og
er ekki svipur hjá sjón í þessari mynd. Hann hefúr gert skemmtUegar of-
beldismyndir í Hong Kong og á sitt meistarastykki í HardboUed en fær
greinUega ekki að leika lausum hala í HoUywood. Byssubardagamir, sem
era vörumerki hans, sjást varla en áhrifa þeirra gætir í auknum mæli í
kvikmyndagerð í HoUywood, sbr. myndir eins og The Crow og Desperado.
Myndin er þó aUs ekki alslæm. Þó nokkuð er af flottum sprengingum í
myndinni, sérstaklega virðist Woo vera eitthvaö í nöp við þyrlur og stút-
ar einum flórum í myndinni á glæsUegan hátt. TæknibreUur era góðar og
mörg vel gerð hasaratriði í myndinni. Travolta er nokkuð skemmtUegur
sem vondi kaUinn en Christian Slater er að sama skapi vonlaus sem sá
góði og virðist ekkert ætia að verða úr þeim leikara eftir að hafa lofað
góðu tU að byrja með. Þá er Samantha Mathis einungis upp á punt í tU-
gangslitiu hlutverki.
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: John Woo. Aðalhiutverk: John Travolta og Christi-
an Slater. Bandarísk, 1995. Lengd: 104 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ
Total Eclipse
Skáldlegt volæði
★★★
Myndin Total EcUpse er söguleg skáldsaga sem segir
frá ljóðskáldunum Verlaine og Rimbaud. Verlaine er
virt ljóðskáld sem heiUast af ljóðum unga snillingsins
Rimbaud sem aðrir taka lítið mark á. Með þeim tekst
ástarsamband og Verlaine togast á miUi Rimbaud og
konu sinnar en drykkja hans leiðir hann tU ofbeldis-
verka gegn konu sinni og smám saman rennur hjóna-
bandið út í sandinn. Rimbaud og Verlaine ferðast um
Evrópu, lesa og semja ljóð, svaUa og ríða hvor öðrum
þangað tU Verlaine er fleygt í fangelsi fyrir kynvfllu.
Verlaine frelsast fyrir rest en Rimbaud afneitar skáld-
skapnum og flytur tU Afríku. Þar fær hann drep í hné sem leiðir hann tU
dauða en Verlaine varðveitir ljóð hans. Erfltt er að sjá tUgang með sögunni.
Persónumar vora sjálfsagt merk ljóðskáld en af myndinni af dæma eyddu
þeir mestum hluta ævi sinnar í volæði og aumingjaskap og fóru mjög Ula með
annað fólk og sjálfa sig. Það era leikaramir sem gefa myndinni gUdi. David
ThewUs sýnir enn einu sinni frábæran leik sem Verlaine, er afar fráhrind-
andi og ógeðslegur en um leið svo aumkunarverður að hann fær nokkra sam-
úð áhorfandans. Leonardo Di Caprio fer á kostum í margbrotnu og krefjandi
hlutverki. Þá er bara að vona að hann fari ekki að leika í spennumyndum en
það hefur orðið dauðadómur margra efnUegra ungra leikara.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Agnieszka Holland. Aðalhlutverk: Leonardo Di
Caprio og David Thewlis. Bresk/frönsk/belgísk, 1995. Lengd: 90 mín. Bönnuð börn-
um yngri en 16 ára. -PJ
Grumpier Old Men:
y
Fúlir kallar, fúl mynd
Fyrir tveimur árum sló Grumpy Old Men vel í gegn
og átti það fullkomlega skUið, var bara ansi fyndinn og
samleikur Jacks Lemmons og Walters Matthaus alveg
einstakur. Grumpier Old Men er hins vegar skólabók-
ardæmi um lélega framhaldsmynd. í byrjun myndar-
innar era John og Max orðnir mestu mátar, fjölskyld-
umar við það að sameinast í brúðkaupi afkomenda
þeirra og Sophia Loren mætir á staðinn og heillar Max
upp úr skónum. AUt í einu fer aUt í hönk, afkvæmin
rífast og fúlu kaUamir slita vinskapnum og hefja gam-
alkunnug hrekkjabrögð. Svo sættast þeir og Max giftist
Sofiiu. Söguþráðurinn er álíka spennandi og tóm doUa, grínið er vonlaust
og byggir mest á aulahúmor og grettum. Og það sem er kannski neyðarleg-
ast, Jack Lemmon og Walter Matthau era alveg heiUum horfnir. í fyrri
myndinni var um flugeldasýningu að ræða en hér era þeir bara þreyttir,
gamlir og leiðinlegir, ekkert fyndnir. Sophia Loren hefúr aldrei verið mik-
U leikkona og er hér á sama plani og gömlu fretimir. Ann Margaret, Kevin
PoUak og Darryl Hannah standa sig þó ekkert áberandi Ula enda koma þau
í raun ekki mikið við sögu. Þessi mynd er því miður afar misheppnuð.
Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Howard Deutch. Aðalhlutverk: Jack Lemm-
on og Walter Matthau. Bandarísk, 1995. Lengd: 97 mín. Leyfð öllum aldurshópum.
-PJ
Screamers
Vísindatryllir
★★★
Screamers er byggð á smásögunni Second Variety eft-
ir PhUip K. Dick en hann er m.a. höfúndur bókarinnar
Do Androids Dream of Electric Sheep? sem Blade Runn-
er, einhver magnaðasta vísindaskáldsögumynd allra
tíma, var byggð á. Screamers er langt frá því að vera
þrekvirki á borð við Blade Runner en stendur þó sæmi-
lega fýrir sinu. Myndin gerist á fjarlægri plánetu þar
sem tveir aðilar takast á í grimmUegu stríði. Annar að-
Uinn hefur fundið upp e.k. vélmenni, morðtól með gervi-
greind sem era fær um að framleiða sig sjálf og þróa
fullkomnari útgáfúr. Þetta fer að sjálfsögðu úr böndunum og að lokum
neyðast eftirlifendur tU að sameinast gegn þeirri ógn sem vélmennin era
farin að vera báðum aðUum. í myrkum vísindaskáldsögum af þessari teg-
und er mikUvægt að ná upp drungalegu andrúmslofti og hér tekst það
nokkuð vel. Sviðsmyndin er trúverðug og persónusköpun er i samræmi
við söguna. Hetjurnar era þunglyndar og óstöðugar. Þá era tæknibreUur
ágætiega gerðar og spennuatriði oft vel gerð en helstu gaUar myndarinn-
ar liggja í handritinu þar sem söguþráðurinn er nokkuð götóttur, sérstak-
lega þegar nær endinum dregur og atburðarásin heldur hæggeng, sérstak-
lega í byrjun. Þetta er góð mynd fyrir aðdáendur vísindaskáldsagna en
varla meira en skítsæmfleg afþreying fyrir aðra.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Christian Duguay. Aðalhlutverk: Peter Weller,
Andy Lauer og Jennifer Rubin. Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum
yngri en 16 ára. -P.l
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI 1 FYRRi VIKA 2 VIKUR j Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
2 Get Shorty J Wamer-myndir Gaman
m s*fTi 2 j
1 3 ! Casino j ClC-myndbönd Spenna
3 3 4 j Dead Man Walking Háskólabíó Drama
Ný 1 Sudden Death ClC-myndbönd | J - ' ... 1 J ' Spenna
5 4 7 T Heat j Warner -myndir Spenna
6 12 2 CityHall Skrfan Spenna
7 6 4 Fatherofthe Bride SAM-Myndbönd Gaman
8 5 4 Thin Line Between.. Myndform Gaman
9 7 3 Apaspil Skífan Gaman
10 8 5 Strange Days ClC-myndbönd i Spenna
11 l 9 4 T Four Rooms Skrfan Gaman
12 :f NÝ 1 Screamers Myndform Spenna
13 NÝ j 1 j" Sense & Sensebility Skrfan Drama
14 ! 11 ■1 ---1 ■■■’— H1 8 Jumanji Skífan j - - te - - j Gaman
15 15 5 The Bridges of Maddison County 1 Wamer-myndir Drama
16 10 7 Kids Skifan IliHHMiwnDj Drama
17 j 13 9 ! Leaving Las Vegas Skrfan j Drama
18 Ný 1 Big Bully Warner -myndir Gaman
19 j u j 6 T X-Files: 82517 Skifan j Spenna
20 ] 14 7 Babe ClC-myndbönd Gaman
Gamanmyndin vinsæla Get Shorty fer í
efsta sæti myndbandalistans þessa
vikuna og skiptir þar með um sæti við
Casino sem setið hafði á toppnum i
tvær vikur. Litlar breytingar eru á efstu
sætunum fyrir utan að spennumyndin
Sudden Death kemur beint inn í fjórða
sæti listans. Á myndinni hér til hliðar er
Jean-Claude Van Damme í bjargvættar-
hlutverki í myndinni en hún gerist með-
an keppt er í ísknattleik.
Get Shorty
John Travolta og
Gene Hackman
Handrukkarinn
ChUi Palmer er einn
sá albesti í faginu.
Hann er fenginn tU
að fara tU Las Vegas
tfl að innheimta pen-
inga sem Mafían ger-
ir tilkaU tU. í leið-
inni er hann beðinn
að koma við í
HoUywood og inn-
heimta smáskuld hjá
kvikmyndaframleið-
anda. í framhaldi
fær Palmer mikinn
áhuga á kvikmynda-
bransanum og
ákveður að heUa sér
út í hann að fuUu.
Og hæfUeikar hans
sem handrukkari
koma honum að
gagni í kvikmynda-
Casino
Robert De Niro og
Sharon Stone
Casino gerist í
Las Vegas árið 1973,
Sam „Ace“ Roth-
stein er leppur maf-
íunnar og rekur
spUavíti og hefur
gott upp úr krafsinu.
Mafíustjóramir era
samt ekki fullkom-
lega ánægðir og
senda Nicky Santoro
tU liðs við Sam og
eiga þeir að bæta
hvor annan upp.
Sam hefúr hugvitið
en Nicky er hlynnt-
ur valdbeitingu.
Þetta er öflug blanda
sem fátt getur stað-
ist. En þegar kyn-
bomban Ginger Mc-
Kenna kemur til
skjalanna fer að
i-___í i..i__....
Dead Man
Walking
Susan Sarandon
og Sean Penn
Þessi úrvalsmynd
er byggð á sannsögu-
legri frásögn systur
Helan Prejan. Dag
einn berst henni bréf
frá dauðadæmdum
manni, Matthew
Poncelet, sem biður
trúboð hennar um
hjálp. Hún heldur tU
fúndar við hinn ör-
væntingarfufla mann
sem dæmdur hefur
verið tU dauða. Hann
biður Helen að koma
í veg fyrir að dauða-
refsingunni verði
beitt. Helen á óhægt
um vik vegna sann-
ana gegn honum en
reynir að draga fram
......1 - ‘1_...
m n (. «c k
ÍT f ?
2 V
SUDDEN't
DEATH
Sudden Death
Jean-Claude van
Damme og
Powers Boothe
Darren er fyrr-
veranmdi slökkvi-
liðsmaður sem nú
starfar sem öryggis-
vörður í ísknatt-
leikshöU. Úrslita-
leikurinn er að hefj-
ast og meðal áhorf-
enda er varaforseti
Bandarikjanna. í
leikbyrjun ráðast
hryðjuverkamenn
inn í höllina og
taka varaforsetann
í gíslingu. Krafa
þeirra er einn miUj-
arður doUara og féð
á að greiðast áður
en leiktíminn er út-
runninn. Það er
verk Darrens að
finna leið tU hryðju-
',orkamannanna.
Heat
Al Pacino og Ro-
bert De Niro
í Heat segir frá
hinum snjaUa at-
vinnuglæpamanni
NeU sem ásamt
mönnum sínum
leggur á ráðin um
nokkur hátæknUeg
rán. Vincent er
rannsóknarlög-
reglumaður í rán-
og morðdeild.
Einkalíf hans er ein
rjúkandi rúst enda
kemst ekkert annað
að í huga hans en
starfið. En hann er
ekki síður snjaU en
NeU og með hjálp
sinna manna og
uppljóstrara tekst
honum smám sam-
an að þrengja netið
í kringum glæpa-
mennina.