Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Qupperneq 9
JLlV MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 Hljómgæfli hljómtækja - af hverju þau hljómuðu betur í búðinni Varstu að kaupa þér græjur og ert ekki nógu ánægður? Hljómuðu þær kannski miklu betur í búðinni? Ef svo er þá ert þú ekki einn um vandamálið heldur er það vel þekkt. Vissulega er munur milli hljóm- burðar í verslununum og á heimil- um en vandinn liggur einnig í því að sýningartækin í versluninni hafa verið notuð áður á meðan þín þurfa að „hita sig upp“, ef svo má segja. Hvers vegna þurfa hljómtæki upphitun? í fyrsta lagi vegna þess að geislaspilarar og sérstaklega magnarar eru viðkvæmir fyrir hita- sveiflum og þurfa að aðlaga sig þeim, enda þarf ekki miklar sveiflur til að tóngæðin breytist verulega. Þegar geislaspilari skiptir t.d. um umhverfi er hljómurinn oft mjög harður í byrjun en mildast síðan með notkun. Ein aðferð við upphitun hljóm- tækjanna er að hafa þau alltaf í gangi þótt ekki sé verið að nota þau. Þannig viðhelst sá varmi í tækjun- um sem tryggir hljómgæði. Spilun allan sólarhringinn En málin verða flóknari þegar kemur að hátölurum sem eru sam- ofnir úr vélrænum og rafrænum pörtum sem í raun hafa ólíkar þarf- ir. Hvemig er þá einfaldast að koma tækjunum í fyrsta flokks ástand? Sé ekkert verið að flýta sér mun þetta allt koma hægt og rólega sé spilað af tækjunum nokkra stund á hverju kvöldi í nokkrar vikur. En sé þolin- mæði til þess ekki fyrir hendi má flýta fyrir hlutunum með því að láta geislaspilarann vera stöðugt í notk- un dag og nótt. Sömuleiðis má fá gott „sánd“ í magnara og hátalara með því að hækka töluvert upp í há- tölurunum og stilla geislaspilarann á sífellda endurtekningu. Til að losna við að nágrannamir hringi á lögregluna má þagga niður í hátöl- urunum með þvi að skipta plús- og mínus-tengingum sitt á hvað og láta þá síðan snúa saman. Og svona til að setja punktinn yflr iið þá er harla gott að breiða sæng yflr há- talarana svona nokkra klukkutíma á kvöldi. Þeir sem þekkja til segja að þá verði hljómurinn eins og hann gerist hvað bestur. -ggá tækni 2= ■ Besta ráöiö til aö fá hiö eina sanna „sánd“ út úr hátölurunum er aö vefja þá inn í sæng nokkra tíma á kvöldi. Hin góðkunna búð Bræðumir Ormsson bjóða nú upp á fjölda nýj- unga frá margverðlaunuðum fram- leiðendum eins og Pioner og Sharp. í raun má segja verslunin bjóði upp þrjár spennandi nýjungar og að minnsta kosti ein þeirra markar nokkur tímamót í þróun og sölu hljómflutningstækja fyrir almenn- ing. Tekið upp á geisladiska Geislaspilarar em vinsæl tæki og era nú til á flestum heimilum. Þeir hafa því tekið við af gömlu plötu- spilurunum sem rykfalla nú i geymslum út um allt land. Notkun- armöguleikar geislaspilara hafa hingað til verið takmarkaðir við af- spilun en nú er komið að þvi að hver sem er getur tekið upp á geisla- disk. Japanski hljómtækjafyrirtæk- Nýr myndvarpi Verslunin býður upp á upp nýja tegund myndvarpa frá Sharp. Myndarpinn býöur upp á mjög góða upplausn, með honum fylgir fjars- týring. Hann vegur um 11 kíló og þar af leiðandi má setja hann á borð eða upp í loft. Frá Pioneer kemur ný hljóm- tækjastæða sem tekur aÚt að 25 geisladiska í einu. Hún er af gerð- inni PD-F25 og er hönnuð fyrir ungt fólk sem vill fyrirferðarlitlar en kraftmiklar græjur. Hátalamir era búnir nýrri Power Bass tækni sem gerir mjög smáum hátölurum kleift að gefa mikinn kraft og góðan bassahljóm. Samantekt: -JHÞ ið Pioneer býður nú upp á geisla- spilara sem býður upp á þann ein- staka möguleika að hægt er að taka upp á geisladiska. Hann hefur þegar verið verðlauanaður af EISA (sem eru samtök evrópskra fagtímarita á þessu sviði) og fékk einnig hin virtu bresku hljómflutningsverölaunin (British Hi-Fi Awards fyrir 1996. Spilarinn sem er af gerðinni PDR-05 þykir afar einfaldur í notkun. Sem dæmi um notkunarmöguleika er að á hann er hægt að taka efni upp af segulbandsspólum og plötuspÚur- um. Þannig geta foreldrar sett tal ungbama yfír á geislaspilara eða bjargað verðmætri tónlist sem þeir eiga einungis á vínylplötum. Fag- menn geta einnig notað sér tækið. Þeir sem hafa áhuga er einfaldlega bent á að heimsækja Bræðuma Ormsson á Lágmúla 8. Hátalarnir viö nýju PD-F25 stæö- unni eru fyrirferöarlitlir eins og stæöan sjálf. Þeir eru búnir nýrri Power Bass tækni sem gerir þá afar kraftmikla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.