Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 28 jtækni_____________________________________ iz < Sjónvarpsmiðstöðin: Vandlátir neytendur vilja góðan hljóm - segir Ólafur Már Hreinsson i „Það sem er nýjast og eftirsóttast hjá okkur eru heimabíókerfí frá framleiðendum eins og Hitachi sem nýta sér Dolby Pro Logic hljóðkerf- ið. Það má segja að þróunin í mynd- gæðum sé að mestu leyti komin eins og langt og hún kemst í bili en nú er framþróunin i hljómgæðum," segir Ólafur Már Hreinsson hjá Sjón- varpsmiðstöðinni. Bíó inn í stofu Ólafur segir að heimabíó sé að einhverju leyti að koma í staðinn fyrir hefðbundin kvikmyndahús. „Þetta er auðvitað gott fyrir mynd- bandaleigumar enda er það stað- reynd að spólumar sem verið er að leigja eða selja eru með góðum “■ hljóm sem heimabíókerfin nýta sér,“ segir Ólafur. Að sögn Ólafs er breski markaðurinn kominn lengst á þessu sviði. „Þar em um það bil átta af hverjum tíu seldum sjón- varpstækjum með þessa tækni og það er engin ástæða til að ætla ann- að en að svo verði einnig hér á landi. íslendingar em svo nýjunga- gjamir og snöggir til. Það kemur okkur líka vel að stærsta hönnunar- deild Hitachi er bresk. Því koma nýjungarnar fljótt hingað,“ segir »Ólafur. Sjónvarpsmiðstöðin býður upp á tvö heimabíótæki frá Hitachi. Fyrst má nefna tegundina sem er þannig úr garði gerð að hátalakerfið er inn- byggt i sjónvarpið en það skilar full- komnum Dolby Pro Logic hljómi eins og hann myndi hljóma úr fimm hátölumm. Svo er útfærsla með fimm hátölurum. „í fyrmefndu teg- undinni er tölva sem tryggir að hljómurinn nær heimabíógæðum. Hún gefur neytandanum möguleika á því að kaupa sér ódýrara tæki í- byrjun sem hann getur prófað og svo keypt dýrara hljóðkerfi ef hon- um sýnist svo.“ Meira af Dolby Pro Logic Fleiri framleiðendur en Hitachi hafa tekið hljóðkerfið Dolby Pro Logic upp á sína arma. Þannig hef- ur Akai hafið framleiðslu á tveimur tegundum af Dolby Pro Logic hljóm- flutningssamstæðum. „Fyrir ein- ungis tveimur mánuðum vorum við að selja sambærilegar hljómflutn- ingssamstæður, sem vom reyndar ekki eins öflugar, á um það bil 90 þúsund krónur. Nú er verðið á AKAI-tækjunum komið niður í um það bil 65-75 þúsund krónur. Reynd- ar er þróunin öll á þá leið að neyt- endur fá æ meira fyrir peningana sína,“ segir Ólafur. Það er fleira á döfinni fyrir AKAI. Nú koma öll tækin frá fyrirtækinu með þeim möguleika að spila banda- ríska NTSC-kerfið ásamt því að spila evrópska PAL-kerfið. Frá AKAI kemur einnig myndbands- tæki með Dolby Pro Logic magnara með tveimiu- þráðlausum hátölur- um. Ólafúr segir reyndar að það tæki sé það eina sinnar tegundar í framleiðslu. „AKAI setti svona tæki á markaðinn fyrir um það bil átta árum en þá var hann ekki undir þessa tækni búinn. Nú hefur AKAI endurbætt þetta stórlega og sett á markað,“ segir Ólafur. Einnig hefur AKAI keypt sjónvarpsframleiðslu- deild NOIÖA og snemma á næsta ári ætlar fyrirtækið að koma fram með nýja sjónvarpslínu sem er byggð á framleiöslu NOKIA. „Þetta varður í fyrsta sinn sem AKAI kem- ur fram með sína eigin sjónvarps- línu og verður spennandi að sjá út- komuna,“ segir Ölafur. Sjónvarpið heldur sínu Þýski framleiðandinn Grundig er kominn fram með nýja hönnun á sjónvörpum. Um er að ræða 42 tomma sjónvarp sem er einungis 10 sentímetra djúpt og ekki með mynd- lampa. „Þetta tæki er það þynnsta á markaðnum og í Bandaríkjunum hefur það slegið í gegn hjá tölvueig- endum. Það er miklu þægilegra að hafa tölvuskjáinn uppi á vegg held- ur en plássfrekan skjá á skrifborð- inu,“ segir Ólafur. Að hans sögn hefur tekist að leysa tæknileg vandamál, eins og til dæmis að „blindir" blettir voru á skjánum þegar horft var á hann frá hlið. Þetta er liðin tíð og nú býður Grundig þessi tæki með Dolby Pro Logic hljóðkerfi. Margir hafa spáð því að tölvubylt- ing undanfarinna ára leiði til þess að sjónvarpið sameinist tölvunni. Ólafur efast um það. „Á þeim sýn- ingum sem ég hef sótt erlendis að undanfomu segja flestir ólíklegt að það gerist. Fólk virðist vilja tengja þessa miðla við ólíka hluti og vill upplifa þá í hvorn í sínu lagi. Tölv- an er í hugum fólks vinnutæki en sjónvarpið er hrein afþreying sem maður slakar á við inni í stofu. Það em helst unglingarnir sem era í þessum hugleiðingum,“ segir Ólaf- ur. Á þessu era reyndar undantekn- ingar, eins og til dæmis nýja sam- stæðan frá Kolster. Þar er tölva, sjónvarp og myndbandstæki í sömu samstæðunni. Skjárinn er ýmist 29 eða 32 tommur og fjarstýringin er í rauninni þráðlaus mús. Tölvan er 100 megarið og með geisladrifi, svo eitthvað sé nefnt. „Svona samstæð- ur eru helst ætlaðar mjög tækni- sinnuðu fólki,“ segir Ólafúr. -JHÞ Raftækjaverslun Islands: Góð vara á mjög góðu verði - er okkar sárstaða, segir Jónas Guðmundsson Jónas Arason hjá Raftækjaverslun fslands segir neytendur kröfuharðari en áður. - „Það er greinilegt að neytendur leggja mikil áherslu á gæði og þeir vanda sig mun betur en þeir gerðu áður við sín kaup,“ segir Jónas Guðmundsson hjá Raftækjaverslun íslands. Mikil áhersla á heimabíóin Að hans sögn er mikið spurt um heimabíóin. „Þetta er það sem fólk er að spá í, það má segja að mynd- gæðin séu komin upp í það sem þau geta komist i en núna er áherslan á að bæta hljóðið. Með þessum heima- bíósettum má eiginlega segja að stofusófinn sé kominn inn í bíósal,“ vegir Jónas. Raftækjaverslun ís- lands býður upp ó heimabíókerfi frá japanska framleiðandanum Sansui. Með því að setja upp heimabíósett er fólk í rauninni ab setja stofu- sófann inn í miðjan bíósal, að sögn Jónasar Arason hjá Raftækjaversl- un fslands. þessi kerfi hafa Dolby Pro- Logic hljóðkerfi með fimm hátölurum. Tveir era að framan, tveir að aftan og einn í miðjunni. Verðin á þess- um tækjum munu vera afar mis- munandi eftir því hvað sé keypt. Það er erfitt að lýsa kostum heimabíósins í prentuðu máli en áhugasömum er bent á að horfa á myndir eins og Jurassic Park í heimabiókerfi. í atriðinu í þeirri mynd þar sem risaeðluhjörðin flýr undan ráneðlu er hljómurinn svo raunverulegur að áhorfandanum langar helst að leggja á flótta með eðlunum. Mikið úrval í Raftækjaverslun íslands er boð- ið upp á fjölda hljómtækjasamstæða af ýmsum gerðum og þar má nefha gæðamerki eins og AKAI, Sansui og Philips. Ennfremur býður verslunin upp á mikið úrval sjónvarpstækja og segir Jónas að það sem sé nýjast á döfinni þar séu tæki frá Hitachi. „Þar erum við að bjóða 28“ sjónvörp með öllu fyrir einungis um 80 þús- und,“ segir Jónas. Áhersla á gæði og endingu Jónas segir að almennt leggji neytendur mesta áherslu á að þeir séu að kaupa hluti til langframa. „Um daginn kom maður hingað með magnara í viðgerð sem hann keypti fyrir 22 áram, þannig held ég að fólk vilji hafa þetta. Það er einnig að átta sig á því að það þarf að borga aukalega fyrir gæðin en það borgar sig þegar til lengri tíma er litið,“ segir Jónas. Hann segir að við þetta bætist að almennt séð séu neytendur fróðari um þau tæki sem þeir séu kaupa en áður. „Þetta stafar bæði af fjölmiðlaumfjöllun og því að fólk er einfaldlega að læra. Geisladiskatæknin hefur til dæmis verið til staðar fýrir hinn almenna neytanda í 10 - 15 ár og menn hafa einfaldlega lært að hljómurinn í diskunum er hreinn og tær,“ segir Jónas. Að hans sögn er erfiðara fyrir þá sem selja sjónvörp og myndbands- tæki að skapa sér sérstöðu á mark- aðunum en áður, til dæmis séu margir að selja sömu vörumerkin. „Það era til dæmis engin einkaum- boð eftir svo að heitið getur. Okkar sérstaða er einfaldlega sú að við bjóðum góða vöra á mjög góðu verði,“ segir Jónas að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.