Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 Wekni» Gervihnattamóttökubúnaður: Oaðgengileg áskrift erfiður þröskuldur - segir Ómar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Elnet 8.750 - snunmgsplfitfj Fyrirtækið Elnet í Kópavogi býð- ur fjölbreytt úrval af flestu því sem viðkemur fjarskiptatækni, auk þess sem fleira er á boðstólum. M.a. er Elnet með fjölvarpsbúnað, örbylgju- sjónvarp, gervihnattamóttökubún- að, eftirlitskerfi, mælitæki, ljósleið- aratæki, kapalkerfi og útvarps- senda. DV ræddi við Ómar Guð- mundsson, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins, og spurði hann að því hvemig honum kæmu sjónvarps- mál í dag fyrir sjónir. Sótt í íþróttirnar Ómar sagði að hann tæki töluvert eftir því að fólk væri að fá sér gervi- hnattamóttökubúnað til að geta fylgst með erlendum íþróttaviðburð- um og þess hafi jafnvel þekkst dæmi Sjónvarpsbylting Næsta kynslóð sjónvarps- tækja kemur til með að bjóða upp á afls kyns nýjungar sem áður hafa ekki verið sambyggð- Iar sjálfu sjónvarpstækinu. í Japan er verið að ráðgera sjón- varpstæki með innbyggðum mynddiskaspilara en í Banda- ríkjunum eru fyrirtæki á borð við Philips og Sony að koma á markaðinn með „vefsjónvarp" sem gefur kost á Internetteng- ingu án hjálpar tölvu. TDK með nýjung Spólurisinn TDK, sem lengi hefur verið með afkastameiri fyrirtækjum í framleiðslu á spólum til heimaupptöku, hefur komið fram með nýjan mynd- bandsdisk sem taka má upp á allt upp í 1000 sinnum. Diskur- inn er upp á 2,6 gígabæt (sem eru 2600 megabæt) af sjónrænu og hljóðrænu efhi og mun nýt- | ast eins og myndbandsspóla. Fleira upp á vegg Það eru ekki bara sjónvörpin sem eru að verða svo þunn að þau minni á málverk heldur hefur lengi verið metnaður fyr- irtækja að framleiða hátalara í þessum stíl. Nú eru tvö fyrir- tæki, Verity og NCT (Noise Cancellation Technologies), að koma á markaðinn með fyrstu útgáfu af stórum og Öflugum en mjög þunnum hátölurum. Hægt er að koma hátölurunum fyrir í formi flísa, mynda eða hverju öðru sem er auk þess sem fáan- legar verða sérstakar útgáfur í bíla. Bæði fyrirtækin hafa átt i nokkrum vandræðum með aö láta hina nýju hátalara koma | bassahljöm sómasamlega til skila en segjast nú hafa komist yfir þau vandræði. Verity var í samvinnu við verkfræðinga frá vamarmála- ráðuneytinu sem hafa unnið að | hönnun flugstjórnarklefa Tomedo-flugvélanna en NCT fékk sína tækniþekkingu frá umsjónarmönnum verkefnis sem ætlað var að tryggja hljóð- lausa ferð kjamorkukafbáta. Glæsileat en dýrt Næsta vor ramur á markað- inn nýtt sjónvarpstæki frá Phil- ips sem er þynnra og flatara en öll þau tæki sem nú em i boði. Tækið verður 42 tommu og inn- ; an við 10 sm á þykkt og er hug- myndin að það verði hengt á vegg, svipað og málverk. Verð- ið er þó ekki fyrir hvem sem er ? því tækið mun kosta 10.000 dollara á Bandaríkjamarkaði. umfangsmiklar. „Auk þess væru slíkar aðgerðir mjög óvinsælar. Það sem kemur í veg fyrir að stöð eins og Sky Movies geti eða vilji selja hingað sjónvarpsefni er að Stöð 2 eða Stöð 3 er með réttinn að því á ís- landi og borgar hlutfallslega hátt verð fyrir hann. Samt er þetta sýnt hér í gegnum sjóræningjakort og er meira að segja auglýst á dagskrár- síðum blaðanna. Sky væri sennilega ekkert alltof ánægt með það.“ -ggá/JHÞ sendingarstöðvanna. í þessu tilviki eru það gervihnattastöðvamar. Þetta skapar mjög erfiða rekstrar- stöðu fyrir þá sem vilja fara rétt að, enda eru þetta ekki eðlilegir við- skiptahættir.“ Ómar sagði að þetta væri helsti þröskuldurinn fyrir al- mennum vinsældum móttökubún- Ómar Guðmundsson hjá Elnet segir marga þröskulda í vegi vinsælda gervi- hnattamóttöku hér á landi. að einstaklingar hafi látið setja upp móttökudisk til að ná einum einasta knattspymuleik. Annars sagði Ómar að stöðugt yk- ist eftirspum eftir móttökubúnaði enda væri verðið á honum á niður- leið. Þetta gerðist þrátt fyrir að nokkrum erfiðleikum væri bundið að verða sér úti um áskriftarkort að erlendum sjónvarpsstöðvum á borð við Sky Movies eða Filmnet. Hann sagði að fólk vildi almennt ekki fara þær krókaleiðir sem nauðsynlegt er að fara, þ.e. að bjarga sér um áskrift í gegnum einstaklinga erlendis frá og nota hérlendis, sem í raun er á mjög gráu svæði lagalega. Þetta er þó nokkuð sem tíðkast í fjöldamörg- um fjölbýlishúsum hér á landi en þar eru margir notendur með eina áskrift sem er í raun ólöglegt, enda era slík áskriftarkort almennt köll- uð sjóræningjakort. Ómar sagði erfitt að áætla hversu margir hefðu slíkan aðgang en giskaði á að hér væri um 10-15.000 heimili að ræða. Höfundarráttarlög þverbrotin „Margir halda að kapalkerfin í fjölbýlishúsunum séu ókeypis en það eru ranghugmyndir," sagði Ómar. „Það sem aftur á móti er rétt er að dreifikerfi, hvort sem heldur er blokkakerfi eða kapalkerfi í bæj- arfélögum, greiða engin opinber gjöld, svo sem útvarpsleyfi, né held- ur leyfisgjöld til lögmætra rétthafa, svo sem Stefs og SFH. Síðast en ekki síst em engin gjöld greidd til út- Techno svart/belki sjónvarpsskápurinn er fáanleaur í beiki eða í svart/beiki og kostar kr. 25.600,- Við eigum til mikið úrval af fallegum og vönduðum sjónvarpsskápum, steríóskápum, geisladiska- i---- stöndum í ýmsum gerðum og stærðum. Verið velkomin í stærstu húsgagnaverslun landsins ! aðar hér á landi. Erfitt er fyrir aðila sem eiga höfundarrétt að grípa til aðgerða gegn kapalkerfum eða fjöl- býlishúsum þar sem lagaleg staða í þessum málum hefur verið óljós. Þessar aðgerðir era bæði dýrar og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.