Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Síða 9
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996
úm helgina
Styrktartónleikar
í Kristskirkju
Eitt af meginverkefhum samtak-
anna Caritas er að styðja við bakið á
þeim sem hafa farið góðra hluta á mis
við í lífinu. Caritas á íslandi hefur
ákveðið verja hinni árlegu fjársöfnun i
að halda styrktartónleika í þágu
alzheimersjúklinga. Þeir verða í
Kristskirkju í Landakoti á sunnudag-
inn og hefiast kl. 17.
Landsþekktir listamenn koma fram
og gefa vinnu sína og má þar nefna
Gunnar Kvaran sem leikur á selló, Jón
Stefánsson, organista, Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur ásamt félögum úr Kam-
merkór Langholtskirkju, Bemadel
strengjakvartettinn og marga fleiri. Á
efnisskrá verða verk eftir J.S. Bach,
Beethoven, Verdi, C. Franck, Mozart
og fleiri.
Miðaverð á tónleikana er 1000 krón-
ur og eru allir hvattir til að mæta.
-ilk
Hljómar frá öðrum heimi
Listamaðurinn Ketill Larsen
ætlar að halda málverkasýningu
um helgina. Sýninguna nefnir
hann Hljóma frá öðrum heimi og
mun þetta vera tuttugasta og
þriðja einkasýning hans. Á sýn-
ingunni verða 100 myndir, flestar
nýjar af nálinni. Um er að ræða
oliu- og akrýlmyndir. Ketill mál-
ar aðallega blóma- og landslags-
myndir en einnig ber fyrir augu
myndir sem lýsa hugmyndum
Ketils um annan heim, til dæmis
fljúgandi skip.
Á sýningimni verður leikin
tónlist eftir Ketil af segulbandi.
Herlegheitin verða öll að Frí-
kirkjuvegi 11 og verður sýningin
opin báða dagana frá kl. 14 til 22.
-ilk
Hér sést Ketill meB sýnishorn af verkum sínum.
Tukt í Síðu-
múlafangelsinu
Á morgun verður opnuð sam-
sýning 16 myndlistarmanna í fang-
elsinu að Sfðumúla 28 í Reykjavík.
Fangelsismálastofnun ríkisins lán-
ar húsnæðið til þeirra nota en
fangelsið var formlega lagt niður í
maí síðastliðnum. Sýningunni hef-
ur verið gefið nafnið Tukt. Hver
listamaður hefur einn klefa til um-
ráða fyrir innsetningu. Hugtakið
innsetning er þekkt í myndlist og
er notað þegar listamaður tekur
mið af því rými sem hann sýnir
verk sitt í eða ef verkið er unnið
sérstaklega inn í rýmið. Hugtakið
er einnig þekkt í fangelsum og þá
í annarri merkingu.
Sýningin mun standa 1 tvær vik-
ur og lýkur sunnudaginn 1. desem-
ber. Opið er frá kl. 16 til 20 alla
virka daga og frá kl. 14 til 18 um
helgar. Aðgangseyrir er 200 krón-
ur en af honum renna 50 krónur
til Verndar, félagasamtaka um
fangahjálp. -ilk
Perlan:
Lokkar,
litir, list
Félag íslenskra snyrtifræðinga
og Hárgreiðslumeistarafélag ís-
lands halda glæsilega keppni og
sýningu í Perlunni um helgina. ís-
landsmeistarakeppni beggja félag-
anna er meðal annars á dagskrá.
Einnig mun Félag meistara og
sveina í fataiðn halda gestakeppni
ásamt glæsilegri tískusýningu.
Kynnir báða dagana verður
Heiðar Jónsson og búist er við fjöl-
breyttri og skemmtilegri helgi í
Perlunni. -ilk
Landslags-
myndir
og fantasíur
Gunnar í. Gunnarsson heitir
listamaður einn sem sýnir nú verk
sín í Eden í Hveragerði. Um er að
ræða 54 málverk sem eru lands-
lagsmyndir og fantaslur. Gunnar
hefur haldið fjölda einkasýninga
og tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingúm. Óvíst er hvenær sýningu
Gunnars í Eden lýkur. -ilk
Hverageroi:
Þegiðu,
Síöustu sýningar verða um helgina á revíunni
Þegiðu, Hallmar sem Leikfélag Hveragerðis hefur
verið að sýna. Um er að ræða söng, grín og gam-
an en revían var samin í tilefni af 50 ára afmæli
Hveragerðisbæjar.
Leikstjóri revíunnar er Guðrún Ásmundsdóttir
og er hún jafnframt höfundur. Anna Jórunn Stef-
ánsdóttir, formaður Leikfélagsins, hefur samið
söngtextana sem fluttir eru í revíunni. 12 manns
taka þátt í sýningunni og er yngsti leikarinn 16
ára en sá elsti 95 ára.
Þegiðu, Hallmar verður sýnt á Hótel Hvera-
gerði í kvöld kl. 21 og á morgun á sama tíma.
Dansleikur verður svo að sýningum loknum.
-ilk
Steindór Gestsson og Guömundur Guö-
mundsson í hlutverkum sínum.
Handverk í hornstofu
Snjólaug Guðmundsdóttir, Brúar-
landi á Mýrum, sýnir og selur muni
úr skeljum og flóka ásamt vefnaði á
Laufásvegi 2, Reykjavík, laugardag-
inn 16. nóvember og sunnudaginn
17. nóvember.
Snjólaug er vefnaðarkennari að
mennt og kenndi meðal annars við
Hússtjómarskólann á Varmalandi í
9 ár. Hún hefur unnið og selt hand-
verk í um það bil 10 ár. Úr skeljum
býr hún til skartgripi og úr flóka
býr hún til orkupoka, bækur og
myndir og svo vefur hún upphluta-
svuntur, púða, trefla og mottur.
Snjólaug hefur tekið þátt í sýningu
Handverksreynsluverkefnisins í
listasafni Kópavogs, Gerðarsafni,
og Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta mun
vera fyrsta einkasýning Snjólaugar
og er hún opin frá klukkan 10-18 á
laugardögum og sunnudögum frá
kl. 13-18. -DVÓ
Afmæli í Mosó
Leikfélag Mosfellsbæjar fagnar
20 ára afmæli sínu um þessar
mundir og af því tilefni er leikfé-
lagið með opið hús í Bæjarleikhús-
inu. Húsið verður opið frá klukk-
an 20.00-22.00.
Klukkan 20.00 byrjar sýning á
gömlum og nýjum myndum, leik-
skrám og veggspjöldum. Klukkan
20.30 verður kynning á Bandalagi
íslenskra leikfélaga. Einþáttung-
urinn Hvíslaramir eftir ítalska
leikskáldið Dino Buzzatti verður
frumsýndur klukkan 20.40 en
hann er í leikstjóm Guðnýjar
Maríu Jónsdóttur en hún hefur
mrmiö leikstjóm á Ítalíu. Hún er
enn ffernur þýðandi verksins. Eft-
ir dagskrána verður boðið upp á
veitingar og gefst gestum þá tæki-
færi til þess að skoða leikhúsið.
Samvinna
16. nóvember munu þau Ásdís
Birgisdóttir og Ófeigur Bjömsson
gullsmiður opna sýninguna Sam-
vinna í listhúsi Ófeigs að Skóla-
vörðustíg 5. Á sýningimni munu
þau spinna saman klæði úr ís-
lenskri ull og skartgripi. Grunnur-
inn að verkum þeirra er fenginn
úr fornri hefð norrænna klæða og
skartgripagerðar. Þar mun skartið
og flíkin hafa verið eitt enda var
skartið jafnframt festingar á þess-
um klæðum. Ullin er lituð úr ís-
lenskum jurtum og skartið oxað
þar sem það á við. Sýningin verð-
ur opin frá klukkan 10.00-18.00
virka daga og 11.00 - 16.00 á laug-
ardögum.
AUKABLAÐ
MATUR OG KÖKUR
Miðvikudaginn 27. nóvember nk. mun
aukablað um matartilbúning fyrir jólin,
kökuuppskriftir og jólasiði fylgja DV
eins og undanfarin ár.
Umsjón efnis er í höndum
Ingibjargar Óðinsdóttur blaða-
manns, í síma 550-5815.
Fax ritstjórnar er 550-5020.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukablaði vinsamlegast hafi samband við Guðna Geir
Einarsson. auelvsingadeild DV, hið fýrsta í síma 550-5722,
vmsamieKast atnugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
21. nóvember.