Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 15. NOVEMBER 1996
Íil/lyndbönd
25
Money Train:
saman a ný
Wesley Snipes og Woody Harrel-
son hcifa nú þrisvar starfað saman í
sömu kvikmynd. Fyrst hittust þeir
við tökur á myndinni Wildcats og
hafa verið vinir siðan. Þeir þóttu
síðan ná mjög vel saman í White
Men Cant Jump og mættu síðan aft-
ur til leiks i myndinni Money Tra-
in, sem kemur í myndbandaleigur á
miðvikudaginn nk. Þar leika þeir
bræður(!) sem stunda saman lög-
reglustörf við neðanjarðarlestir
New York borgar, og er ein af skyld-
um þeirra
sú að
vemda peningalestina sem safnar
saman milljónum dollara á hverri
nóttu í neðanjarðarstöðvum borgar-
innar. Sem dægradvöl hugsa þeir
upp leiðir til að ræna lestina. Fyrir
John (Wesley Snipes) er þetta bara
leikur, en í huga Charlie (Woody
Harrelson) verður þetta meira en
leikur og hann vill gera alvöru úr
áætlunum þeirra.
Samleikur þeirra er driffjöður
myndarinnar og er hann beint fram-
hald af kunningsskap þeirra. Um
ástæður þess hversu gott tvíeyki
þeir mynda segir annar tveggja
framleiöenda myndcirinnar, Jon
Peters: í fyrsta lagi eru þeir mjög
góðir vinir. í öðru lagi hafa þeir gott
tímaskyn sin á milli og það er ein-
hver straumur milli þeirra. Woody
er mjög fyndinn og viðkunnanlegur
en hann er einnig hættulegur.
Wesley er óútreiknan-
legur og
Vinsælt tvíeyki
ur per-
sónutöfra. Handrit-
ið breyttist mikið
vegna þess sem þeir
spunnu saman á
tökustað.
UPPAHALDSMYNDBANDIÐ MITT
Margrét Vilhjálmsdóttir
Mary Poppins er
uppáhaldsmyndin
mín og hún verður
það alltaf. Hún er stór-
kostlegt fyrirbæri og
það sama má
segja um Lísu í
Undralandi og svínið
Babe. Það er óhætt að
segja að ég er verulega mik-
ið fyrir svona ævintýra-
myndir. Ég horfi þó
ekki eingöngu á
svoleiðis
myndir. Eig-
inlega er ég
með video-
veikina
svoköll-
uðu, ég
horfi svo
rosalega
mikið á
mynd-
bönd.
Mér
finnst
nefni-
lega
svo
gott að slaka á yfir
þeim eftir leiksýning-
ar. Þá kem ég dauð-
þreytt heim, fæ
mér eitthvað
gott að borða og
hreiðra svo um mig í
sófanum, með sæng-
ina og púðann, horfi á góða
mynd og gleymi öllu öðru á
meðan. Það er æðislegt. Ég er svo
heppin að eiga spóluna með
Lísu í Undralandi, það er
að segja Disney útgáf-
una, en hins vegar
þarf ég að eignast
spólumar með
Mary Poppins og
Babe. Þessar yndis-
legu myndir er eig-
inlega nauðsyn-
legt að ég eignist
af því aö ég
horfi helst á
þær þegar ég
er döpur.
Þetta eru
hlutimir
sem
koma
mér und-
antekn-
Wesley Snipes ólst upp í South
Bronx og fór strax í leiklistarskóla
þar sem unglingur. Eftir útskrift
vann hann á leiksviði og tók þátt í
nokkrum Broadway-sýningum áður
en hann flutti sig yfir í kvikmynd-
imar. Meðal fyrstu mynda hans em
Wildcats, King of New York, Streets
of Gold, Major League og Mo Better
Blues, en ferill hans tók mikið stökk
1991, þegar tvær myndir með hon-
um í aðalhlutverki náðu miklum
vinsældum, en það vom New Jack
City og Jungle Fever. Næstu mynd-
ir hans treystu hann í sessi sem
einn af helstu leikurunum í
Hollywood. Eftir The Waterdance og
White Men Cant Jump, þar sem
hann lék með Woody Harrelson, lék
hann í mestu hasarmynd sinni
til þessa, Passenger 57. Næst
komu The Rising Sun með
Sean Connery og
§óþokkahlutverk í Stallone-
myndinni Demolition Man.
Eftir það lék hann i Sugar-
hill, Drop Zone og To Wong Foo,
Thanks for Everything, Julie
Newmar, áður en hann tók höndum
saman við Woody Harrelson á ný í
Money Train. Næsta mynd hans er
The Fan, með Robert De Niro, en
hún er rétt ókomin hér á landi.
Fyrsta hlutverk Woodys Harrel-
sons í kvikmyndum var í Biloxi
Blues, en íslenskir sjónvarpsáhorf-
endur kannast vel við hann í hlut
verki heimska barþjónsins í Staupa
steini, sem aflaði honum Emmy-
verðlauna og American Comedy
verðlauna. Stærsta hlutverk hans
hingað til, og einnig það um-
deildasta, var í mynd Oliver Stone,
Natural Born Killers, þar sem hann
lék samviskulausan fjöldamorð-
ingja. Vilja sumir jafnvel meina að
myndin hafi att áhrifagjörnu fólki
til ofbeldisverka. Aðrar myndir
hans sem náð hafa miklum vinsæld-
um eru The Cowboy Way, white
Men Cant Jump og Indecent Propo-
sal. Meðal annarra mynda hans eru
Doc Hollywood, L.A. Story,
Wildcats, Sunchaser og Kingpin,
sem nýverið var sýnd í bíóhúsum
hér á klakanum. Von er á kappan-
um í hlutverki fatlaða klámmynda-
kóngsins Larry Flint, og gæti sú
mynd orðið umdeild eins og NBK.
Tökusviðið kílómetra langt
New York, en ekki var hægt að taka
alla myndina þar, svo að aðstand-
endur myndarinnar byggðu í Los
Angeles lengsta tökusvið í sögu
kvikmyndanna, eftirlikingu af ýms-
um neðanjarðarstöðvum i New
York sem hafði fjögur brautarspor
og var u.þ.b. kílómetri á lengd. Mik-
ið af búnaði var fengið úr vöruhús-
um lestarfélaganna, en annað var
framleitt til að fylla upp í eyðumar.
Enn fremur voru nokkrir lestar-
vagnar fluttir frá New York til Los
Angeles.
-PJ
rn-
ar fengu að
spreyta sig í sum-
um þeirra og þurfti
Woody Harrelson meðal
annars að dingla í lausu
lofti ofan af svölunum á
51. hæð Four Seasons hót-
elsins og segist aldrei hafa
verið hræddari á ævinni.
Mikið af tökum myndar-
innar fór fram í neðan-
jarðarlestargöngunum í
í&St
Dead Presidents White Squall
Hatur
Dead Presidents er önnur kvik-
mynd Hughes-bræðra, sem voru að-
eins rétt
rúmlega tví-
tugir þegar
þeir sendu
frá sér
Menace II
Society,
mynd sem
vakti verð-
skuldaða at-
hygli. Dead
Presidents
vakti einnig
athygli þeg-
ar hún kom á markaðinn. Hún þyk-
ir ekki jafn sterk og Menace II Soci-
ety, en engu að síður athyglisverð
og skrautfjöðrin í hatt þeirra
bræðra. Myndin er ofbeldisfull og
vert að vara sérstaklega við því að
atriði geta valdið óhug hjá börmun
enda var Kvikmyndaeftirlit ríkisins
með myndina imdir smásjánni.
Svo ótrúlegt sem það kann að
vera er orðasamsetningin Dead
Presidents slangur yFn dollaraseðla
og er þar vísað til að forsetar prýða
dollaraseðlana. Myndin fjallar um
uppgjafahermenn sem skipuleggja
rán á peningabíl. I þeirra hugum er
þetta hið fúllkomna rán, en margt
fer öðruvísi en ætlað er.
Sam-myndbönd gefur út Dead
Presidents og er hún bönnuð
börnum innan 16 ára. Útgáfudag-
ur er 18. nóvember.
White Squall, sem er nýjasta
kvikmynd Ridley Scotts, segir frá
sönnum og
dramatískum
atburði sem
átti sér stað
snemma á
sjöunda ára-
tugnum. At-
burðirnir
hefjast haust-
ið 1960 þegar
þrettán ungir
menn leggja
upp í ársferð
með skóla-
skipinu Albatros. Allt gengur vel
fyrir utan smáskærur á milli skip-
stjórans og nemendanna, þar til
Albatros er á heimleið og lendir i
svokölluðum hvítvindi, sem sekkur
skipinu með hörmulegum afleiðing-
um. Einstaka aðstandendur drengj-
anna sætta sig ekki við að slysið
eigi sér eðlilega skýringu og koma
því í gegn að skipstjórinn er ákærð-
ur fyrir óaðgæslu.
Með hlutverk skipstjórans fer Jeff
Bridges en í öðrum hlutverkum eru
Caroline Goodall, John Savage og
Scott Wolf. Myndin er ákaflega
áhrifamikil í myndlýsingu á slys-
inu, en hætt er við að eitthvað af
þeim áhrifum tapist í hinu þrönga
formi sem sjónvarpið býöur upp á.
Myndform gefur út Whrte Squall
og er hún leyfð öllum aldurshóp-
um. Útgáfudagur er 19. nóvember.
Hatur (La Haine) er fræg frönsk
úrvalsmynd sem meðal annars fékk
César-verð-
launin sem
besta kvik-
mynd árið
1995 og sama
ár fékk
Mathieu
Kassovitz
verðlaun í
Cannes sem
besti leik-
stjórinn.
Mynd þessi
hefur alls _______________________
staðar fengið góðar viðtökur, bæði
hjá gagnrýnendum og almenningi.
Hatur segir frá sólarhring í lífi
vinanna Húberts, Said og Vinz sem
lifa og hrærast í einu úthverfanna. í
uppþoti sem til kemur milli lögreglu
og unglinga í hverfinu særist einn
unglingurinn lffshættulega og vin-
irnir fyllast miklu hatri á kerfrnu
og lögreglunni. Þegar þeir flnna
skammbyssu sem einn lögreglu-
mannanna hafði tapað fá þeir útrás
fyrir hatrið.
Háskólabíó gefur út Hatur og er
hún bönnuð börnum innan 16 ára.
Útgáfudagur er 19. nóvember.