Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 12
26 myndbönd RIYNDBJim 1 _r sm Jj 1 || lf Lucy Fell: Dæmigerð ástarsaga ★★★ Lucy og Joe eru góðir vinir sem gerðu með sér samning í gaggó um að ef þau hefðu ekki fundið hina einu sönnu ást áður en Lucy yrði þrítug myndu þau fleygja sér fram af Brooklyn-brúnni. Þegar myndin hefst er mánuður tii stefnu. Lucy hefur í tvö og hálft ár átt í sambandi við mann sem henni er í raun skítsama um og ákveður að láta reyna á samband við fleiri karl- menn. Joe hefur verið ástfanginn af nágrannakonu sinni í fimm ár án þess að hún viti af því og ákveður að herða upp hugann og tala við hana. Eftir brösuglegar tilraunir virðast hlutimir ætla að ganga upp hjá þeim en svo kemur í ljós að raunveruleikinn er ekki alveg í samræmi við draumana. Sagan í myndinni er í grannatriðum sú sama og i mörg- um öðram ástarmyndum, t.d. When Harry Met Sally. Strákur og stelpa era góðir vinir. Strákur og stelpa reyna fyrir sér í hinum þessum sam- böndum með fremur slöppum árangri. Strákur og stelpa skilja loksins að þau era ástfangin hvort af öðra og allt fellur í ljúfa löð. Með ófrum- lega sögu byggist mikið á vel skrifuðu handriti og áihugaverðum persón- um. Hér gengur það vel upp því sagan er vel skrifúð og samtöl oft mjög fyndin. Aðalleikaramir, Sarah Jessica Parker og Eric Schaeffer, sem jafnframt leikstýrir, standa sig vel og skapa skemmtilegar perónur, hæfi- lega gallaðar til að vekja samúð áhorfandans. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Eric Schaeffer. Aðalhlutverk: Sarah Jessica Parker og Eric Schaeffer. Bandarísk, 1996. Lengd: 93 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ Rumble in the Bronx: Kung fti hetja í Bronx **** ® Rumble in the Bronx er fyrsta mynd Jackie Chan sem fer á toppinn á aðsóknarlistann í Bandaríkjun: um en hann er búinn að vera lengi í bransanum. í myndinni leikur hann Hong Kong búa sem kemur til New York til að vera við brúðkaup frænda sins. Hann er ekki lengi að komast upp á kant við ill- yrmislegt mótorhjólagengi á staðnum en eftir að hafa barið það í plokkfisk nokkrum sinnum, og reyndar verið barinn ansi illilega sjálfur, semja stríðandi aðil- ar um friö og snúa sér að stærri og hættulegri ógn sem era þrautþjálfaðir morðingjar í mafiu nokkurri. Demantaviðskipti hafa farið úrskeiðis og nánast fyrir Jackie Chan og einn helsti óvinur hans úr mótor- hjólaklíkunni í málið. Héma gengur uppskriftin fúllkomlega upp. Sagan heldur svo sem ekki vatni en á ekki heldur að gera það. Hún er ólíkinda- leg og skemmtileg. Leikaramir ofleika passlega mikið, grínið er drep- fyndið og bardagaatriðin stórkostleg þannig að myndin verður hin besta skemmtun. Jackie Chan skilar sínu meistaralega. Hann leikur öll áhættuatriði sjálfur og bardagaatriðin era ekki eingöngu barsmiðar, heldur listilega vel gerð sýningaratriði þar sem húmor og hugmynda- auðgi ræður ríkjum. Nú er bara að fara á videoleigumar og leigja eitt- hvað af eldri kung fu myndunum hans. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Stanley Tong. Aðalhlutverk: Jackie Chan. Bandarísk, 1995. Lengd: 93 min. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ rw TflHfín RUMBtf MmnECaaf BRONX tilviljun flækjast Executive Decision: ★★★ Flugræningjar yfirbugaðir Framleiðandinn Joel Silver er maðurinn á bak við margar af stærstu hasarmyndum Hollywood síðari ára, svo sem Die Hard og Lethal Weapon myndimar. Executive Decision er nýjasta afurð hans og skartar Kurt Russel í aðalhlutverki. Hann leikur hryðjuverka- sérfræðinginn David Grant sem lendir óvænt í átök- um. Flugvél með 400 farþega innanborðs hefur verið rænt og ræningjamir hafa sett fram kröfur. David Gr- ant kemur með tilgátu um að um borð séu birgðir af stórhættulegu taugagasi, sem nýverið hafði verið rænt í Sovétríkjunum, og að ræningjamir ætli sér að nota það á Washington. Ákveðið er að reyna nýja tækni til að komast um borð í vélina á flugi og senda sérsveit til að yfirbuga ræningjana. David Grant er með í fór en á ekki að fara um borð i farþegavélina. Áætlunin breytist hins vegar þegar yfirmaður sérsveitarinnar (Steven Seagal) deyr og David Grant neyðist til að taka á sig hlutverk hasarhetjunnar. Execu- tive Decision er Hollywoodframleiðsla í sínu besta formi. Sagan er auð- vitað fremur heimskuleg en tæknibrellur, hasar og hnyttni era í slíku magni að áhorfandinn er sáttur við að láta plata sig. Kurt Russel er góð- ur leikari og Steven Seagal, þótt takmarkaður sé, smellpassar í hlutverk sitt. Myndin tapar svolítið dampi þegar búið er að yfirbuga ræningjana og lokaatriði, þar sem Kurt Russel sest í flugmannsstólinn og nauðlendir vélinni, skemmir fyrir og hefði mátt sleppa því. Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Stuart Baird. Aðalhlutverk: Kurt Russel og Steven Seagal. Bandarísk, 1996. Lengd: 127 mín. Bönnuð börn- um yngri en 16 ára. -PJ Death Benefit: Leit að réttlæti Hér segir frá lögfræðingnum Steven Keeney sem af greiðvikni við konu nokkra tekur að sér að innheimta tryggingarskuld vegna útfarar dóttur hennar sem lést af slysföram. Málið reynist flóknara en hann hélt í byrjun og fyllist hann grunsemdum um atvik í kringiun slysið. Svo fer að hann fyllist þráhyggju og leggur allt í sölumar til að sanna að kon- an, sem hýsti dótturina þegar slysið varð og lét líftryggja hana, hafi myrt hana og raunar framið mörg morð um ævina. Hann eyðir öllum sínum tíma í þetta mál án þess að fá nokkuð borgað fýrir og missir bæði vinnu sína og unnustu. Eftir margra ára þrotlaust starf fæst loksins sak- sóknari nokkur til að ákæra konuna en það reynist samt þrautin þyngri aö sannfæra kviödóminn um sekt hennar. Myndin er byggð á sannri sögu sem er bæði spennandi og óhugnanleg. Uppbygging sögunnar er góð, matar áhorfandann jafnt og þétt og heldur athyglinni. Jafnframt er ekkert óþarfa melódrama þannig að frásögnin verður trúverðug. Þá standa leikaramir sig vel, túlka persónumar á trúverðugan hátt án þess að vera með einhverja tilfinningafimleika. Allt stuðlar að vel heppnaðri sakamálamynd. Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Mark Piznarski. Aðalhlutverk: Peter Horton og Carrie Snodgress. Bandarísk, 1996. Lengd: 87 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 T>V Myndbandalisti vikunnar 5. til U. nóvember SÆTI' j EBHhIÍ p FYRRI VIKA VIKUR ! iÁ LISTAi ní-• j . TITILL í ÚTGEF. j j . .. .' • i TEG. j í i * 3 r * j 2 J x: . ... 1, _ Birdcage Warner-myndir J Gaman I _ _ •■; 2 j pllSSíyl 1 • J,. -• _ ‘ .- -•• • q J 6 jfsmmíamœJm 12 Monkeys ClC-myndbönd J j Spenna j 3 i 2 i 4wi Broken Arrow Skífan j Spenna ) 4 ) 4 4 i Grumpier Old Men J Warner -myndir J 1 . Gaman J V- ■•■■-■ 5 j 6 i 3 ; Up Close And Personal j Myndform j Drama j 6 í 5 j ...... j 6 i j j ipilliUIIMUpil i 2 Get Shorty Warner-myndir j Gaman J 7 ) 12 Things To Do In Denver... j Skrfan J Spenna 8 i '.V- f 7 5 3 J j- 1 Sudden Death ClC-myndbönd J - . Spenna j , 9 8 j 7 J , .... i Casino ClC-myndbönd J Spenna 10 i j 10 j . J j 4 j jísBImj Virtuosity J ClC-myndbönd Spenna j ■ r" 11 11 i * i Dead Mann Walking j Háskólabíó Drama m Ný i 1 i J J Two Much J Stjömubíó j'. J Gaman j- 13 T 9 J n 1 J 6 J BarbWire i Háskólabíó j Spenna m i Ný J J i 1 i X-Files:Master Plan KjMMIManÉ j Skrfan i,;. • Spenna 15 í 13 í 5 J Sense & Sensebility J Sktfan 1 Drama I 16 i f Ný J J j 1 ^ J 1 J » - J DangerZone i Bergvík J Spenna Hffiffi 17 < 16 i 11; Heat 1 Warner-myndir J Spenna 18 j 18 lilMMMNII ] 3 J J ' J Mighty Aphrodite j Skrfan U ' Íffil 1 ■ ’ j Gaman i - Silsí 19 -í 15 1 7 1 j 1 J Apaspil j Skrfan Gaman 20 i 19 j J j 8 J Thin Line Between.. J 1 Myndform J J Gaman Fuglabúrið eða The Birdcage stekkur upp um tvö sæti og hreiðrar um sig á toppnum. Þrjá nýj- ar myndir koma inn á iistann en engin kemst hærra en f 12. sæti. Þar er Too Much með þeim hjónakornunum Antonio Banderas og Melanie Griffith í aðalhlutverkum. Tveimur sætum neðar er svo mynd úr myndaflokknum X- Files. Þriðja nýja myndin er spennumyndin Danger Zone. í fjórða sæti listans er Grumpier Old Men með þeim vinsælu gamanleikurum Jack Lemmon og Walter Matthau í aðalhlutverkum og á myndinni sjáum við þá sparibúna. The Birdcage Robin Williams og Nathan Lane Félagarnir Arm- and og Albert hafa búið saman um ára- bil og saman hafa þeir alið upp son Ar- mands, Val, sem nú er fluttur að heiman. Þegar Val tilkynnir um trúlofun sina og dóttur þingmanns leggja þeir blessun sína yfir ráðahaginn en það verður heldur betur handagangur í öskjunni þegar von er á þingmanninum og eiginkonu hans í heimsókn til tilvon- andi tengdaforeldra dóttur þeirra og þingmannshjónin vita ekki betur en að „móðir“ Vals sé kona. 12 Monkeys Bruce Willis og Brad Pitt Bruce Willis leik- ur mann að nafni Cole sem finnst sturlaður og er send- ur á geðveikrahæli. hann segist vera frá árinu 2035 og hafa verið sendur til að koma í veg fyrir út- breiðslu á veiru sem eigi eftir að eyða nær öllu lífi innan nokk- urra vikna. Þótt fáir trúi honum tekur geðlæknirinn Kathryn eftir því að ýmislegt styður það að Cole sé að segja sannleikann. Fram- vindan verður svo æ dularfyllri og það verður ekki auðvelt fyrir Cole að leita að uppruna veirunnar. Broken Ar- row John Travolta og Christian Slater Vic er einn besti flugmaður banda- ríska hersins og einn af fáum sem stjóma vél sem ber kjarna- odda. í leynilegri sendifór með slík vopn kemur hins vegar í ljós að Vic er ekki allur þar sem hann er séður. Með honum er flugmað- urinn Riley sem lítur upp til Vics. Sú aðdá- un breytist hins veg- ar í skelfingu þegar vélinni er rænt og Riley verður ljóst að það er Vic sem stend- ur fyrir ráninu. Hót- ar hann sprengingu ef ekki verði farið að vilja hans. Grumpier Old Men Jack Lemmon og Walter Matthau Það er komið sum- ar í heimabæ ná- grannanna Johns og Max. Hlýnað hefur í samskiptum nöldur- seggjanna en þá kemur hin íðilfagra Maria í bæinn og allt verður vitlaust. Hún hefur yfirtekið beitu- verslunina og hyggst breyta henni í ítalsk- an ristorante. Þetta eru að sjálfsögðu helgispjöll í augum félaganna sem ákveða að láta sverfa til stáls og koma í veg fyrir fyrirætlan- ir Mariu en hún er ekkert lamb að leika sér við, eins og þeir komast fljótt að. Up Close and Personal Robert Redford og Michelle Pfeif- fer Tally er fréttakona og ein sú vinsælasta í bandarísku sjón- varpi. Hún hefúr á löngum tíma barist til metorða með dyggri aðstoð vin- sæls sjónvarps- manns, Warrens Justice. Samhliða því hefur komist á ástarsamband milli þeirra en það er erfitt að halda einka- lífinu fyrir utan heim sjónvarpsins og þegar vinsældir og starfsframi vegur meira en hjónaband- ið hlýtur eitthvað að láta undan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.