Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
Utlönd
Kraftaverk aö breskur sjómaöur skuli hafa sloppiö lifandi:
Bjargað eftir 5 daga
veru í skútu á hvolfi
Breski siglingakappinn Tony
Bullimore þakkaði guði fyrir eftir
að honum var bjargað úr ísköldum
sjónum undan Suðurskautslandinu
UPPBOÐ
Esjumelur 3, hluti C, 20% af heild, eign-
arhl. 103, Kjalamesi, þingl. eig. Bjöm
Jónsson, gerðarbeiðandi Kaupþing hf.,
mánudaginn 13. janúar 1997, kl. 10.00.
Garðhús 55, íbúð á 1. og 2. hæð og nyrðri
bflskúr, þingl. eig. Helgi Snorrason og
Þóra Sigurþórsdóttir, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki íslands, Hraðfrystihús
Eskifjarðar hf. og Lánasjóður íslenskra
námsmanna, mánudaginn 13. janúar
1997, kl. 10.00.______________________
Grettisgata 94, 3. hæð og herbergi í risi
m.m., merkt 0301, þingl. eig. Astríður
Eyjólfsdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar, mánudaginn
13. janúar 1997, kl. 10.00.
Hólaberg 36, þingl. eig. María Teresa
Jover, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf.,
mánudaginn 13. janúar 1997, kl. 10.00.
Hólaberg 48, ehl. 50%, þingl. eig. Valdi-
mar Jónsson, gerðarbeiðandi Tollstjóra-
skrifstofa, mánudaginn 13. janúar 1997,
kl, 10,00,____________________________
Hólmgarður 20, íbúð á efri hæð og risloft,
þingl. eig. Magnea Guðmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Islandsbanki hf., útibú
517, mánudaginn 13. janúar 1997, kl.
10.00,________________________________
Hraunbær 14, íbúð á 3. hæð f.m., þingl.
eig. Þorvaldur G. Blöndal, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins, mánudag-
inn 13. janúar 1997, kl. 10.00.
Kringlan 4, 5. hæð, þingl. eig. Kringlan
4-6 ehf. en talin eign Mænis hf., gerðar-
beiðandi Kringlan 4-6 ehf., mánudaginn
13. janúar 1997, kl, 10,00,___________
Kringlan 4, kjallari, þingl. eig. Kringlan
4-6 ehf. en talin eign Mænis hf., gerðar-
beiðandi Kringlan 4-6 ehf., mánudaginn
13. janúar 1997, kl. 10.00.
Laugalækur 14, þingl. eig. Halldór Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi íslandsbanki
hf., höfuðst. 500, mánudaginn 13. janúar
1997, kl. 10,00,___________
Markland 10, íbúð á 1. hæð t.h., þingl.
eig. Einar Friðriksson, gerðarbeiðandi Is-
landsbanki hf., höfuðst. 500, mánudaginn
13. janúar 1997, kl. 10.00.
Miklabraut 20, íbúð á 1. hæð m.m., þingl.
eig. Tryggvi Ólafsson og Ásta Bima
Hauksdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfa-
deild Húsnæðisstofnunar, mánudaginn
13. janúar 1997, kl. 10.00.
Prestbakki 3, þingl. eig. Amar I. Sigur-
bjömsson, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan
hf. og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, mánu-
daginn 13. janúar 1997, kl. 13.30.
Rauðagerði 33,1. hæð, þingl. eig. Fóður-
blandan hf., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóð-
ur, mánudaginn 13. janúar 1997, kl.
10.00. _______________________
Rjúpufell 27, 4ra herb. íbúð á 2. hæð,
merkt 0202, þingl. eig. Ambjörg Hansen,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður rafiðnað-
armanna og Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis, mánudaginn 13. janúar 1997,
kl. 13.30, ____________________
Skógarás 6, íbúð á 1. hæð t.v. og bflskúr
nr. 4, þingl. eig. Rafnkell Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
mánudaginn 13. janúar 1997, kl. 10.00.
Úlfarsfell II, 4452,5 fm spilda úr landinu,
Mosf., þingl. eig. Fullvinnslan ehf., gerð-
arbeiðandi Hafnarfjarðarhöfn, mánudag-
inn 13. janúar 1997, kl. 10.00.
Þórsgata 23, risíbúð, merkt 0401, þingl.
eig. Magnús Þór Jónsson, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður ríkisins og Lands-
banki fslands, aðalbanki, mánudaginn 13.
janúar 1997, kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
I
í morgun, hann hafði þá verið fimm
daga inni í skútu sinni á hvolfi.
Raydon Gates, höfuðsmaður um
borð í áströlsku freigátunni Adela-
ide, sagði að mikil gleðitilfinning
hefði farið um skipið þegar Bulli-
more svaraði banki á skrokk skú-
tunnar. Það var fyrsta staðfesting
þess að hann væri á lífi frá því skú-
tunni hvolfdi á sunnudaginn var.
„Hann birtist mjög skömmu síð-
ar,“ sagði Gates í simaviðtali við
Reuters fréttastofuna frá freigát-
unni sem var rúmlega 2500 kíló-
metra frá ströndum Ástralíu.
„Hann komst af sjálfsdáðum út úr
skútunni og birtist við kinnunginn,
skoppandi á öldunum. Kraftaverk
er orðið sem kemur upp i hugann,"
Milosevic
viðurkennir
ósigur í Nis
Þrátt fyrir að Slohodan Milos-
evic, forseti Serbiu, hafi í gær
viðurkennt ósigur í borginni Nis
hefur stjórnarandstaðan heitið
því að láta ekki af mótmælum
sínum. „Setjum sem svo að
Milosevic taki frá ykkur 10 þús-
und dollara og samþykki loks 50
dögum seinna að endurgreiða
ykkur 6 þúsund dollara mynduð
þið þá sætta ykkur við það?“
sagði Vuk Draskovic, einn leið-
toga stjómarandstöðunnar í gær.
Hin opinbera fréttastofa
Tanjug greindi frá því í gær að
stjómvöld hefðu viðurkennt sig-
ur Zajedno, bandalags stjórnar-
andstöðuflokka, í kosningunum í
Nis í nóvember. Er þetta mesta
tilslökun af hálfu forsetans í deil-
unni viö stjómarandstæðinga.
Stjómvöld sögðu að Zajedno
hefði hlotið 37 sæti af 70 en
stjómarandstöðuleiðtogar segjast
hafa unnið 41 sæti.
í dag hyggjast stúdentar stilla
sér upp fyrir framan röö lög-
reglumanna sem hindra for
þeirra um miðborgina. Ætla
stúdentar að þrauka þar til lög-
reglumennimir gefast upp. Skipt
verður um hundrað manna hóp á
klukkustundar fresti. Reuter
sagði Gates.
Aðeins nokkrum klukkustundum
áður hafði áhöfn Adelaide bjargað
frönskum skútusiglingamanni, Thi-
erry Dubois, um borð í þyrlu. Hann
hafði þá verið á reki á björgun-
arfleka í fjóra daga í þungum sjó.
Gates sagði að hinn 56 ára gamli
Bullimore væri ótrúlega vel á sig
kominn eftir þrekraunina, enda
væri honum lýst sem harðgerðum
fyrmm landgönguliða í breska
hernum. Bullimore er nú í meðferð
hjá læknum freigátunnar vegna of-
kælingar og ofþornunar þar sem
vatnsbirgðir hans kláruðust tveim-
ur dögum áður en honum var bjarg-
að.
Einnig var óttast að hann hefði
kalið á fótunum og þá missti hann
framan af einum fingri þegar hönd
hans festist í lúgu á káetunni.
Dubois, sem er 29 ára, var einnig
við ótrúlega góða heilsu þegar hon-
um var bjargað. Hann hékk utan á
skútu sinni í einn dag áður en hann
klifraði upp á flekann sem flugvél
hafði varpað niður til hans.
Mennimir tveir voru að taka þátt
í Vendee Globe kappsiglingunni
umhverfis jörðina, sem svo sannar-
lega stendur undir nafni sem hættu-
legasta íþróttakeppni í heimi. Öðr-
um Frakka var bjargað annan dag
jóla og í gær hafði fjórði keppand-
inn misst fjarskiptasamband við
skipuleggjendur keppninnar.
Reuter
Stuttar fréttir i>v
Loftárásir á Líbanon
ísraelskar herflugvélar gerðu
í gær loftárásir á búðir Hiz-
bollahskæruliða í Libanon til að
hefna fyrir flugskeytaárás á ísr-
ael.
Segjast saklausir
íranir vísa á bug ásökunum
íraka um að þeir hafi verið á
bak við sprengjuárásir í Bagdad
á stjórnarandstæðinga írans.
Ræða refsingu
Siðanefnd
bandaríska
þingsins ætlar
sér viku í um-
ræður um
hvemig refsa
eigi forseta
fulltrúadeild-
arinnar, Newt
Gingrich, fyr-
ir brot á siðareglum þingsins.
Handtökuheimildir
Saksóknarar í S-Kóreu sækja
nú um heimildir til að handtaka
sjö verkalýðsleiðtoga sem skipu-
lagt hafa verkfóll um allt landið.
Samskiptaörðugleikar
Kínversk yfirvöld segja að
setji Bandaríkin mannréttinda-
mál á oddinn geti það skaðað
samskipti ríkjanna.
Njósnarar handteknir
íraska sjónvarpið sýndi í gær
myndir af þremur írökum sem
hafa játað á sig njósnir fyrir
israelsku leyniþjónustuna.
Herferð fyrir Karl
Breska kon-
ungshöllin
ætlar að
hrinda af stað
fimm ára her-
ferð til að
reyna að sann-
færa Breta um
að Karl príns
sé hæfur til að
verða konungur Bretlánds. í
skoðanakönnun i beinni sjón-
varpsútsendingu í gær kváðust
tveir þriðju hlutar svarenda
vera á þeirri skoðun að kon-
ungsfjölskyldan ætti framtíð fyr-
ir sér.
í áróðursstríði
Alberto Fujimori, forseti Per-
ús, reyndi í gær að taka frum-
kvæðið í áróöursstríðinu við
skæruliðana sem halda 74 gísl-
um i japanska sendiherrabú-
staðnum og sagði stjóm sína
vilja taka aftur upp 10 daga
gamla áætlun um lausn deilunn-
ar.
IRA vill vera með
írski lýðveldisherinn IRA
sagði i gær að hann vildi eiga
fulltrúa i friðarviðræðum allra
flokka á Norður-írlandi en látið
var að því liggja að áfram yrði
barist nema Bretar byðu til
fundarins án skilyrða.
Aibright vill staöfesta
Madeleine
Albright,
verðandi ut-
anrikisráð-
herra Banda-
ríkjanna,
sagði í gær að
eitt fyrsta
verk sitt í
emhætti yrði
aö reyna að fá öldungadeild
Bandaríkjaþings til að staðfesta
alþjóðlegan samning um bann
viö efnavopnum.
Vont á Spáni
Fjórir menn týndu lífi í óveðri
sem gekk yfir Spán í gær, bæði
snjókomu og rigningu. Bæjarfé-
lög einangruðust og vegir rofri-
uðu.
Albert kvænist
Reynir, fursti í Mónakó, hefur
hvatt son sinn, Albert, til að
finna sér nú eiginkonu. Prinsinn
er oröinn 38 ára gamall og þykir
góður mannkostur. Reuter
Dave Lynch frá Hamilton í Massachusetts virðir fyrir sér málverk af Evitu Duarte Peron í safni lista og vísinda í
Daytona Beach á Flórída. Málverkið, sem er frá því um 1940, er talið hið eina sem málað var af Evitu Peron. Verkið
hefur dregið að sér mikinn fjölda gesta frá því það var hengt upp í safninu. Sfmamynd Reuter
Jeltsín lagður inn
á sjúkrahús á ný
Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti er aftur kominn á sjúkra-
hús, í þetta sinn vegna hyrj-
unareinkenna lungnabólgu.
Veikindi hans hafa kynt und-
ir ótta manna um að hann sé
ekki fær um að stjórna. En i
yfirlýsirigu frá hjartalækni
Jeltsíns í morgun sagði að
ástand hans væri viðunandi.
Jeltsín var lagður inn á
sjúkrahús í gær. Til stóð að
forsætisráðherra Rússlands,
Viktor Tsjemomyrdin, færi í
stutt frí í dag en samkvæmt
fréttum rússneskrar sjón-
varpsstöðvar í gær er mögu-
legt að hann fresti fríinu
vegna veikinda forsetans.
Jeltsín fékk slæmt kvef á
mánudaginn en þá voru tvær
vikur liðnar frá því að hann
kom aftur til Kremlar að
loknu veikindafríi vegna
hjartaaðgerðar. í gærkvöld
Borís Jeltsín Rússlandsforseti í veisiu í
Kremi um áramótin. Sfmamynd Reuter
kváðust læknar hafa fundið byrj-
unareinkenni lungnabólgu þegar
þeir rannsökuðu forsetann. „Hann
hefúr verið lagður inn til þess að
hægt sé að gera betri sjúkdóms-
greiningu og til þess að hann fái
rétta meðferð," sagði í yfirlýsingu
frá Kreml.
Bandaríski hjartaskurðlæknir-
inn Michael DeBakey, sem var ráð-
gjafi rússneskra lækna er Jeltsín
gekkst undir aðgerð, sagðist í sjón-
varpsviðtali í gær búast við að
Rússlandsforseti yrði fljótur að ná
sér. Hann væri sennilega með in-
flúensu. Reuter