Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 10
io Hfcenning FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 DV Nemendaleikhúsið frumsýndi í gærkvöld annað verkefni leikársins, en eins og lög gera ráð fyrir nota útskriftarnemar Leiklistarskól- ans lokaárið í að setja upp þrjár fullburða leiksýningar. Verkefnaval fyrir átta leiklistarnema, sem abir þurfa að fá sín tækifæri í sýningunni, er ekki létt verk, og það verður að segjast eins og er að Hátíð eftir George Tabori er ekki aug- ljósasta leikrit, sem hefði getað orðið fyrir val- inu. Reyndar eru í verkinu góðir sprettir fyrir hópinn, einkum framan af, en í heildina vant- ar meiri samfellu og sterkari hryggsúlu í framvinduna til að styðja leikendur í persónusköp- un og úr- vinnslu. Höfundur vill greini- lega ekki of- bjóða áhorf- endum með margendur- teknum lýs- ingum á ógn- arverkum nasista í Hel- fórinni og í uppsetningu Nemenda- leikhússins er enn frekar slegið úr og í, þannig að stefnan verð- ur ekki nógu ljós. Sýningin byrjar á vel útfærðu upp- hafsatriði, þar sem ung- ur nýnasisti ræðst að grafreitum gyðinga og vinnur þar spjöll. Þetta raskar ró þeirra sem þar hvíla og þeir fara á stjá. Förðunar- meistari sýn- ingarinnar (Kristín Hinir dauðu rísa upp. Atli Rafn Sigurðsson í hlutverki sínu í Hátíð. DV-mynd Hilmar Þór Thors) fær nóg að gera við að sýna þennan fríða flokk á mismunandi stigum rotnunar og vinnur það verk mjög vel! Þetta upphafsatriði er vel útfært. Hönnuður leikmyndar og bún- inga (Elín Edda Ámadóttir) og leikstjórinn (Kolbrún Halldórsdóttir) vinna markvisst úr grunnhugmyndum og persónurnar „lifna við“ í meðförmn leiklistanemanna. Litaval, sviðs- mynd og lýsing skapa sýningunni hæfilega Leiklist AuðurEydal draugalegt kirkjugarðsyfirbragð. Framan af ræður óbærilegur léttleiki tilver- unnar ferðinni, uppvakningar segja brot úr sögu sinni, eru með brandaratilburði og það er mikið um söngva. Vissulega óhefðbundin sýn á grafalvarlegt efni. En svo keyrist sýningin yfir í allt annan gír. í síðari hlutanum tekur alvarlegur undir- tónninn yfir, textinn verður keimlíkur öðrum frásögnum af voðaverkunum og persónurnar í verkinu gufa hálfpartinn upp. Þau sem útskrifast í vor eru Atli Rafn Sig- urðsson, Hildigunnur Þráinsdóttir, Inga Mar- ía Valdimarsdóttir, Halldór Gylfason, Baldur Trausti Hreinsson, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Gunnar Hansson og Katla Margrét Þorgeirs- dóttir. Öll standa þau sig með prýði. Ströng þjálfun og skólun síðustu ára hefur greinilega skilað þeim vel áleiðis og það verður gaman að fylgjast með þeim áfram. Tónlistin er úr ýmsum áttum og nemendur úr Tónlistarskóla Reykjavíkur flytja hana harla fagmannlega undir stjórn Kjartans Ólafssonar. Brotum úr texta Gyðingakonunn- ar eftir Bertolt Brecht, í þýðingu Þorsteins Þorsteinssonar, er skotið inn í verkið. Þó að fyrirferðin sé ekki mikil segja innskotin sína sögu á einfaldan og eftirminnilegan hátt og mynda vel þeginn kjarna i sýningunni. Nemendaleikhúsið sýnir í Lindarbæ: Hátíð eftir George Tabori Þýðing: Bjarni Jónsson Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir Lýsing: Egill Ingibergsson Dauðans léttleiki Madonna: Rómantísk leiktjöld fremur þurr, en þykkri hluti sæmilegur, borin fram með fersku hrásalati, ofbakaðri kartöflu og ostasósu. Að kvöldi var léttilega smjörsteiktur skötuselur mun betri, en lítillega ofsaltaður, borinn fram með léttsteiktu græn- meti, hæfilega bakaðri kartöflu og hlutlausri hveitisósu. Lamhahryggvöðvi var lítillega ofsteiktur, en þó rósrauður, með sojabættri rjómasósu finni og vel kryddaðri, nákvæmlega rétt steiktu grænmeti og bakaðri kartöflu. Súkkulaðifrauð var ómerkur eft- irréttur. Epla- kaka var fremur þurr, með þeyttum rjóma og ís. Bezt var óvenjulega létt ostakaka með sítrónu- bragði, borin fram með sultu, þeytt- um rjóma og ávaxtasneið- um. Espresso kaffi var ekta, en allt of veikt. Úrval rétta var fábreytt og framsetning þeirra stöðluð, en sjálf matreiðslan yfirleitt í góðu meðallagi, einkum á kvöldin, þegar ná- kvæmni var beitt í eldunartíma á grænmeti, pasta og fiski. Og þetta er ódýrasti Ítalíustað- urinn, sem ég veit um í bænum. Flest virðist úr pappa innanhúss, þar á meðal múrveggir og marmara- súlur. Vínviðarhafið með berjaklös- um er úr plasti. Þetta gaf þá leiksviðs- tilfinningu, að öll innréttingin mundi hrynja, ef slegið væri í hana á einum stað. En ofhlæði Madonnu við Rauð- arárstíg er þægilegt og rómantískt, stutt lágværri úperutónlist og svo daufri lýsingu lampa og kerta, að nálgast myrkur um miðjan dag. Þröngur inngangur fyrir miðju skiptir staðnum í tvo jafna og svipaða Veitingahús Jónas Kristjánsson Á veggjum eru ítölsk mótíf í ótal smámyndum. Flest borðin eru í þröngum og bakbröttum básum fyrir kjörþyngdarfólk, en aörir geta setiö á virðu- legum tréstólum úti á gólfi. hluta, með gangvegi og eldhúsaf- greiðslu á milli. Á veggsyllum er mik- ið af tómum vínflöskum frá Spáni og alls konar kraðaki. Á veggjum eru ítölsk mótíf í ótal smámyndum. Þjón- usta er góð og bezt, þegar hún er ítal- skrar ættar. Flest borðin eru i þröngum og bak- bröttum básum fyrir kjörþyngdarfólk, en aðr- ir geta setið á virðulegum tréstólum úti á gólfi. Undir glerplötu er borðdúkur og ofan á er samstætt blómamynztur í kryddstaukum, olíukönnu, blómavasa, öskubakka og jafnvel lampa. Rómantíska stemningin kostar ekki mikið. Tólf tommu pitsur kosta 980 krónur og níu tommu 870 krónur, pöstumar 950 krónur. í hádeginu kosta súpa og einn af réttum dags- ins að meðtaltali 935 krónur og þríréttað að kvöldi 1945 krónur. Ef valið er af matseðli kostar þríréttuð máltíð með kaffi um 2620 krónur. Stuttur vínlisti býr yfir traustu og ódýru víni frá Spáni, Frakklandi og Ítalíu, sum til í hálfflöskum. Húsvínið er raunar fransk- ur Merlot ágætur, á 430 krónur glasið. Humarsúpa var vel rjómuð, rauð og matarleg, með meyrum humri, afar vel heppnuð. Lauksúpa var snarpheit og góð, undir þykku lagi af brauði og osti. Grænmetissalat var stökkt og ferskt og fjölbreytt, með jöklasalat að grunni og ostasósu til hliðar. Italskt salat var með olífum, salami og túnfiski til viðbótar. Grænmetispitsan var góð, hæði botn og fyll- ing. Fettucine pastaræmur með humri í skel- fisksósu voru afar vel heppnaðar, mátulega soðnar og bragðljúfar. í hádegi var pönnusteikt ýsa sennilega fryst og lítillega of lengi elduð, þynnri hlutinn Sigurbjörn í Óperunni Næstu tónleikar á vegum Styrktarfélags íslensku óperunnar verða haldnir í ís- lensku óperunni á laugardaginn kl. 14.30. Þar leikur hinn ungi og snjalli fiöluleikari, Sigurbjöm Bernharðsson, sónötu eftir Brahms og verk eftir Paganini, Webern, Ra- vel og Þorkel Sigurbjörnsson og með hon- um leikur John Howsmon,, pianóleikari frá Bandaríkj-; unum. Þeir félagar hafa/ | gefið út geisladisk saman. Sigurbjörn hóf fiðlunám j | sex ára gamall og lauk ; einleikaraprófi frá Tón- listarskólanum í Reykja- vík aðeins nítján ára. Hann hefur hlotið margs 1 konar viðurkenningar og verðlaun og var meðal annars einn af leiðurum strengjasveitar ESTA í Englandi undir stjórn Y. Menhuin. í haust var hann aðstoð- arkonsertmeistari í Sinfóníuhljómsveit South Bend borgar. Hann stundar nú mast- ersnám við tónlistarháskólann í Illinois í Bandaríkjunum. Kammermúsíkklúbburinn leikur Schubert íslendingar verða rækilega minntir á það næstu mánuöi að í ár eru 200 ár síðan aust- i urríska tónskáldið Franz Schubert fæddist. Nákvæmlega gerðist það í Vínarborg 31. janúar 1797. Sérstök Schubert-hátíð verður haldin í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalinskirkju í Garðabæ, frá 18. janúar til j 17. mai undir stjóm Ingunnar Ásdísardótt- ur og Gerrit Schuil en á sunnudaginn kl. 20.30 ríður Kammermúsíkklúhburinn á vaðið með Schubert-tónleikum í Bústaða- kirkju. Á efhisskránni verða tvö verk, Tríó í B- dúr op. 99, D. 898 frá 1827 og Kvintett í C- dúr op. 163, D. 956 frá 1828. Flytjendur em Tríó Reykjavíkur ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Sigurbirni Bern- harðssyni og David Wells. Birtir til á nv Hafnarfjarðarleíkhúsið Hermóður og Háðvör hefur hafið sýningar að nýju á Birt- ingi sem vakti verðskuldaða athygli á haust. Hróður sýningarinnar hefur borist i út fyrir landsteinana - enda félagið frægt um nærliggjandi lönd fyrir rómaða sýn- ingu á Himnaríki eftir Áma Ibsen - og hef- ur aðstandendum____________ veriö boðið á tvær stórar leiklistarhá- tiðir. Önnur er í Þránd- heimi í til- efni af 1000 ára afmæli borgarinn- ar, hin heitir _ LIFE og er haldin í Vilníus í Lit- háen. Auk þess er Birtingur til skoðun- ar hjá fleiri hátíðum. Hér heima eru einungis áætlaðar sýning- ar út janúar og em áhugamenn um leikhús vinsamlegast beðnir að láta ekki þetta happ úr hendi sleppa. í fréttatilkynningu frá leikfélaginu kem- ur einnig fram að Hilmar Jónsson leik- stjóri hafi tekið við nokkram hlutverkum Höllu Margrétar Jóhannesdóttur í sýning- unni en hún eignaðist dreng 4. janúar. „Allt er gott, allt gengur vel og allt mið- ar til hins besta í Hafnaifjarðarleikhús- inu! Aukasýningar á Stone Free Það er ekki að því að spyrja með íslend- inga og Jim Cartwright: við elskum hann og viljum ekki sleppa honum. Nýjasta sýn- ingin hérlendis á verki eftir hann, Stone Free á vegum Leikfélags Islands í Borgar- leikhúsinu, átti að vera sumarsmellur en hreinlega getur ekki hætt vegna brjálaðrar aðsóknar. Enn hefur verið bætt við auka- sýningum sem hér segir: 17.1. kl. 22,19.1. kl. 20, 24.1. kl. 20 og sama kvöld kl. 23. Það verður allra síðasta sýningin vegna þess að Ingvar E. Sigurðsson hverfur eftir hana af landi brott um hríð. Miðasala á þessar aukasýningar gengur greitt og fólk er hvatt til að bíða ekki með að panta ef það ætlar að skella sér. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.