Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 37 Páll Pampichler Pálsson stjórn- ar Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld. Vínar- tónleikar Hinir árlegu Vínartónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands verða í Háskólabíói í kvöld og eru einsöngvarar Rannveig Fríöa Bragadóttir og Ólafur Ámi Bjamason. Stjómandi er Páll Pampichler Pálsson. Tón- leikarnir verða síðan endur- teknir annað kvöld. Páll Pampichler er fæddur og alinn upp í Austurríki og drakk því í sig Vínartónlistina með móðurmjólkinni. Hann kom til íslands 1949, þá 21 árs að aldri, og þegar Sinfóníuhljómsveitin var stofnuð réðst hann sem trompetleikari í hana. Tveimur árum síðar var hann farinn að stjóma hljómsveitinni og var fastráðinn hljómsveitarstjóri hennar i hartnær 40 ár. Tónleikar Rannveig Fríða Bragadóttir er fastráðinn einsöngvari við Vínarópemna þar sem hún hef- ur sungið undir sljóm heims- þekktra hljómsveitarstjóra. Má þar nefna Herbert von Karajan, Sir George Soltis, Claudio Abbados o.fl. Hér á landi hefúr Rannveig Fríða haldið fjölda tónleika, auk þess að taka þátt í óperuuppfærslum. Ólafur Ámi Bjamason hefur tekið þátt í ópemuppfærslum á Spáni og í Suður-Ameríku. Árið 1995 var hann í hópi fimm ten- óra sem komust í úrslit í Jussi Björling-keppninni í Svíþjóð. Ólafur hefur hlotið margvísleg- ar viðurkenningar fyrir söng sinn, þar á meðal námsstyrk frá Metropolitanóperunni. Centaur á Bar í Strætinu Blússveitin Centaur, sem sló í gegn á sínum tíma, kemur sam- an á Bar í Strætinu, Austur- stræti 6, í kvöld, kl. 23, og blús- ar árið inn. Þeir sem skipa Centaur eru: Pálmi Sigurhjart- arson, pianó, Siggi Sig., söngur, munnharpa, Guðmundur Gunn- laugsson, trommur, Hlöðver Ell- ertsson, bassi, og Einar Þor- valdsson, gítar. Félag eldri borgara í Reykjavík Bridge, tvímenningur, verður spilaður 1 Risinu í dag, kl. 13. Samkomur Fyrirlestur um forsorg Fyrirlestur hjá Nýrri dögun verður haldinn i kvöld, kl. 20. Andrés Ragnarsson sálfræðing- ur mun fjalla um forsorg. Þetta er sorgarferli sem litið hefúr verið íjallað um. Er hægt að syrgja áður en ástvinur deyr? Getur dauöinn verið lausn? Hvaöa tilfmningalegar flækjur hefur það í för með sér ef mað- ur hugsar á þann veg? Ný dög- un, samtök um sorg og sorgar- viðbrögð, er öllum opin. Skemmtanir Gítartónleikar á Hvammstanga: Bach og Nirvana Gítarleikarinn Kristján Eldjám fer norður yfir heiðar og heldur tónleika í Félagsheimil- inu á Hvammstanga í kvöld, kl. 21. Kristján lauk burtfararprófi í klassískum gitarleik frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar síðast- liðið vor. Áður hafði Kristján lokið burtfarar- prófi í djassgitarleik frá Tónlistarskóla FÍH. Efnisskrá Kristjáns á tónleikunum er hin fjölbreyttasta. Auk spænskrar tónlistar, sem er í hávegum höfð á tónleikunum, spannar efnis- skráin svið sem nær frá 1. lútusvítu Johanns Sebastians Bach til lagsins All Apologies sem flutt var af hinni vinsælu hljómsveit Nirvana en Kristján hefúr útsett lagið fyrir klassískan gítar. Kristján Eldjám, sem jöfnum höndum leikur á klassískan gítar og rafmagnsgítar, hefur und- anfariö leikið á höfuðborgarsvæðinu ásamt djasstríói sínu. Tónleikamir á Hvammstanga eru á vegum Tónlistarfélags V-Húnavatns- sýslu. '* Kristján Eldjárn verður með fjölbreytta efnisskrá á tónleikum sínum. Hálka á þjóðvegum Helstu þjóðvegir landsins eru færir, en yfírleitt er hálka. Snjór er einnig viða á vegmn, einkanlega á Norðaustur- og Austurlandi. Ein- staka leiðir í þessum landshlutum eru ófærar vegna snjóa, til að Færð á vegum mynda Öxarfjarðarheiði, Hellis- heiði eystri og Mjóafjarðarheiði. Þá er Lágheiði á Norðurlandi einnig ófær. Ekki er mikið um að vega- vinnuflokkar séu á ferðinni á þess- um árstíma, en þó má geta þess að verið er að vinna á Suðurlandsvegi að Galtalæk. Ástand vega E1 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát @ Öxulþungatakmarkani án^rstóðu [T]Þungfært 0 Fært fjallabílum Litla systir Stefaníu og Stefáns Þessi myndarlega stúlka fæddist á fæðingar- deild Landspítalans 1. desember, kl. 1.53. Þegar hún var vigtuð reyndist Barn dagsins hún vera 4170 grömm að þyngd og hæðin var 52 sentímetrar. Foreldrar hennar eru Guðrún Lind Waage og Stefán Stefáns- son. Hún á tvö eldri systkini, Stefaníu Lind, sem er tólf ára, og Stefán Val sem er tveggja ára. dagsöilP Strákarnir í Wonders fá nasasjón af frægðinni í smátíma. That Thing You Do That Thing You Do, sem sýnd er í Regnboganum, er frumraun Tom Hanks sem leikstjóra. Gerist myndin sumarið 1964. Guy Patt- erson er sölumaður í rafvöru- verslun foður síns í Eire, Penn- sylvaníu. Á daginn selur hann brauðristar og útvarpstæki en á kvöldin læðist hann ofan í kjall- ara, sest við trommusett og hverf- ur á braut inn í mjúkan heim djassins. Hann er samt meira en lítið tilbúinn að rokka þegar skólahljómsveitin býður honum að vera staögengill fyrir slasaðan trommuleikara á tónleikum sem halda á í menntaskólanum. Mán- uði síðar eru The Wonders, nýju stjörnurnar hjá Play-Tone plötu- útgáfufyrirtækinu, með plötu- samning í höndunum og fyrir dyrum tónleikaferðalag og boð um að koma til Hollywood. Kvikmyndir Ungir og óþekktir leikarar leika hljómsveitarmeðlimi en Liv Tyler, sem leikur kærustu eins þeirra, hefúr aftur á móti skotist upp á stjörnuhimininn eftir frammistöðu sína í Stealing Beauty. Nýjar myndir: Háskólabíó: Sleepers Laugarásbíó: Flótti Kringlubíó: Lausnargjaldið Saga-bió: Saga af morðingja Bíóhöllin: Jack Bíóborgin: Hringjarinn í Notre Dame Regnboginn: That Thing You Do Stjörnubíó: Matthildur Krossgátan 4 i 3 <+ *■ 1 r- V I Tó ir i Jj nc 1 JT~ ir mmm 18 j Lárétt: 1 vinnubrögð, 7 kvenmanns- nafn, 8 kyrrð, 10 röng, 11 stækkuðu, 12 stafur, 14 blaðurs, 16 andvörpum, 18 sáldið, 19 leyfist. Lóðrétt: 1 drápu, 2 ást, 3 auðugustu, 4 tæpu, 5 draup, 6 blöð, 9 beiðni, 13 röð, 14 fugl, 15 vanvirða, 16 ætið, 17 viðvíkjandi. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 hrís, 5 sál, 8 lögun, 9 lá, 10 ágerast, 11 lurgur, 14 erði, 16 tíð, 17 gil, 19 laka, 21 ið, 22 áleit. Lóðrétt: 1 hlálegi, 2 rög, 3 ígerð, 4 surg, 5 snauta, 6 áls, 7 látið, 12 urið, 13 riki, 15 ill, 18 lá, 20 at. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 9 09.01.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 67,320 67,660 67,130 Pund 113,990 114,580 113,420 Kan. dollar 49,690 50,000 49,080 Dönsk kr. 11,1870 11,2460 11,2880 Norsk kr 10,3730 10,4300 10,4110 Sænsk kr. 9,6630 9,7160 9,7740 Fi. mark 14,2740 14,3580 14,4550 Fra.franki 12,6290 12,7010 12,8020 Belg. franki 2,0691 2,0815 2,0958 Sviss. franki 49,1700 49,4400 49,6600 Holl. gyllini 38,0000 38,2200 38,4800 Þýskt mark 42,6600 42,8800 43,1800 ít. líra 0,04354 0,04381 0,04396 Aust. sch. 6,0620 6,1000 6,1380 Port. escudo 0,4262 0,4288 0,4292 Spá. peseti 0,5068 0,5100 0,5126 Jap. yen 0,57870 0,58220 0,57890 írskt pund 111,820 112,520 112,310 SDR 95,56000 96,14000 96,41000 ECU 82,8300 83,3300 83,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.