Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1997, Page 13
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
13
Fréttir
Heilsuátak DV, Bylgjunnar og World Class:
Vil losna við grautar-
vömbina og síðutankana
- segir Margrét Blöndal útvarpskona
„Ég ætla að vera laus við þessa
grautarvömb og síðutanka og heiti
því að lærin verða komin upp úr
skónum í lok átaksins. Ég er í því-
líku keppnisstuði og hlakka mjög til
að takast á við þetta,“ sagði Margrét
Blöndal útvarpskona fjallhress. Hún
og Guðrún Gunnarsdóttir söngkona,
sem sér um Þjóðbrautina á Bylgj-
unni, ætla að keppa um það hvor
þeirra kemst í betra form á meðan
heilsuátakið stendur yfir.
Gjörsamlega ofboöiö
„Við erum bara venjulegar kerl-
ingar, Rúna á 3 lítil börn og ég er að
reyna að hætta að reykja, sem eru í
þessu afleita hversdagsformi. Við
höfum margoft tuðað yfir því að
ætla að koma okkur í betra form og
byrjuðum t.d. á því að ætla í göngu-
túr á fimmtudagskvöldum en fórum
nákvæmlega einu sinni. Það kom
alltaf eitthvað upp á þangað til það
dó. Svo byrjaði ég í líkamsrækt í
nóvember en var svo stálheppin að
detta og bráka í mér rif svo ég slapp
algjörlega við að hreyfa mig. Þá datt
samstarfsmanni okkar þetta í hug
en viðurkennir þó ekki að honum
hafi gjörsamlega ofboðið að sjá okk-
ur saman,“ sagði Margrét.
Þorgeir klappstýra
Guðrún er illa fjarri góðu gamni,
fársjúk heima í rúmi, og Margrét
fær því forskot á hana. Hún er
ákveðin í því að mæta 4 sinnum í
viku í líkamsrækt og fara í sund á
Skynsamleg
mataráætlun
%. Taktu ákvörðun um það fyrir fram
hvað þú ætlar aö hafa í matinn eða
borða á milli mála. Maðurfær sér miklu
frekar fituríkan mat ef ekki er búið að
spá í hvað á að láta ofan í sig.
2. Settu saman máltíðir sem inni-
halda flölbreyttan mat sem öll fjölskyld-
an kemur til með að njóta áður en þú
ferö að kaupa í matinn. Kynntu fyrir fjöl-
skyldunni nýja og holla matvöru með
því að kaupa eina nýja tegund í hverri
búöarferð, t.d. grænmeti eöa framandi
ávöxt.
3. Kauptu ekki í matinn þegar þú
ert svöng/svangur. Haltu þig við inn-
kaupalistann og láttu ekki freistast til
að kaupa neitt annað.
4. Vendu þig á að kaupa skynsam-
legar matvörur. Líkaminn getur auðveld-
lega breytt fitu í munninum í appelsínu-
húð á lærunum. Byrjaöu á því að minnka
fituna í fæðunni og snúðu þér frekar aö
kolvetnarikri fæðu, eins og brauði, grófu
morgunkorni, heilhveiti, baunum, ávöxt-
um og grænmeti.
5. Fáðu þér matreiðslubók sem hef-
ur að geyma heilsusamlegar uppskrift-
ir ef þú ert I vandræðum með að útbúa
hollar máltíðir. -ingo
Margrét Blöndal er ákveðin í aö koma sér í betra form og er þar í samkeppni
viö samstarfskonu sína á Bylgunni, Guörúnu Gunnarsdóttur söngkonu.
DV-mynd
laugardögum til að
losa sig við 5 kíló.
„Svo verðum við
náttúrlega með
leyniprógrömm og
stuðningsmenn sem
við látum ekki uppi.
Annars er hann Þor-
geir Ástvaldsson bú-
inn að lofa að vera
amerísk dúskstúlka
(klappstýra),“ sagði
Margrét.
s>
Hættir líka aö
reykja
Margrét stefnir jafnframt að því
að hætta að reykja þann 24. janúar
næstkomandi, sama dag og hún
hætti fyrir þremur
árum. „Þá stóð ég
mig í 2 ár en fitnaði
líka um 15 kUó og
grét í hálft ár yfir
því (10 kg hurfu
strax við að byrja
aftur). Svo grét ég í
1H ár yfir þvi hvað
ég var orðin feit og
ljót. Nú ætla ég að
fara öðruvísi að, þ.e.
byrja í líkamsrækt
og hætta svo. Það
verður því baming-
ur að ætla að losna
við 5 um leið og ég hætti að reykja,"
sagði Margrét sem reykir meira en
pakka á dag.
Holl grænmetispitsa
2 hvítlauksrif, fint söxuð
y2 b. fínskorin skinka,
fitusnauð og lítið söltuð
1 b. niðursneiddir sveppir
2 tómatar, skomir í litla bita
3 b. spínat, tætt í sundur
1 niðursneidd paprika
tilbúinn pitsubotn
V2 b. geita- eða fetaostbitar.
olia úr úðabrúsa
krydd eftir smekk
I
Úðið olíu á pönnu og hitið að
meðalhita. Setjið hvítlauk, skinku
og sveppi á pönnuna og hitið í 2
mín. Bætið tómötunum, spínat-
inu og paprikunni út í og hitið í
u.þ.b. 2 mín. í viðbót og hrærið í
þessu á pönnunni. Setjið blönd-
una á botninn, kryddið eftir
smekk og stráið ostinum yfir.
Bakið við 175°C í u.þ.b. 15 mín„
eða þar til pitsan er tilbúin. Upp-
skriftin dugar fyrir fjóra. -ingo
Þinghólsskóli:
Mikið tjón vegna rúðubrota
„Það voru brotnar 68 rúður hér
í skólanum á síðasta ári og það er
ljóst að þetta er mikið tjón. Þó
held ég að við sleppum vel miðað
við marga aðra skóla þar sem rúð-
ur em brotnar í enn meiri rnæli,"
segir Guðmundur Oddsson, skóla-
stjóri Þinghólsskóla í Kópavogi.
Tjónið vegna þessara 68 rúðu-
brota nemur um 800 þúsund krón-
ur og ljóst að margir skólar þurfa
að borga háar fjárhæðir á hverju
ári vegna rúðubrota og annarra
skemmdarverka.
„Þetta er auðvitað mjög slæmt
en það er erfitt að eiga við þetta
því þessi skemmdarverk em unn-
in á kvöldin og um helgar þegar
enginn er í skólanum. Þetta er
ekkert nýtt fyrirbrigði því þetta er
búið að viðgangast í fjöldamörg
ár. Það þyrfti auðvitað að ná þeim
sem gera þetta og láta þá borga
skaðann en það er hægara sagt en
gert,“ segir Guðmundur.
-RR
Innbyggt samviskubit
Hún sagði vandamál fólks oft fel-
ast í því að finna tíma fyrir líkams-
ræktina. „Þegar það er kannski allt
í drasli heima hjá þér og bömin þín
þreytt og svöng labbar þú ekkert út
og nýtur þess að dúlla við þig í lík-
amsrækt. Það er þetta innbyggða
samviskubit í íslenskum mömmum
sem kemur í veg fyrir það. Maður
þarf bara að læra að finna tíma fyr-
ir þetta og virða hann.“ -ingo
Karatedeild HK
Karatefélag Vesturbæjar Símar: 555-3435 og 555-3436
KARATE
Byrjendanámskeið
eru að
hefjast!!!
Barnaflokkar
frá fimm ára
Unglingaflokkar
Fullorðinsflokka
Kópavoai,
Reykjavik-Vesturbæ
fsetning og innsiglun
Bjóöum nýja ökurita frá VR ásamt ísetningu og innsiglun á öllum gerðum rafdrifinna ökurita.
HEKLA
véladeild
Laugavegi 170-174,
sími 569 5500
AKUREYRI
r///////////////////,
Blaðbera vantar í syðri brekkuna.
Upplýsingar gefur umboðsmaöur DV
í síma 462 5013