Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Side 4
4
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
Fréttir
Samherji, eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins, metið á 7 til 8 milljarða:
Frændurnir þrír eiga
rúma 2 milljarða hver
- fyrirtækið gerir nú út 11 frystitogara, 5 ísfisktogara og tvö fjölveiðiskip
Hvort þeir Samherjafrændur,
bræðurnir Þorsteinn og Kristján
Vilhelmssynir og Þorsteinn Már
Baldvinsson, eru ríkustu menn
landsins skal ósagt látið en þeir eru
í hópi þeirra allra ríkustu. Þeir eiga
Samherja á Akureyri, sem orðinn er
eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki
landsins og gerir út 18 fiskiskip frá
4 löndum. Áður en Samherji yfirtók
Guðbjörgu ÍS með sinn 3.500 tonna
kvóta var hann metinn á 7 til 8
mifljarða króna. Það getur orðið
meira ef hlutabréf sem til stendur
að selja innan skamms fara á hærra
verði en gert er ráð fyrir i þessu
mati. Það þýðir að frændurnir þrír
eiga 2,3 til 2,5 miUjarða króna hver
hið minnsta.
Það var árið 1983 sem þeir frænd-
ur keyptu fyrsta togarann, gamlan
ryðkláf sem hét Guðsteinn. Þeir létu
gera hann upp og gáfu honum síðan
nafnið Akureyrin EA. Og á þeim 14
árum sem síðan eru liðin hefur fyr-
tækið stækkað svo að í dag á það 11
frystitogara, 5 ísfisktog-
ara, tvö fiölveiðiskip,
tvær rækjuverksmiðj-
ur, eina sildar- og
loðnuvinnslu og sölu-
skrifstofu í Englandi.
Floti þeirra Sam-
herjamanna er gerður
út frá fiórum löndum.
Frá íslandi eru gerðir
út 8 togarar og 2
fiölveiðiskip, tveir tog-
arar eru gerðir út frá
Færeyjum, fiórir frá
Þýskalandi og fiórir frá
Bretlandi. Veiðisvæði
þessa skipastóls er í ís-
lensku fiskveiðilögsög-
unni, á Reykjanes-
hrygg. í grænlensku
landhelginni, í norskri
og rússneskri lögsögu, í
Smugunni, við Sval-
barða, í Norðursjó, á
Hattonbanka og í
kanadískri lögsögu.
Þeir Samherjafrændur eru í hópi allra ríkustu íslendinga ■ dag. Gera má ráð fyrir að
frændurnir þrfr eigi nær 2,5 milljarða króna hver.
Eignir Samherja Eignaskipting hluthafa Samherja
Kvóti ca 25.000 þúsund tonn Þorstelnn Vilhelmsson
11 frystitogarar Þorstelnn Már Baldvlnsson
5 Tsfisktogarar É 2,3-2,5 2,3-2,5
2 fjölveiöiskip M mllljar&ar mllljarðar
2 rækjuverksmiðjur
STIdar- og loðnuvinnsla Söluskrifstofa T Englandi - 2,3-2,5 mllljarðar Kristján Vilhelmsson —
Samtals 7-8 mllljar&ar króna
Árið 1996 var velta Samherja á
íslandi 5,5 milljarðai- króna, í
Færeyijum 400 milljónir og í
Þýskalandi 2,1 milljarður. Heild-
arveltan var því 7,8 milljarðar
króna. Áætlaðar nettóskuldir
Samheija eru 3,4 milljarðar króna
og aukast nú um einn milfiarð
króna við yfirtökuna á Guðbjörgu
ÍS.
Samsetning kvóta Samheija er
þannig að fyrirtækið hefur yfir að
ráða bolfiskkvóta, loðnu- og síld-
arkvóta og rækjukvóta.
Þá er Samheiji með matvæla-
vinnslu í landi. Þar er um að
ræða rækjuvinnslu, kavíar-
vinnslu, síldar- og loðnuvinnslu
og ýmsa framhaldsvinnslu í
tengslum viö sjóvinnslu frysti-
togaranna.
-S.dór
Landsbankaútibú:
Kveikt í á
þremur
stöðum
Maður sem ætlaði í hraðbanka í
útibúi Landsbankans við Lang-
holtsveg um hádegi á laugardag til-
kynnti slökkviliðinu í Reykjavík
um reykjarlykt í húsinu. Þegar
komið var á staöinn kom í ljós að
reynt hafði verið að kveilfia eld á
þremur stöðum við húsið utandyra,
við hraðbankann, í hurð annars
staðar á húsinu og síðan í falsi við
glugga. Tuttugu sentímetra horn
hafði brunnið úr hurðinni og ytra
glerið sprungið í glugganum. Ljóst
er að ekki hefur mátt miklu muna
að kviknaði í húsinu.
Ekki er talið ósennilegt að
þama hafi sami maður, eða
menn, verið að verki og í Laugar-
dalnum því ljóst er að eldurinn
hefur verið kveiktur fyrr um
morguninn eöa um nóttina.
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur að rannsókn beggja
íkveikjanna en í gær hafði enginn
botn fengist i þau mál. -sv
íslendingur
með hass og
falsaða seðla
íslendingur á sjötugsaldri var
handtekinn á Keflavíkurflugvelli á
fimmtudag með nokkur grömm af
hassi og um 35 falsaða sænska þús-
undkrónaseðla. Maðurinn var að
koma frá Svíþjóð og hefur hann
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald. Talið er að peningamir séu
frá 1994 þegar upp komst um pen-
ingafalsara í Svíþjóð. Gnrnar
menn að enn séu ekki allir pening-
arnir frá þessum tíma komnir í
umferð. Málið er í rannsókn. -sv
Velta í Norðurárdal:
Þrennt á
sjúkrahús
Bíll fór út af veginum í Norður-
árdal seinnipart dags í gær.
Þrennt var í bílnum og vom öll
flutt á sjúkrahús á Akranesi.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Borgamesi var ökumað-
urinn töluvert slasður en hin
virðast hafa sloppið betur. -sv
Dagfari
Góðkunningjar lögreglunnar
Menn hafa verið að furða sig á
því hvers vegna dæmdur sakamað-
ur fékk uppáskrifuð meðmæli um
byssuleyfi frá sjálfum yfirmanni
fíkniefnadeildar lögreglunnar. Öllu
geta Qölmiðlamir hneykslast á.
Eins og það sé einhver frágangssök
þótt lögreglumaður skrifi upp á
fyrir tukthúslim.
Þvert á móti er full ástæða til að
halda að lögreglumaður sem hefur
verið í nánu sambandi við afbrota-
mann, bæði með því að yfirheyra
hann tímunum saman og eiga við
hann samneyti meðan afbrotamað-
urinn situr inni, hafi öll tök og öll
skilyrði til að kynnast afbrota-
manninum betur en flestir aðrir.
Lögreglumaðurinn er með öðrum
orðum hæfari til þess en aðrir
þjóðfélagsþegnar að meta persónu-
leika tukhúslimsins og heiðarleika.
Þar að auki er miklu farsæfla að
leyfa afbrotamönnum að ganga um
með byssur heldur en öðru fólki.
Síbrotamaðurinn kann með skot-
vopn að fara og beitir þeim aðeins
þegar hann þarf að veija hendur
sínar eða þegar hann ræðst til at-
lögu í afbrotum sínum en að öðru
leyti notar afbrotamaður ekki byss-
ur á almannafæri. Öðru máli gegn-
ir um óbreytta borgara sem kunna
engan veginn að umgangast skot-
vopn og brúka þau mun frjálslegar
- elta uppi málleysingja til heiða og
skynlausar skepnur til að aflífa
þær.
í Bandaríkjunum hafa staðið
linnulausar deilur um meðferð
skotvopna og einkaeign þeirra.
Morð eru þar tíð og misnotkun á
byssum afar algeng. Oftast er þar
um að ræða fólk sem lögreglan veit
engin defli á og kemst aldrei í kast
við lögin. Þetta fólk grípur til
vopna sinna á ólíklegustu tímum
og murkar lífið úr nágrönnum sín-
um eða vegfarendum af minnsta
tilefni.
íslenskir lögreglumenn hafa
dregiö sínar ályktanir af þessari
reynslu fyrir vestan og treysta eng-
um fyrir skotvopnum nema-þeim
einum sem hafa komist í kast við
lögregluna. Þeir vita sem er að
fíkniefnaheimurinn er hættulegur
þeim sem þar starfa og slíkir menn
þurfa að veija sig fyrir fiklum sem
ekki vita sitt ijúkandi ráð þegar
fikniþörfin sækir á þá. Þess vegna
er það réttmæt ákvörðun og skyn-
samleg hjá yfirmanni fikniefna-
deildar lögreglunnar að mæla með
þeim aðilum sem hún þekkir út í
hörgul og skrifa undir meðmæli
um byssuleyfi þeim til handa. í
fikniefnaheiminum er hættan mest
og þar er afar fáum að treysta og
lögreglan, og þá sérstaklega yfir-
menn hennar, þekkja þennan heim
og vita hveijum er hægt að treysta
fyrir byssum og hveijum ekki.
Þetta auðveldar starf lögreglunn-
ar að mun. Gefum okkur það að
skotbardagi brjótist út eða þá að
einhver í undirheimunum finnist
með skotsár eftir átök. Þá getur
lögreglan strax rakið slóðina ef
hún veit hveijum hún hefur mælt
með tfl aö ganga um með byssur.
Rannsóknin gengur hratt og örugg-
lega fyrir sig vegna þess að þeir
einir koma til greina sem árásar-
menn sem lögreglan hefur mælt
sérstaklega með - góðkunningjar
lögreglunnar, mennimir sem lög-
reglan treystir á og treystir til að
fara þannig með byssumar að
hægt sé að rekja slóð þeirra sam-
stundis. Skjólstæðingar lögregluyf-
irvalda eru nefnflega pottþéttir
menn að því leyti að þeir koma aft-
ur og aftur og eiturlyfiasmygl og -
sala er þeirra atvinnugrein og þeir
eru fastagestir í tukthúsinu.
Svoleiðis menn klikka ekki og
byssueign auðveldar öll lögreglu-
störf og styrkir öryggi almennra
borgara.
Dagfari