Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997 AUKIN ÖKURÉTTINDI LEIGUBIFREIÐ VÖRUBIFREIÐ HÓPBIFREIÐ Ökuskóli íslands býSur hagnýtt nóm undir leiösögn færra og reynslumikilla Kennara. NámskeiS eru aS hefjast! Góð kennsluaÖstaða og úrvals æfingabifreiðar. EkGMENNS/c^ Ökuskóli Islands í FYRIRRÚMI Öll kennslugögn innifalin. Hagstætt verð og góð greiðslukjör. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði félaga sinna. Fréttir „Mikiö er um að fólk setji sér óraunhæf markmiö þegar þaö byrjar aö æfa, svona svipaö og aö koma inn á hár- greiöslustofu meö mynd af Madonnu og segjast vilja veröa eins og hún,“ sagöi Sölvi. Hér aöstoðar hann viöskipta- vin í tækjasal. DV-mynd Pjetur Heilsuátak DV, Bylgjunnar og World Class: Óraunhæf mark- mið og trú á skyndilausnir - eru helstu mistök byrjenda í líkamsrækt Hafðu samband og við sendum þér allar nónari upplýsingar um leið. Dugguvogi 2 104 Reykjavík S: 568 3841 Smóauglýsingar „Það er mikið um að fólk setji sér óraunhæf markmið þegar það byrj- ar að æfa, svona svipað og að koma inn á hárgreiðslustofu með mynd af Madonnu og segjast vilja verða eins og hún,“ sagði Sölvi Fannar Viðars- son, þjáifari í likamsræktarstöðinni World Class. Við leituðum til hans og spurðum hvaða mistök væri al- gengast að fólk gerði þegar það byij- ar að æfa. „Einnig er fólk oft að leita að skyndilausnum, t.d. í sambandi við megrun, en raunin er sú að þær eru fáar sem engar. Svo virðast margir koma á líkamsræktarstöðvamar til friðþægingar og spá ekkert í matar- æðið heldur halda að það sé nóg fyr- ir þá að æfa,“ sagði Sölvi. Hann sagði einnig að almennt teygði fólk ekki nógu vel eftir æfingar, sem væri mjög mikilvægt þar sem stoð- vefírnir gengju saman yfir nótt, og að upphitun fyrir æfingar væri ábótavant. Dútl í tækjasal „Ég ráðlegg fólki eindregið að byrja ekki of geyst í líkamsrækt. Karlmenn eru sérstaklega slæmir Skynsamleg mataráætlun 1. Taktu ákvöröun um þaö fyrir fram hvaö þú ætlar aö hafa í matinn eöa boröa á milli mála. Maöur fær sér miklu frekar fituríkan mat ef ekki er búiö aö spá í hvaö á aö láta ofan í sig. JL. Settu saman máltíðir sem inni- halda fjölbreyttan mat sem öll fjölskyld- an kemur til meö að njóta áður en þú ferö aö kaupa i matinn. Kynntu fyrirfjöl- skyldunni nýja og holla matvöru meö því að kaupa eina nýja tegund í hverri búðarferð, t.d. grænmeti eöa framandi ávöxt. á. Kauptu ekki I matinn þegar þú ert svöng/svangur. Haltu þig viö inn- kaupalistann og láttu ekki freistast til aö kaupa neitt annað. 4 . Vendu þig á aö kaupa skynsam- legar matvörur. Líkam'nn getur auöveld- lega breytt fitu í munninum í appelsínu- húö á lærunum. Byrjaöu á því að minnka fituna í fæðunni og snúðu þér frekar að kolvetnarikri fæöu, eins og brauði, gröfu morgunkorni, heilhveiti, baunum, ávöxt- um og grænmeti. 5. Fáðu þér matreiðslubók sem hef- ur aö geyma heilsusamlegar uppskrift- ir ef þú ert í vandræðum með aö útbúa hollar máltíðir. -Ingo með það en margir þeirra byrja með miklum látum og liggja svo í 2-3 daga í rúminu með harðsperrur. Það er líka algengt, sérstaklega með kvenfólk, að það kemur í tækjasal- inn og er í einhverju dútli. Árangur- inn verður þá svipaður og áreitið, eða eins og Biblían segir: „Svo sem þú sáir munt þú uppskera." Jákvætt aö skemma vöövana Að sögn Sölva má setja þetta upp svona: Árangur = æfingarálag + inn- byrt hráefni + hvíldartími. „Þegar fólk æfir, og nú er ég aðal- lega að tala um mótstöðuæfingar (lóð), er það í raun að skemma vöðvatrefjar. Það er því i raun spuming um hvíldartíma eftir æf- ingar og hversu gott hráefni líkam- inn fær til að byggja upp vöðvavef- inn aftur hvort hann verður samur og áður eða betri," sagði Sölvi. Hann sagði það jákvætt að skemma vöðvana væri það gert innan vissra marka. „Það er ekki sniðugt að djöflast. Þetta er spurning um þetta fina jafnvægi sem íþróttamenn era alltaf að kljást við. Þeir mega ekki æfa of mikið til að skemma ekki of mikið af vöðvatrefjum né of lítið því þá ná þeir ekki að skapa nóg álag til að líkaminn taki við sér og þeir bæti sig.“ Mataræðiö mikilvægt „Mataræðið skiptir alveg gífur- legu máli, bæði varðandi fitupró- sentuna í líkamanum og hvemig likamanum gengur að jafna sig eftir æfingar. Það skiptir t.d. heilmiklu máli hvemig kolvetni er borðað því þegar æft er er verið að æfa á orku sem hefur verið geymd i líkaman- um jafnvel þremur dögum áður, og hitaeiningamar skipta líka miklu máli. Það hefur sýnt sig að þegar fólk borðar fitu þá fitnar það en þótt það borði sama hitaeiningamagn af kolvetnum og prótíni þá fitnar það ekki.“ 10 kílóa breyting sýndi 2 kg þyngdartap „Mér finnst fólk ekki fylgjast nógu vel með fituprósentu og um- málsmælingu sem flestar líkams- ræktarstöðvar bjóða upp á. Það var t.d. ósköp venjulegur maður i einka- þjáifun, púlaði stíft 6 sinnum í viku í heilan mánuð og passaði vel upp á mataræðið. í lok mánaðarins steig hann á vigtina og hafði þá einungis lést um 2 kg. Þegar betur var að gáð, með ummáls- og fitumælingum, hafði hann tapað 6 kg af fitu og bætt á sig 4 kg af vöðva. Þarna er verið að tala um 10 kg breytingu sem er alveg gífurlegt stökk en þetta sér fólk ekki þegar það er aö æfa sjálft," sagði Sölvi. Hann mælir með slík- um mælingum mánaðarlega. -ingo Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila. Birt með fyrírvara um prentvillur. Sunna Hlín Jónsdóttir, Rðgnvaldur Axelsson, Aðalbjörg Ásgötu 21, Hraunbæ 53, Valdimarsdóttir, Raufarhöfn Reykjavík Skúlabraut 45, Blönduósi Hjördís Jónasdóttir, Lðra Ólafsdóttlr, Birkigrund 55, Lóurima 23, Signý Gisladóttir, Kópavogi Selfossi Ránargötu 33a, Reykjavík Hólmar Daði Skúlason, Játmundur Árnason, Gilstúni 18, Jaðarsbraut 11, Sauöárkróki Akranesi — rgs^ur ðfí3 v f.að vinnmga hjá HappdraHti Háskola lígfftfSfigl ;j 4-25. ‘ 3'"i-gr*.. *. C-l Sc\.v'iViL. Simi 563 8300. Sandkorn x>v Fréttaskotin fara víða Það hefur ekki farið ffarn hjá neinum að ekki ríkir sátt og sam- lyndi milli fólks í V-Landeyja- hreppi. Þar hafa ýmsir sótt hart að oddvit- anum, Eggert Haukdal, sem aftur verst fim- lega og gefur hvergi eftir. Nýjasta kæran á hendur odd- vita er vegna slæmra rotþróa sem komið var upp við hvern bæ í sveitinni í fyrra. DV hefur skýrt frá öllum þessum væringum í sveitinni og lika rotþróadeilunni. Síðastliðinn miðvikudag var boðað til hrepps- nefndarfundar í V- Landeyjum. Ein- ir átta liðir voru á dagskrá fundar- ins. Einn þeirra vakti nokkra at- hygli en það var 4. liður dagskrár- innar. Hann nefndist: „Fréttaskot, skrif og kærur vegna lagningar rot- þróa.“ Hvað gerir Hörður Sigurgestsson þá? Árni Leifsson, sem rekur vöru- flutningafyrirtæki á ísafirði, er kunnur athafnamaður og dugnaðar- forkur sem ekki læhu: hlut sinn fyrir nein- um. Eimskipa- félag íslands hefur sem kunnugt er ver- ið að kaupa upp landflutn- ingafyrirtæki hvert af öðru. Einhverjar við- ræður munu hafa átt sér stað milli Eim- skips og Áma. Allavega sendi Eim- skip tvo unga „uppa“ vestur á firði til að skoða fyrirtæki Árna Leifs- sonar. Þeir komu síðla dags, bók- uðu sig á hótel og fóru á fyllirí um kvöldið. Daginn eftir mættu þeir illa þunnir í „uppafrökkunum" í fyrirtæki Árna og spurðu: „Hvar er draslið?“ Þeim var þegar í stað hent á dyr. Ámi var síöar spurður hvort það væri rétt aö Eimskip væri að kaupa fyrirtæki hans. „Það veit ég ekki en ef Eimskip kaupir vöru- flutningafyrirtæki Áma Leifssonar hvað ætlar Hörður Sigurgestsson þá að fara að gera?“ Buckinghamhöll Mikiö hefur gengið á hjá 1. deild- ar liðunum í körfuknattleik hvað mannaskipti útlendinga varðar. Flest félögin, ef ekki öll, hafa skipt um útlendu leik- mennina og sum oftar en einu sinni. Menn segja að það geri orðið arðbært fyrir þau að stofna feröaskrifstofu. Tindastóll á Sauðárkróki skipti um út- lending á dög- unum. Sá sem kom heitir Wayn Buckingham. Miklar vonir em við hann bundnar. íþróttahús Tindastóls hefur verið kallaö Síkið. Nú segja gárungar fyrir norðan að ef nýi leik- maðurinn uppfyllir ýtrustu vonir manna i körfúknattleiknum verði íþróttahúsið skirt upp og kallað Buckinghamhöll. Prestastéttin Séra Sigurður Ægisson var eitt sinn prestur á Djúpavogi. Þá var hann eitt sinn fenginn til að mála skólann og leggja nýja gangstétt þar fyrir framan. Stéttinni var fljótlega gefið nafnið Presta- stéttin og þótti hún afar gíæsi- leg. Séra Sig- urður er snjall hagyrðingur og um þessa stétt, prestinn sjálf- an og Hjalta nokkum, sem sá um sorphirðu í plássinu, orti séra Sigurður. Hjalti gamll hirðir sorpið og hendir í sekki. Prestastéttin prýðir þorpið en presturinn ekki. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.